Morgunblaðið - 06.09.1952, Blaðsíða 2
2
UORGIJNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. sept. 1952
MmjmsæUíft æskustöðv'
arnar eftir sexiíu ár
UNDANFARNAR vikur hefur dvalizt hér á landi Hermann Elías-
son, sem ættaður er frá Súðavík í Álftafirði, en hefur dvalið mest-
an hluta aldurs síns í Noregi.
HEFLP FAHIÐ VÍÐA
Hermann er fæddur í Súðavík
1872 og er sonur Elíasar Eld-
járnssoriar, er var skipasmiður í
Hnífsdal, og konu hans, Hildar
Kolbeinsdóttur. Hann fór til
Noregs á 19. ári með hvalveiði-
skipi Tómasar Amlies, er hafði
um skeið hvalveiðibækistöð á
Langeyri við Álftafjörð, en hjá
honum hafði Hsrmann unnið
um tíma. — Er til Ós-
lóar kom, hóf hann að leggja
•stund á vélsmíði og kom Amlie
honum á vélsmiðju í Osló. Þrátt
fyrir lítið kaup — 10 aura á
tímann — var hann þó aflögu-
fær, en stundaði samt sjóinn með
nárni sínu og réðst sem kyndari
á ýmiss skip. Að náminu loknu
gerðist hann 2. og 3. meistari á
norfekum skipum, en 1911 varð
liann 1. meistari á kanadisku land
hel|isgæziuskipi og hafði það
t<tarf með höndum um eins árs
skeið. 1934 varð Hermann 1.
meistari á norsku 10.000 tonna
olíuskipi, Liss að nafni, er sigldi
iii allra heimsálfanna nema
Ástralíu, svo að sjá má, að víða
hefiir hann komið við, enda
fitarfsdagurinn langur.
VAE HÉR 4 DAGA 1906
Hermann hefur aðeins komið
einu sinni til íslands síðan hann
yfirgaf landið í æsku. Var það
konungskomuárið 1906. Var hann
Jþá vélstj. á norsku kolaskipi,!
senj hingað kom og hafði aðeins ,
fjögurra daga viðdvöl. Þrátt fyr-
ir það taLar hann íslenzku svo
prýðilega vel enn þá, að varla
mundi nokkrum ókunnugum
?' \ ' I
y
tlermann Elíasson.
koma til hugar, að hann hafi ver-
ið fjarri ættjörð sinni upp undir
60 ár.
Hermanni var boðið hingað til
æskuheimkynnanna af systkina-
börnum sínum, en fer í dag aft-
ur heim til Noregs, þar sem hann
býr ásamt fimm börnum sínum.
Hekia fiylur hingað
frá Spáni
GARBYRKJUSKOLINN að
Reykjnm i' Ölfusi leggur nú
drö? að því að fá hingað til
lamlsins suðrænar aldin-
plöntur frá Spáni. Er von á
fimm tegundum með Ileklu,
þegar skipið kemur úr Spán-
arför sinni. Hér er um að
ræða appelsinutré, mandar-
ínutré, rubus, jirunus og fik-
us. —
Unustemn Ólafsson, skóla-
stjóri, skýrði hlaðinu frá
þessu i gær, er það átti tal
við hanu.
Appelsínu-, kaffi- og anan-
as-plönturnar, sem Hal Link-
er færði skólanum að gjöf,
virðast ætla að dafna vel í
hinu nýja heimkynni að
Revkjum.
laefjoii II!
%% 3§ leita sír iækninf
Sfutt samtal viS Lady Shepherd,
Æilcir að rila greinanr
am ísland i Le Monde
FRANSKUR blaðamaður, Michel lítil, en vonar að greinar hans
Drengur meiddisl
í ^mfarðarslysi
í FYRRADAG slasaðist piltur
lítillega í umferðarslysi á gátna-
mótum Frakkastígs og Laugavegs
Hann heitir Eivar-Heiðar Þor-
valdsson. Var hann á fcrð niður
Laugaveg á reiðhjóli sínu, sem
er knúið hjálparvél. Er hann
nálgaðist Frakkastíginn var bif-
reiðinni R-3433 ekið upp Frakka
stíg. Sá bifreiðastjórinn drenginn
á reiðhjólinu, en taldi sig hafa
tlma til að komast á undan hon-
um inn á Laugaveginn. Svo reynd
ist þó ekki og stöðvaði bifreiðar-
stjórinn á gatnamótum. Dreng-
utinn sem óttaðist árekstur,
beygði snögglega undan til hægri
upp Frakkagtíginn, en mun hafa
missf stjörn á' reiðhjólínu við
j það. Lenti hann á rúðu Matar-
búðarinnar, sem þó brotnaði
j ekki. Meiddist hann á hendi og
marðist á hné.
Halrnon að nafni, og kona hans,
Lafþ ferðast um ísland að und-
anförnu til að kynna sér íslenzkt
þjóðlíf, en blaðamaður þsssi
kemur hingað á vsgum franska
stó^blaðsins „Le Monde“, sem
liann mun rita fyrir greinar um
ísland. Sömuleiðis mun hann
rita greinar fyrir blöðin „Laj
Stampa“ í Torínó og „Le Soir“
í Briissel. _ <-t-
HEFUR FERÐAST VÍDA
— Ég hef oft áður farið í slík-(
ar ferðir fyrir „Le Monde“, segir
hann. Fór t. d. í fyrra til Spánar
c»g Marokkó. Hef ég ferðast um
mestaila Vestur Evrópu. ísland
er alveg ólíkt, öllum hinum Ev- (
róp'ulöndunurn. Við fórum í sér-
staka skemmtiferð með Pierre
Susini sendiráðsritara við franska
sendiráðið íil Norðurlands.
— En hvað hafið þér dvalizt
lengi hérna?
— Fyrst ætlaði ég að vera hér
þrjá vikur. En ég komst að raun j
um að það var svo margt að f
ískoða, og skrifa um hér, að ég
hlaut að lengja dvölina og er nú
búinn að vera hér 6 vikur.
RITAR MINNST 5 GREINAR
— Ég býst við að rita að
minnsta kosti fimm greinar í „Le
Monde“.\Fyrst verður almenn yf-
irlitsgrein yfir land og þjóð.
Önour verður um landhelgismál
íslands,'byggð að mestu á upp-
iýsingum frá dr. Gunnlaugi Þórð-
arsyni. Sú þriðja verður um efna
í víðiesnu blaði, geti nokkuð bætt
úr. Hinsvegar segist hann undr-
Michel Salmon og frú
ast mjög alla þá vináttu, sem
honum sem Frakka, hafi verið
sýnd hér á landi. Kveðst hann
hrífast mjög yfir því, hve starfið
er lifandi í Alliance Francaise,
hér á landi og hvað Frakkland
á hér marga vini.
Kynnir sér kennara-
mennfun í Bartda-
ríkjunum
GUÐMUNDUR Þorláksson, kenn
ari í náttúrufræði við Gagnfræða
skóia Austurbæjar fer i dag með
Vatnajökli til Bandaríkjanna
ásamt konu sinni. Hann fer í boði
Bandaríkjastjói-nar og á m. a. að
kynna sér lcennaramenntun þar í
landi. Fyrst í stað verður hann
við háskólann í Kyrakuse í New
,-York fylki.
ÉG Á AÐEINS góðar endur-
minningar uin dvöl mína á ís
landi. Mér fannst dásamlegt að
ferðsst hér um, veiða í ánum,
stunda fjallgöngur og kema á
hestbak. Þannig komst Lady
Shepherd m. a. að orði er Mbl.
hitti hana allra snöggvast að máli
í gær á heimili Siguvðar B. Sig-
urðssonar ræðismanns, en frúin
er nýkominn hingað í stutt.a
heimsókn. Eins og kunnugt er,
var maður liennar Mr. Gerald
Shepherd sendiherra Breta hér
á landi árin 1943—1947.
KEMUR TIL AÐ LEITA
SÉR LÆKNINGA
— Hver er tilgangurinn með
ferð yðar hingað að þessu
sinni?
— Ég kem hingað til þess að
leita mér lækninga. Það virðist
e. t. V. vera dálítið einkennilegt
að ég skuli koma hingað alla leið
frá Bermudaeyjum, þar sem við
erum nú búsett. En svo er mál
með vexti, að þegar ég var hér
hafði ég lengi kennt sjúkleika
í hægra fæti. Margir erlendir
læknar höfðu sagt mér að lítil
von væri um bót á honum. En
þá var það, sem ég fór til Snorra
Hallgrímssonar læknis. Hann
gerði síðan uppskurð á fætinum
með svo góðum árangri að heita
má að ég hafi fengið fullan
bata.
Nú er ég komin til þess að
fá hiiðstæða aðgerð á vinstri
fætinum. Ég er viss um að hún
tekst vel hjá þessum ágæta
lækni.
IÍÚA Á BERMÚDAEYJUM
— Við hvaða starfi tók maður
yðar er hann lét af sendiherra-
störfum?
t — Við fórum fyrst heim til
Englands og dvöldum þar um
skeið. En manninum mínum var
ráðlagt að vera heldur í heitara
| loftslagi. Fluttumst við þá fyrst
til Vestur-Indía. En það fannst
[ okkur' vera of langt frá vinum
og vandamönnum og fórum það-
an ti! Bermudaeyja, sem er
brezk nýlenda. Fékk maðurinn
minn þar stöðu í nýlendustjórn-
inni. Við eigum þar heirna í bæn-
urn Hamilton, sem er sennilega
ekki mikið stærri en Hafnar-
Lady Sliephcrd
fjörður. Kunnum þar ágætlega
við okkur. Loftslagið er indælt
og fólkið viðkunnanlegt. Um þaði
bil helmingur íbúanna á Ber-
mudaeyjum eru hvítir menn.
Hinn helmingurinn er þeldökkur.
En lífskjör fólksins eru yfirleitt
góð.
| Svo held ég að ég hafi ekkf.
mikið meira að segja yður, segir
|Lady Shepherd. Ég er þakklát
íslendingum fyrir allt, sem þeir
hafa gert fyrir okkur. Það er
nærri því erfitt að koma hingað,
vegna hinnar miklu gestrisni, seni
maður á allsstaðar að mæta, seg-
ir frúin að lokum.
| Hér heima munu áreiðanlega
margir minnast heimilis hennar
og manns hennar meðan hann var
hér sendiherra Breta.
S. Bj.
hagsmál íslands. Fjórða verður
. amtal við Forseta íslands m. a.
um þáft íslands í samvinnu Norð-
urlandaþjóðanna. Síðasta gr.einin
verður svo um þátttöku íslend-
inga í alþjóðasamvinnu, um þátt-
töku ísiands í Atlantshafsbanda-
laginu og þar á meðal um varn-
-arliðið í Keflavík.
VINÁTTA FRAKKA OG
ÍSLENDINGA
Mr. Salmon segir, að þekking
alrri. i Fraktfl. á íslandi sé mjög
Spánarför Heklu
STRAND- og skemmtiferðaskip-
ið Hekla frá Skipaútgerð ríkisins
leggur í kvöld af stað í sína fyrstu
Spánarferð með hartnær 160
farþega. Fararstjóri verður Magn
ús G. Jónsson, frönskukennarj,
en einnig verður Þórður Albert-
son, umboðsmaður SÍF á Spáni,
sem er búsettur á Spáni og landi
og þjóð vel kunnur með og verð-
ur fús að gefa upplýsingar og
leiðbeiningar. Ætlazt er til að
skipið komi tíl Bilbao 11. sept.
Þar dvelur það skamma hríð, en
siglir síðan til San Sebastian. —
Meðan farþegum gefst tækifæri
til að fara í ferðir suður um Spán,
til Madrid eða Barcelóna, mun
skipið biða í vikutíma í San
Sebastian.
EWDURSKIPAN EGYPZKU
RÍKISSTJÓRIMARINMAR
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
KAÍRÓ, 5 sept. — Ali Maher, forsætisráðherra Egypta, tilkynnfi.
í dag, að tveir ráðlierrar hefðu beðizt lausnar, en fimm nýir hefðu
verið skipaðir og-mundu þeir vinna embættiseiðinn á morgun, laug-
ardag. Annar fráfarandi ráðherranna er verkamálaráðherrann.
* LIDREISNIN KALLAR
Einn nýju ráðherranna er við-
reisnarmálaráðherrann. Megiri-
verkefni hans Verður að sam-
ræma og glæða þróun iðnaðar og
landbúnaðar í því skyni að bæta
kjör fólksins. 1
Ekkert viðfangsefni nýju stjórn
arinnar er eins aðkallandi og
skipting jarðeignanna, sem her-
inn rekur á eftir. )
Lesfa lil úfflutnings
AKRANESI, 5. september: — Tvö
skip, Dettifoss og Vatnajökull,
komu hér í dag og lestuðu ýmsar
afurðir iil útflutnings.
Dettifoss lestaði 350 tonn af
hvaikjöt-i, sem hann flytur til
Engiands. Auk þess 40 tonn af
karfamjöli og 30 tonn af harð-
fiski.
Vatnajökull léstaði 1700—1800
kassa af frosnum fiski. Bæði skip
in fóru héðan í kvöld. — Oddur.
Guðmundur Þorláltsson
Guðmundur hefir kennt nátt-
úrufræði og eðlisfræði í Gagn-
fAeðaskóla Austurbæjar í s.l. 11
ár. Hann var í rannsóknarferð í
norð-vestur Grænlaridi, þegar
styrjöldin brauzt út og samgöng-
ur stöðvuðust við Danmörku. Var
hann því um kyrrt í Grajnlándi
öll styrjaldarárin og hafði m. a.
á hendi kennslu í kennaraskól-
anpm í Godthaab, en prófi lauk
hann við Hafnarháskóla.
Tvö fyrirfæki hlufu
viöurkennlngu
í FRÉTT blaðsins í gær um verð-
laun Fegrunarfélags Hafnar-
fjarðar láðist að geta þess að
tveim verzlunarfyrirtækjum var
veitt sérstök viðurkenning fyrir
fagurt, og snyrtilegt útlit. Voru
það Hafnarfjarðarapótek við
Strandgötu og verzlanir Kaupfé-
lags Hafnarfjarðar við Vestur-
götu og Strandgötu.
BRYDDAR A OÞOLINMÆÐI
Egypzk blöð sýna nú nokkra
óþolinmæði, og þykir standa á
umbótunum, sem lofað var. Eitt
blaðið bendir á, að nú sé mánuð*
ur síðan áætlanirnar voru birtar,
og fólkið sé orðið heldur en ekki
langeygt eftir viðreisninni.
i
REKNIR ÁN MANNGREINAR-
ÁLITS
í dag kom stjórn Wafd-flokks-
ins saman til að ræða stjórnmála-
viðhorfið. Hópur ungra manna úr
ílokknum gaf í dag út yfirlýsingu
þar sem krafizt ér, að allir víki úp
íiokknum, sem grunaðir eru Tirr»
1 óheilindi og spillingu í stjórnmál-
unum. Sé þar ekki farið í mann-
greinarálit. I