Morgunblaðið - 06.09.1952, Síða 12

Morgunblaðið - 06.09.1952, Síða 12
MORGUNBLAÐID Laugardagur 6. sept. 1952 f 12 Fyrsti fundurinn LUXEMBORG, 5; sept. — Jean Monnet, sem er stjórnarformaður evrópsku kola- og stálsafnsteyp- unnar, tilkynnti í dag, að hann hefði kallað saman ráðgjafarsam kundu fyrirtækisins til fundar í Strassborg á miðvikudag. Það er fyrsta sinni, sem þessari sam- kundu er stefnt saman. Blóðeitrun í skóla- bömum í Tóledó TÓLEDÓ — Að undanförnu hafa laéknarnir í Tóledó haft óvenju- mörg skólabörn til lækninga vegna blóðeitrunar. Það hefir komið á daginn, að stelpur og strákar sker eða brenna upphafs- stafi unnustans eða unnustunnar á handlegginn á sér. Oft kemur illt í sárið, jafnvel blóðeitrun. Surtla frá Herdísarvík ALLIR kannast við síðasta heim- ili Einars Benediktssonar, Her- dísarvík. Þar fæddist einu sinni svart lamb. Það lifði af blóði móður sinnar, yl hennar og um- hyggju. Ekki varð sú sælutíð löng. — Móðirin veiktist og dó eða féll fyrir hendi einhvers manns. Eng- ar ábyggjur hafði svarta lambið af framtíð sinni. Það óx og vit- gaðist á sína vísu. Islenzk nátt- úra talaði til þess og sagði: „Ég skal taka þig að mér. Sá eigandi ej fæðir fugla loftsins, mun líta eftir þér“. Þessa rödd nam ,,Surtla“ ung, elskaði hana og þáði þar sína lífsorku, vel úti- látna. Mennina þurfti hún ekki að biðja um neitt og vildi helzt vera laus við öll þeirra viðskipti. Surtla rataði sína hamingju- leið. I stórbrotnu umhverfi fjall- anna háði hún lífsstrið sitt, til sigurs og sæmdar. Enginn vissi það betur en Surtla hvað fjallið var hlaðið náðargjöfum og víst voru þessi 5—6 ár hennar oft unaðsleg. Svo var það einn dag að Surtla lá sæl og áhyggjulaus í grænni laut við stóran stein. Þá heyrði hún menn hóa og hunda þeirra gélta. Þar heyrði hún tal- að um „bölvaða svörtu rolluna“, sem þeir vildu endilega finna. Surtla hrökk við. Hún horfði á stóra steininn, klettinn, sem hafði reynzt henni svo öruggt skjól. Hann hafði verið heimili hennar og athvarf, geymt henni græn strá undir snjónum alla þessa vetur, en enn fór svo að Surtla faldi sig í skjóli hans. Þokan og stóri steinninn skyggðu á Surtlu svo leitarmennirnir fóru fram hjá í það skipti. Æfilok hennar vitum við nú. Hún var -hrakin frá sínu bless- aða heimkynni, nær byggðinni, en þar tók hinn voldugi, hvíti maður við og sendi henni sín skeyti., í fjörbrotum sínum mun þettá mállausa dýr hafa sent fjallinu sínar hjartans þakkir, hvatt klettinn sinn, sem eiganda allra gæða. Kvatt hann eða heilsað honum, að nýju. Húsfreyjan í Herdísarvík hef- ur ábyggilega vorkennt syörtu flóttakindinni sinni. Hún hefur skilið ráðstafahir sauðfjársjúk- dómanefndar, framlag rikissjóðs og ákefð einstakra .manna að öðlazt þær 2000 krónur. En hetju- dáðir Surtlu, líf hennar og dauða stríð, hefur náð lengra, því það er nú svo, að dýrin okkar eiga sitt aðdráttarafl og góð húsmóð- ir kann einnig „að .unna“ þeim, Þarna skulum við líta á ljóðlínur Einars Benediktssonarv „Hugann grunar. Hjartað finnur lögin. Heilinn . ..greioir. skemnjpa. gn nemur taugin. Kristín Sigfúsdóttir, ]__. frá Syðri-VÖllum. Ferðafélag Islands efnir fil alhliða Ijósmyndasýningar Verður opnuð um mánaðamófin október-nóvember ITM mánaðamótin október/nóvember minnist Ferðafélag íslands 25 ára afmæhs síns með alhliða ljósmyndasýningu fyrir ahugá- menn. Sýningin verður haldin í Listamannaskálanum. Ferðafélag ís'ands hefur áður efnt til þriggja ljósmyndasýninga fyrir áhuga- .nienn og jafnan í tilefni af slórafmælum, fyrst á 5 ára afmæli fé- ,’agsins 1932, þá á 10 ára afmælinu 1937 og loks á 20 ára afmælinu ♦............-....' . 1947. — Á 6. ÞÚSUND SÓTTU SÍÐUSTU SÝNINGU j Sýningar þessar hafa orðið vin- sæll liður í starfsemi Ferðafélags íslands, auk þess sem þær hafa orðið til að vekja áhuga fjölda manna og kvenna fyrir ljósmynd- un — hvernig þær skuli teknar' og gerðar. Hefur jafnan verið góð þátttaka í öllum sýningunum og aðsókn að þeim mjög mikil. Siðustu sýningu, sem haldin var í Listamannaskálanum 1947, sóttu hátt á 6. þúsund manns, en þar voru sýndar nær 400 ljós- myndir, teknar af 25 mönnum og konum. ENGIN SKILYRÐI Þátttaka í sýningu félagsins í haust er öllum áhugaljósmyndur- J um heimil og ekki nein takmörk sett um fjölda ljósmynda. Nefnd- J in áskilur sér rétt til þess að ■ velja milli mynda og hafna, ef J þörf krefur, t.d. ef mikil þátt- ! taka verður, eða ef myndirnar , þykja ekki sýningarhæfar. Ekki er ætlast til að þarna verði mynd ir sem sýndar hafa verið annars staðar áður, en að öðru leyti eru engin skilyrði eða reglur settar varðandi vali þeirra eða gerð. í ÞREMUR FLOKKUM Sýningarmyndunum verður raðað í 3 flokka. 1. Landslags- myndir, 2. litskuggamyndir og 3. aðrar ljósmyndir og verða verðlaun veitt í öllum flokk- um. — Myndirnar á að líma á pappa (karton) og skal stærð hans vera sem næst 35x40 Sm, en að öðru ieyti cr hverjum sýnanda í sjálfsvald sett um stærð sjálfra mynd- anna. — Litskuggamyndirnar skulu efstar á milli glerja. Síðasti frestur til þess að til- kynna þátttöku í sýningunni og skila Ijósmyndum er að kvöldi 20. okíóber n.k. í skrifstofu Ferðafélags íslands, Túngötu 5. Eiga myndirnar þá að vera merktar heiti (á bakhlið) og fullu nafni og heimilisfangi sýn- anda. — Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins. — Chou En lai Framh. af bls. 8 að reyna að miðla málum en för hans var unnin fyrir gíg. DRÓ TIL FRIÐSLITA Árið 1946 hélt Chou á brott úr herbúðum Chiang Kai-sheks fyr- ir fullt og allt og styrjöld brauzt út á milli þessara tveggja aðila. Urslit hennar eru öllum kunn. Öfl þau er stóðu að baki Chou og sam starfsmanni hans Mao Tse-Tung, urðu herjum marskálksins yfir- sterkari og kommúnisminn flæddi yfir landið. Svo standa málin nú í dag, en allt bendir þó til þess að ógnarstjórn sú, er kommúnistar hafa kómið á fót í Kína undir nafni alþýðulýðveld- isins, eigi sér ekki langa daga. VÖLT í SESSI Kína hefur ávallt verið land, sem auðvelt hefur verið að sigra á skömmum tíma, en stjórnir þar hafa verið hvað lausastar í sessi af öllum ríkisstjórnum. Fullyrða má, að svo er einnig um kommún- istastjórnina, er ekkert bolmagn hefur til gagngerra breytinga á' kínverzku þjóðfélagi, en situr mestmegnis að völdum í skjóli hersins. Meðan svo er rnun Chou En-Lai stýra utanríkismálum lands síns í samræmi við skólun sína og lífsbaráttu, samkvæmt línunni frá Moskvu. Tollarar béru sigur af hélmi HINN árlegi knattspyrnukapp- lgikur Tollstjóraembættisins í Reykjavik og Bæjarstjórnarskrif stofunnar fór fram í gær á Grím staðaholtsvellinum, Hófst hann 15 mín. fyrir sjö og lauk með glæsi- legum sigri Tollstjóraembættis- .ing. 1 mark gegn 0. Þar með vann To.llstjóraembættið aftur bikar þann sem það missti í hendur Bæjars*jórnarskri;£stofunnar s.l. sumgr. Leikurinn fór prúðmann ' lega fram. Vindstaða var logn. Áfján skotnir níður á fveimur dögum TÓKÍÓ, 5. sept. — Vélflugur S.Þ. vöypuðu í dag niður 227 smálest- um af sprengjum og íkveikju- sprengjum í námahéruðunum í grennd við landamæri Mansjúríu. Skutu flugmenn S. Þ. niður 5 , rússnesk-smíðaðar orrustuflugur fyrir kommúnistum. I loftbardögum yfir Norðvest- ur-Kóreu í gær skutu flugmenn S. Þ. niður 13 vélflugur kommún- ista. Voru vélflugur kommúnista svo margar, að ógerlegt var að koma á þær tölu. - Iðnsýningin Fri««ih. af bls. 1 ÁFRAMHALDANDI ÞRÓUN Með hinum auknu rafvirkjun- um og innreið stóriðju á íslandi virðist fyrirsjáanleg enn aukin þróun iðnaðarins. Ilúsnæði það sem sýningin hefur nú til umráða í Iðnskólanum er að gólffleti 3600 fermetrar. Þegar næsta sýn- ing verður haldin má búast við að ekki nægi minna en 6000 fer- metrar. Og þá vaknar spurning hvort ekki er kominn tími til að koma hér upp sýningarskála, eins og tíðkast í öllum menningar- Iöndum, segir Guðbjörn að lok- um. SAMSTARF AÐ BAKI SÝNINGARINNAR Þessir aðilar standa nú að Iðn- sýnirgunni: Landssamband iðn- aðarmanna, Félag ísl. iðnrekenda, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Samband íslenzkra samvinnufé- laga, Reykjavíkurbær og Iðn- sveinaráð alþýðusambands ís- lands. Heimta giæpamann framseldan \ LUNDÚNUM — Rússnesk yfir- völd hafa krafizt þess, að lið- hlaupi úr rússneska herrtum, Da- videnkó að nafni, vérði þeim framseldur, en hann afplánar nú fangelsisrefsingu á brezka her- námssvæðinu. Davidenkó ílýði árið 1948 til Vestur-Þýzkalands, og veittu Bretar honum hæli sem pólitískum flóttamanni. Síðar gerðist hann sekur um glæpsam- legan verknað og var dæmdur til 11 ára refsivistar. Málaleitan Rússa er til athugunar, segir brezkur talsmaður. Reuter-NTB - Kirkjuþing Framh. af bls. 6 AÐSTOD VIÐ FLÓTTAFÓLK — Það sem nú ber mest á í starfi þýzku kirkjunnar, segir sr. Pétur, er aðstoðin við flóttafólkið. Það má heita að lítið annað kom- ist að en hjálpin til þessa fólks, enda þarfnast flóttamannavanda- málið skjótrar úrlausnar — og liggur í hlutarins eðli, að kirkjan komi þar mikið við sögu. Því þó járntjaldið eigi að vera lokað, er stanzlaus straumur yfir marka línuna milli Austur- og Vestur- Þýzkalands. — Það eru aðallega þrjár stöðvar, sem taka við flótta fólkinu. Ein er við Hannover, ein i Vestur-Berlín og ein í Giessen. — Ég kom til Giessen, segir sr. Pétur, og sá þar með eigin aug- um þá miklu neyð og hörmung- ar, sem eiga rót sína að rekja til járntjaldsins. Kirkjan sýnir mátt sinn í verki í aðstoðinni við þetta fólk. Starf- rækir hún fjölda heimila fyrir það, útvegar því atvinnu og fleira, gerir í fáum orðum sagt allt, sem í hennar valdi stendur, því til hjálpar, svo að draumur þess geti orðið að veruleika — að eignast heimili 1 Vestur-Þýzka landi. ÍSLANDSVINUR — í Giessen er mikill íslands-_ vinur, sagði sr. Pétur að lokum, Dekan Schubring. Hann var hér á ferð í fyrra og prédikaði fyrir þýzkt fólk. Síðan hann kom heim hefir hann flutt fjölda erinda um ísland og íslenzk málefni. Mun hann ef til vill koma hingað aftur næsta sumar og heimsækja Þjóð- verja hér. ■—Þbj. , LOFTLEIÐIS MED LOFTLEIÐIJM Vikulegar ferðir: REYKJAVÍK—NEW YORK _ KAUPMANNAHÖFN STAVANGER — og áfram með sömu flugvél til HAMBORG GENF RÓM — og Austurlanda FYRIRGREIÐSLA GÖÐ — Í ARGJÖLD LÁG LOFTLEIÐIR H.F. LÆKJARGATA 2 SÍMI 81440 Markús: Eftir Ed Dodd. \^:w-.,yuuLL t / fim6 V AT TW0 V, PIVEDBIOe ( CCUMTpy . A c:_us, -d l) ll-it UJCK IN Utt-h- CWATTCS A EYES. l-IT'3 GO'NG TO b, N W; PROPOSEÍ To CREOpy Wi-íS TONIGHT/ . /•"/ 1) Þegar Markús kemur til. herra miiin, að maður skyldii bprgarinnar fer hann í fatabúð og kaupir sér fallegan alklæðn- að. — Þér eruð í svo góðu skapi halda að þér ætluðuð að fara. að gifta ýður. 2) — Það er einmitt það sem ég ætla að fara að gera. Ég er rirtnnr og ætla að koma stúlkunni minni að ó- vörum. 3) — Er Sirrí Davíðs við? — Néi, hún er úti í Fljóts- bdkkáklúbb. • 4) Á meðan. — Sjáðú þau báía. Ég ev víss um, að í kvöld biður hennar. arv6£ Jafet

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.