Morgunblaðið - 21.01.1953, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.01.1953, Blaðsíða 10
I 10 MORGUTSBLAÐJÐ Miðvikudagur 21. jan. 1853 ii'iiiaiiiiiumunmmmia ninmiiiiiiiiiint Hamingjan í hendi mér *»._ Skáldsaga eítir Wmston Graham Hii(iiii<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini*niiiii Framhaldssagan 24 Þar keypti hann kvöldblað og fór yfir Westminster Bridge. Það var farið að rigna og þegar hann var kominn á miðja brúna nam hann staðar til að spenna upp regnhlífina. Ég hægði á göng- unni en stöðvaði ekki. Það var betra að vera nær honum þegar farið var að dimma. Þegar yfir brúna kom beygði hann til hægri. Það var orðið mannfátt því að við vorum komn ir af aðalgötunum. Ég var orðinn rennblautur af rigningúnni. Við vorum á stað þar sem hús- in höfðu verið sprengd í loftárás- um og ekkert var umhverfis nema steinhnullungar og gras- stúfar á milli. Ég hraðaði ferð- inni, náði honum og tók í hand- legg hans. „Þér eruð komnir af réttri leið“, sagði ég. Hann reyndi að losa handlegg- inn. „Þér græðið ekkert á því að elta mig“. Hann hvessti á mig augun og gleraugun hristust á nefinu á honum. „Segið mér, hver það er sem sendi yður?“ Til allrar hamingju var gangstéttin orðin blaut svo að ég heyrði fótatakið á bak við mig, þótt gengið væri á gúmmísólum. Eg hlýt að hafa beygt mig ein- mitt á réttu augnabliki því járn- stöngin lenti á milli herðablað- anna á mér, svo að ég sá stjörn- ur. Ég sneri mér við og sló af öllu afli og hitti einhvern. Ég hafði aldrei á ævi minni slegið svona fast. Maðurinn hvarf líka niður í grjótið, en ég tók til fótanna á eftir Jerome. Ég náði honum undir Ijóskeri. Nú var mér orðið sama hvort nokkur sá til okkar. Ég sló til hans svo að hann féll við á hnén. Svo þrýsti ég honum upp að veggnum, tók um hálstauið hans og sneri upp á. „Jæja, hver sendi þig .... út með það?“ „Varlega“, stundi hann. „Hjart að .... ég er Újartveikur „Svona .... út með það“. Hann varð allt í einu máttlaus og ég lét hann detta. Hann var orðinn náhvítur í framan eins og veggurinn og ég hélt að ég hefði gengið of langt. Ef hann var dauður var mér réttast að hypja mig og það stráx. Þá heyrðist í lögregluflautu. Ég stóð upp bg um leið bærði Jerome á sér. Ég beygði mig nið- ur aftur, tók utan um hálsinn á honum og hristi hann. „Hvað heitir maðurinn?" -//— Fólk stóð í þyrpingu við ljós- kerastaur nokkuð frá. Lögreglu- þjónn kom gangandi í áttina til okkar eftir auðri götunni og skimaði í kring um sig. „Ég sver það“, sagði ég, „að ef þú segir mér ekki tafarlaust hvað maðurinn heitir, þá skal ég gíera út af við þig áður en hjálp kemur“. Hann sagði eitthvað, sem mér heyrðist vera „Suss“. „Hvað?“ „Fis. ...“ „Hvað heitir hann“. „Eg er búinn að segja það. Fisher“. „Clive Fisher?" Hann kinkaði kolli og ég sleppti honum. Lögregluþjónn- inn sá mig um leið og ég stóð upp. Ég sneri við og tók til fót- anna. Hann kallaði og hljóp á eftir mér. Ég hljóp yfir klungur og grjót og hann blés sífellt í flautuna. Ég var nærri búinn að flækja mig j f þvottasnúrum og fór í hringi í j kríng um öskutunnur. Loks kom ég að vegg, þar sem hægt var að komast yfir. Svo fór ég upp eitt-! hvað bratt og skellti mér niður endilöngum, um leið og lest kom þjótandi eftir teinunum. Um leið og hún var farin fram J hjá, skauzt ég yfir teinana og niður hinum megin. Og þar hljópl ég áfram eftir árbakkanum. Eftir fimm mínútur nam ég staðar til að kasta mæðinni. Köllin voru komin í fjarska. Loks náði ég í leigubíl og bað hann um að aka heim á gistihús- ið. — Mér létti þegar ég sá að bíllinn stóð fyrir utan. Ég fór inn og spurði um Söruh. Mér var sagt að hún væri að borða kvöldmaí. Ég strauk hendinni yfir hárið á mér og fór beint inn í salinn. Ég hlýt að hafa verið ófrýni- legur ásýndum, því að yfirþjónn lyfti brúnum, þegar hann sá mig og Sarah hálf-reis upp úr sætinu þí^ar ég kom. „Oliver, hvað er að?“ „Ekkert“. Ég settist í sæti mitt. Hrói höttur snýr aftur eítir John O. Ericsson 103. — Herra, sagði pilturinn. Þú ættir ekki að láta hengja mig, því að ég get gert þér greiða. Það geri ég þó aðeins með því skilyrði, að ég fái að fara frjáls ferða minna. Ég get sem sé opnað borgarhliðið fyrir ykkur- — Ertu genginn a/ vitinu? gortarinn þinn. Meinarðu, að þú getir hleypt okkur inn í kastalann? — Öllum með tölu, herra. En fyrst verðurðu að lofa að drepa mig ekki. — Óðara og þú hefur hjálpað mér inn í höllina, ert þú frjáls maður og getur farið hvert á land sem er. Merchandee greip í öxlina á piltinum og hristi hann. — Út með það, sem þú veizt, hundinginn þinn, öskraði hann. Og mundu, ef þú leynir okkur einhverju, þá brýt ég hvert bein í þér. — Láttu mig vera, herra, sagði pilturinn og reyndi að slíta sig lausan. Hvernig heldurðu, að ég geti sagt þér það, sem ég veit, ef þú heldur mér svona fast? — Slepptu honum, Merchandee, sagði sýslumaðurinn. Hann veit það ósköp vel, að fara með svik, er sama og að missa lífið. Ætlarðu að opna hliðið fyrir okkur, drengur? — Nei, herra, svaraði pilturinn, þegar Merchandee var búinn að sleppa honum. Ríkarður hefur sjálfur lyklana að hliðinu, og ég veit ekki hvar hann geymir þá. En ég veit um annan stað, þar sem þið getið allir komizt inn fyrir varnargarðinn. — Segðu okkur þá frá honum, sagði sýslumaðurinn. Það er komið fast að miðnætti, og tími til kominn, að við höfumst eitthvað að. BUSENDINGAR , Vörusendingar, sem flytja á með flugvélum vorum frá Reykjavík til staða úti á landi^ skulu fxamvegis vera komnar til vöruafgreiðslu félagsins á 'íteykja- víkurflugvelli eigi síðar en klukkutíjma- fyrir brott- för flugvélar. Að öðrum kosti mega -sendendur vara, búast við því, áð þær þurfi að bíða næstu flugferðar/ Flugfélag Islands h.f. útasala XJerzí. JínaiL n^i^ar^ar ^j/oh Lækjargötu 4 nóon íl- Penincgaskápisr Lítill peningaskápur óskast keyptur. Tilboð til afgr. Mbl. „B. B. — 803“, fyrir mán- aðamót. — Barnasokkar ullarsokkar kvenna, kjóla- efni frá kr. 34,00 m., kápu- efni, vírblúndur. A N G O R A Aðalstræti 3. Sími 1588. Atvinna Ung kona óskar eftir at- vinnu við búðarstörf sauma- skap eða hliðstæða vinnu. Tilboð merkt: „Reglusemi — 802“, leggist á afgr. Mbl. fyrir laugardag. Skrifstofuherbergi óskast Þarf ekki að vera mjög stórt, æskilegast í Miðbæn- um eða við hann. Uppl. í síma 82168, milli kl. 2—4. íbúð óskast 1 herbergi og eldhús ósk- ast til leigu strax. Uppl. í sima 1660 milli kl. 10 og 12. Tvö HERBERGI TIL LEIGU fyrir barnlaust fólk. Mætti elda í öðru. Verð: 600,00 kr. á mán. Fyrirframgreiðsla fyrir 1 ár. Upplýsingar í Barmahlið 33 kl. 6—8. Til sölu er ameriskur kæliskápur Norge, 4ra ára model. Tilboð merkt: „867 — 804“, send- ist afgr. Mbl. KEFLAVÍK STOFA óskast í Keflavík eða ná- grenni. Til leigu lítil íbúð í Reykjavík. Tilboð óskast send Mbl. fyrir kl. 5 laugar dag merkt: „Leiga — 806“. Nýtt, vandað, útskorið SÓFASETT til sölu, Einliolti 2. færisverð. Tæki- BILL með stöðvarplássi óskast til kaups. Upplýsingar í síma 4131. —- Bezt að auglýsa I Morgunblaðinu - NYKOMIÐ Doppótt eldhúsgardínnefni (Organdi). Breidd 90 cm. Verð kr. 24.95 m. Einnig bleyjugas breidd 150 cm. — Verð kr. 8.90 m. Anna Gunnlaugsson Laugaveg 37, sími 6804. Ullarsokkar Barna- unglinga- og kvenna Vefnaðarvörubúð Vesturgötu 4. 1 da§ o@ á morgun seljum við verulega gott taft moire svart og dökk- blátt á kr. 30.00 pr. meter. Freyjugötu 1, simi 2902. TAKH) EFFIR Getum nú aftur tekið til við- gerðar allsk. gull og silfur- muni. Smíðum úr brotagulli og silfri. Vönduð vinna. — Fijót afgreiðsla. VALUR FANNAR, gullsmiður, Laugaveg 15. Röskur og ábyggilegur maður oskar eftir atvinnu fljótlega. Er vanur af- greiðslu og skrifstofustörf- um: Önnur vinna kemur einnig til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m., merkt; „Fljótlega — 805“. — Bíeflavík o@ nærsveitir T A K I Ð E F T I R Lítið, nýtt hús til sölu, ef viðunanlegt tilboð fæst. Gott að komast að því, þægilegt til flutnings. Uppl. í síma 9352. — Húsnæði — Ldn eSa fyrirframgreiSsla Ung hjón óska eftir 3—4ra herb. íbúð til leigu, helzt á hitaveitusvæðinu. — Fyrir- fiamgreiðsla eða útvegun á láni kemur til mála. Tilboð merkt: „Ilúsnæði — lán — 793“, leggist inn á afgr. fyr- ir föstudagskvöld. 1. veðréttar- skuldabréf í húseign við bæinn, að upp- hæð kr. 74.000,00, er til sölu af alveg sérstökum ástæð- um. Þeir, sem kynnu að vilja kaupa bréfið, leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. fyrir n. k. laugardagskvöld, mei-kt: — „Skuldabréf — 795“. ^ BEZT AÐ AllGLÝSA A T í MORGUISBLAÐIIHI. V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.