Morgunblaðið - 21.03.1953, Page 6

Morgunblaðið - 21.03.1953, Page 6
6 MORGUISBLAÐIÐ Laugardagur 21. marz 1953 ] Smásaga dagsins: /r A flótta undan kertastjaka jiúrra krakki" í HiégarSi Skopsaga eftir Anton Tschechow MEÐ pakka, vafinn inn í dag- blaði undir hendinni gekk Sascha Smirnow inn á lækningastofu dr. Kosehelkow. „A-ha, sælir, ungi maður“, sagði læknirinn alúðlega, „og hvernig gengur það svo, hvernig hafið þér það, hvað er títt?“ Sashca var mjög óstyrkur, deplaði augunum án afláts, lagði höndina á hjarta stað og stam- aði loks með röddu, titrandi af geðshræringu: „Móðir mín sendir yður sínar hjartanlegustu kveðj- ur og þakklæti .... ég er eina barnið, sem hún á, þér hafið bjargað lífi mínu, læknað mig af ógurlegum sjúkdómi og .... við vitum hreint ekki, hvernig við fáum þakkað yður sem skyldi“. „Oh, sei—sei, ungi maður“, tók læknirinn fram í „ég gerði ekki annað en það, sem hver maður hefcji gert í mínum sporurn". „Ég er eina barnið“, sem móð- ir mín á .... við erum fátækt fólk sem höfum ekki ráð á að endurgjalda yður erfiði yðar og fyrirhöfn eins og þér ættuð skil- ið. Okkur tekur það mjög sárt, herra læknir og þessvegna vilj- um við biðja yður að þiggja af mér og móður minni þessa smá- gjöf sem vott um þakklæti okk- ar. Þetta er mjög dýrmætur hlut- ur, sjaldséður og forn listmunur úr bronsi“. „En þetta er bara hreinasti óþarfi", sagði læknirinn í von um að sleppa. undan gjöfinni. En Sascha tók varlega pappír- inn utan af hlutnum og stillti honum hátíðlega á borðið. Þetta I var meðalstór kertastjaki úr I bronzi með listrænu handbragði, og alla vega útflúri. I Á fótstallinum var mynd af tveimur standandi kvenverum, allsnöktum, sem mig skortir bæði djörfung og viðeigandi hugarfar til að lýsa. Læknirinn virti fyrir sér gjöf- ina um leið og hann klóraði sér hugsandi á' bak við eyrað. Svo ræskti hann sig og saug upp í nefið, á báðum áttum. „Já, þetta er virkilega Ijóm- andi gripur“, tautaði hann loks- ins, „en — hvernig ég á að koma | orðum að því — ef til vill ekki alveg viðeigandi í hvaða sam- kvæmi sem er“. , „Vitaskuld", sagði Sascha, þeg ar maður lítur'á málið með aug- | um fjöldans, þá birtist þetta lista ! verk auðvitað í allt öðru ljósi. En þér, herra læknir — þér verð- ið að setja yður ofar fjöldanum KVOLOVAKA Slysavarnadeildin Hraunprýði í Hafnarfirði héldur hina árlegu kvöldvöku sína sunnudaginn 22. marz kl. 8,30 e. h. í Bæjarbíói. Skemmtiatriði: Skemmtunin sett: Frú Soffía Sigurðardóttir. Dægurlög, Alfreð Clausen. Upplestur. Frú Jóhanna Hjaltalín. Söngur, tvöfaldur kvartett. Sjálfvalið efni. Þóroddur Guðmundsson. Söngur. Sigurður Ólafsson. 7. Leikþáttur. Nefndarfundur. 8. Upplestur. Karl Guðmundsson. Kvartettsöngur. Söngleikur: Burnirótin. Kynnir frú Guðrún Eiriksdóttir. Aðgöngumiðar seldir í Bæjarbíói eftir kl. 3 á morgun, sunnudag. — Sími 9184. KVÖLDVÖKUNEFNDIN. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 9. 10. Safnaðarfundur fyrir Háteigssókn, verður á venjulegum messustað í húsi Sjómannaskólans, kl. 4 e. h., sunnudaginn 22. marz n. k. Fundarefni: KIRKJUBYGGINGIN og önnur safnaðarmál. SAFNAÐARNEFNDIN og það mundi særa mig og móður mína mjög djúpt, ef þér vilduð ekki taka við þessari gjöf. Þér hafið bjargað lífi mínu. Við gef- um yður í endurgjaldsskyni það dýrmætasta, sem við eigum til .... mér þykir aðeins leitt, að við eigum ekki annan kertastjaka hliðstæðan við_ þennan hér . .“. „Þakka yður fyrir, vinur minn, þakka yður kærlega fyrir. Skilið til móður yðar hjartanlegri kveðju frá mér, en sjáið þér nú til og athugið málið sjálfir. Hér eru börn á hlaupUm út og inn, konur í sjúkraheimsóknum....... Nei, í öllum bænum, skiljið þér ekki kertastjakann yðar eftir hér. Það er erfitt að skýra það út fyr- ir yður, en ....“. „Nú, úr því að svona er, hafið þér ekkert að útskýra. Þetta er eins auðvelt og það getur verið“, hrópaði Sascha, glaður í bragði, „látið þér stjakann hér á bak við þennan vasa, þar er hann öld- ungis öruggur. Vandræði, dæma- laus vandræði, að stjakann á móti skuli vanta! Verið þér nú sælir herra læknir, blessaðir og sælir“. Þegar Sascha var farinn, horfði Dr. Koscholkow lengi á kerta- stjakann. Hvað átti hann til bragðs að taka? Átti hann að gefa hann einhverjum eða setja hann á bazar? Loksins datt honum í hug einn góðvinur hans, skopleikarinn Schaschkin, sem hann auk þess skuldaði dálítið af peningum. Þegar sama kvöldið var hinn vandlega innvafði kertastjaki af- hentur Schaschin, skopleikara. En hann yppti öxlum, néri hend- ur sínar og sagði: „Hvað í ósköp- unum skyldi ég bara eiga að gera með slíkan grip. Ég sem bý í leiguhúsnæði. Og ég fæ leikkon- ur í heimsókn, það er ekki eins og að þetta sé mynd, sem hægt er að láta hverfa á einfaldan hátt niður í skrifborðsskúffu!“ „Blessaðir, seljið þér stjaka- ræfilinn", sagði hárskerinn við leikhúsið hans. Ekki langt hér frá er gömul kona, sem verzlar með bronzmuni........ Farið og spyrjið eftir frú Smirnow. Það kannast allir við hana“. Og tveimur dögum síðar, er Dr. Koschelkow sat í rólegheit- um í vinnustofu sinni, var hurð- inni allt í einu hrundið upp og Sascha Smirnow kom þjótandi inn. Hann var ljómandi af gleði. í annarri hendinni hélt hann á einhverju, sem vafið var inn í dagblað. „Herra læknir", byrjaði hann og stóð á öndinni af því, hve honum var mikið niðri fyrir. „Getið þér ímyndað yður hve glöð við urðum? Okkur hefir tekizt að hafa upp á kertastjaka á móti þeim, sem við gáfum yður. Móðir mín er í sjöunda himni .... Ég ( er eina barnið sem hún á. Þér hafið einu sinni bjargað lífi mínu ....“. Leikfélag Hveragerðis sýnir gamanleikinn „Kúrra krakka“ að Hlé- garði í Mosfellssveit í kvöld kl. 9. — Leikurinn heíir verið sýnöur níu sinnum að undanförnu við ágæta aðsókn, og verður sýningum haldið áfram víðsvegar um Suðurland og ef til vill víðar. Ferðir á sýninguna héðan frá Reykjavík eru kl. 8.30 frá Feröaskrif- stofunni. fkjor og hönrl - athyglisverð bók KARLMANNASKÓR. Gott úrval. Verð frá kr. 90.00. KARLMANNASOKKAR — Verð frá kr. 10.00. KVENSKÓR — Fallegt úrval, svartir og mislitir. KVEN NÆLONSOKKAR — Sterkar og fallegar tegundir. BARNASKÓR, — hælbanda úr svörtu lakkskinni og brúnu og hvítu skinni. BARNAHOSUR — margir litir. Lárus Lúðvégsson FYRIR nokkru barst mér í hend- ur bók, sem fullyrða má, að sé í fremstu röð þeirra bóka, sem allir þeir er hafa atvinnurekstur í einhverri mynd með höndum, ættu að kynna sér vel. Á ég hér við bókina Hugur og Hönd, sem er samin af Paul Bahnsen, sál- fræðing, í ágætri þýðingu dr. Brodda Jóhannessonar. Útgefendum bókarinnar ber að þakka ríkulega fyrir þessa ágætu bók, sem mun vafalaust verða1 marglesin sem ein hin besta um allt, er viðkemur sálfræði í sam- | skiptum manna á meðal við öll hagnýt störf, rituð af djúpum i skilningi og vísindalegri ná-j kvæmni, en þó sett fram á auð - skilinn og umbúðalausan máta á látlausu og hreinu máli. Efni bókarinnar skiptist í marga kafla, sem allir hafa að geyma mikinn fróðleik um allt, er varðar samskipti manna á vinnustað. Fullyrði ég, að bók þessi muni hjá ótal mörgum ráðamönnum fyrirtækja og verk- stjórum svara fljótt og rétt þess- ari algengu spurningu: Hvað á ég að gera til þess að bæta rekst- ur fyrirtækisins? Við þessari spurningu munu margir geta fengið ótal mörg svör í bókinni. Þar eru gefin ráð, sem eru hald- betri en aukinn vélakostur, ef verkhyggni og verktækni er lítt numið hjá þeim sem stjórna. Þar er mönnum kennt að þekkja sjálfan sig og hvernig samskiftin frá sálrænu og hagnýtu sjónar- miði eigi að vera meðal vinnandi fólks. Undurstöðuatriði allra hinna dásamlegu verka mannsins er að hugur og hönd starfi saman ó- þvingað hvert af öðru samstillt og þjálfað, þá verður margt ótrú- lega auðvelt. Bókin er meðal annars lykillinn að því að auka stórlega afköst í framleiðslu, án nokkurrar þvingunar. Þvert á móti bendir hún á leiðir, sem sálfræðingar hafa fundið að henta hverjum einstökum best í ótal tilfellum, þar sem beita skal mismunandi gáfum, lægni og öðrum eðliskostum á þann máta, að einstaklingarnir öðlist vinnugleði og hljóti lííshamingju af störfum, sem þeir, án þess að vera leiddir á réttar brautir, mundu fara á mis við í lífinu. íslendingum má vera mikill fengur að þessari bók vegna þess að vinnutækni í íslenzkum iðn- aði og hverskonar framleiðslu er skemmra á veg komin en hjá ná- grannaþjóðunum. Er það ekkl nema eðlilegt sökum þess, hve umræddar starfsgreinar eru ung- ar hér á landi, en hjá frændþjóð- um okkar á Norðurlöndum er al- gengt að verktækni og verkstjórn hafi þróast í fleiri ættliði þannig, að reist er á langri reynslu, því er það ómetanlegt að fá í hendur bók með samþjappaðrí lífsreynslu og speki, bók, sem gæti, ef vel er lesin og rétt metm, lyft ís- lenskri verkmenningu á hærra stig á stuttum tíma. Ég vil ein- dregið benda öllum iðnaðarmönn- um, hvaða starfsstigi, sem þeir eru á, að lesa bókina Hugur og Hönd. Takið í þjónustu ykkar árang- ur af starfi fjölmargra hinna færustu manna, til að bæta sam- búð manna og fegra lífið á þann vísindalega máta, sem vinnusál- fræðin ein getur bent á bæði vinnuþyggjenda og atvinnurek- anda til hagsbóta. Það er ein leið- in til þess að lyfta þjóðfélaginu á hærra menningarstig öllum til gagns og ánægju. Björgvin Frcderiksen. Amerískir vatteraðir, stór númer, — komnir aftur. Verð kr. 484. 1AUGAVEG 10 - SlMI 3387 Ensk hraðritun Stórt innflutningsfyrirtæki óskar eftir stúlku, sem er vel að sér i enskri hraðritun, til starfa. nokkra tíma á viku eftir samkomulagi. Tilboð merkt: „Hraðntun — 419“, sendist afgr. Mbl. sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.