Morgunblaðið - 21.03.1953, Page 10

Morgunblaðið - 21.03.1953, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 21. marz 1953 ÍÞIÓTfI Glæsilegt sundmót haldið 1 Keílavík á morgun Fjöídi Reykvíkinga keppir þar sem gestir. SUNDMÓT Knattspyrnufélags Keflavíkur fer fram í Sundhöll Keflavíkur á morgun, sunnudag, kl. 3 e. h. Þátttakendur eru milli 30 og 40 úr Keflavík, en auk þess keppa 14 Reykvíkingar, flestir úr ÍR sem gestir. Sundmenn frá Keflavík hafa að undanförnu sett svip á sundmót í Reykjavík, en nú gefst Keflvíkingum tæki- f^eri á að sjá sundmenn sína í harðri keppni bæði innbyrðis og við Reykvíkinga. Er því ekki að efa að fjölsótt verður í Sundhöll Keflavíkur á sunnudaginn. ■ Mikill sundáhugi *----------------------- Ekki er með neinu móti hægt að segja fyrir um úrslit í ýmsum sundgreinanna. Á fáum stöðum á landinu er sundáhugi meiri en í Keflavík, en Reykvíkingarnir hafa og æft vel því fyrir höndum er ■’ keppnin milli Reykjavíkur og utanbæjarmanna, sem er eins konar „Iandskeppni" í sundi og vill hvorugur aðilinn láta sinn hlut baráttulaust fyrir hinum. KEPPENDUR ,\ kvennasundunum keppir Helga Haraldsdóttir KR við keflvísku stúlkurnar og ef að líkum lætur munu systurnar Guðný og Inga Árnadætur og Vilborg Guðleifsdóttir veita henni harða keppni. Keppnin í karlasundinu verður ekki síður spennandi. Þar mæta þeir Þorsteinn Löwe UMFK og Magnús Guðmundsson KFK í 400 m bringusundi. I 200 m skriðsundi karla keppa m.a. Gylfi Guðmunds sin ÍR, Helgi Sigurðsson, Ægi og Steinþór Júlíusson KFK og í 50 m baksundi karla þeir Sig. Frið- riksson, UMFK, Björn Jóhanns- són, UMFK og Örn Ingólfsson, ÍR. Auk þess verður keppt í flug- sundi karla og nokkrum ungl- ingasundum. Þróttur vill vera með í Reyhjavíkurmóiinu FYRfR Knattspyrnuráði Reykja- j víkur liggur nú umsókn frá knattspyrnufélaginu Þrótti um heimild fyrir félagið til þátttöku í meistaramóti Reykjavíkur í knattspyrnu. Hefur knattspyrnu- ráðið þegar rætt þetta mál á einum fundi en ákvörðun var frestað. Knattspyrnufélagið Þróttur hef ur fengið heimild til þátttöku í íslandsmótinu og verða með í því í sumar. Væri því óeðlilegt j ef félaginu yrði neitað um þátt- , töku í Reykjavíkurmótinu. rÉssneskri fyrirmynd PRAG, 20. marz. — í fréttum frá Tékóslóvakíu er skýrt frá því, að , tékknesku knattspyrnufélögin hafi verið leyst upp, og er í ráði að stofna önnur, er séu með sama j sniði og rússnesku knattspyrnu- , félögin. 1 Reuter-NTB Imunfélagsméti IBR lýkur í dag STARFSEMI Tennis- og badmin- tonfélags Reykjavíkur hefir ver- ið mjög blómleg í vetur, og heimsókn danska kennarans hef- ir orðið mjög til þess að glæða áhuga fólks á þessar'i skemmti- legu og hollu íþrótt. í síðustu viku hófst hið árlega innanfélagsmót félagsins, og voru þátttakendur milli 40 og 50. Úr- slitaleikirnir eru nú aðeins eftir, og verða þeir eiknir í íþrótta- húsinu að Hálogalandi kl. 5.10 e. h. í dag. Er ekki ósennilegt, að það verði margt um manninn, því að von er á góðum leikjum. Þeir, sem hafa í huga að byrja að leika badminton á næstunni, og hinir, sem þegar eru byrjaðir, ættu ekki að láta þetta tækifæri til þess að kynnast íþróttinni, sér úr greipum ganga. Eftirtaldir úrslitaleikir verða háðir í dag: Tvíliðaleikur karla, meistaraflokkur: Wagner Wal- bom og Einar Jónsson : Þorvald- ur Ásgeirsson og Friðrik Eigur- björnsson. Tvíliðaleikur kvenna, meistarafl.: Bergljót Wathne og Júlíana Isebarn : Unnur Briem og María Þorleifsdóttir. Tvennd- arkeppni, meistarafl.: Unnur Briem og Wagner Waibom : Júlíana Isebarn og Einar Jóns- son. Einliðaleikur karla, meistara flokkur: Wagner Walbom : Einar Jónsson. Tvíliðalcikur karla, 1. flokkur: Ragpar Georgsson og Kristján Benjamínsson : Davíð Thorsteinsson og Árni Ferdi- nandsson. Tvíliðaleikur kvenna, 1. fl.: Guðmunda Stefánsdóttir og Hulda Guðmundsdóttir : Hall- dóra Thoroddsen og Hjördís. Tvenndarkeppni, 1. fl.: Sigríð- ur Guðmundsdóttir og Pétur Nikulásson : Hulda Guðmunds- dóttir og Kristján Benjamínsson. Einliðaleíkur karla, 1. fl.: Guð- mundur Jónsson : Kjartan Magn- ússon. Að lokinni keppni verða afhent verðlun. Enn um skautametin í GÆR (10. marz) komu tvö svör við fyrirspurn minni frá 4. þ.m., annað mjög svo hógvært frá stjórn ISI, en hitt frá hinum góð- kunna íþróttafrömuði, Ármanni Dalmannssyni, Akureyri. ,,Er Ármann furðu stórorður í umræddu svari, eignár mér að- djróttanir í garð Akureyringa og t^lur mig bæði fara með rang- hprmi og sýna fáfræði. Að hætti stórorða manna færir hann engin rök fyrir máli sínu, en játar ó- beinlínis það, sem hann þykist ve.ra að afsanna. Hann viður- kdnnir t. d. að í fréttum frá mót- /inu og í skýrslu, sem send var ÍSÍ, hafi Akureyringar alls staðar miðað við þau met, sem þá voru staðfest, þótt þeir hafi mátt vita ai|S metaskýi-slur voru á leiðinni (gða komnar) til ISI um mun bétri árangur en náðist nyrðra. Þetta köllum við nú að fara vís- vitandí með blekkingar. Þá við- urkennir Ármann að sú tilgáta mín sé rétt, að Akureyringar hafi ekki reiknað með því að árangur Kiistjá.ns frá Noregi yrðu stað- féjstir sem íslandsmet. Og hvers vegna, jú vegna þess, samkvæmt oijðum hins fróða manns Ár- manns Dalmannssonar, að í Nor- egi séu ekki staðfest norsk met, nema því aðeins að þau séu sett innan Noregs!! Það þarf varla að taka það frþm að þessi furðulega fullyrð- rng Ármanns ætti ekki að eiga sér stþð í veruleikanum. Við þurf- annað en að líta í skauta- sonar hans, Jóns D. Ár- mfennssonar, i árbókinni 1952, til þt^s að sannfærast, en þar eru ÖIWU I V urp ekki, kafla so m. a. talin Upp heimsmet þau, sem Norðmenn hafa sett í Davos, sem ég hef hingað til haldið að væri í Sviss en ekki Noregi, en kannske veit Ármann Setur. Hitt er annað mál og ekki eftir- breytnisvert, að Norðmenn munu að sögn aðskilja þau skautaaírek, sem unnin eru utan og innan Noregs. Það breytir engu fyrir okkur Islendinga sem ætíð höf- um haft öll met í sama flokki. Þá kemur Ármann með þá snjöllu tillögu, að ef til vill væri bezt að siá striki yfir öll met. Ég get tekið undir það að nokkru leyti. Á ég þá við að slegið sé striki yfir öll gerfimet, því hug- takið met er og verður ávallt bezti árangur í hverri íþrótta- grein hvort svo sem einhverjum hiutdrægum smámunaseggjum tekst að koma því til leiðar að aðeins það næst bezta hljóti stað- íestingu. Ármann lýkur svari sínu með því að telja það ranghermi hjá mér að skautametin frá 1952 hafi verið kærð. Hér fer hann þó enn sjálfur með rangt mál, því mót- j mælin, sem Akureyringar sendu j út af metunum voru send skrif- stofu ÍSI rétt eftir mótið, enda I kemur það óbeinlínis fram í j ;vari iSI að metin hafi verið vé- ' engd af einhverjum. Læt ég svo útrætt við Ármann Dalmannsson fyrst hann er ckki fróðari um þessi mál en grein hans ber vott um. SVAR 7SÍ Enda þótt ég telji svar stjórn- arinnar hógvæ.t, þá verð ég að viðurkenna að það er hvergi nærri fullnægjandi. Stjórnin seg- ir að vísu að það hafi komið í ljós að skautabraut sú, sem notuð var á Isiandsmótinu 1952, hafi ekki verið í samræmi við alþjóðaregl- ur um skautabrautir og því hafi hún samþykkt á fundi 8. sept. 1952 (7 mánaða umhugsunar- tími) að staðfesta ekki sem ís- landsmet beztu árangra, sem þar náðust. En mér er spurn, að hvaða leyti var hún ekki í sam- ræmi við reglurnar. Og ennfrem- ur, byggir stjórníSÍ ekki frávísun sína á einhliða frásögn kæruað- ilans? Mér er kunnugt um að dómarar mótsins voru beðnir um álit sitt á fyrstu kæru Akureyr- inganna, og töldu þeir hana byggða ó misskilningi, enda iá þá fyrir vottorð um rétta lengd brautarinnar og réttan radius beygjanna. Síðan hefur ekki ver- ið talað við umrædda dómara í sameiningu, en hins vegar sam- þykkt að staðfesta ekki metin og getur það varla verið fyrir áhrif ánnarra en kæruaðilans. Er það næsta fátíð aðferð hjá ÍSÍ að íreysta aðeins á skýrslu annars ðilans, en !áta hjá !íða að kynna 'ér sjónarmið hins. Enda þótt dómarar mótsins með yfirdómaranh í broddi fylk- higar teldu a!lt vera í lagi með biautina og radiusinn, þó tcldu Ákúreyrihgar sig vita betur. — Slógu þeir, að sögn, ýmsu órök- studdu fram og fullyrtu m a. að n sutin hefði aðeins verið þriggja metra breið og sums staðar mjórri. Þólt þetta hefði aðeins get Framh. á bls. 12. FrakkEands og Spásiarferíiiniar Ferðaáæflun Ferðaskrlfstoiunnar. EINS og kunnugt er af fyrri fréttum hefur Ferðaskrifstofa rík isins, í samvinnu við Flugfélag íslands, ráðgert ferðalög til Spán- ar nú í vor. Nauðsynleg gjald- eyrisleyfi hafa nú fengizt og hef- ur því verið ákveðið að fara tvær ferðir til Spánar. Hver ferð mun taka 18 daga. Flogið verður með „Gullfaxa“ báðar leiðir með við- komu í París í tvo sólarhringa. Ferðirnar verða 16. og 30. apríl. Allítarleg ferðaáætlun hefur nú verið samin um Spánarferð- ina í samráði við spánskar ferða- skrifstofur, og fer hér á eftir úr- dráttur úr henni: Flogið verður frá Reykjavík til Parisar 16. apríl og dvalizt þar í tvo daga. Verða þá helztu söfn og aðrir merkir staðir skoðaðir, m.a. Louvre-stafnið og Versalir. 16. apríl. Flogið frá Reykjavík til Parísar: Eftirmiðdeginum og kvöldinu eytt í að skoða sig um í borginn. Næsta dag, verður farið um borgina og merkir staðir skoð aðir t. d. The Madeleine — Plece de la Concorde, Champs-Elysés — Napoleon‘s Tomb, Military School Eiffel-turninn, Palais de Chaillot — Arc de Triomphe, Montmartre, Sacré-Cæur og Louvre safnið. 18. april. Um morguninn verð- ur farið til Versala. Lagt af stað um eftirmiðdaginn til Barcelona og gist þar um nóttina. 18. apríl. Flogið um eftirmið- daginn til Barcelona, þar sem tekið verður ó móti farþegunum og þeim komið fyrir á þeim hót- e!um, þar sem þeim er ætlað að búa. 19. apríl. Barcelona. Borgin skoðuð, helztu staðir heimsóttir, svo sem Pueble Espanol kirkjan, Tibidabo o. fl. 20. apríl. Farið verður í stutt ferðalag frá Bareelona í góðum bifreiðum tii Sitges, sem er einn þekktasti baðstaður á Miðjarðar- hafsströnd Spánar. Komið til Barcelona um kvöldið. 21. apríl. Dagurinn frjáls til eigin þarfa í Barcelona. 22. apríl. Farið verður frá Barcelona til Valencia í góðum langferðabifreiðum (Pullman). Það markverðasta skoðað á leið- inni. Gist verður í Valencia. 23. apríl. Farið frá Valencia til Alicante. Áður en lagt er af stað verða nokkrir staðir í Valencia skoðaðir, þ. á. m. E1 Mercado, La Lonja og kirkjan. Komið til Ali- cante um kvöldið og gist þar. 24. apríl. Farið frá Alicante til Murcia. Nokkrum tíma verður eytt til þess að sjá sig um á báð- um stoðum. 25. apríl. Farið frá Murcia um morguninn til Granada, og það markverðasta skoðað á leiðinni. Gist í Granada. 26. apríl. Deginum varið i Granada og Alhambra skoðuð. Borgarlífið verður skoðað og far- ið í Capilla Real og fleiri staði. Fólki verður gefinn kostur á að sjá nautaat. Um kvöldið verður farið í heimsókn til sígaunahell- ana í Albaicin. Um kvöldið verð- ur dansað. 27. apríl. Farið frá Granada til Madrid. Gist í Madrid. 28. apríl. Farið á helztu staði í Madrid, svo sem Prada-safnið, sem er heimsfrægt fyrir málverk sín, Real Fabrica de Trapices, San Francisco el Grande o. fl. 29. apríl. Farið til E1 Escorial, konungsborgarinnar. Komið ti! Madrid seinni hluta dags og gist þar. 30. apríl. Farið til Toledo og borgin skoðuð. Á meðal þeirra staða, er markverðastir eru, má nefna Alcazar, Casa del Greco og Greco-safnið, hin heimsfræga dómkirkja óg samkomuhús Gyð- inga (synagog). Komið aftur til Madrid um kvöldið og gist þar. 1. maí. Dagurinn frjáls í Mad- rid. 2. maí. Dagurinn frjáls í Mad- rid. 3. maí. Flogið heim til Reykja- víkur um Prestwick. Siðastliðið haust var farin á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins fyrsta skipulagða hópferð íslend- inga til Spánar. Sú ferð tókst mjög vel, og voru þátttakendur á einu máli um, að heimsóknin til Spánar hafi verið ógleymanleg, svo margt var þar nýstái’legt að sjá. Menn ættu að athuga, að þær ferðir, sem nú verða farnar, taka ekki lengri tíma en þvi, sem venjulegt sumarleyfi nemur, og er því hér um að ræða einstakt tækifæri til þess að lengja sumar- ið, með því að eyða sumarleyf- inu suður í löndum. Verzlunarmönnum skal sér- staklega bent á, að hér gefst þeim kostur á að komast til Spánar á hentugan hátt 'og haft nógan tíma til verzlunarerinda. ðsliundur áíenniS' AÐALFUNDUR í Áfengisvarna- nefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, var haldinn 27. febr. Á árinu voru haldnir 3 fulltrúa- fundir og 11 stjórnarfundir. — Nefndin opnaði skrifstofu í október síðastliðnum á Njáls- götu 112, þar sem tekið hefur verið á móti fólki og veitt að- stoð og hjálp þeim, er til hennar hafa leitað. —■ Sömuleiðis hefur nefndin nú, eins og undanfarið haft^gamstarf með kvénfélögun- urn'iíti um land um áfengismál og hvatt konur til að vera á verði og fylgjast vel með gangi þeirra mála. — Átta sérstæðar áfengisvárnanefndir kvenna eru starfandi úti um land. Á vegum nefndarinnár og Þingstúku Reykjavíkur hafa verið haldin „Tómstundakvöld kvenna“, sem byrjað var á í fyrra. Hafa þau verið mjög vin- sæl og vel sótt. Á þessu ári hafá um 600 konur verið þar gestir. Nefndin fagnar því, að hjálpar- stöð sú, er Reykjavíkurbær hef- ur sett á stofn, er tekin til starfa. Hefur það alltaf verið sérstakt áhugamál hennar frá byrjun, að slík stofnun væri til og mun nefndin hafa samstarf við hjálp- arstöðina. Stjórn félagsins skipa eftirtald- ar konur: Form.: Frú Viktoría Bjarna- dóttir. Varaform.: Frú Jóhanna Egilsdóttir. Gjaldkeri: Frú Guð- laug Narfadóttir. Ritari: Frú Sigríður Björnsdóttir. Meðstjórn- endur: Frú Aðalbjörg Sigurðar- dóttir og frú Þóranna Símonar- dóttir. KósmeeSranámslrelð í Darnnörku NORRÆNA félagið mun, eins og tvö undanfarin ár, annast milli- göngu um það, að íslenzkar stúlk- ur geti tekið þátt í fjögurra mán- aða sumarnámskeiði við St. | Restrup húsmæðraskólann í ! Danmörku fyrir hálft gjald. — Hefst námskeiðið 3. maí og lýkur 130. ágúst. Kostnaður er 350,00 , kr. danskar fyrir kennslu og j heimavist. Lágmarksaldur er | sem næst 18 ár. Umsóknir skulu sendar Nor- | ræna félaginu, Reyjavík, og 1 þar tilgreindur fæðingardagur og ár, skólavistir og einkunnir, og j einnig skulu meðmæli fylgja. j Umsóknir skulu hafa borizt Nor- ] ræna félaginu fyrir 1. apríl n.k. A BIÍZT Atí AVGLtSA Z W I MOMWMiLAfílNV

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.