Morgunblaðið - 21.03.1953, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.03.1953, Blaðsíða 14
14 MORGUWBLAÐIÐ Laugardagur 21. marz 1953 | Framhaldssagon 28 Hann skellihló. ,,Ef til vill er ég bara gamall, elunginn refur, sem er að reyna við yður nýja aðferð. Eigum við að segja klukkan níu á mánudag- inn? En liggur yður nokkuð á að fara. Ég hef unnið baki brotnu í allan dag og er f eginn að fá tæki- færi til að hvíla mig“. Þegar hún kom heim skömmu eeinna, mætti hún Derek við dyrnar. „Gott kvöld“, sagði hann. „Það er gott að þú komst. Það er ekk- ert þægilegt að hvíla sig svona uppistandandi“. „Það hefur enginn beðið þig að hvíla þig hér“, sagði hún og brosti íil hans. Hann hló við. „Ár.ægjan af að sjá þig, er vel þess virði að haft eé dálítið fyrir því“. Hann vék til hliðar á meðan hún stakk lyklinum í skráargat- ið. „Hvernig stendur á því að þú ert kominn til borgarinnar?" epurði hún. „Léleg viðskipti. Ég er í at- Vinnuleit. Leikhúsið okkar í Liverpool lokar eftir nokkrar vikur. Fólk virðist kjósa heldur að sitja heima þegar svona kalt er í veðri. Við höfum tapað á gýningunum síðustu tvær vik- urnar. Við getum ekki haldið því áfram. Janice þætti gaman að heyra það“. Hann brosti lítið eitt. „Hún myndi segja að það væri vegna þess að hún fór. Er hún ekki í fullum blóma og ánægð með tilveruna?" „Ég heyrði síðast frá henni fyrir tíu dögum“, sagði Alice. „Þá fékk ég kort frá París“. „Fyrir tíu dögum?“ sagði hann hissa. „En hefur þú ekki séð hana gíðan hún kom heim?“ Hún leit snögglega á hann. „Síðan hún kom heim? En .... ég skil ekki. Hún er ekki komin“. í stað þess að svara tók hann gamanbrotið dagblað upp úr vasa SÍnum og rétti henni, Á fremstu Það er gallinn. Eina leiðin er að komast að í gegn um kunnings- skap“. Hann hallaði sér fram í sætinu. „Ein ástæðan fyrir því að ég vil vera hér í London, er að þá gæti ég séð þig oftar“. Daufur roði færðist u, p vanga hennar. Hún vissi ekki hverju hún átti að svara. Hann hallaði sér aftur á bak í sætinu og stakk höndunum í vasana. „Hvaða álit hefur þú á mér?“ spurði hann og horfði rannsak- andi á hana undan hálflokuðum augnalokunum. „Finnst þér ég skrítinn eða skemmtilegur? — Finnst þér gaman að tala við mig? Ég hef enga þá eiginleika til að bera sem gera menn að hetjum eins og vin þinn Ashburn. Ekkert gæti fengið mig til að þola harðindi og vanlíðan, ef ég kæmist hjá því. Ég hata miklar, opnar víðáttur. Mér fellur betur við borgirnar, og því stærri og mannfleiri, því betra. Ég vildi heldur vinna á næturnar en á daginn. Ég vildi heldur vinna til fjögur á nóttinni og Jjggja svo í rúminu fram eftir degi. Ég ber ekki virðingu fyrir öllu kven- fólki. Ég set þær ekki á háan hest. En ef konur eru vingjarn- legar, skynsamar og laglegar, þá fellur mér við þær og ég reyni að reynast þeim vel“. Það varð stutt þögn. Háðs- hreimurinn hvarf úr rödd hans, þegar hann hélt áfram: „Ég vona að þú haldir ekki að ég hafi brugðist systur þinni á nokkurn hátt? Við höfðum aldrei talað um það í alvöru, en ef við eigum að geta verið vinir, held ég að við ættum að tala út um það. Ég bauð henni út með mér, ég viðurkenni það, en ég sýndi henni aldrei ástleitni. Ég var aldrei hið minnsta ástfanginn af henni. Hún var falleg og gat ver- ið skemmtileg, en fyrir mér var hún aldrei persóna". Hún hikaði, en sagið svo: „Nei, ég held ekki að þú hafir brugð- ist henni. Ég skal viðurkenna að ég hélt það einu sinni, en....“ Hún þagnaði. Það var komið fram á varir hennar að segja: „En ég hef komizt að svo mörgu um Janice síðan“. „Fellur þér við mig?“ spurði hann og enda þótt hann horfði I glettnislega á hana, þá var rödd- | in þó alvarleg. „Eða er mér ó- sigurinn vís frá byrjun“. „Mér fellur vel við þig“, sagði hún. * „Er það satt?“ Hann varð ánægður á svipinn og auðsjáan- lega undrandi. „Af einhverjum ástæðum bjóst ég ekki við því. Ég hélt að velþóknunin væri öll mín megin“. Hann hnyklaði brún ir. „Fjandakornið, ég skal fá vinnu í London“. Þegar hann var farinn, gekk j Alice þrisvar að símanum og tók I upp heyrnartólið, en hún hringdi i þó aldrei til Janice. „Það er of seint“, sagði hún. „Þau eru hátt- uð. Ég hringdi heldur í fyrramál- ið“. | En hún hringdi heldur ekki um J morguninn. Úr því þau kærðu' sig ekki um að komast í samband j við hana, þá ætlaði hún ekki að troða sér upp á þau. En gat það , verið? Það gat ekki verið að þau j vildu slíta öllu sambandi við, hana. Hún hugsaði með sjálfri sér 1 að um einhvern misskilning hlyti, að vera að ræða. Þau myndu hafa hringt þegar hún var ekki heima.!' Hún sat inni allan daginn, en ekki hringdi síminn. Um tíuleytið um kvöldið var hringt á dyrabjölluna. Þegar hún opnaði, stóð Jack fyrir framan hana. , 13. kafli. I Á næsta augabragði var hún komin í fang hans. Hvorugt þeirra vissi hvernig það vildi til. Fyrst starði hún á hann undr- andi og áður en hún vissi af, var hún komin í fang hans. Hann kyssti hana á vangann og hann sagði: „Drottinn minn, hvað það er gott að sjá þig aftur, Alice. Við höfum verið burtu aðeins í nokkr ar vikur, en mér finnst það heil eilífð". síðunni stóð: „Herra og frú John Haywood Ashburn komu heim úr ferða- laginu á meginlandinu í gær- kvöldi. Þau hafa sezt að í íbúð sinni í Mayfield House, Mayfair. Herra John Haywood Ashburn er þekktur dýrafræðingur". Alice var föl þegar hún rétti honum blaðið aftur þegjandi. „Langar þig í te? Ég verð fljót að laga það“, sagði hún. »Ég er ekki vanur að drekka te á þessu.m tíma sólarhrings“, gagði hann, „en ég get auðvitað reynt það. Allt verður einu sinni fyrst“. Hún vissi ekki hvað hún átti að hugsa. Hún tók bollana úr skápnum og setti þá á bakka. Þau voru komin til borgarinnar og höfðu ekki gert henni viðvart. Það var undarlegt. Voru þau bæði ennþá reið við hana? Henni fannst hún allt í einu vera orðin mjög einmana í heiminum. Ef Janice vildi ekki sjá hana vegna Dereks, þá myndi Jack ekki vilja sjá hana heldur. Henni leið svo illa, að hún var dauðhrædd um að hún myndi fara að gráta. Og hún kærði sig alls ekki um að láta Derek sjá það til sín. Hann sízt af öllum. Hún óskaði þess innilega að hann myndi ekki minnast aftur á heimkomu Jan- ice. ^ „Ég er að reyna að koma undir mig fótunum hérna í London", sagði hann. „Það er mjög erfitt, en ég er viss um að ef ég get fengið leyfi til að setja leikrit á Svið, þá er mér borgið. En allir .vilja ráða.til $ín fra^, XVI „Þú þarft ekki að skýra það fyrir mér. Ég veit ósköp vel hvað amar að þér,“ sagði refurinn. „Ég ætla þó að hjálpa þér í þetta sinn, þótt þó eigir það ekki skilið, en það verður líka í síðasta skiptið, sem ég rétti þér hjálparhönd," bætti ‘hann við- i „Þú skalt halda áfram að moka — allt fram á næstsíðasta ! dag. En þá máttu hvíla þig, því að ég mun sjá fyrir því, sem , þá verður eftir af hólnum,“ sagði refurinn. Hans varð mjög feginn þessum tíðindum og lofaði að fara jalveg að ráðum refsins. — Þegar Hans var búinn að moka jstanzlaust í 9 daga, var mjög lítið búið af hólnum. Hann 'sofnaði snemma um kvöldið, því að hann var orðinn mjög I þreyttur eftir allt þetta erfiði. I Daginn eftir fór hann snemma á fætur og leit út um ! gluggann. Þá var hóllinn með öllu horfinn. Hans varð mjög glaður, þegar hann sá, að hóllinn var ihorfinn. Hann fór beina leið á fund kóngsins og sagði honum tíðindin. Kóngurinn varð nú að gefa Hans dóttur sína fyrir konu, j þótt honum væri ekkert vel við það. Hann mátti ekki ganga |á bak orða sinna. „Nú verður þú að gæta dóttur minnar vel,“ sagði kóngur- inn, þegar hann kvaddi Hans. „Enginn mun gæta hennar betur en ég. Hún skal verða aðnjótandi alls hins bezta, sem völ er á,“ sagði Hans. Síðan þakkaði hann kóngi fyrir trygglyndi það, sem hann hefði sýnt sér. Við svo búið gengu Hans og kóngsdóttir á braut. | Þau höíðu ekki farið langt, þegar refurinn varð á vegi þeirra. „Nú ertu búinn að eignast kóngsdótturina úr demantshöll- inni — fallegustu stúlkuna, í heiminum. Demantshesturinn m^ndj.nú sæm^j ykliur veþ“ sagði refurinn- 3 Herranólt Menntaskólans 1953: Þrír á boði Gamanleikur eftir L. Du Garde Peach. Leikstjóri: Baldvin Halldórsson. Þýðandi: Helgi Hálfdánarson. Sýning í Iðnó sunnudag klukkan '20. Aðgöngumiðar á kr. 15.00 og 20,00 séldir í dag kl. 2—8. jju- og gömlu dansamir í Breiðfirðingabúð i kvöld klukkan 9. Hljómsveit Svavars Gests, Aðgöngumiðasala frá klukkan 5. 3 i Barnaskommtun heldur Landsmálafélagið Vörður í Sjálf- : stæðishúsinu sunnudaginn 22. marz kl. 3 e.h. ■ ■ ! SKEMMTIATRIÐI: ■ ■ ■ Hljómsveit Aage Lorange Vikur lög úr teikni- ■ S myndum VValt Disney. m ; Ilelga Valtýsdótfir les upp með aðstoð Ingi- m bjargar Þorbergs. ■ Torfi Baldursson spilar á munnhörpu og ■ ; gítar samtímis. ■ ■ ; Þjöðdansar. ncmciidur úr Verzlunarskóla ísl. ■ ■ m ; Baldur og Kcnni. ■ ■ ; Kvikmyndasýning. ■ • ■ ■ ■ ■ Aðgöngumiðar á 3 kr. fyrir böm og 5 kr. fyrir fullorðna ; seldir á skrifstofu Varðar í Sjálfstæðishúsinu í dag ! klukkan 9—12 f. h. ■ ■ ■ LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.