Morgunblaðið - 29.03.1953, Page 8

Morgunblaðið - 29.03.1953, Page 8
MORGVHBLAÐIÐ Sunnudagur 29. marz 1953 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni 'Óla, sími 3045. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. •— Sími 1600. skriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Þáttur Sjálfstæðisverkenna CÍÐINN, málfundafélag Sjálfstæð isverkamanna og sjómanna, á í dag 15 ára afmæli. Af því tilefni er ástæða til þess að minnast starfs og baráttu þessara félags- samtaka. Þegar Óðinn var stofnaður voru erfiðir tímar í þessu landi. Sam- stjórn Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins, hin „frjálslynda umbótastjórn“, eins og þessir flokkar kalla hana, hafði þá farið með völd undanfarin ár. En þá var þröngt í búi hjá mörgum verkamannafjölskyldum á Is- landi. Atvinnuleysi fór stöðugt vaxandi. Fólkið flykktist úr sveit unum á mölina, þar sem atvinnu- möguleikarnir voru mjög tak- markaðir. Innan stéttarsamtaka verka- lýðsins beittu kratarnir algeru ofriki. Verkamönnum var neitað um full félagsréttindi, nema þeir skrifuðu undir yfirlýsingu um að þeir væru í Alþýðuflokknum. — Valdháfarnir beittu lúalegri póli- tískri hlutdrægni við úthlutun vinnu við opinberar fram- kvædir á vegum ríkisins. Við þessar aðstæður stofnuðu nokkrir Sjálfstæðisverkamenn í Reykjavík til samtaka sín í milli. Takmark þeirra var fyrst og fremst að vinna að bættum kjör- um verkalýðsstéttarinnar á sjó og landi, gera samtök hennar frjáls og óháð og vinna að auk- inni samvinnu hennar og sam- starfi við aðrar þjóðfélagsstéttir. Óðni hefur orðið mikið á- gegnt í baráttu sinni að þessu takmarki. Hann hefur hvar- vetna beitt áhrifum sínum til þess að bæta kjör meðlima sinna og annarra launþega. — Sjálfstæðisverkamenn hafa nú forystu í mörgum launþega- samtökum höfuðborgarinnar. Þau samtök hafa oft náð meiri árangri í kjarabaráttu sinni og á friðsamlegri hátt en þau stéttarfélög, sem kommún istar og kratar hafa stjórnað. Fyrir forgöngu Sjálfstæðis- verkamanna var Alþýðusamband íslands leyst úr ánauð kratanna. Verkalýðssamtökin urðu eftir það frjáls hagsmunasamtök launþega. Var það mikil og þörf umbót. Þá hafa Sjálfstæðisverkamenn beitt sér fyrir ýmiskonar umbót- um á löggjöf, er varðar hagsmuni verkalýðsins og efnaminna fólks í landinu. Má í því sambandi nefna þá breytingu á skattalög- um, að undanþiggja aukavinnu efnalítilla einstaklinga við bygg- ingu eigin íbúða skattgreiðslum. Af umbótum í húsnæðismálum hafa Óðinsfélagar einnig haft mikil afskipti og komið þar veru legum umbótum fram. En einn veigamesti þátturinn í starfi þessara samtaka Sjálf- stæðisverkamanna hefur verið sá aukni skilningur, sem þeim hefur tekizt að skapa á skaðsemi stéttabaráttunnar en nauðsyn friðsamlegs samstarfs á milli stétta þjóðfélagsins. Hann hefur dregið mjög úr þeirri tortryggni og úlfúð, sem ríkti oft áður milli launþega og vinnuveitenda. Á stefnu Sjálfstæðisflokksins ;hafa . samtök Sjálfstæðisverka- m,anna haft mikil áhrif. Þeir hafa tekið virkan þátt í baráttu hans og milli þeirra og leiðtoga flokks- ins hefur ríkt góð og náin sam- viiina. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur tekið upp baráttuna fyrir hagsmunamálum þeirra og borið mörg þeirra fram til sigurs. Hef- ur það ekki aðeins orðið verka- mönnum til góðs heldur þjóðinni í heild. Þegar Óðinn var stofnáður voru það aðeins nokkrir tugir verka- manna, sem í hann gengu. Nú skipta félagar hans hundruðum. Að baki liggur mikið og gagn- legt starf. Framundan bíða mörg verkefni. Á’nrif stéttastríðsins þurfa enn að þverra. Samvinnan milli verkamanna og annarra stétta verður enn að aukast og verða fjölþættari. Fjölmörgum hags- munamálum verkaiýðsstéttarinn- ar þarf að ráða til lykta á raun- hæfan hátt. Atvinnuöryggið verð ur að aukast, félagslegur þroski að glæðast. Sjálfstæðisflokkurinn mun halda áfram að styðja verka- menn, sjómenn, iðnaðarmenn og aðrar verkalýðsstéttir í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og afkomuöryggi. í þeirri baráttu mun málfunda- félag Sjálfstæðisverkamanna j í Reykjavík leysa af hendi 1 mikilvægt hlutverk eins og á • s. 1. 15 árum. Morgunblaðið flytur Óðins- félögum heíllaóskir á þessum • afmælisdegi samtaka þeirra. Helgi Ben. gefur tóninn í MOÐSUÐU ályktunum síðasta flokksþings Framsóknarflokks- ins vekur það eitt athygli, að Helgi Benediktsson í Vestmanna- eyjum gefur þar tóninn í afstöðu flokksins til dómsmála og réttar- fars. Var að hans fyrirlagi sam- þykkt yfirlýsing um nauðsyn þess, að „bættari og réttlátari skipan verði komið á þau í fram- tíðinni.“ Á því fer auðvitað mjög vel, að maður, sem liggur undir ákæru fyrir fjölþætt lögbrot skuli marka stefnu Framsóknar- fiokksins i dóms- og réttarfars- málum. Það sýnir réttarvitund Tímaliðsins í réttu Ijósi. Vegna þess að landskunnum lögbrjót og braskara hefur ekki verið hlíft við að standa ábyrgur gerða sinna samkvæmt landslög- um, tekur flokkur hans sig til og samþykkir vítur á yfirmann dómsmálanna!!! Hvers konar ,réttlátari skipan" dómsmálanna er Tímaliðið eig- inlega að krefjast? Það er að kref jast sérrétt- inda fyrir flokksmenn sina til þess að mega brjóta lög og reglur. Það er að kref jast þess. að önnur lög gangi yfir þá en aðra borgara þjóðfélagsins. Þetta er einkar líkt Tíma- liðinu. Svo kemur þetta sama blað og segist vera hinn eini sanni og rétti vörður réttar og vel-- sæmis í landinu!! En meðan Helgi Benedikts- son i Vestmannaeyjum mark- ar stefnu Framsóknarflokks- ins í dómsmálum verður erf- itt fyrir Tímann að vinna trúnað þjóðarinnar í þessum málum. Hitt er sönnu nær, að hún sannfærist um yfirdreps- skap hans og hræsni. Kiiupniarmahafnarbréf frá Páli JÓR-ssysti: Eftirtektarvetðor fitniur í dansha um liiiiáritiiiÉlii Kaupmannahöfn í marz 1953. ' FUNDUR danska stúdentafélags- ins um handritamálið var að ýmsu leyti eftirtektarverður. Er því ástæða til að minnast nánar á hann en hægt var að gera í stuttu fréttaskeyti. í fundarboðinu var umræðu- efnið orðað þanníg: „Á að skila Islendingum hinum fornnorrænu handritum?" Margir höfðu búizt við, að þarna mundi anda kalt í okkar garð. En þetta fór betur en vænta mátti. Margir só(ttu fundinn. En þar voru fáir i^ngir stúdentar. Ef þeim hefði verið áhugamál að mótmæla afhendingu handrit- anna, þá er líklegt að þeir hefðu fjölmennt. Fjarvera þéirra virð- ist bera vott um, að þeir láti sig málið litlu skipta þrátt fyrir á- róður gegn afhendingu af hálíu nokkurra vísindamanna. í sömu átt bendir líka dálítil skoðunarkönnun, sem Eivind Langvad, stúd. med. sonur Kay Langvads, yerkfræðings, gekkst fyrir meðal nokkurra stúdenta o. fl. ungra manna. Langvad spurði 45 unga stúdenta, 15 menntaskólanem- endur og 15 aðra að því, hvað þeir vissu um handritin. Ekki nema 7 af þessum 75 vissu eitt- hvað um þaú. HVAÐ HAFA DANIR GERT FYRIR SAFNIÐ? Við höfðum ágæta talsmenn á fundinum og studdu þeir okkur drengilega. Fleiri ræðumenn mæltu með en á móti afhendingu handritanna. Talsmönnum okkar var að minnsta kosti eins vel tekið og andstæðingum okkar. Prófessor Jón Helgason var eihi íslendingurinn, sem tók þarna til máls. Hlaut hann dynjandí lófa- klapp, þegar hann hafði lokið máli sínu. Benti Jón þó á, eins og nefnt hefur verið í skeyti, að Ðanir hafa ekki byggt stórhýsi handa Árnasafninu áns og handa öðr- um söfnum, að það á við pen- ingaskort að búa, og að aðbún- aður á safninu er þannig, að handritin geta brunnið á svip- stundu. Bendir þetta ekki til þess, að handritin hafi eins mikla þýðingu fyrir Dani og sumir segja. MEÐ AFHENDINGU OG Á MÓTI Prófessor Hjelmslev, sem var frummælandi á fundinum, var þarna eins og fyrri daginn aði staglast á því, að málið, seml handritin hafa verið rituð á, sé ekki íslenzka heldur samnorrænt ■ mál (,,fornnorræna“), og að efnij þeirra sé líka samnorrænt Ís-J lendingar eigi því ekki heimtingu á handritunum. Hjelmslev sagðist hafa skrifað Hedtoft og spurt hann, hvort hann hafi gefið íslendingum lof-| orð um handritin. í fjarveru, Hedtofts hafði einkaritari hans svarað, að Hedtoft væri fylgjandi; afhendingu en hefði ekki gefið Ioforð um þetta fyrir hönd Dan- merkur. C. A. C. Brun, utanríkisráð og fyrrum sendiherra í Reykjávík, varð fyrstur til að andmæla Hjelmslev. Gerði hann það í vel rökstuddri ræðu. Brun sagðist ekki vera í minnsta vafa um, að óskir íslendinga um handritin væru réttlátar. Handritin eru skrifuð af íslendingum á ís- lenzku, sagði Brun. Það getur ekki skaðað íslendinga, þótt sum þeirra fjalli um önnur efni en íslenzk. Danir hafa varðveitt handritin vel. En þarna er um íslenzkar bókmenntir að ræða, og verður það þyngra á metunum. SÍÐFENGINN ÁHUGI Almenningur í Danmörku vissi litið eða ekkert um handritin fyr en fyrir fáeinum árum, þegar farið var að ræða afhendingu þeirra. Þau voru í höndum Dana í meira en 200 ár áður en mönn- um fannst ástæða til að efna til sýningar á þeim. Höfuðatriðið er þetta: Handrit- in hafa litla þýðingu fyrir Dani, en þaú eru helgidómur íslend- inga, einu fornminjar þeirra og grundvölJurinn að varðveizlu - ís- lenzkrar tungu og íslenks þjóð- enris, sagði Brun. Hjelmslev þótti einkennilegt, að íslendingar fara fram á að fá handrit úr dönskum en ekki líka úr sænskurh söfnum, þótt ýmis íslenzk handrit séu í Sví- þjóð. i Brun svaraði, að þetta mimdi stafa af því, að Kaupmannahöfn var í rauninni höfuðstaður ís- lands. þegar handritin voru send þangað. Brun sagði ennfremur: Því hef- ur verið haldið fram, m. a. af| Hjeímslev, að handritamálið hafi verið útkljáð árið 1927, vegna I þess að fselndingar hafi þá feng- j ið ýmis handrit gegn því skilyrði, að þeir bæðu ekki seinna um I fleiri. En þetta skilyrði af hálfuj Hafnarháskóla hefur aldrei ver-l ið opinberlega tilkynnt íslend- ingum. FORDÆMI Sumir hafa sagt, að afhending handritanna mundi hafa þær af- leiðingar að aðrar þjóðir gætu heimtað handrit og aðra dýrgripí úr dönskum söfnum. En þetta er misskilningur. Það getur ekki skapað fordæmi fyrir aðra, þótt við gefum íslandi handritin. Ef ég gef einhverjum manni gjöf, þá geta vitaníega ekki aðrir heimtað með rétti að fá líka gjaf- ir frá mér. Prófessor Bröndum Nielsen var einn ræðumanna. Hann var sam- mála Hjelmslev.. Bröndum Niel- sen sagði, að ef afhenda ætti ís- lendingum handritin, þá gæti það dregist lengi, þar sem fyrst yrði að ljúka við fornnorrænu orða- bókina. HANDRIT FUNDIN Á ÍSLANDI Alsing Andersen, fyrv. ráð- herra, svaraði Hjelmslev og Bröndum Nielsen röggsamlega. Benti hann á, að Danir gætu feng ið íslenzka vísindamenn til hjálp- ar, til þess að ljúka við orðabók- ina á sæmilegum tíma. Framhald á bls 10 Velvakann > fcrifar: ÚB DAGLEGA LtFINU Síbelíus og vindillinn. FYRIR nokkru síðan var ung- verski píanósnillingurinn, idor F. Foldes, iðinn til xnið- gisverðar til iclíusar, híns ina finnska ijöfurs á heím hans rétt utan 5 Helsingfors. gar komið var 5 kaffinu bauð oelíus gesti sín n kostugíega iðan Havana- vindil. Foldes tók við — en gerði um leið þessa athugasemd: — Ég reyki nú reyndar ekki, en ég vildi samt gjarnan eiga þennan vindil sem skemmtilega endurminningu um ánægjulega kvöldstund. Sibelíus tók þá vindilinn aftur og sagði: — Nú, úr því svo er, þá afsakið þér, að ég gef yður heldur annan ekki rétt eins dýran! Meira um dúfur. FYRIR nokkru birti ég allharð- ort bréf frá Austurbæingi á móti dúfum og andmælti ég hon- um víst heldur og tók svari dúfn- anna. Nú hefir annar Austurbæ- ingur skrifað mér og tekur í sama strenginn og hinn, og það kröftug lega: Það er að vísu rétt, segir hann, að í mörgum glæsílegustu borgum erlendis er mikil dúfna- mergð en það er ofsagt að öilum þyki vænt um þær, að enginn vilji af þeim sjá. Þvert á móti er mikið undan þeim kvartað, enda er sorgleg sjón að sjá, hvernig margar glæsilegar byggingar eru útdritaðar eins og fuglabjörg, all- ar sillur fullar af fúlum fúglasltít og taumarnir niður allar húshlið- ar, það er heldur bæjarprýði það! Verzlunareigendur kvarta stór- lega undan þvi, að vegfarendur eiri ekki við sýningargluggana fyrir ofandriti. Ekki meinlansar. OG meinlausar eru þær ekki. Þær eru smitberar. Pasteur- stofnunin í París rekur 6% lungna berklasmitana þar í borg til þeirra, enda er farið að vinna aS útrýmingu þeirra víðast hvar, þar sem þær eru orðnar að illri plágu t. d. á Trafalgar Square í London, Markúsartorginu í Feneyjum cg víðar. S.l. sumar var yfir 5000 dúf um fargað í Munchen. En líklega látum við allt dankast þangað til það telst svara kostnaði að reyna að útrýma þeim, sem sennilega verður ekki fyrr en það ér ek'ki vinnandi vegur. — Annar Austur- bæingur". Ég viðurkenni, að það er nokk- uð til í þessu hjá Austurbæingi en hvað um það — ég sný ekki til baka með það, að mér er einkár vel við blessaðar dúfurnar. sSfi-Uí IíjíMv! Anægjuleg stund í Hallgrímskirkju, HÚSMÓÐIR skrifar: „Kæri Velvakandi! Sl. sunnudag fór ég til barna- guðsþjónustu í Hallgrímskirkju. Það var ánægjuleg stund. Börnin. fylltu alla bekki kanellunnar, og eftirvæntingin skein á hverju andliti. Hvert beirra fékk bibíl'i- mvnd og presturinn taiaði við börnin og lagðl fyrir þau spurn- ingar. Við hlið mér sat lítill snáði, á að gizka 6 ára. Hann gat svaráð öllum spurninpum nrestsins enda þótt hann væri öðru hvoru að skoða mvndina sína, en hann svar aði svo lá'd. að fáir hafa heyrt það, nema ég. Til eru menn, sem finnst lítið til um starf prestanna. En hverj- um getur fundizt það lítilsvert Starf að sá fræi kærleikans og sið gæðisins í barnssálina. Því að sál barnsins er eins og akur, éf sáð er góðu fræi verður góður árang- ur, ef sáð ér vondu verður árang- urinn eftir því. — Börn við guðs- þjónustu, stór eða smá, mikið eða minna falleg, ljós eða dökk er eitt hið yndislegasta, sem ég veit. Húsmóðir'*.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.