Morgunblaðið - 12.06.1953, Síða 7

Morgunblaðið - 12.06.1953, Síða 7
Föstudagur 12. júní 1953 MORGUHBLAtílÐ 7 Jón Auðisnn Jónsson fyrrv. alþingismaður GÓÐUR maður og gegn, göðvilj- aður og ráðhollur, er til moldar hniginn. Jón Auðunn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður er látinn. Hann lézt að heimili sínu hér í Rej'kjavík laugardaginn 6. júní s.l. eftir ör’fárra daga legu, og er í dag borinn til grafar. Jón Auðunn var fæddur 17. júlí árið 1878 að Garðstöðum í Ögursveit við ísafjarðardjúp. Foreldrar hans voru Jón bóndi Einarsson Magnússonar og kona hans Sigríður Jónsdóttir, bónda á Eyri í ísafirði Auðunssonar. Hann ólst upp hjá foreldrum sinum á Garðstöðum, sem var meðal fremstu heimila við Djúp, hlaut þar haldgóða undirstöðu- menntun og hóf ungur störf að sjósókn og búskap jöfnum hönd- um, eins , og tíðkaðist við Djúp á þeim tímum. Formaður á ára- skipum var hann í margar ver- tíðir. Bóndi á Garðstöðum gerðist hann rúmlega tvítugur að aldri og bjó þar árin 1900—1904. Var hann þá jafnframt hreppstjóri í sveit sinni. Síðan fluttist hann til ísafjarð ar og átti þar síðan heimili fram til ársins 1947, er hann fluttist hingað til Reykjavíkur, til starfa hjá Sölusambandi ísl. fiskfram- leiðenda. Á ísafirði gerðist hann fyrst yfirfiskimatsmaður, síðan starfsmaður í Landsbankanum árin 1905—1914 og árin 1914— 1923 var hann bankastjóri Lands bankaútibúsins þar. Þar stundaði hann einnig útgerð og hafði á hendi forstjórastörf fyrir ýmis fyrirtæki, svo sem hraðfrystihús, fisksölu, var norskur ræðismað- ur og gegndi fjölmörgum öðrum störfum. Afskipti hans af opínberum málum hófust strax á unga aldri. Rúmlega tvítugur að aldri varð hann hreppstjóri í sveit sinni. Á ísafirði var hann kjör- inn í bæjarstjórn og var síðar um skeið bæjarstjóri þar. Jón Auðunn var kjörinn þing- maður ísfirðinga árið 1919 og sat á þingi fyrir það kjördæmi til ársins 1923. Þá var hann kosinn á þing ^ fyrir ættarhérað sitt, Norður-ísafjarðarsýslu, og var þingmaður þess til ársins 1937, að einu ári undanteknu. En árið 1937 gaf hann ekki lengur kost á sér til framboðs. Hér hefur aðeins verið stiklað á hinu stærsta í umfangsmiklum störfum Jóns Auðuns. Mestum hluta starfsæfi sinnar eyddi hann við ísafjarðardjúp. — Þar muna hann þá einnig flestir og minnast hæfileika hans og mann kosta. j Jón Auðunn átti ekki kost á langri skólagöngu í æsku. Hann hóf kornungur þátttöku í athafna lífi þjóðarinnar. En hann öðlað- ist af eigin rammleik víðtæka og haldgóða menntun, varð marg- fróður maður, málamaður ágæt- ur og fær til margháttaðra starfa. Uppruni hans og reynsla í upp vextinum gerðu hann sérstakiega hæfan til forystu í opinberum málum. Hann bar gott skyn á þarfir atvinnúveganna til lands Og sjávar, þekkti lífskjör fólks- ins og var að eðlisfari góðgjarn og greiðvikinn. Af mannkostum sínum varð Jón Auðunn hvers manns hug- ljúfi, er honum kynntist. — Við ísafjarðardjúp naut hann al- mennra vinsælda og virðinga. — Um hann stóðu að vísu oft deil- ur, eins og um alla.þá, sem við opinber mál fást í þessu fámenna þjóðfélagi. En Jón Auðunn brá aldrei prúðmennsku sinni þótt mörg sverð væru á lofti. Mun það mál margra manna að leit- un hafi verið að óáleitnari stjórn málamanni. Þeir, sem þekkja bezt störf Jóns Auðuns á Alþingi telja hann meðal nýtustu þingmanna. Ágæt.greind, víðtæk þekking og lipurð í samvinnu gerðu hann — Minningarorð Jón Auðunn Jónsson Kveðjuorð frá Ólafi Thors „EKKI er að sjá að elli hann saki“, datt mér í hug þegar ég sá vin minn Jón Auðunn Jóns- son tilsýndar á götu fyrir skömmu. Og nú er hann horfinn okkur eftir langan og strangan, en líka viðburða-, gæfu- og gleðiríkan vinnudag. Þegar ég kom á þing fyrir nærri þrem áratugum var Jón Auðunn þar fyrir. Mér fór sem öðrum sem honum kynntust, að ég bar strax til hans vinarhug. Á þá vináttu féll aldrei skuggi svo ég vissi. Enda þótt Jón Auðunn væri merkur þingmaður, sem þekkti vel þarfir þjóðarinnar, ekki sízt við sjávarsíðuna, og legði sig fram um það að verða almenn- ingi að liði, var hann þó enn merkari og eftirtektarverðari maour. Ekki veit ég með vissu hvenær ég sá Jón Auðunn fyrst né fyrir hvað hann er mér minnisstæð- astur. Eiginlega finnst mér ég alltaf hafa þekkt hann, alveg eins og fjöllinn og sjóinn eða veturinn og vorið. Ef til vill en hann islenzkasti íslendingur sem ég hefi kynnzt. Stórskorinn, svipmikill og karlmannlegur eh broshýr og þá alveg óvenju góð- mannlegur. Gáfaður, fjölfróður, dugnaðarforkur, sívinnandi myrkranna á milli frá vöggu til grafar, ósérhlífinn og svo greiS- vikinn og góðviljaður, að hann vildi hvers manns vanda levsa, og slikur þrekmaður til líkama og sálaf, að lengst af var líkast því sem vinnan væri honum hvíld, eða svo virtist okkur áhorf endunum. Þessa mjmd gsymum við sam- ferðamennirnir af Jóni Auðurmi Jónssyni. Hún verður okkur minnisstæð og kær. Við kveðj- um hann með virðingu, vinsemd og söknuði og biðjum honum blessunar. Ólafur Thors. sérstaklega hæfan til slíkra starfa. Jón Auðunn kvæntist árið 1901 Margréti Jónsdóttur, prests á Stað á Reykjanesi, Jónssonar, gáfaðri og mikilhæfri konu. — Lifir frú Margrét mann sinn. Áttu þau 6 börn, 3 syni, Einar, sem dó í bernsku, sr. Jón Auð- uns, dómprófast í Reykjavík og Árna, skattstjóra á ísafirði, er lézt árið 1952 og 3 dætur, Sigríði, gifta Torfa Bjarnasyni, lækni á Sauðárkróki, Auði, hæjarfull- trúa, gifta Hermanni Jónssyni,! fulltrúa í Reykjavík og eina dótt ur er lézt óskírð, nýfædd. Heirrtili Jóns Auðuns og frú Margrétar á ísafirði var í ára-1 tugi héraðsmiðstöð. Þangað komu eiginlega allir. Og þar var i öllum tekið af j'firlætisiausum j höfðingsskap og hlýju. — Hinir mj'ndarlegu húsráðendur þar og hin vel gefnu börn þeirra voru vinir gesta sinna. Fólk kom þangað ekki í kurteisisskj’ni held ur til þess að njóta samvista við eiskulegar manneskjur, leita ráða, aðstoðar og uppörfunar. I öllu starfi sínu og lífi naut Jón Auðunn frábærs stuðnings hinnar mikilhæfu konu sinnar. Hún stjórnaði hinu stóra heimili af festu og skörungsskap þegar maður hennar dvaldi langdvöl- um í Reykjavík. Sjálf hafði hún einnig hlotið ágæta menntun, sem létti henni uppeldi og fræðslu barna sinna. Ég man eftir Jóni Auðunni og frú Margréti frá því að ég var drengur. Sérstaklega er mér minnisstætt er ég sá þau í fyrsta skipti. Það var við kirkju í Ögri. Þar var þá margt manna. Ég og nokkrir jafnaldrar minir vorum eitthvað að sýsla niðri á Sprengi, en svo heitir sá hluti Ögurtúns er Björn bóndi skipaði ó liði sínu er Stefán biskup sótti hann heim. Þá gekk hár nraður og herði- breiður niður götuna heiman frá bænum. Með honum.gekk kona, frjálsleg í fasi en mild að yfir- bragði. Þar fóru þau Jón Auðunn og frú Margrét, Þessi mynd af Jóni Auðunni mun rri'ér jafnan verða hugstæð- ust. Þarna var hann í sínu eigin umhverfi, sinni eigin sveit. — Milli Ögurs og G^irðstaða rann aðeins litil árspræna. Þarna var nann einnig meðal frænda og vina, sem þekktu hann og treystu honum. Milli Jóns Auð- uns og bernskusveitar hans lágu alltaf traustar taugar, bæði til oyggðarinnar og fólksins. Trygg- lyndið var ein af megineinkenn- im skapgerðar hans. Þegar Jón Auðunn og frú Mar- írét fluttu heimili sitt að vestan var þeirra mjög saknað við Djúp. Eri mikill fjöldi vina peirra árnaði þeim kyrrlátara leimiilsiifs. á hinum efri árum m þau höfðu notið vestra í önn lagsins. — Einnig hér eignuðust oau hlýtt og myndarlegt heimili. Nú, þegar Jón Auðunn hefur okið miklu dagsverki og er horf nn júir hina miklu móðu, er skil rr lönd lifenda og látinna sakna nargir vinar í stað. Ég fljTt hon- ím kveðjur og þakkir þess fólks, ;em bezt þekkti hann og hann jtarfaði lengst fyrir. Frá^ ísafirði og byggðarlögunum við ísafjarð- irdjúp streyma þá einnig hljóð- átar samúðarkveðjur til frú Æargrétar og barna þeirra og ;kylduliðs. Far þú svo heil>, ráðholli vinur rg sveitungi. Sigurður Bjarnason frá Vigur. i NÚ hefir einn af hugþekkustu samstarfsmönnum mínum á lífs- leiðinni, Jón Auðunn Jónsson, lokið æfi sinni. Þagar það barst mér að hönd- um, nokkuð óvænt, að kveðja lennan vin minn hinzta sinni, veit ég varla, hvar ég á að bjrrja, og því síður, hvar enda skal, því sfnin liggja „ívenn og þrenn á 'ungu minni“. Þegar ég' kom til ísafjarðar ingur maður fyrir meira en 40 irum, þekkti ég þar engan mann. Sá sem einna fyrst vakti athygli mína, var Jón Auðunn. Átti ég bó við hann engin sérstök erindi fyrst í stað. En framkoma hans var svo fáguð og um leið alúð- leg, áð af bar. Ég vissi ekki þá, rð við mundum eiga eftir að starfa saman í áratugi. En svo varð þó, að við átturn langvar- mdi samstarf i félagsmálum, at- vinnumálum og sveitarstjórnar- og landsmálum. Og við hvert fótmál óx vinátta mín í hans garð, og virðing fyrir fágætum mannkostum hans. Um athafnalíf Jóns Auðuns ætla ég ekki að skrifa. Til þess þarf miklu msira rúm en ég á hér kost á. En eklti get ég látið það ósagt, að í þvi litla bæjar- félagi, sem við vorum lengst samborgarar í, var hann ætíð f jrrst ur manna kvaddur til, ef hefja átti einhverjar framkvæmdir til umbóta. Þátttaka hans var bezta tryggingin fyrir því að vel farn- aðist. Hann var lika fágætlega mikill athafnamaður: Hugkvæm- ur, ötull og bjartsýnn. Og svo var sem hann hefði. alltaf tíma. Hversu miklu sem á hann var hlaðið af störfum, fann hann samt ætíð stund tii að gleðjast með vinum og kunningjum, og spjalla við þá um áhugamál þeirra. Heimili Jóns Auðuns var ein- hver fegursti reitur í íslenzku þjóðlifi. Ég undraðist strax ókunnur, hve margir lögðu leið sína á þetta heimili. Það var eins og þetta væri veitingastaður og gistihús. Og aldrei virtist þrjóta rúm við arin þeirr'a hjóna Jóns og Margrétar. Margt fólk kom þar eflaust i vinakjmni. En hin- ir voru þó eflaust miklu fleiri, er báru þangað raunir sínar og vandræoi. En af hans fundi fóru fáir hryggiivcða vonsviknir. Nú er hann genginn til hvílgLr ar hinn árrisuli maður, maður* inn, sem svo var vel skapi fai j inn, að hann tók jafnprúðlegn þungu böli og miklum höppurn, Hans mun ég minnast hverV sinni er ég heyri góðs mannát’ getið, Sigurður Kristjánssoro - Ufanríkísverzlun • Kramn. af bls. G ;. vörulistinn sömuleiðis. — Aðal; breytingin er sú, að fleiri vöruv en áður er heimilt a"ð flytja im\, án takmörkunar á magni, ei^'. innflutningurinn meira bundinni við jafnvirðiskaupalönd en á ár - inu 1951. 'c ■•U VERZLUNIN 1953 l;’ Það sem eins.og stendur ræðuv mestu um verzlunarjöfnuðiniBi eru stórframkvæmdirnar, senV! unnar eru að mestu leyti fyrij.il erlent fé. Byggingu virkjananní^g við Sog og Laxá pg Áburðarverk ■ smiðjunnar mun ljúka á -árinij. .. Áhrifin á innflutninginn muni,y samt haldast fram á næsta ár_. Að öðru leyti má nota svipuíj. orð um verzlunina á yfirstand-’ andi ári og þau sem ég notaði | grein, sem ég skrifaði um hana’ fyrir ári siðan: „Of snemmt er að spá um' verzlunina á þessu ári (1952)^ Útflutningurinn veltur á afla o£' tíðarfari, en hvort tveggja ei* óvíst. Innflutoingurinn breytis'k síðan talsvert með útflutningn’*"5 um. Eitt af þvi fáa, sem vitað éí'- með nokkuni vissu, er að á ár°'! inu verður mikill halli á verzlót uninni. Stafar þessi halli af yfir-U færslu fjármagns til Jandsinð- vegna hinng. miklu framkvæmdwí á árinu. Sumt af þessu fjármagníi yfirfærist í ár. Anriað hefur þegKí ar verið notað t. d. vegna greiðslna erlendis fyrir vélar i pöntun, er teljast með innflutn- ingi yfirstandandi árs.“ d Yfirfærsla fjármagns milli landa fer alltaf fram á þann hátt. að misvægi verður á verzlun- ínni. Annað landið sýnir halla^ . hitt afgang. „Hagstæður“ og' „óhagstæður“ eru orð, sem hafa enga sérstaka merkingu þegstr, þau eru notuð um milliríkja- verzlun, aðra en þá að þjóðid flj-tur meira út en inn, eða öfugÉ Það fer eftir kringumstæðunuiA hvort það er hagstæðara að hafá ,,hagstæðan“ eða „óhagstæðaní> verzlunarjöfnuð. — íslenzkt at>- vinnulíf er í örum vexti, örart■ vexti en í flestum löndum öðr+o um. Meðan við flj'tjum inn erlent fjármagn til þess að halda við þessum öra vexti mun verzlurr- arjöfnuðuiúnn halda áfram að vera „óhagsíæður" hvort senj<: menn vilja líta á slíkan innflutn- ing fjármagns sem hagstæðaq; eða óhagstæðan fyrir þjóðinai,, Aðeins með mikið aukinni spari- fjármyndun innanlands vær*( hægt að halda áfram þessari öryi . þróun án verzlunarhalla. B. E. dtj Framhald af bls. 8 og óvæntu ríkistekjur samt semi' áður eklci nægt, því þá hefði þeim öllum verið ejrtt jafnóðuna og miklu meira þó. Slikt er fjármálasiðferði ög þroski Framsóknar. Það sanná' allar tillögur þeirra á Alþingi urn aukin útgjöld ríkisins á árunum 1947—1950. iúlí með 220 lonn HAFNARFIRÐI — Togarinn Júli kom í fj-rradag af karfaveiðum með um 230 tonn. Hann á að' fara í slipp. B/v Júní er einnig á karfaveiðum, og hafa báðir tog- ararnir aflað vel. Aðrir hafnfirzkir togarar stunda saltfiskveiðar, og hafa þeir aflað sæmilega. — G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.