Morgunblaðið - 12.06.1953, Síða 11

Morgunblaðið - 12.06.1953, Síða 11
Föstudagur 12. júní 1953 MORGUNBLAÐIÐ ii % Guðný Björnsdóttir MiEimiig/ X 838 I DAG verður til grafar borin frá Fossvogskirkju, frú Guðný Margrét Björnsdóttir, en svo hét £ hún fullu nafni. Meðal vanda- manna og vina var hún lengi frameftir ungdómsárum sínum nefnd Guðný litla. Til þess lágu tvær: ástæður: hún var yngst átta systkina og í öðru lagi var hún fremur smá vextL Guðný var dóttir hinna gagnmerku hjóna Bjöms Jóns- sonar og Ásgerðar Bjarnadóttur. Bjuggu þau alla sína búskapartíð í Núpsdalstungu í Miðfirði. E>au voru í traustum efnum og veittu börnum sínum gott uppeldi. Þeg- ar Guðný var fyrir innan 10 ára aldur, missti móðir hennar heils- una um margra ára skeið. Dæt- ur hennar, þá ungar, tóku að sér húsmóðurstörfin og fórst það svo vel úr hendi, að heimilið hélt sínu svipmóti sem dugmikil hús- freyja hafði gefið því að sínu leyti. Strax kom það í ljós, að Guðný litla, barn að aldri, lagði þar hönd að verki með dugnaði, elju og fórnfýsi, sem vakti at- hygli og aðdáun allra, er til þekktu. Hóðír Guðnýjar endureimti sæmilega heilsu eftir langt ára- bil, en hún var þá orðin aldur- hnigin og varla fær um að sinna umfangsmiklu hlutverki, sem hún hafði fyrrum haft á hendi. Um það leyti tóku eldri syst- kini Guðnýjar eigin verkefni í hönd. Stofnuðu heimili sum, en önnur leituðu sér þroska í fjar-' lægð. Guðný tók ein að sér að- stoðina við aldraða foreldra sína, sem héldu áfram búskap og heimilishaldi eins og áður. Um það leyti tóku þau til uppfóst- urs ungbarn af örfátækum og barnmörgum hjónum, sem bjuggu í nágrenninu. Það var stúlkubarn, vænt og vel kynjað. Móðir þess dó þá líka um þær mundir, svo að fósturbarnið varð móðurleysingi. Guðný var þá orðin stærsta manneskjan á heimilínu, að umsjá þess á marga1 vegu. Hún hafði óvenjulega hæfi leika til mikillar forstöðu. Hún var atorkusöm, skapstillt, fórn- fús og umhyggjusöm, svo að af bar. Á heímilinu var jafnan gamal- menni, ásamt hinni ungu fóstur- dóttur. Hvert heimili er full- komnast í andstæðum skapandi kraftar og vanburðum elli og æsku. Guðný hafði þama aðal- handleiðsluna. Hún stjómaði að miklu leýti heimilisverkunum og vann að þeim mest allra, för móðurhöndum um fóstursystur sína og gamalmennið og lagði foreldrum sínum til fagurt aft- anskin á ævikvöldi þeirra. Hún var um langt áraskeið augasteinn og leiðarljós og skapandi kraft- ur á heimilinu. Líknarhendur hennar náðu eigi síður til hús- dýranna, sem hún lét sér mjög annt um. — Meðal sveitunga sinna ávann hún sér vináttu og virðingu. Gúðný skildi ekki við foreldra sína, fyrr en þau voru önduð og hún hafði búið þeim síðasta hvílubeð. Um það leyti var fóst- ursystir hennar fullvaxta og miklu hlutverki, sem Guðný hafði tekið að sér ung að árum, var lokið á æskuheimilinu. Þá flutt- ist hún til Reykjavíkur og átti heimili um nokkur ár hjá dr. Birni Björnssyni, bróður sínum, Og mágkonu sinni Guðbjörgu Guðmundsdóttur. Áhrif hennar á því heimili urðu hin sömu og fyrr, hún færði sólskin og yl í hvers manns fang. Á því tíma- bili vann hún nokkuð á bæjar- skrifstofum Reykjavíkur. Urðu henni störfin auðleyst, og sam- verkafólk hennar unni henni öðr- um fremur. Árið 1948, 12. september, rann upp heiðursdagur Guðnýjar. Þá 312 lesendur íþróttasíðunnor veljn landslið í knottspyrnu ÚRSLITIN í skoðanakönnun íþi’óttasíðunnar um það hverjir að dómi lesenda eigi að skipa landslíð íslendinga í knattspyrnu eru nú kunn. Minni þátttaka varð í skoðanakönnuninni, en vænta hefði mátt. Alls bárust 312 seðlar og féllu atkvæðin þannig: giftist hún eftirlifandi manni sín- um Magnúsi Sveinssyni, vel gefn- um og góðum dreng, sem hafði með þrautseigju og manndómi brotizt fram úr fátækt og alls- leysi til mennta og var þá orð- inn kennari við gagnfræðaskól- ann á ísafirði. Þau stofnuðu þar heimili og unnust mikið. Síðast- liðinn vetur átti Guðný barns- von. Fyrsta dag júnímánaðar var henni gerð fæðingaraðgerð. Barn hennar var stúlka, und- urfögur og lík móður sinni, að því er séð verður. Fyrstu dægr- in heilsaðist Guðnýju vel, og hin- ir fjölmörgu vinir og vandamenn, og þó einkum eiginmaður, voru snortnir af gleði og eftirvænt- ingu um hennar hag. En snögg- l'ega tók hún þunga sótt, líf hennar hékk á bláþræði í nokkur dægur. Læknarnir á staðnum skiftust á um að sitja við sjúkra- beðinn og gerðu alit, sem unnt var til þess að bjarga lífi hennar. Hún andaðist 5. júní, 45 ára að aldri. Síðastliðinn þriðjudag fór fram kveðjuathöfn á heimili hennar og í öðru lagi í ísafjarðarkirkju. Við kistu hennar var dóttirin skírð. Hlaut hún nafn móður sinnar, Guðný Margrét.' — Við minningarathöfnina kom í ljós, að þessi hjón hafa unnið sér þar miklar og traustar vinsældir. Fjöldi manna vottaði samúð sína. Kirkjan var fagurlega skreytt. Söngurinn og kveðjuorð prests- ins, sem var heimilisvinur þeirra hjóna, eru ógleymanleg þeim, er viðstoddir voru. Guðný Björnsdóttir er ein bezta manneskja, sem ég hefi þekkt. Hún var óendanlega rík af samúð, velvilja og geðhlýju í garð allra, sem hún hafði kynni af, einkum allra smælingja og vanmáttarfólks. Vinir hennar og vandamenn hafa misst mikið við lát hennar, eiginmaður hennar þó mest. Samlíf þeirra hjóna var fullt af ástúð og umhyggju á báðar hliðar. En litla stúlkan, dóttir hennar, hefur þó misst allra mest. Nú er líkt ástatt fyrir henni og móðurleysingjanum, sem Gnðný tók eitt sinn í sína móðurvernd, en óefað á hún eft- ir að njóta móður sinnar með góðum hætti. Blessuð sé minning Guðnýjar Björnsdóttur. Magnús F. Jónsson. V. UTHERJI Reynir Þórðarson 164 Þórður Jónsson 67 Gunnar Guðmaxmsson 54 Gunnar Gunnarsson 21 3 aðrir samtals 6 MIÐFRAMHERJI Þórður Þórðarson 296 Ríkharður Jónsson 12 Bjarni Guðnason 3 Þórður Jónsson 1 H. UTHERJI Gunnar Gunnarsson Halldór Sigurbjörnsson Gunnar Guðmannsson Reynir Þórðarson Olafur Hanr.esson w:> 101 :iú 7 V. FRAMHERJI m Bjarni Guðnason 114®*® Pétur Georgsson 101— Halldór Halldórsson 52(1 Gunnar Guðmannsson 21 Ríkharður Jónsson 12 Þórður Þórðarson 6 Hörður Óskarsson 6 H. FRAMHERJI Rikharður Jónsson 287 Bjaxni Guðnason 12 Þórður Þórðarson 8 Halldór Halldórsson 3 Gunnar Guðmannsson 2 V. FRAMVÖRÐUR MIÐFRAMVÖRÐUR H. FRAMVÖRÐUR Guðjón Finnbogason 169 Dagbjartur Hannesson 153 Sveinn Teitsson 163 Steinar Þorsteinsson 44 Sveinn Helgason 132 Guðjón Finnbogason 51 Gunnar Sigurjónsson 25 Haukur Bjarnason 19 Gunnar Sigurjónsson 29 Sveinn Teitsson 18 Einar Halldórsson 7 Halldór Halldórsson 22 Halldór Halldórsson 16 Guðjón Finnbogason 1 Hafsteinn Guðmundsson 15 11 aðrir samtals 40 Steinar Þorsteinsson 11 Sveinn Helgason H 3 aðrir samtals 10 V. BAKVÖRÐUR H. BAKVÖRÐUR Haukur Bjarnason 166 Karl Guðmundsson 157 Guðbjörn Jónsson 55 Sveinn Benediktsson 61 Ólafur Vilhjálmsson 36 Haukur Bjarnason 42 Karl Guðmundsson 25 Dagbjartur Hannesson 13 Sveinn Benediktsson 21 Ólafur Vilhjálmsson 11 3 aðrir samtals 9 Einar Halldórsson 9 Guðbjörn Jónsson 9 Sveinn Helgason 8 Helgi Eysteinsson 2 Frjálsíþróitamót Á laugardaginn kl. 3 e. h. fer fram á íþróttavellinum frjáls- íþróttamót sem í. R. og Ármann standa fyrir. Á mótinu verður keppt í 100 m hlaupi, 400 m hlaupi, 1500 m hlaupi A. og B. flokks 110 m grindahlaupi, 4x 100 m boðhlaupi, hástökki og öll- um kastgreinum._______ K. R. vann Fram 3:1 3. LEIKUR íslandsmótsins fór fram í gærkvöldi. Sigraði KR Fram með 3:1. — Vegna riðla- skiptingar mótsins hefur Fram nú lokið leikjum sínum. — Skoraði liðið 2 mörk en fékk 7. VERÐLAUNIN „Landslið lesenda íþrótta- síðu Moi'gunblaðsins" er því skipað þeim ofannefndum mönnum, sem fyrstir eru tald- ir í hvei'ja stöðu. En þó að þeir í flestum tilfellum séu lang atkvæðaflestir, voru að- eins 12 þátttakendur með lið- ið nákvæmlega þannig skip- að á sínum seðlum. Dregið var því um verðlaunin og upp kom seðill Þorláks Halldórs- sonar, Urðarstíg 3. Má hann vitja verðlaunanna, 200 króna, i skrifstofu Morgunblaðsins. ÚRLAUSNIRNAR Eins og sjá má af atkvæðatöl- unum er ekki mikill ágreining- ur milli lesenda um það hverjir eigi að skipa liðið. í hverja stöðu er valinn maður með miklum atkvæðamun yfir næsta mann, að undanteknum stöðum v. framherja og miðframvarðar, þar sem „baráttan“ milli tveggja efstu mannanna varð nokkuð hörð, en þó er ekki um vilja al- mennings að villast. Eins og sjá má voru misjafn- lega margir tilnefndir í einstakar stöður. Minnstur er skoðana- munur almennings um það hver vera eigi miðframherji liðsins, 4 tillögur komu um markmann, 5 tillögur um h. útherja, h. fram- herja og miðframvörð. Flestir voru tilnefndir í stöðu vinstri framvarðar, 16 menn alls, en þó hlaut Guðjón Finnbogason fleiri atkvæði en allir hinir 15 saman- lagt. VINSÆLDIR KNATTSPYRN UMANNA Af úrlausnunum má nokkuð marka um vinsældir knatt- spyrnumannanna. Á öllum seðl- unum nema einum var nafn Rík- harðs Jónssonar og á öllum seðl- unum nema tveimur nafn Þórð- MARKVORÐUR Helgi Daníelsson 272 Bergur Bergsson 22 Ólafur Eiríksson 12 Magnús Kristjánsson 6 ar félaga hans Þórðarsonar. Ann- ars féllu atkvæði á einstaka menn (samanlagt en þeir voru margir tilnefndir í fleiri en eina stöðu), sem hér segir: Ríkharður Jónsson 311 Þórður Þórðarson 310 Helgi Daníelsson 272 Haukur Bjarnason 229 Guðjón Finnbogason 221 Gunnar Gunnarsson 201 Karl Guðmundsson 182 Sveinn Teitsson 181 Dagbjartur Hannesson 177 Reynir Þórðarson 171 Sveinn Helgason 161 Bjarni Guðnason 129 Pétur Georgsson 106 Halldór Sigurbjörnsson 104 Gunnar Guðmannsson 100 Halldór Halldórsson 93 Sveinn Benediktsson 82 Þórður Jónsson ÍA 68 Guðbjörn Jónsson 65 Steinar Þorsteinsson 55 Gunnar Sigurjónsson 54 Ólafur Vilhjálmsson 47 Bergur Bergsson 22 Hafsteinn Guðmundsson 22 Einar Halldórsson 20 Ólafur Eiríksson 12 Sæmundur Gíslason 7 Magnús Kristjánsson 6 Hörður Óskarsson 6 Ólafur aHnnesson 6 Steinn Steinsson 5 Hörður Felixson (KR) 3 Helgi Eysteinsson 2 Hörður Felixson (Val) 1 Magnús Snæbjörnss. (Val) 1 LBD AKRANESS VINSÆLAST Af einstökum liðum er lið Akraness lang vinsælast. Það eitt var tilnefnt í heild sem lands lið á 6 seðlum. Á allmörgum seðlum var liðið óbreytt að mark manni undanskildúm og á fjölda seðla var liðið óbreytt að mark- manni og bakvörðunum tveimuN undanskildum. ; Þó þátttakan í skoðanakönr 7 uninni hafi ekki verið meiri mæ eflaust telja að þarna komi í ljó'C spegilmynd af vilja almennings; Gaman og fróðlegt verður sw>i að sjá, að hve miklu lejúi skoð • anir almennings og skoðanir foi • ráðamanna knattspyrnuiþrótta.r •: innar fara saman. Iþróttasíðan þakkar þeim sem) þátt tóku í skoðanakönnuninni;; Val landsliðsins er mikið vandn * verk, þar sem oft hafa ráðið ein 1 kennileg sjónarmið, s. s. „verzl * un“ milli félaga o. fl. Æfinleg.u hefur verið rifizt um val í ein-; stakar stöður eftir á. Þessvegn.d fannst Íþróttasíðunni sjálfsagiS að leita álits almennings fyrir 5 fram. Og nú geta menn byrjalí að rífast um skipun „Landslið íþróttasíðu Morgunblaðsins.“ — A. St. ; Drengjamót DRENGJAMÓT Ármanns fór; fram á íþróttavellinum á mið •' vikudagskvöld. Náðist þar góðut'.; árangur í ýmsum greinum. — S Helztu úrslit urðu 100 m hlaup Hilmar Þorbjörnsson Á 11,3, 2" Vilhjálmur Ólafsson ÍR 11,4 sel<| — 400 m. hlaup: Þórir Þorstein.s .5 son Á 54,5 sek. — 1500 m hlaup.J Hreiðar Jónsson Á 4:16,8 — llt)£ m grindahlaup Ingvar Hallsteins son FH 16,2 — 4x100 m boðhl. Sveit ÍR 46,7. Danstögg: Daniel Halldórsson ÍR 5,65 m. — Þrí ; stökk Daníel Halldórsson ÍR,: 13,29 m. — Kringlukast drengja ; Þórir Þorbjarnarson Á 40,95. — "■ Kringlukast unglinga: Dani'-tp Halldórsson ÍR 36,65. — Kúl.r varp unglinga Jóntan Sveinsson,;, Ólafsvík 12,21. — Spjótktííf Sverrir Jónsson FH 48,61 m.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.