Morgunblaðið - 15.07.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.07.1953, Blaðsíða 12
Veðurúflit í dag: NV-gola eða kaldi. Víðast létt- skýjað. Heimsókn í flóttamannabúðir i Vestur Berlín. 13 ára drengur hrapaði og fieið bana í Vesfmannaeyjum VESTMANNAEYJUM, 14. júlí: — Þ?ð sviplega slys vildi til hér .seint í gærkveldi, að ungur drengur, Oddur að nafni, sonur Guð- mundar H. Oddssonar, skipstjóra, hrapaði í Smáeyjum og beið bana. VORU Á HANDFÆRA- OG LUNDAVEIÐUM Aðdragandi þessa sviplega slyss var með þeim hætti, er hér segir: í gærkveldi fóru skipverjar af m.s. Oddi, sem er hér staddur, skipstjóri, vélstjóri og háseti og Oddur heitinn, á léttbátnum og ætl uðu á handfæraveiðar. Jafnframt btifðu þeir með sér lundaháf og ætl uðu til lundaveiða í Smáeyjum, sem eru örskammt vestan Heima- eyjar. Ein eyjan af Smáeyjum nefn- iet Hani og upp í hana fóru vél- sljórinn og Oddur litli. Hugðust þeir veiða lunda, en Guðmundur skipstjóri, faðir Odds og hásetinn urðu eftir í léttbátnum og æthiðu Jeir að reyna fyrir sér með hahd fe.'ri. — ÆTLAÐI AÐ SKOÐA SIG UM Er upp í Hana kom, og mun klukkan þá hafa verið um 10 e.h., settist vélstjórinn við háíinn og var Oddur þar hjá hðnum. Eftir btla stund sagðist Oddur ætla að ói'.oða sig um í eynni, sem er lítil urnmáls. Bað vélstjórinn bann um að fara ekki langt og umfram allt að fara gætilega. LEIT HAFIN Eftir litla stund fór vélscjórinn að líta eftir Oddi, en sá hann þá hvergi. Kallaði hann þá úl hans, en fékk ekkert svar.. Fór hann þá þegar að leita, en varð drengsins hvefgi var. Sá hann þá hvar trillu bátur fór’ framhjá eynni, og kall- aði til mannanna í bátnum, og komu þeir upp í eyna til hans. Eeituðu þeir drengsins ásamt vél- iXjóranum, en árangurslaust. FANNSTHVERGI Þegar hér var komið, sendi vél- stjórinn trillubátinn að leita að léttbátnum og kom hann eftir skamma stund. Var þá haldið á- fram leitinni um alla eyna, en allt kom fyrir ekki. Trillubáturinn var nú sendur til lands eftir frekari hjálp. Er hún barst, var sigið í eyna og leitað allt í kringum hana fram til morguns, en án nokkurs árangurs. Hvergi sáust vegsum- merki, hvar Oddur hefir hrapað, en eyjan er sums staðar þver- knýpt í sjó fram, og anna-s stað- ar flugir og stórir steinar. Oddur heitinn var aðeins 13 ára að aldri, hinn mesti efnis- og myndardrengur. — Bj. Guðm. Mokafli hjá trill- uni á Vestf jörðum ÍSAFIRÐI, 14. júlí: — Ágætis afli hefur verið undanfarið á trillubáta sem handfæraveiðar stunda hér á Vestfjörðunum. Al- gengt er að menn dragi allt að 1000 kg. í róðri. I Hér er um þorsk að ræða, j sprotafisk, 18—20 tommu lang- an. Fiskurinn er saltaður. Afla- hlutur trillubátamanna hefur orðið um og yfir 1000 krónur í róðri. — J. Hvalveiðar stundaðnr í Fuxuilóu í sumar KEFLAVÍK, 14. júlí: — Síðastliðið sumar var m.b. Andvari send- ur á hvalveiðar héðan í tilraunaskyni. Var báturinn þá í þrjár j vikur á veiðum. Þessi tilraun þótti takast með ágætum, og hefir nú verið ákveðið að senda bátinn aftur á samskonar veiðar. BÚINN FULLKOMNUM TÆKJUM Er báturinn búinn fullkomn- um tækjum, sem þarf við slíkar veiðar. Fengin hefir verið byssa af nýjustu gerð frá Noregi og eru skutlar hennar þannig gerðir, að í hverjum þeirra er tímasprengja, er springur eftir 9 sek. eftir að skutullinn lendir í hvalnum. Drepst dýrið þá sam- stundis. í fyrra urðu skipverjar að skjóta á hvalinn með sérstökum rifflum, eftir að búið var að skutla hann. Er því mikill tíma- sparnaður að þessum nýju tækj- VEIÐIR I FAXAFLOA Báturinn, sem er 56 smál. að Frá Ferðanefnd Heimdallar ÞEIR, sem hafa pantað far í ferð Heimdallar til Akureyrar eru minntir á, að farseðlar verða af- hentir í skrifstofu Ileimdallar í Sjálfstæðishúsinu, í dag til kl. 7. Nokkrir nýir þátttakendur geta enn bætzt við. Eins og áður er getið, verður lagt af stað n.k. föstudag kl. 7 Vi síðdegisr Litli salurinn í Sjálfstæöis- húsinu verður opinn í kvöld fyr- ir félaga ferðadeildar og aðra, sem áhuga hafa á ferðum félags- ins. stærð er búinn tveim byssum, framá og afturá-byssu. Á bátn- um verða alls 5 manns og mun hann stunda veiðar í Faxaflóa. Er þar aðallega smáhvalur, mest- megnis háhyrningur. TVEIR EYJABÁTAR Á HVALVEIÐAR Skipstjórinn, Benóný Friðriks- son, hefir undanfarið verið í Vestmannaeyjum að kenna Vest- manneyingum veiðar þessar, en hann segir, að tveir bátar muni verða gerðir út þaðan á hval- veiðar. Aflinn verður lagður upp í Keflavík og er nú verið að koma fyrir tækjum í Fiskiðjunni, svo hún geti unnið " úr af lanum að öllu leyti. Eigandi Andvara er Björn Pétursson, útgm. — Ingv- ar. Hreinasfa mildi að ekki varð slys afr er jarðýfu hvolfdi AKUREYRI, 14. júlí: — Um kl. 5 í dag valt jarðýta út af veginum við húsið nr. 8 við Spítalaveg hér í bæ. Nam ýtan staðar á hvolfi, en stjórnandann, Pálma Karlsson, sakaði ekki. TíU METRA HÁR VEGK ANTUR Þar sem ýtan valt út af vegin- utn, er um 10 m. hár vegkantur, ett húsið Spítalavegur 8, þar fyrir ncðan í brekkunni. Vestan við húsið er skúrbyggð forstofa, um það bil þrír rnetrar á breidd. Á milli forstofunnar og og vegkants ins, er aðeins rúmur metri neðst. KLEMMDIST Á MILLI Pálmi Karlsson ók jarðýtunni niður Spítalaveginn og hugðist sveigja lítið eitt til hægri rétt ofan við húsið nr. 8, en iiann er óvanur að fara með jarðýtu og íataðist stjórnin. Ytan sveigðist til vinstri, lenti á grindverki, sem er á vegarbrúninni, braut það og valt síðan fram af veginum. Kom hún niður á hvolfi, klemmd milli hússins og vegkantsins. EINSTAKT LÁN Tréyfirbygging er á jarðýtunni. Brotnaði hún ekki, né heldur rúð- ur í henni. Stafaði þetta af því, að þrengsli eru þarna svo mikil, að enginn þungi hvíldi því á yf- irbyggingunni sjálfri. Komst Pálmi alls ómeiddur undan ýt- unni. Er hér um að ræða einstakt lán, að ekki skyldi hljótast verra af, því fullvíst má telja, að yfir- bygging ýtunnar hefði molast, ef hún hefði lent aðeins sunnar eða norðar út af veginum. — Vignir. Verkakvennafélag * sfofnað í Keflavík og Njarðvikum KEFLAVfK, 14. júlí: — Fyrir og Njarðvíkum að stofna hér verkakvennafélag. Mynduðu þær samtök með sér og var stofnfund- ur félagsins haldinn 10. júlí s.l. Stofnendur félagsins voru 44. Stjórnin er þannig skipuð: Vil- borg Auðunsdóttir, formaður; Guðmunda Friðriksdóttir,. ritari; Soffia Þorkelsdóttir, gjaldkeri; Hulda Brynjólfsdóttir, fjármála- ritari; Þuríður Halldórsdóttir, varaformaður. f varastjórn eru: Vilborg Guðnadóttir og Elín Þórð ardóttir. Endurskoðendur Mar- grét Guðleifsdóttir og Dagbjört Ólafsdóttir. Nauðsynlegt var að sofna hér verkakvennafélag, m. a. vegna þess að nokkurt ósamræmi hefir verið um kaup kvenna, en sérstak lega þeirra, er að síldarsöltun hafa unnið. Er því slíkt félag til bóta, bæði fyrir verkakonurnar og vinnuveitendur. Samþykkt var einróma á stofn- fundinum að biðja um npptöku í Alþýðusamband íslands. —Ingvar Færanleg sfállungu LÚBECK, 14. júlí — Þjóðverjar eru að hefja framleiðslu á fær- anlegum stállungum. Eru þau innbyggð í sjúkrabíla og koma að góðu haldi, þegar lömunar- veikissjúklingar eru færðir staða á milli. —dpa.___________ VÍNARBORG: — Ungverska stjórnin hefir fellt úr gildi lög, sem leggja refsingu við að koma of seint til vinnu eða fara úr vinnu í leyfisleysi. — Síldarsöltun liafin á Baufarhöfn 24 þí». tunnur sallaðar á Siglufirði RAUFARHÖFN, 14. júlí — Flest- ir skipstjórar veiðiskipa eru orðn ir vongóðir um sæmilega síldar- vertíð. Síðastliðna nótt hafa um 100 skip fengiö síld á Þistilfirði, frá 50 til 800 mál. Söltun er hafin hér á öllum plönum. — Heimafóik vinnur nær ein- göngu að henni ennþá, þar sem aðkomufólk er fátt, en það er væntanlegt bæði að sunnan og vestan. 1350 málum hefir verið landað hér í bræðslu. — Einar. 24 ÞÚS. TUNNUR Á SIGLUFIRÐI SIGLUFIRÐI, 14. júlí — Söltun hér á Siglufirði fram til mánu- dagskvölds var sem hér segir: Islenzkur fiskur (V. Friðjóns- son) 2409 tunnur, Nöf 2255, Pól- stjarnan 2225, Hafliði h.f. 2092, Óli Hinriksen 1820, Njörður h.f. 1788, Dröfn 1545, Óli Ragnars 1503, Sigfús Baldvinsson 1414, Sunna 1377, Óskar Halldórsson 1314, Síldin h.f. 1189, Hrímir 1084, ísafold 1079, KFS 548, Frið- rik Guðjónsson 391, Þóroddur Gðmundsson 84. Hefir þá verið saltað hér í rúmlega 24 þús. tunnur. Nokkur skip hafa komið hér í dag og fengu sum þeirra síldina hér úti stutt undan. Sjöfn var með 200 tunnur, ísleifur 200, Reykjarcst 100, Vörður 200. —• Fleiri skip hafa komið og eru sum með mikinn afla. Annars er allur flotinn kom inn austur og eru sum skipin þegar á vcsturleið með síld til söltunar hér. Þessi eru vænt- anleg í kvöld: Víðir SU með 500 tunnur, Sigurður 400 og Ingvar Guðjónsson með 200—• 300. — Guðjón. RKI berst stórgjöf til heimilisins í Laugarási Frá aðalfundi Rauða krossins AÐALFUNDUR Rauða kross ís- lands fyrir árið 1953 var haldinn á barnaheimili hans að Laugar- ási, Biskupstungum, fimmtudag- inn 2. júlí. Formaður framkvæmdaráðs, Kristinn Stefánsson, læknir, stjórnaði fundinum í fjarveru formanns. Fundarmenn voru um 50, þar af 24 fulltrúar frá hinum ýmru deildum Rauða krossins. Fundarstjóri skýrði í upphafi fundarins frá stórgjöf, er félag- inu hafði borizt frá formanni þess, Scheving Thorsteinsson, hafði hann gefið RKÍ ábreiður og kodda í 120 barnarúm. Þakkaði fundarstjóri formanni þessa höfð inglegu gjöf og aðrar stórgjafir, er hann hefur áður fært RKÍ. Próf. Jóhann Sæmundsson, minntist Haraldar Árnasonar, stórkaupmanns, gat hinna miklu mannkosta hans og hæfileika, er öfluðu honum vinsælda hvar- vetna. Sumardvöl barna í sveit var um langt skeið mikið áhuga- mál Haraldar heitins og hann var frumkvöðull að sumardvalar heimilinu að Laugarási. Að ræð- unni lokinni var afhjúpuð mynd af Haraldi Árnasyni, er komið hafið verið fyrir í salnum og sýndu fundarmenn minningu hins látna virðingu með því að rísa úr sætum. Þá var rætt um starf RKÍ á ár- inu. Barnaheimilið að Laugarási var fullgert og tók til starfa á árinu. Ríkissjóður og bæjarsjóð- ur Reykjavíkur, höfðu hver um sig veitt 125 þús. kr. styrk til heimilisins, er alls hafði verið varið á árinu til að Ijúka fram- kvæmdum að Laugarási, Nú er svo komið að Laugarás er skuld- laus eign Rauða kross íslands. HOLLANDSSÖFNUNIN Guido Bernhöft gerði grein fyrir Hollandssöfnuninni. Alls höfðu safnast kr. 701.134.41. — Hann gat þess að fyrir fljót við- brögð og velvilja hefði tekizt að koma nokkru af nauðsynjavörum furðu fljótt til hinna nauðstöddu og þær því komið að miklu liði. Fundurinn samþykkti að senda þjóðinni allri þakkir fyrir hina miklu fórnfýsi og skilning, er kom fram í hinum glæsilega ár- angri af söfnuninni. Gjöld voru samkvæmt rekstr- arreikningi kr. 71.700.99. Tekjur kr. 133.399.25. Nettó tekjur kr. 61.698.26. Samkvæmt efnahags- reikningi var skuldlaus eign kr. 991.793.24. STJÓRNARKOSNING í stjórn RKÍ eru nú: Scheving Thorsteinsson, for- •maður. Meðstjórnendur: Gísli Jónasson, fulltrúi, Sigríður Bach mann, hjúkrunarkona, Guðrún Bjarnason, hjúkrunarkona, Guð- mundur Thoroddsen, próf., Guð- mundur K. Pétursson, yfirlækn- ir, Hallgrímur Benediktsson, stórkaupm., Friðrik Ólafsson, skólastjóri, Jón Matthíesen, kaup maður, Kristinn Stefánsson, læknir, Björn E. Árnason, endur- skoðandi, Sigurður Sigurðss., yf- irlæknir, Jóhann Sæmundsson, próf., Sveinn Jónsson, forstjóri, Bjarni Jónsson, læknir, Jón Sig- urðsson, slökkviliðsstjóri. I framkvæmdaráð voru kosnir: Oddur Ólafsson, form., Árni Björnsson, gjaldkeri, Gunnlaug- ur Þórðarson, ritari, Ottó B. Arn- ar, Sveinn Jónsson, Kristinn Stef ánsson. I stjórn Sambands Rauða kross félaga var kosinn Scheving Thor- steinsson. Að lokinni stjórnarkosningu tók til máls formaður Rauða kross deildar Reykjavíkur, séra Jón Auðuns. Þakkaði hann Kristni Stefánssvni fyrir frábært starf í þágu RKÍ á undanförnum árum. Fundarmenn áréttuðu þakklætið til Kristins með því að rísa úr sætum. Mikil atvinna á ísafirði ÍSAFIRÐI, 10. júlí — Rækju- veiðar eru nú að hefjast héðan frá ísafirði og munu þær verðr stundaðar i allstórum stíl, þar eð fjórir bátar vcrða við þær. Afli bátanna hefur yfirleitt verið í tregara lagi að undanförnu, en er nú heldur að glæðast. Rækjurnar eru frystar til út- flutnings og þegar aflinn er orð- inn mikill, munu um 200 manns vinna við að skelfletta fiskinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.