Morgunblaðið - 22.07.1953, Side 1
40. árgangui
162. tbl. — Miðvikudagur 22. júlí 1953
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Það hefur verið annríkt á búi bóndans nú að und.anförnu
frá Brautarholti í Kjós. Snúningsvélin er að starfi.
um hásláttinn. Myndin hér að ofan er
— Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
• •
ðflugar varnir við Su@z eru
heimsfriðnum nauðsynlegar
Umræður m ufanríkismál í brezka þinginu
LUNDÚNUM 21. júlí — í dag hófust í neðri málstofu brezka
þingsins 2 daga umræður um utanríkismál. Var Butler fjármála-
ráðherra frummælandi, en hann gegnir nú störfum forsætisráð-
herra í fjarveru Churchills og Salisbury lávarður, sem gegnir
störfum utanríkisráðherra í fjarveru Edens, má ekki taka þátt í
fundum neðri málstofunnar. þar sem hann á sæti í efri deild.
Heyskapur hefir gengið
vel um land allt
Crssspretta allsstaðar með
ágætum og nfting heyja góð
Koslir súgþurrkunar og vol-
heysverkunar koma enn í Ijós.
HEYSKAPUR hefur yfirleitt gengið með ágætum hér á
landi það sem af er sumrinu, enda hafa verið stöðugir þurrk-
ar núna síðustu vikurnar að heita má um land allt. Bregður
bændum mjög við eftir undanfarin óþurrkaár. Þá hefur
sprettan verið sérstaklega góð, t. d. víða tvöföld á við það,
sem hún var í fyrra. Það eina. sem amað hefur að er, að
gras var allvíða farið að spretta úr sér, og hefur því komið
sér vel að nýtingin er hin bezta víðasthvar.
Það hefur greinilega komið í ljós, að þeir bændur,
sem hafa súgþurrkun, eða hafa komið sér upp vot-
heysturnum, eða gryfjum, eru mun betur settir en
hinir. Hafa þeir verið fyrri til við hirðinguna og náð
inn betra heyi.
GENGUR BEZT ÞAR SEM
SÚGÞURRKUN ER
Heyskapartíð hefir verið mjög
góð síðustu tvær vikurnar, sagði
Steinþór Gestsson, bðndi að Hæli
í Gnúpverjahreppi, er blaðið átti
tal við hann í gær, og heyskapur
gengið vel. Gras var mun meira
en undanfarin ár, en nokkuð far-
ið að spretta úr sér.
Sláttur er ekki nærri búinn hér
ennþá. Tún eru almennt stór, frá
400—1000 hesta. Áberandi er, hve
betur gengur þar sem súgþurrk-
un er, sérstaklega þar sem þar
var hægt að byrja slátt fyrr. Um
þriðjungur bænda hér hefir nú
súgþurrkunartæki. Smá væta var
hér í dag, en ekki teljandi þó.
NOKKUÐ ÓSLEGIÐ AF
TÚNUM
Magnús bóndi Guðmundsson að
Mykjunesi í Holtum, skrifar blað
inu, að sláttur hafi hafizt þar um
og eftir síðustu mánaðamót. Byrj
uðu menn heyskapinn . heldur
seinna en á horfðist, vegna óþurrk
anna, sem þá voru. Margir settu
fyrst í vothey, en síðustu viku var
mjög hagstæð tíð, þurrkur flesta
daga og yar, þá miklu af töðunni
£'rh. á bls 2.
«>-
Rússar verða
á ráðsfefnunni
PANMUNJOM. 21. júlí. —
Vopnahlésnefndir deiluaðilja
í Kóreu héldu fundi í dag og
ræddu um framkvæmd vopna
hléssamningsins. Ekki liggur
fyrir hvað á fundinum var
samþykkt.
Nú hefur verið tilkynnt að
Bandaríkin, Bretland og
Frakkland muni bjóða Rúss-
landi að taka þátt í ráðstefnu
þeirri er halda á innan 90
daga frá undirritun vopna-
hléssamningsins. En á ráð-
stefnu þessari skal útkljá um
framtið stríðsfanga og ræða
framtíðarstöðu Kóreu.
Tillagan um að bjóða Rúss-
um þátttöku kom frá Banda-
ríkjamönnum, en hana hafa
Bretar og Frakkar fallizt á.
— NTB-Reuter.
Nýja sfjórnin
vö!f í sessi
HELSINGFORS, 21. júlí: — Nýj-
ar þingkosningar voru taldar nær
óumflýjanlegar í dag er finnska
þingið kom saman til aukafundar
til þess að ræða tillögur Kekkon-
ens forsætisráðherra um lausn
efnahagskreppunnar, er varð
fyrri stjórn að falli.
Er litið svo á að Kekkonen fái
ekki stuðning nema 94 af 200 þing
mönnum er hann ber þessar til-
lögur fram. Ekki eru þó flokksálit
til tillagnanna komin fram og því
kann að vera að Kekkonen afli
tillögum sínum nægilegs íylgis —
þótt ólíklegt sé. — NTB.
VIÐSKIPTIN VIÐ
AUSTURLÖND
Butler kvaðst vona að undirrit
un vopnahléssamnings í Kóreu
væri skammt undan, en með því
yrði stigið stórt spor í friðarátt.
— Butler ræddi um verzlunina
við Kina og sagði brezku stjórn-
ina einhuga um samþykkt Alls-
herjarþingsins um bann við flutn
ingi hernaðariega mik’lvægra
vörutegunda til Kína, en hins
vegar væri það kappsmál brezku
stjórnarinnar að stuðla að verzl-
un við Kína með aðrar vöruteg-
undir.
EGYPTALAND
Butler kvað Salisbury, starf-
andi utanríkisráðherra, ’nafa rætt
ýtarlega við Foster Dulles um
Egyptalandsmálin. Niðurstöður
þeirra viðræðna hefðu orðið þær,
að -báðir væru á þeirri skoðun að
það væri mikilvægt fyrir frið-
inn í heiminum, að öflugar varn-
ir væru á Suezeyði.
STEFNA CHURCHILLS
Salisbury talaði í efri deild. —
Hann kvað stefnu stjórnarinnar
hafa verið mótaða af Churchill áð-
ur en hann veiktist, en sú stefna
væri í stórum dráttum að koma á
viðræðufundi með fulltrúum Vest
urveldanna og að stuðla að við-
gangi þeirra stofnana sem öryggi
og afkoma Vesturlanda væri
byggð á.
Telja heimsóknina
móðgun við sig
AÞENU, 21. júlí: — 21 skip úr
brezka Miðjarðarhafsflotanum
komu í kurteisisheimsókn til Grikk
lands í dag. Stjórnar Mountbatten
lávarður flotadeild þessari. Hefur
hann gengið á fund ríkisstjórnar
og annarra ráðamanna í Grikk-
landi. —
Ákveðið er að flotadeildin haldi
síðan til Isanbul í Tyrklandi. —•
Þeirri heimsókn hafa Rússar op-
inberlega mótmælt — og telja
hana móðgun við sig.
IVjósnarar
handteknir
BONN, 21. júlí: — Sex Þjóðverj-
ar hafa verið teknir höndum fyrir
njósnir á brezka hernámssvæðinu
í þágu Sovétríkjanna. — Tveir
hinna handteknu eru kvenmenn,
og hefur annar þeirra verið síma-
stúlka á einni af skrifstofum
brezka hersins.
Einn hinna handteknu karl-
manna var flugliðsforingi og með
limur í Kommúnistaflokki Þýzka-
lands í tvö ár. Njósnararnir verða
leiddir fyrir dómstól n. k. föstu-
dag í Dússeldorf.
Víðtæk andspyrnuhreyfing gegn
A.-þýzku stjórninni oð nsyndnst
- Við höfum ekki gefist upp, seg ja verkamennirnir.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
BERLÍN, 21. júlí: — Með Rússneskum vopnum og morðdrekum var hægt að bæla
niður frelsisbaráttu alþýðunnar í Austur-Þýzkalandi 17. júní s.l. — í bili. Síðan sá dag-
ur leið, hafa verið skipulagðar í landinu deildir. sem lúta forystu miðstjórnar and-
spyrnuhreyfingar sem vinnur gegn leppstjórn Rússa, sem situr að völdum í landinu
í óþökk alls þorra almennings.
VIÐ BERJUMST
— Við höfum ekki gefizt
upp. Baráttu okkar er engan
veginn lokið, sagði fulltrúi
andspyrnuhreyfingarinnar í
samtali við Reuter borgar-
stjóra Vestur-Beriínar í dag.
Við lærðum mikið 17. júní,
og okkur sem tókst að flýja,
hefur tekizt að skipuleggja
starfsemi andspyrnuhreyfing-
ar gegn kommúnistastjórn-
inni á víðari grundvelli en
áður var kleift. Alþýða Aust-
ur-Þýzkalands hyggst steypa
stjóm landsins af stóli og
vinna að sameiningu Þýzka-
lands í eitt ríki. i
SAMSTILLT ÁTÖK
Þessi ummæli hins land-
flótta alþýðumanns, komu
heim við fréttir er þýzku
fréttastofunni DPA hafa bor-
izt með flóttamönnum er
komið hafa frá Austur-Þýzka-
landi.
Flóttamennirnir segja, að í
borgunum Magdeburg, Bitter-
feld, Halle, Merseburg, Eis-
leben og Jena starfi and-
spyrnuhreyfing, sem hafi það
markmið að reyna að draga
úr afkastamætti iðnaðar og
landbúnaðar í Austur-Þýzka-
landi. Hreyfing þessi starfar
ekki í einni verksmiðju, held-i
ur öllum, segja þeir.
FÓLKIÐ SVELTUR
Og á sama tima reynir
stjórn Austur-Þýzkalands að
vinna aftur traust alþýðunn-
ar og er í þeim efnum öllum
brögðum beitt, meðal annars
að lofa fólkinu meiri mat.
'Stjórnin hefur nú tilkynnt
að rússneska stjórnin hafi
boðizt til þess að senda mat-
væli til Austur-Þýzkalands að
verðmæti rúml. 231 milljón
rúblna. Er þetta fjórum sinn-
um meira matvælamagn en
Eisenhower bauðst til að
senda austur-þýzku þjóðinni.
En Eisenhower hugðist gefa
-t- en Rússar ætla bara að
lána,