Morgunblaðið - 22.07.1953, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 22. júlí 1953
l
Heyskopurmn
Frh. af bts. 1.
bjargað í hlöðu eða sæti. Ýmsir
feiga þó allmikið óslegið af túnum
ennþá, því víða er heldur fálið-
að á bæjum.
, Mikill meirihluti bænda hér á
jnú orðið dráttarvélar til ómetan-
jegs hagræðis við erfiðustu störf-
dn, segir Magnús.
* drasvöxtur er með þeim ágæt-
inm, að vart hefir jörð áður verið
Jjafnvel sprottin. Má segja, að allt
þc jafn hlutfallslega gott, tún,
jengi og hagar. V^t fer fram í
Jgörðum og ætti að geta orðið góð
luppskera, ef svo heldur áfram
Iscm nú horfir.
LANGT KOMNIR MEÐ
TÚNASLÁTT
Heyskapurinn gengur iiér vel,
sagði séra Gísli Brynjóifsson á
Kirkjubæjarklaustri. Þurrkur hef
ir nú verið í tæpa viku og víða
cr langt komið með tún. Taðan
hcfir yfirleitt verkast vel, en gras
Íð var orðið nokkuð úr sér sprott-
ð, og dregur það nokkuð úr gæð-
inum. í dag er hér þykkt ioft, en
Jdgningarlaust.
I
ólrsfæðin tefur
j Eg náði tali af Þorgeiri Þor-
áteinssyni á Grund í Skorradal,
gcg'ir fréttaritari vor á Akranesi.
Sagði hann að ofan Skarðsheiðar
Jicfði létt til með norð-austan átt
Og verið brakandi þerrir í allan
R-ærdag. I dag var daufur þerrir
framan af, en sæmilegur, þegar
Jeið á daginn. Margir eiga tölu-
jvcrt af túnum óslegið þar um slóð
Sr, einkum þar sem þau eru stór
bg fólkið fátt. Þó munu nokkrir
bændur þar efra búnir með tún,
hclzt þeir, sem mest hafa látið í
jsúrhey. Grasspretta er með ein-
jdæmum góð.
'JEKKI HÆGT AÐ VÆNTA
ÍBETRA
: :Segja má, að tíðarfar hafi ver-
ið hið ákjósanlegasta tii heyskap-
ar hér um slóðir, segir fréttarit-
ari blaðsins í Borgarnesi, og ekki
hægt að vænta þess betra. Bænd
•ur eru flestir langt komnir, eða
húnir að hirða af túnum, og alls
staðar er ágætis gras.
TÖÐUFENGUR MIKILL OG
GÓÐUR
Heyskapartíð hefir veríð hin á-
kjósanlegasta hér við Djúp, sím-
ar Páll Pálsson að Þúfum. Þurrk-
ur hefir verið ágætur núna eina
Viku, töðufengur óvenju mikill og
jnýtist eftir ihendinni. Hefir tað-
'an náðst inn algerlega óhrakin.
Verði þessi veðrátta áfram, verða
itún alhirt um mánaðamótin júlí
—ágúst, en tún eru þó þegar langt
komin sums staðar. Útlit er ágsett
með gras á útengi.
HIRT NÚ A ISAMA TÍMA OG
.slAttur hófst í FYRRA
í blaðinu í gær var skýrt frá
hcyskap í Skagafirði og Eyjafirði,
samkvæmt frásögnum fréttaritara
hlaðsins. Á sumum bæjum i Skaga
firði hafði nú verið hirt af tún-
um um sama leyti og sláttur hófst
þar í fyrra, og töðufengurinn var
tvöfaldur.
í Eyjafirði voru óþurrkar fyrst
framan af, en svo kom biíðviðri,
þannig að nýting varð góð á mest
um hluta töðunnar. Spretta er þar
með fágætum góð, og sumir bænd-
ur þegar byrjaðir á öðrum slætti.
það sem af er, símar Jónas Péturs
son á Skriðuklaustri í Fljótsdal.
Skúrasamt var þó víða, einkum til
dala fyrri hluta síðustu viku, en
ágætur þurrkur í vikulokin. Tún
eru víða að verða búin og að
mestu hirt. Á Skriðuklaustri er
taða hirt og síðari sláttur að
byrja. Grasvöxtur er með ágætum.
Kartöflugarðar líta ágætlega
út og rófur og aðrar garðjurtir.
HLÝTUR AÐ GANGA VEL
Þetta er með allra beztu sumr-
um, sagði Sveinn bóndi á Egils-
stöðum á Völlum, er blaðið átti
tal við hann í gær. Þurrkur hefir
verið hér því nær dag hvern að
undanförnu, og ýmsir eru þegar
búnir með tún. Alls staðar sem
ég hefi haft fregnir af, hefir hey
skapurinn gengið ágætlega, enda
getur ekki annað verið, tíðarfarið
hefir verið það gott. Þó hafa skúr-
ir í dölum tafið þar eitthvað fyrir.
HIRT EFTIR HENDINNI
Bændur hér um slóðir hafa hirt
töðu sína svo að segja eftir hend
inni að undanförnu, símar frétta-
ritari vor á Vopnafirði. Þurrkar
hafa verið miklir og spretta góð.
Fyrri slætti er nú víðast að verða
lokið.
Sfjórnarfundur
norrænna embættis-
mannasambandsins
hatdinn hér
STJÓRNARFUNDUR í norræna
embættismannasambandinu var
haldinn hér í Reykjavík s.l. laug-
ardag. — Þátttakendur voru:
Frá Danmörku: Erik Pcrs Las-
sen og dr. juris Tyge Haarlöv,
skrifstofustjórar í atvinnu- og
félagsmálaráðuneytinu.
Frá Finnlandi: Niilo A. Mannio,
ríkisráð og Aarne Tarasti, deild-
arstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
Frá Noregi: Agnar Krmglebot-
ten, skrifstofustjóri, Rasnnis I. B.
Skylstad, utanríkisráð og Finn
Alexander, forstjóri ríkistrygging
anna.
Frá Svíþjóð: Erik Norberg,
skrifstofustjóri í utanrikisráðu-
neytinu, Wilhelm Björck, forstjóri
og Áke Natt och Dag, forstjóri
ríkistrygginganna.
Frá Islandi: Einar Bjarnason,
aðalendurskoðandi, Gústaf A. Jón-
asson, skrifstofustjóri í dómsmála
ráðuneytinu, Þórhallur Ásgeirs-
son, skrifstofustjóri í viðskipta-
málaráðuneytinu, Magnús Gísla-
son, fyrrv. skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu, Haraldur Guð-
mundsson, forstjóri Tryggingar-
stofnunar ríkisins, Páll Hallgríms
s'on, sýslumaður og Davíð Ólafs-
son, fiskimálastjóri.
Stjórnarfundir eru haldnir ár-
lega til skiftis í löndunum, en síð-
ast var slíkur fundur haldinn hér
sumarið 1948.
Næsta stjórnarfund er ráðgert
að halda í Osló næst sumar.
Formaður íslandsdeildar sam-
bandsins er Einar Bjarnason, að-
alendurskoðandi.
BYRJAÐ ÞREM VIKUM FYRR
EN 'S. L. ÁR
Heyskapur byrjaði almennt hér
nm slóðir þremur vikum fyrr en
í fyrra sumar, símar fréttaritari
vor á Húsavík. Og óhætt er að
scgja að hann gangi yfirleitt vel.
Þeir, sem hafa súgþurrkun eða
súrhey, eru þó mun betur settir,
og hafa margir þeirra þegar hirt
mikið. Hinir eiga enn nokkuð mik-
ið úti, en það hey er óhrakið og
nýting þess ætti að vera góð, ef
peður ekki spillist. Þurrklaust er
jhcr í dag, en engin úrkoma.
IsÍDARI SLÁTTUR AÐ BYRJA
JA SKRIÐUKLAUSTRI
Heyskapartíð má teljast góð
Vanlar innflytjendur
en ekhi énytjunga
HAMBORG 16. júlí: — Brasilía
óskar eftir fjölda nýrra innflytj-
enda, sagði Alvaro Troppmair,
erindreki Brasilíustjórnar, sem
nú er á ferð í Evrópu. En við
höfum ekkert gagn fyrir ónytj-
unga. Duglegir menn, sem vilja
rífa sig áfram bafa mikla mögu-
leika í Brasilíu, því að þar er allt
á framfarabraut. En enginn skal
halda að gæsirnar fljúgi steiktar
upp í munn innflytjendanna.
— dpa.
Ólafur Ólafsson og frú
— Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Hér er allt með öðrnm svip
- segir Ólafur Ólafsson tannlæknir, sonur
Jóns heil. Ólafssonar, ritstjóra.
Iþróttamét
Snæfellinga
ÍÞRÓTTAMÓT Ungmennasam-
bands Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu var haldið í Stykkis-
hólmi 12. júlí.
Mótið hófst með guðsþjónustu
kl. 2 e. h., séra Þorgrímur Sig-
urðsson Staðarstað prédikaði, en
úr kirkju gengu íþróttamenn
fylktu liði inn á íþróttavöll með
lúðrasveit Stykkishólms í broddi
fylkingar. Á íþróttavellinum setti
Þórður Gíslason á Ölkeldu mótið,
en síðan hófst íþróttakeppnin.
Ausandi rigning kom meðan
keppnin stóð yfir og varð árang-
ur því lélegri en efni stóðu til.
Helztu úrslit urðu þessi:
100 m hlaup:
1. Sig. Helgason, Snæfell 12.0
2. Halldór Ásgrímsson, í M 12.0
3. Karl Ásgrímsson, í M 12.2
400 m hlaup:
1. Jón Pétursson, Snæf. 60.0
2. Sig. Helgason, Snæf. 60.9
3. Ragnar Hallsson, Eldb. 61.4
1500 m hlaup:
1. Jón Pétursson, Snæf. 4:56.6
2. Sigvaldi Jóhannss, í M 4:56.8
3. Þórður Þórðarson, I M 4:56.8
4x100 m boðhlaup:
1. A-sveit í M ........... 52.1
2. A-sveit Snæf............ 52.3
3. A-sveit Eldb............ 53.0
Hástökk:
1. Sigurður Helgason, Snæf. 1.58
2. Jón Pétursson, Snæf. 1.52
3. Gísli Árnason, G 1.52
Langstökk:
1. Gísli Árnason, G 6 20
2. Ágúst Ásgrímsson, I M 6.16
3. Halldór Ásgrímsson, í M 6.03
Þrístökk
1. Halldór Ásgrímsson, í M 12.49
2. Gísli Árnason, G 12.28
3. Kristján Jóhannsson, í M 12 21
Stangarstökk:
1. Brynjar Jensson, Snæf. 2.63
2. Sveinbj. Sveinss., Víking 2,63
3. Sigurður Helgason, Snæf. 2.30
Kúluvarp:
1. Ágúst Ásgrímsson, í M 13.20
2. Jónatan Sveinss., Víking 12 60
3. Sigurður Helgas., Snæf. 11.85
Kringlukast:
1. Sigurður Helgas., Snæf. 34.55
2. Ágúst Ásgrímsson, í M 33.56
3. Jón Pétursson, Snæf. 30.90
Spjótkast:
1. Jónatan Sveinsson, V. 42.63
2. Einar Kristjánsson, St. 38.02
3. Sveinbj. Sveinsson, V 37.34
80 m. hl. kvenna:
1. Guðrún Hallsdóttir, E 12.0
2. Lovísa Sigurðard., Snæf. 12.6
3. Sigrún Símonsen, Snæf. 13.2
Langstökk kvenna:
1. Lovísa Sigurðard., Snæf. 3.89
2. Guðrún Hallsdóttir, E 3.87
3. Sigrún Simonsen, Snæf. 3.63
Hástökk kvenna:
1. Lovísa Sigurðard., Snæf. 1.23
2. Arndís Jónasd., Br. 1.21
3. Svala ívarsdóttir, Snæf. 1.18
4x100 m boöhlaup kvenna:
1. A-sveit Eldb............. 64.0
2. A-sveit Snæf............. 65.0
3. B-sveit Snæf............. 69.0
Glíma:
1. Ágúst Ásgrímsson, í M 3 v.
2. Halldór Ásgrímsson, í M 2 v.
3. Kjartan Magnússon, í M 1 v.
Stig:
UMF Snæfell, Stykkishólmi 75
íþróttafélag Miklholtshrepps 51
UMF Eldborg 19
Stighæstir einstaklinga:
Sigurður Helgason, Snæf. 24
Ágúst Ásgrímsson, í M 18
Jón Pétursson, Snæf. 17
Ágúst Ásgrímsson vann sér-
verðlaun fyrir 3 beztu afrek sam-
anlagt, sem samt. gáfu 1860 stig,
samkvæmt finnsku stigatöflunni.
★
Hinn 17. júní var íþróttamót
haldið í Stykkishólmi á vegum
UMF Snæfells.
Bezta afrek mótsins var
kringlukast Sig. Helgasonar 38.76
m. og vann hann fyrir það afrek
17. júní bikar Stykkishólms.
Á. H.
NÝKOMIN eru hingað til lands
Ólafur Ólafsson, tannlEeknir í
Chicago og kona hans.
Ólafur er sonur Jóns heitins
Ólafssonar ritstjóra, sem allir
íslendingar, ungir og gamlir
þekkja mætavel, því sennilega hef-
ur enginn Islendingur verið jafn
stórvirkur á sviði blaðamennsku
og Jón, sem annaðist ritstjórn a.
m. k. níu blaða heima og erlendis.
Tíðindamaður blaðsins hitti hjón
in að máli í gær og spjallaði við
þau um stund.
— Eg er fæddur hér 1882, í
Reykjavík, sagði Ólafur. — Við
fórum 1890 til Winnipeg, þar sem
faðir minn annaðist ritstjórn Lög-
bergs, Heimskringlu og Aldarinn-
ar. Við fluttum til Chicago 1893
og þar hef ég búið síðan.
Hér má geta þess, að Jón Ólafs
son var ritstjóri við Norden í
Chicago, blað Skandinava.
— Hver voru ‘helztu tildrög að
ferð yðar hingað?
— Ástæðan var helzt sú að sjá
landið og sýna konunni minni það.
Dvölin hefur verið hin yndisleg-
asta. Við höfum farið til Þing-
valla, Sogs og Gullfoss, að ó-
gleymdu miðnætursólarfluginu,
sem var alveg stórfenglegt.
Þegar frúin heyrði minnst á
flugferðina gat hún ekki orða
bundizt. Henni þótti svo fagurt að
líta yfir f jallaraðirnar og jöklana,
sem hún hafði aldrei séð áður.
-— Hvernig finnst þér fram-
vinda mála hafa orðið hjá okkur
hér á landi?
FRAMFARIR MIKLAR
— Síðan ég var hér árið 1920
hafa orðið miklar framfarir á
öllum sviðum. Verzlanir finnast
mér vera hér margar og stórar.
Eg heimsótti iðnfyrirtæki hér í
bæ og þótti mikið til koma, hvern-
ig öllu var þar háttað. Verka-
skiptingin þar er svipuð og í bif-
reiðaiðnaði Bandaríkjanna, og
vinnan fannst mér vönduð vel.
— Mér finnst ísland vera eins
og nokkurs konar „kynblendingur
af Noregi og Svisslandi", hélt Ól-
afur áfiam, — gestrisni ykkar
er mikil og ég vona að mér end-
ist aldur til þess að sækja ykk-
ur heim aftur, í framtíðinni. —
Heimurinn er orðinn svo lítill
núna, að auðvelt er að komast
landa í milli.
FRÚNNI LÍKAÐI VEL LAND
OG ÞJÓÐ
Eg bað konu Ólafs að segja okk
ur dálítið um hugmyndir hennar
um land og þjóð fyrir komuna
hingað. Frúnni var það mjög Ijúft
og auðheyrt var, að hún hafði
alls ekki orðið fyrir vonbrigðum
með ferðina.
— Hvaða hugmyndir gerðuð
þér yður um ísland áður en þér
komuð?
— Ég hafði séð myndir frá Is-
landi og heyrt um það frá eigin-
manni mínum og fleirum. En ég
gerði mér aldrei í hugarlund, að
landið væri svo fagurt, þótt ég
vissi að það væri stórbrotið. Það
vakti einnig athygli mína, hversu
íslenzku heimilin eru yfirleitt fai-
leg og í nútímastíl. Mér finnst
þau vera mjög listræn. Smámun-
ir úr silfri o. fl. skreyta þau á
mjög smekklegan og skemmtilegan
hátt.
Vatnið á Islandi er ákaflega
mjúkt, og gott að baða sig í því.
— Hvað viljið þér segja um
þjóðina?
— Mér geðjast mjög vel að
henni, Sérstaklega vakti það at-
hygli mína hvað börnin eru vel
alin upp og siðuð, hjá ykkur. Það
vekur ef til vill einna mesta at-
hygli okkar, sem við kennslu hafa
fengizt, hvernig börnin eru.
LANGAR TIL AÐ KOMA
AFTUR
Frú Ólafsson tók að lokum und-
iv ósk manns síns um að geta kom-
ið aftur til íslands. Kvaðst hún
vona að við breyttum ekki venium
okkar og héldum áfram að vera
jafn vingjarnleg þjóð sem nú. —
Iiún sagði að þau væru oúin að
vera hér í viku og yrðu tvær til
viðbótar, „ef gestrisnin verð-
ur ekki búin að gera út af við
okkur“. —
Hjónin dvelja nú hjá frú Sig-
ríði, ekkju Ágústar H. Bjarna-
sonar, en hún er systir Óiafs.
— S. !’. '
Krðfugöngur
í Teheran
TEHERAN, 21. júlí. — Stjórn
Mossadeks átti eins árs afmæli
í dag og í tilefni af því voru
farnar tvær kröfugöngur í höf-
uðborginni. Her og lögregla gætti
þinghússins en ekki kom þó til'
átaka. Áhangendur Mosadeks
gengu fylktu liði til þinghúss-
torgsins og var hrópað til hins
sigursæla Mosadeks. Þá drifu aS
um 10.000 áhangendur komm-
únista og var þess krafizt að þing
yrði rofið og efnt til nýrra kosn-
inga. Múgurinn lét í ljós andúð
við Bandaríkin með slagorðum,
NTB-Reuter.
Svíar sigruðu
HEL'SINGFORS, 20. júlí: —
Sænska knattspyrnufélagið Djur-
gaarden lék í kvöld við lið, skipað
mönnum úr A og B-landsliði Finn
lands. Sigraði sænska liðið með
2:0. — NTB