Morgunblaðið - 11.10.1953, Síða 9
Sunnudagur 11. okt. 1953
StOKGVHBLABtB
e
Reykjavíkurbréf : laugardagití- 10. október
Merkilegt framíaraspor — Frumvörp og tillögur á
Alþingi — Ósigur Alþýðuflokksforystunnar — Sannleik-
urinn um Grænmetisverzlunina -Ækan flýr kommúnista
Frá Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu, þar sem annað stærs;a raforkuver lanclsins er nú risið. Á myndinni sjást bæði orkuverin, hið gamla og nýja. Ef kommúnistar hefðu
mátt ráða, væri hið nýja orkuver nú ekki til. Þeir börðjst gegn því með hnúum og hnefum.
Merkilegt
framfaraspor
HIÐ nýja raforkuver við Laxá í
Þingeyjarsýslu hefur nú verið
vígt og er tekið til starfa. Með
því er stigið eitt af stærstu fram-
fararsporum, sem til þessa hafa
verið stigin í raforkumáium þjóð
arinnar. Mun það hafa stórfellda
þýðingu fyrir Akureyri og sveit-
ir og sjávarþorp í Eyjafirði og
Suður Þingeyjarsýsiu, sem raf-
orkuversins eiga að njóta. Hvert
nýtt orkuver, sem. rís skapar
þjóðinni bætta aðstöðu í starfi
jsínu. Atvinnulíf hennar verður
ijölbreyttara og afkomuöryggið
meira. Iðnaðinum, sem er hrað-
vaxandi atvinnugrein í landinu,
skapast auknir vaxtarmöguleik-
ar.
Það er mikið verk og dýrt að
Veita raforkunni út um byggðir
þessa strjálbýla lands. En það
verk verður engu síður að vinna
á eins skömmum tíma og frekast
er kostur og fjárhagur þjóðarinn-
ar leyfir. Þess vegna hefur hin
nýja ríkisstjórn ákveðið með mál-
«fnasamningi sínum að leggja á
það megin ánerzlu að bæta úr raf-
©rkuskorti þeirra byggðarlaga,
sem útundan hafa orðið um þess-
ar framkvæmdir á undanförnum
árum. Verður að vænta þess að j
henni takizt það starf vel og
.giftusamlega. Vatnsafiið í foss-
um og fljótum Iandsins er ein
dýrmætasta náttúruauðlind þess.
Á hagnýtingu þess velta lifskjör
þjóðannnar í ríkum mæli.
Rothögg á kommúnista
KOMMÚNISTAFLOKKURINN
á Islandi hefur barizt gegn því
jneð hnúum og hnefum að hinar
.glæsilegu virkjanir við Sog og
Laxá yrðu framkvæmdar. Ef
hann hefði mátt ráða væri orku-
verið, sem vígt er í dag við Laxá,
•ekki risið. Akureyringar og Reyk-
víkingar yrðu þá áfram að búa
við óþægindi hins tiifinnanlega
rafmagnsskorts, sem valdið hef-
ur þeim margs konar erfiðleik-
Um undanfarin ár.
Þessi afstaða kommúnista
mun verða rothögg á flokk
þeirra. Af henni mun fjölda
Islendinga, sem hingað til hef
ur fylgt þeim að málum verða
það ljóst, að kommúnista
„varðar ekki um þjóðarhag".
Þeir telja það fyrst og í'remst
skyldu sína að garvga erinda
erlendrar harðstjórnarklíku.
Þess vegna hafa þeir bamast
gegn þeirri þátttöku Islands í
efnahagssamvinnu hinna
frjálsu þjóða, sem gerði stór-
virkjanirnar við Sog og Laxá
xnögulegar.
Frá Alþingi
STÖRFIN á Alþingi eru nú kom-
in í venjulegt horf. Ríkisstjórnin
lagði í þingbyrjun fram 21 frv.
og þingsályktunartillögur. Frá
einstökum þingmönnum hafa nú
einnig verið lögð fram all mörg
frv. Jón Pálmason og Jón á
Reynistað hafa flutt á ný frv. sitt
um stofnlánadeild landbúnaðar-
ins. En tilgangur hennar er að
gera efnalitlum mönnum fært að
hefja búskap í sveitum landsins.
Á stofnlánadeildin eingöngu að
lána frumbýlingum til jarða-
Jóhannsson, flutt þingsályktun-
artillögu um að heimila ríkis-
stjórninni að ábyrgjast allt að 5
millj. kr. lán til bygginga drátt-
arbrautar á ísafirði, sem full-
nægi þörfum útgerðarinnar á
Vestfjörðum. Er þar um að ræða
mikið nauðsynjamál Vestfirð-
inga.
Af hálfu stjórnarandstöðunnar
hafa einnig verið flutt nokkur
mál. Kommúnistar hafa flutt frv.
Hinir nýju þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem unnu fjögur kjör-
dæmi á siðastliðnu sumri. Á myndinni sjást, talið frá vinstri: Jón
Kjartansson, þm. V-Skaftfellinga, Kjartan J. Jóhannsson, þm.
ísfirðinga, Einar Ingimundarson, þm. Siglfirðinga og Ingólfur
Flygenring, þm. Hafnfirðinga.
kaupa, búpeningskaupa og verk-
færakaupa.
Þá hefur Pétur Ottesen og
fleiri af þingmönnum Sjálfstæð-
isflokksins flutt frv. um breyt-
ingu á jarðræktarlögunum Er
þar lagt til að framlag ríkis-
sjóðs til framkvæmda í jarðrækt
og húsabótum skuli greiðast með
20% álagi auk verðlagsuppbótar.
A grjótnám á ennfremur að greið
20% álagi auk verðlagsuppbótar.
bótar.
Magnús Jónsson hefur ásamt
nokkrum öðrum þingmönnum
flokksins flutt frv. um að fisk-
veiðasjóði skuli heimilt að lána
fé til bygginga yerbúða og út-
gerðarhúsa. En lán til þeirra
framkvæmda hefur sjóðnum
ekki verið heimilt að veita til
þessa. Loks hefur hinn nýkjörni
þingmaður ísfirðinga, Kjartan J.
um uppsögn herverndarsamnings
ins og Þjóðvarnarflokkurinn
þingsályktunartill. um sama efni.
Tveir þingmenn Alþýðuflokksins
hafa einnig flutt tillögu um end-
urskoðun samningsins. Má búast
við að töluverðar umræður verði
um þau mál, þegar þau koma til
umræðu á þingi.
Næstkomandi mánudag mun
fyrsta umræða fjárlaga fara
fram. Verður henni að vanda út-
varpað.
Frumvarp
Jóns á Reynistað
ÞÁ FLYTUR Jón á Reynistað
ásamt fjórum öðrum þing-
mönnum úr Sjálfstæðisflokkn
um og Framsóknarflokknum
frumvarp um garðávaxta- og
grænmetisgeymslur. Sam-
kvæmt því skal framleiðslu-
ráði landbúnaðarins falið að
vinna að því að komið verði
upp, þar sem hentast þykir,
vönduðum og hæfilega stór-
um geymslum fyrir garðá-
vexti og grænmeti á helztu
framleiðslu- og markaðsstöð-
um, með hliðsjón af samgöng-
um og öðrum aðstæðum. Skal
að því stefnt, svo sem ástæður
frekast leyfa, að þeir sem
framleiða garðávexti og græn
meti til sölu, geti komið þess-
um söluvörum sínum í örugga
geymslu svo að á öllum tím-
um árs verði á boðstólnum
nægilegt af innlendum garð-
ávöxtum og grænmeti.
Hér er um að ræða merkilegar
og tímabærar tillögur til þess að
leysa úr þeim vandræðum, sem
framleiðendur garðávaxta mæta
jafnan þegar uppskera er í betra
lagi.
Ósij,ur Alþýðuflokks-
forustunnar
HIN nýja forusta Alþýðuflokks-
ins hefur beðið mikinn ósigur.
Fyrir kosningar á s.l. vori
strengdi hún þess fyrst og fremst
heit, að eiga aldrei þátt í neins
konar samvinnu við Sjálfstæðis-
flokkinn. Þetta héldu leiðtogar
flokksins að væri sigurstrang-
legt kosningarloforð. En niður-
staðan varð allt önnur. Sjálfstæð-
isflokkurinn vann mikinn kosn-
ingasigur en Alþýðuflokkurinn
tapaði tveimur höfuðvígum sín-
um í landinu. Og versta útreið
fékk sá leiðtogi hans, sem harð-
ast deildi á Sjálfstæðisflokkinn.
Nú hefur það sannast að hin
gunnreifa forusta Alþýðu-
flokksins var reiðubúin til
þess að kosningum loknum, að
ganga til stjórnarsamstarfs
við Sjálfstæðisflokkinn, ef
hann hefði léð máls á slíkri
samvinnu. Við nefnda-kosn-
ingar á Alþingi hikaði hin
nýja forusta Alþýðuflokksins
heldur ekki við að leita aðstoð
ar Sjálfstæðismanna til þess
að fá sæti í þingnefndum.
Svo greinilega hafa núverandi
forustumenn Alþýðuflokksins
kingt stóryrðum sínum frá s.l.
vori.
„Hrikalegar
þrælabúðir“
DR. MOREK KOROWIZC var
einn þeirra fulltrúa, sem pólska
kommúnistastjórnin sendi til
New York til þess að sitja Alls
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
á þessu hausti fyrir hönd Pól-
lands. En þessi fulltrúi var ekki
fyrr kominn til hins frjálsa heims
en hann lýsti sig pólitískan flótta-
mann og sagði sig úr öllum lög-
um við pólsku kommúnistastjórn
ina. Þegar hann ræddi við blaða'
menn nokkru síðar komst hann
þannig að orði að Pólland væri
nú „hrikalegar þrælabúðir“ und-
ir stjórn kommúnista. „Ég fagna
því“, sagði dr. Korowizc, „að geta
nú sagt sannleikann, en það er
bannað í heimalandi mínu um
þessar mundir“. Hann skýrði
einnig frá því, að það væri al-
menn skoðun í Póllandi að minna
en 7% af pólsku þjóðinni hefði
hina minnstu samúð með komm-
únismanum og Rússum. Lepp-
stjórn Rússa í Póllandi væri
þannig gjörsamlega fylgislaus.
Þannig lýsa þeir ástandinn
fyrir austan járntjaldið, se»
bezt þekkja það og hafa feng-
ið tækifæri til þess að reyna
„alþýðulýðræðið“ og sovét-
skipulagið. En út um öll löml
keppast kommúnistaflokkarn-
ir um að iofa það o.g telja
fólki trú um að það sé alfull-
komið.
Sannleikurinn um
Grænmetisverzlunina
EINN af starfsmönnum Græh-
metisverzlunar ríkisins skrifar í
dag, laugardag, grein í Tímann
þar sem hann reynir að verja þá
ráðabreytni fyrirtækisins að
flytja í júlí og ágúst s.l. inn 5100
tunnur af erlendum kartöflum
fyrir 730 þús. kr. í erlendum
gjaldeyri. Kennir mikils yfir-
lætis og hroka í grein þessari,
enda er maður þessi þekktur að
gikkshætti og rembingi í blaða-
skrifum. Lætur hann að lokum
liggja að því, að hann muni fá-
anlegur til þess að ræða frammi-
stöðu Grænmetisvevzlunarinnar
betur „þegar betri tími vinnst til"
„ef Mbl. óskar eftir því“!!
Jú, það er fyllsta ástæða til
þess að taka því tilboði. Morg
unblaðið vill gjarnan fá plögg
in á borðið um allt ráðslag
þessa ríkisfyrirtækis. Til þess
ber raunar brýna nauðsyn, að
frá því sé skýrt, hvernig það
hefur gætt hagsmuna fram-
leiðenda og almennings í
landinu í sambandi við kart-
öfluinnflutning, geymslu og
dreifingu þessara nauðsyn-
legu matvæla. Það væri t. d.
æskilegt að fá upplýst, hvað
Grænmetisverzlunin hefur
gert til þess að koma upp
geymslum fyrir kartöflufram-
leiðslu landsmanna og hvaða
skilning hún hefur sýnt á við-
leitni þeirra einstaklinga, sem
brotist hafa í því að bæta úr
.geymsluvandræðunum.
Hinum steigurJætisfulla Tima-
rithöfundi, sem finnst fyrirtseki
sitt hafa staðið vel í ístaðinu í
þessum málum ætti ekki að verða
skótaskuld úr að upplýsa þetta
og ýmislegt fleira. Við bíðum og
sjáum hvað setur.
Framh. á bls. 11.