Morgunblaðið - 31.12.1953, Page 8

Morgunblaðið - 31.12.1953, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1953 ÍSLENZkl l!MÐAÐIJRINI\i 1953 ÁVALLT er nokkrum vanda bundið í áramótagrein að gefa rétta mynd af gangi iðnaðarmál- anna í landinu og afkomu at- vinnuvegarins fyrir árið sem er að líða, þar eð engar skýrslur liggja fyrir svo árla um fram- leiðslumagn, vinnulaun og ann- að þess háttar. Ennfremur hefur allt fram til síðustu missera verið mjög á reiki í vitund manna hér á landi hvaða starfsemi beri að telja til iðnaðar. Iðnaðarsagan er svo stutt á íslandi, en saga land- búnaðar og fiskveiða samtvinn- uð byggðarsögu þjóðarinnar um meira en þúsund ár. Þessvegna hafa menn, svo dæmi sé nefnt, tæpast fellt sig við að telja niður- suðu kjöts né hraðfrystingu fiskjar til iðnaðar, heldur sem sjávarútveg og landbúnað, og maður nokkur reit um það í dagblað eigi alls fyrir löngu, að vinnsla brennisteins úr hvera- gufu væri fremur landbúnaður en iðnaður. Hagstofa ísláands gaf út rit árin 1953, undir nafninu „Iðn- sðarskýrslur 1950“, sem ég vil telja til merkisatburða ársins, vegna þess að þetta eru fyrstu heildarskýrslurnar um iðnað á íslandi, sem birzt hafa á prenti, og þar er loks tekinn af allur vafi um það, hvað sé iðnaður. Hagstofan fylgir skilgreiningu, sem gefin er í flokkunarreglum Hagstofu Sameinuðu þjóðanna og hljóðar svo: „Iðnaður (manu- facturing) er „mekanisk" eða „kemisk“ umbreyting ólifrænna eða lífrænna gæða í nýjar afurð- ir, hvort sem það er unnið á vinnustöðum eða heimilum". Lesendum til hugarléttis skal þó tekið fram, að í greinarkorni þessu verður ekki farið svona djúpt í sakirnar. Eins og að und- anförnu má gera ráð fyrir að yfirlitsgreinar um sjávarútveg og landbúnað fjalli um nýtingu ýmsra landbúnaðar- og sjávar- afurða, og verður reynt að forð- ast tvítekningu þess hér. Hins- vegar skal drepið á nokkur atriði, sem telja verður að marki fram- faraspor fyrir iðnað í landinu, og rætt um afkomu iðnaðarins almennt, einkum þess iðnaðar, er vinnur úr erlendum hráefn- um í samkeppni um innanlands- markaðinn við erlendar verk- smiðjur. OPNUN IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS H.F. Iðnaðarbankinn hóf starfsemi sína hinn 25. júní í húsinu Lækj- argata 2 í Reykjavík. Nokkru áður hafði Helgi Herm. Eiríks- son, verkfræðingur, orðið við einróma tilmælum um að taka að sér stöðu bankastjóra. Þegar á fyrstu starfsdögunum naut bankinn góðra viðskipta spari- fjáreigenda og síðan hafa spari- fjárinnlög vaxið með hverjum mánuðinum, svo að sparifjárinn- stæður nú um áramótin nema nær 11,5 milljónum króna. Kom það sér vel, því að nokk- ur dráttur hefur orðið á 15 millj. kr. láni, sem Alþingi heimilaði ríkisstjórninni að taka vegna bankans, en eftirspurn eftir láns- fé frá iðnfyrirtækjum mjög ör. Hlutafé bankans, 6 milljónir króna, var aukið með almennu hlutafjárútboði i októbermánuði um kr. 500.000.00, svo að hlutafé og ógreidd hlutafjárloforð nema aiis kr. 6% milljón. Iðnaðarbankinn tók Iðnlána- sjóð í vörzlu sína á árinu, svo sem lög bankans mæla fyrir um. Iðnlánasjóður starfar þó áfram sem sjálfstæð stofnun í vörzlu bankans. í samræmi við ákvörðun aðal- fundar bankans í vor festi banka- ráð kaup á lóð undir framtíðar- byggingu fyrir bankann. Það er húseignán Lækjargata 10B í Reykjavík. Þá hóf bankinn byggingu úti- bús suður á Keflavíkurflugvelli, og er byggingín komin nokkuð áleiðis. anlands, en það er nýr dráttar- Eftir Pál S. Pálsson framkvæmda- bátur, sem Stálsmiðjan h.f. er að smíða fyrir Reykjavikurhöfn. stjóra Félags íslenzkra iðnrekenda ^;“irv£Lskip"ns" “m 6 Bjartar vonir eru tengdar við Iðnaðarbankann og framtíð hans, enda var hann stofnaður vegna sameiginlegs átaks landssamtaka iðnaðarins, og nýtur óskoraðs stuðning þeirra beggja, Félags ísl. iðnrekenda og Landssam- bands iðnaðarmanna, auk þess sem ríkisvaldið sjálft hefur lagt fram fé til hans og á uppeldis- legar skyldur við hann svo sem aðra banka atvinnuveganna. OPNUN IÐNAÐARMÁLA- STOFNUNAR ÍSLANDS Iðnaðarmálanefnd fékk til um- ráða 200 þús. króna framlag úr ríkissjóði á árinu til þess að reka iðnaðarmálaskrifstofu í samræmi við ítarlegar tillögur, er nefndin skilaði ríkisstjórninni um s. 1. áramót. • Verkefni skrifstofunnar er þrí- þætt skv. skipunarbréfi frá Birni Ólafssyni, iðnaðarmálaráðherra, dags. 28. febr. 1953: Að veita iðnaðinum tæknilega aðstoð. Að vera bækistöð fyrir gæða- mat iðnaðarvara. Að safna iðnaðarskýrslum. Nefndin náði samningum við byggingarnefnd Iðnskólans nýja í Reykjavík um leigu á húsnæði þar til nokkurra ára fyrir ofan- greinda starfsemi. Einnig réði nefndin þrjá verkfræðinga, Braga Ólafsson, sem jafnframt veitir stofnuninni forstöðu, Hallgrím Björnsson og Svein Björnsson. Stofnunin ber heitið Iðnaðar- málastofnun íslands og var form- lega opnuð hinn 24. nóvember 1953. Þó að skammur starfsferill sé að baki hefur Iðnaðarmálastofn- unin þegar leyst af höndum nokkur vandasöm verkefni. At- hugun vár gerð á starfskilyrðum ullarprónlesiðnaðarins í landinu og skýrsla skráð um það efni. Ennfremur athugaði stofnunin og reit skýrslu um einangrunargildi steinullar í frystihúsbyggingum. Þá hefur stofnuninni og verið falið að athuga samkeppnisað- stöðu íslenzkra fiskiskipafram- leiðenda. Opnun Iðnaðarmálastofnunar íslands markar að vissu leyti tímamót í iðnaðarsögu landsins. Vöruvöndun, verknýting og auk- in afköst eru einkunnarorð henn- ar og í þeirri viðleitni vill ríkis- valdið styðja iðnaðinn með því að veita dálítið fjárframlag til reksturs stofnunarinnar. Það er ekki tekin ábyrgð á því að iðn- rekstur beri sig, hvernig sem hann er rekinn, en það er veitt fræðsla um það hvernig bæta megi samkeppnisaðstöðuna — veitt hjálp til sjálfsbjargar, eins og sumir hafa orðað það. Alþingi samþykkti fyrir skömmu að veita 450.000 krón- ur til Iðnaðarmálastofnunar ís- lands á fjárlögum fyrir næsta ár. ORKUVER Vígðar voru á árinu orkustöð- in við Laxá í Þingeyjarsýslu og orkustöðin í Neðri Fossum í Sogi, Irafossstöðin. Þessa er getið hér, vegna þess að rafmagn er undirstaða nú- tíma iðnaðar, og þrátt fyrir að verulegur skerfur orkunnar frá stöðvum þessum fari til heimilis- nota, fer töluverður hluti sem aflgjafi til iðnaðar. Laxárstöðin var vígð hinn 10. október. Talið er að hún hafi kostað um 60 millj. kr. Framleið- ir 9,400 kílóvött. írafossstöðin var vígð hinn 16. október. Kostnaður er talinn nær 120 milljónir króna. Framleiðir 31,000 kílóvött. Veitir Áburðar- verksmiðjunni alla nauðsynlega orku. Reikna má einnig með því, að rafmagnstakmarkanir, sém áð- ur varð að grípa til og ollu verk-1 framleiðslu á fyrstu mánuðum ársins. SEMENTSVERKSMIÐJAN Vegna óvenjulegra aðstæðna 3. Gólfteppaverksmiðja. Framleiðsla var hafin í byrjun ársins á gólfteppum hjá fyrir- tækinu Vefarinn h.f. Forstjóri - _ - þess er Björn Sveinbjörnsson, um öflun hráefna til Sements- iðnverkfræðingur. Efnivaran er verksmiðjunnar, þar sem sækja | mestmegnis íslenzk ull, sem Ála- þarf aðalefnið á hafsbotn, var fossverksmiðjan vinnur fyrir byrjað á því áður en sjálf verk- smiðjan er reist, að safna nokkrum hráefnabirgðum. Sand- dæluskip var leigt á árinu tilL teppaverksmið j una. 4. Svampgúmmívinnsla. þess að dæla upp skeljasandi. I Petur Snæland stofnsetti i Dældi það upp og flutti á land Reykjavík verksmiðju, er fram- um 250 þús. tonn og nægir það.leiðir svonefnt svampgúmmí, eft- verksmiðjunni til 2 ára. Þótti ir sænskri fyrirmynd. Aðalhrá- sandnámið ganga mjög að ósk-1efn,ð er Rjótandi gúmmíkvoða. um. Framkvæmdir hafa hingað Aðalframleiðslan eru dýnur i PáU S. Pálsson smiðjum í Reykjavík og Hafnar- firði margvíslegum óþægindum, séu þar með úr sögunni í bráð. FRAMKVÆMDABANKI ÍSLANDS Sett voru lög um Fram- kvæmdabanka íslands og tók hann til starfa á árinu undir for- stöðu Benjamíns Eiríkssonar, hagfræðings. Umráðafé bankans er hinn svonefndi Mótvirðissjóð- ur, og er stofnfé samtals að upp- hæð kr. 95 milljónir. Hlutverk bankans er að efla atvinnulíf og velmegun íslenzku þjóðarinn- ar með því að beita sér fyrir arðvænlegum framkvæmdum, sem gagnlegar eru þjóðarbúinu og styðja þær. Skal starfsemi bankans í meginatriðum miðuð við að stuðla að auknum afköst- um í framleiðslu og dreifingu. ! Efalaust á Framkvæmdabank- inn eftir að gegna miklu hlut- verki í sambandi við nýsköpun í íslenzkum iðnaði, því að á iðn- j aðarsviðinu liggja hinir ónotuðu möguleikar til eflingar atvinnu- hfi á íslandi. ÚTFLUTNINGUR IÐNAÐARVARA Rætt var í síðasta áramóta- yfirliti um viðleitni nokkurra iðnfyrirtækja til þess að flytja út framleiðslu sína til sölu á erlendum markaði. Ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að endur- greidd verði aðflutningsgjöld af efni í iðnaðarvöru, sem flutt er úr landi. Málið tók þó engri stökkþróun á árinu, enda þess varla að vænta, svo torvelt við- fangs sem það er. Ársþing iðnrekenda í marz- mánuði kaus þriggja manna nefnd til þess að kynna sér mögu leika á þáttttöku iðnrekenda í vörusýningu erlendis, í því augna miði að leita markaða fyrir ís-< lenzkar iðnaðarvörur. Fyrir forgöngu nefndarinnar hefur verið ákveðið að taka þátt í alþjóðavörusýningunni í Brúss- el, er haldin verður dagana 24. apríl—9. maí n. k. Sýningarhús- rými er fengið þar og þátttaka nokkurra iðnfyrirtækja tryggð. ÁBURÐARVERKSMIÐJAN Uppsetningu véla er um það bil að ljúka og hafin er prófun sumra vélanna. Geymsluskemm- ur eru í smíðum, og hafin er framkvæmd að bryggjugerð framan við verksmiðjuna. Búizt er við að verksmiðjan geti hafið til verið bundnar við sandnám ið og geymslu fyrir hráefnið í landi og hefur verið varið í þess- um tilgangi um 8 milljónum króna. Bygging verksmiðjunnar biður nú þess eins, að lánsfé fáist, og hefur ríkisstjórnin sett útvegun þess láns ofar öðrum lánum á stefnuskrá sína. NOKKRAR NÝJUNGAR í ÍSL. IÐNFRAMLEIÐSLU 1. Vinnsla glers úr innlendum hráefnum Glersteypan h.f. var stofnuð á árinu 1951 í því augnamiði að I gera hagnýtar rannsóknir á fram leiðslu' glers úr innlendum hrá- efnum. Árangur rannsókna þess- ara varð til þess að ráðist var í að koma hér upp fullkominni, afkastamikilli glerverksmiðju, sem áformað er að framleiði flestar gerðir nauðsynjavara úr gleri, þ. á. m. rúðugler af öllum gerðum. Á s. 1. hausti veitti Fram kvæmdabanki Islands Glersteyp- unni allstórt lán, sem mun hafa verið fyrsta lánið, sem bankinn veitti. Ennfremur hefur fyrir- tækið aflað erlendra lána. Allan tæknilegan undirbúning fyrir- tækisins og tæknilega stjórn þess fyrstu árin, þar til innlendir starfsmenn hafa fengið fulla þjálfun, annast heimsþekkt belgískt fyrirtæki, sem aðstoðað hefur við að koma á fót gler- iðnaði í fjölmörgum löndum. Byggingarframkvæmdir við verk smiðjuhúsið eru þegar hafnar og er áformað að verksmiðjan hefji starfsemi sína á n. k. vori. Við framleiðsluna munu væntanlega starfa 45—50 manns. Afköst verksmiðjunnar eru áætluð 6— 10 tonn á sólarhring. Með hlið- sjón af framkvæmdum tilraun- um með innlend jarðefni má gera ráð fyrir að hráefni verk- smiðjunnar verði innlend jarð- efni ca 70—80%. (Ofangreindar upplýsingar hef ur forstjóri verksmiðjunnar, Ingvar Ingvarsson, góðfúslega látið greinarhöfundi í té). 2. Smíði stálskips. Kjölur var lagður að fyrsta stálskipinu, sem smíðað er inn- rúm og bílslæði, auk margs ann- ars. 5. Framleiðsla rafmagnsmótora. Undirbúningur hefur verið hafinn að framleiðslu rafmagns- mótora innanlands, og er það al- ger nýjung í íslenzkum iðnaði. Sérstakt fyrirtæki hefur verið stofnað, með slíka framleiðslu að markmiði, og einnig hefur Sam- band ísl. samvinnufélaga þess- konar framleiðslu í undirbún- ingi. 6. Pökkunarverksmiðja. Fyrirtækið Katla h.f. stofnsetti nýja pökkunarverksmiðju, er pakkar matvöru. Getur verk- smiðjan pakkað inn í 480 5 lbs. pakka af hveiti á klukkustund hverri og 1441 1 lbs. pakka af hrísgrjónum á klst. Umbúðirnar , eru áprentaðar í vélum Kassa- gerðar Reykjavíkur, og nokkur hluti þeirra búinn til þar. Þetta er fyrsta pökkunarverksmiðja þessarar tegundar hérlendis. NOKKUR ALMENN ATRIÐI ÖIlu betra ástand en á árinu áður virðist hafa ríkt hjá flest- um iðnfyrirtækjum. Þakka má það ýmsum breytingum, og ekki sízt þeirri, að kaupgeta almenn- ings er meiri nú og þar af leið- andi meiri sala í iðnaðarvörum. Þá hefur það einnig mikla þýð- ingu, að viðhorf almennings til íslenzkra iðnaðarvara hefur breytzt. Iðnsýningin 1952 átti sinn þátt í því. Breytingin er í því fólgin, að fólk gerir minna að því en áður að fordæma vöru að órannsökuðu máli vegna þess eins, að hún er af íslenzku bergi brotin, eða unnin innanlands. Fábreytnin í vörumarkaðnum á meðan höftin voru í algleym- ingi olli nokkru um það, að þeg- ar hörðustu fjötrarnir leystust fyrir þremur árum síðan og er- lendar iðnaðarvörur tóku að streyma inn í landið, var nýj- ungagirnin öllu yfirsterkari, svo að varla var um samanburð á verði og gæðum að ræða við hið innlenda, ef útlent var í boði. Nú er komin meir ró yfir þessi mál og dómgreindin látin skera úr um það. hvor hluturinn er betri og hagstæðari að verði til. SAMANBURÐUR Á STARFSMANNAIIALDI NOKKURRA IÐNFYRIRTÆKJA 1952 og 1953 1. júní 31. des. 31. marz 31. de: 1952 1952 1953 1953 Ullarverksmiðjur (2) .. 24 32 33 ' 51 Fataverksmiðjur (10) .. 165 272 261 325 Nærfatagerðir (4) 26 39 32 55 Pappaverksmiðjur (1) .. 3 4 4 4 Veiðarfæragerðir (2) ..., 14 17 16 14 Leðurverksmiðjur (4) . 23 20 14 23 Skóverksmiðjur (4) .... 35 35 32 54 Prjónastofur (4) 10 9 c 8 Sælgætis- og efnagerðir (11) .. 57 63 61 85 Kexverksmiðjur (2) .... 48 62 62 67 Sápu- og hreinlætisvöruverksm. (3) 12 11 13 20 Gosdrykkj averksmið j ur (3) .... 35 33 34 44 Sjófataverksmiðjur (2) 28 30 29 43 Járn- og blikksmiðjur (3) 16 23 28 38 Gólfteppagerð (1) 7 8 8 5 (56) 503 658 :i 636 836

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.