Morgunblaðið - 29.01.1954, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.01.1954, Qupperneq 1
16 síður 41. árgangur. 23. tbl. — Föstudagur 29. janúar 1954. Prentsmiðja Morgunblaðsins LISTI REVKVÍKIMGA - D-LISTIIMIM Reykfavík hefur orðið fegurri og hreiuni bær Sókndjörf Sjálfstæðisæska gjörsigraði Fagur bær gleður tilfinningu íbúanna fyrir því sem er smekklegt. Börnin og blómin fara vel saman með hverju ári SaiTíStarf Fegrunerfélagsins bæjaryfirvalda og almengs Skreyting bæjarins með listaverkum þarf að aukast Á TVEIM síðustu áratugum hefur Reykjavík tekið undra- verðum stakkaskiptum. Þar sem áður var urð, grjót og melar, eru nú komnir fagrir trjágarðar, blómabeð og gras- fletir. Reykjavík hefur orðið fegurri og hreinni borg með liverju ári. Margir aðiljar hafa staðið að þessiun umbótum. Þúsundir manna hafa á undanförnum árum kostað kapps um að fegra og skreyta lóðir sínar og lagt í það mikla fyrir- höfn og fé. Samtök borgaranna hafa unnið hér merkilegt starf, og bæjarfélagið sjálft og starfsmenn þess lagt því lið. Borgarar Reykjavíkur hafa á skömmum tíma unnið það afrek að breyta Reykjavík úr hrjósturlendi í gróðurlönd. Sum hverfi í bænum eru orðin til fyrirmyndar. Reynslan hefur sýnt að hér eru hin beztu skilyrði til trjáræktar, ef alúð er lögð við starfið. Það hefur oft vakið aðdáun og undrun, hve fólk, sem byggt hefur ný hús, bregður fljótt við til að jafna, græða og prýða lóðir sínar. kommúnista á æskulýðsfundinum » KAPPRÆÐUFUNDUR Heim- dallar og ungra kommúnista fór frani í gærkvöldi. Fuli- skipað var í Sjálfstæðishúsið og voru Heimdellingar í yfir- gnæfandi meirihluta. Má heita að kommar hafi gefist alger- lega upp á fundinum. EINSTÆÐUR MÁLFLUTNINGUR Fyrstur ræðumanna var Jónas Árnason, blaðamaður við Þióðviljann. — Var ræða hans tvímælalaust einstætt fyrirbæri, hvernig sem á er litið. I’jallaði hún um kúreka og kvikmyndahetjur í Ameríku og í niðurlagi ræðunnar var gerð grein fyrir fatatízku karl manna síðustu árin. Er sýnilegt að Kiljanskur eftiröpunarstíll réði þessu furðulega tiltæki hans. Kom hann aldrei nálægt bæjarmál- um Reykjavíkur, en skýrði hins vegar frá því að nú væri verið að byggja stórhýsi nokk urt í Moskva!! Er hér með skorað á Þjóð- viijann að birta ræðu Jónas- ar í heild. GLÆSILEGUR MÁLEFNA- SIGUR IIEIMDAIÆAR Af hálfu Heimdallar lióf Geir Ilallgrímsson umræðurn- ar. Fjallaði ræða hans um markmið Sjálfstæðismanna í bæjarmálum. — Rakti hann framkvæmdir þær, er Sjálf- stæðismenn hafa beitt sér fyr- ir á undanförnum árum og gerði grein fyrir framtíðar- áformum þeirra. Var ræðu hans ágætlega tekið. Aðrir ræðumenn Heimdall- ar voru þeir Magnús Jónsson og Eyjólfur K. Jónsson. — Skýrðu þeir stefnu og störf Sjálfstæðismanna í skýrum dráttum og sýndu fram á, hversu farsællega Sjálfstæðis- flokknum hefur tekizt stjórn Revkjavíkurbæjar. Var öllum ræðumönnum Sjálfstæðismanna tekið fá- dæma vel. KOMMÚNISTAR IIEILLUM HORFNIR Það er nú augljóst að komm únistar eru gjörsamlega heill- um horfnir. Þrátt fyrir ör- væntingarfulla og æðisgengna smölun á fundinn, var fylgi þeirra þar hverfandi. Þar eð æskulýðurinn er nú óðum að yfirgefa Kommúnistaflokkinn, gripu forsprakkar Æskulýðs- fylkingarinnar tii þess ráðs að smala rosknu fólki á fund- inn. Er nú sýnilegt að Æsku- lýðsfylkingin er svo steindauð klíka að hún á sér engrar við- reisnar von. Framsókn hjálpar komiiiura í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM um I bæjarmál Reykjavíkur hélt einn ræðumaður kommúnista því fram að flokkur hans hefði nýlega unn- , ið mikinn sigur í verkalýðsfélag- I inu á Skagaströnd. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbi. hefur fengið þaðan að norðan, er hér um hreinan uppspuna að ræða. Kommúnistar hafa á engan hátt aukið fylgi sitt í verkalýðsfélag- inu á Skagaströnd. Framsóknar- menn hafa hins vegar unnið með þeim þar, og hjálpað þeim til þess að ná vfirtökum í félaginu. Sams konar liðssinni veitir Framsókn nú kommúnistum við hrepps- nefndarkosningar í þessu byggð- arlagi. Það er ekki ófróðlegt fyrir þann fjölda Framsóknarmanna, sem hafa óbeit á kommúnistum, að fá s-íknr fréttir. STOFNUN FEGRUNARFÉLAGSINS 17. júní 1948 komu nokkrir menn saman og stofnuðu Fegr- unarfélag Reykjavíkur. Aðalhvatamenn þess voru dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir og Ragnar Jónsson forstjóri. Tilgangur félagsins var að hafa lagi og hollustuháttum, að stuðla forystu um sköpun almennings-. að hvers konar viðleitni til fegr- áhuga fyrir útliti bæjarins, skipu-* Framh. á bls. 5. Tveir dagar til kjördags í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM um bæjarmál höfðu ræðumenn Sjálfstæðisflokksins aðeins einn fimmta hluta ræðutímans. Andstæðingarnir fjórir að töiu — höfðu fjóra fimmtu hluta alls ræðutímans. Að þessu Ieyti var leikurinn ójafn og varð ekki hjá slíku komizt, en að öðru leyti þurfa Sjálfstæðismenn og aðrir, sem fylgja D-Iistanum sízt yfir því að kvarta, að þeir hafi lakari vígstöðu við þessar kosningar en hrossakaupafiokkarnir fjórir. Þó tíminn væri ójafn við umræðurnar er tíminn öllum jafn til kosninganna — aðeins tveir dagar — þar til gengið verður að kjörborði og nú reynir á alla fylgjendur D-LIST- ANS að duga vel við undirbúning kosninganna. Fylgjendur D-LISTANS hafa því hægari leik, sem þeir geta bent á sterka forystu eins, samstillts fiokks og borgar- stjóra, sem er afburða vinsæli meðal bæjarbúa. Andstæðingar Sjáifstæðismanna geta ekki sameiginlega bent á neitt, hvorki málefni né menn, sem komið geti í stað forystu Sjálfstæðisflokksins í málum bæjarins. Útvarpsumræðurnar feýndu að andstæðingaflokkarnir fjórir eru illgjarnir hver í annars garð en af þrætugjörnum hópum leiðir aldrei nema illt eitt fyrir heildina. En jafnvel þó Sjálfstæðismenn hafi yfirburði þegar rætt er um málefni og menn þá þarf mikið átak til að þeir vinni kosningarnar, en þetta átak verða aliir fylgjendur D-LIST- ANS — hvar í flokki, sem þeir standa, að gera. Sigur D-LISTANS er sigur Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.