Morgunblaðið - 29.01.1954, Blaðsíða 6
t
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 29. jan. 1954
Verði raforkiinnar hefur verið
haídið niðri fyrir haysýni
rsfmapsstjórnar bæjarins
REYKJAVÍKURBÆR veitir bæjarbúum sínum ódýrari þæg-
indi en nokkurt annað bæjarfélag á landinu.
í Undir stjórn Sjálfstæðismanna hefur verði rafmagns til
ljósa og suðu verið haldið niðri svo sem verða má þannig
að hækkanir, sem orðið hafa á þessum liðum hafa orðið litlar
ef borið er saman við hækkun launa.
Ef verð rafmagnsins er borið saman við kolin kemur einnig
í ljós stórkostlegur munur á því hve rafmagnshækkunin
hefur orðið minni.
Andstæðingar Sjálfstæðismanna hafa reynt að afflytja
stjórn þeirra á rafmagnsmálunum, en eftirfarandi saman-
burður sýnir hvernig verði raforkunnar hefur verið haldið
niðri:
Rafmagn til ljósa var 1939 kr. 0.44 pr. kwst.
— — — er nú kr. 1.75 pr. kwst.
= tæplega 4 faldað.
Rafmagn til suðu var 1939 kr. 0.08 pr. kwst.
__ __ — er nú kr. 0.36 pr. kwst.
= tæplega 4.5 faldað.
Kol voru 1939 ..... kr. 64.00 pr. tonn
_ eru nú.......... — 470.00 pr. tonn
= 7.3 faldað.
Mestur kostnaður hjá Rafmagnsveitunni eru að sjálfsögðu
launagreiðslur, en aimenn verkamannalaun hafa 10—11-
faldazt.
FargjöSdum mú strætisvcgn-
unum hefur verið haldið niðri
Fargjöld barna óbreytt síðan 1945
FARGJÖLDIN með Strætisvögn-
um Reykjavíkur eru stórt atriði
fyrir marga bæjarbúa en þeim
hefur verið haldið Mns lágum og
frekast hefur veriÓ unnt.
Sem dæmi má nefna að far-
gjöld barna hafa haldizt óbreytt
frá því 1945 eða í 9 ár og mun
slíkt einsdæmi í nokkrum rekstri.
En einmitt fargjöld barna eru
mikilvægt atriði fyrir fjölda
heimila.
Andstæðingar Sjálfstæðis-
manna hafa reynt að gera far-
gjöld strætisvagnanna tortryggi-
leg í augum bæjarbúa, en hér á
eftir fer yfirlit um þær hækk-
anir, sem orðið hafa á fargjöld-
um og samanburður við hækkun
almenns kaups á sama tíma og
é öllum tilkostnaði Strætisvagn-
anna:
Kr.
Fargjöld með strætisvögn-
um voru ákveðin frá 1.
júní 1945 að telja sem hér
segir:
Fullorðnir á öllum leiðum
innanbæjar ........ . . 0.50
Eörn á öllum leiðum inn-
anbæjar .............. 0.25
Þegar hraðferðir voru tekn
ar upp voru fargjöld á
þeim leiðum ákveðin:
Fyrir fullorðna .......... 1.00
Fyrir börn ............... 0.50
f júní 1951 varu fargjöldin
ákveðin þannig og hafa
haldist óbreytt síðan:
Afsláttarm. fyrir fullorðna 0.77
Hraðferðarmiðar (og ein-
stakir miðar á öllum
leiðum) ............... 1.00
Fargjöld barna óbreytt
kr. 0.25 og kr. 0.50.
Rannsókn hefur leitt í ljós, að
fargjaldaliækkunin frá 1945 nem
ur aðeins 34% eða hækkað um
rúml. %. Stafar það af því að
hraðferðagjöldin og fargjöld
barna héldust óbreytt, og veru-
legur fjöldi farþega á almennum
leiðum notar áfsláttarmiða. —
Hækkun almennra miða fyrir
fullorðna úr kr. 0.50 í kr. 0.77
nemur 54% eða hækkar um rúml.
helming.
Frá 1945 þar til nú hefur al-
mennt kaup meir en tvöfaldazt,
benzín meir en þrefaldazt og verð
á varahlutum 5—6 faldazt.
Sendiherra
Sveinn S, Einarsson,
verkfræðingur:
Baiidaríkjanna
þakkar björgonar-
Kornmökin í Faxaverksmiðjunni
tilraunir
SENDIHERRA Bandaríkjanna
hefur vottað utanríkisráðherra
þakkir fyrir þá aðstoð, sem látin
var í té af hálfu íslenzkra stofn-
ana og einstaklinga í sambandi
við slys það, er varð, þegar
bandarísk flotaflugvél hrapaði á
Mýrdalsjökli í desember síðastl.
TVTinnist sendiherrann með sér-
stöku þakklæti þeirrar aðstoðar,
er Slysavarnafélag íslands og
flugbjörgunarsveitin inntu af
hendi og biður ríkisstjórnina að
færa þeim þakkir og kveðjur, er
á ýmsan hátt lögðu lið sitt til við
björgunartilraunirnar, margir
með því að stofna lífi sínu í tví-
sýnu. Sendiherrann lætur fylgja
orósendingUr frá foreldrum eins
þeirra flugmanna, er með vélinni
fórust. Eru sendendur hennar
hjónin Robert G. Whale og kona
hans, 426 Main Street, Vaupacu,
Wisconsin, en orðsending þeirra
er á þessa leið:
„Við foreldrar Roberts Whale’s
er var einn þeirra, er fórust með
Neptune-flotaflugvélinni á Mýr-
dalsjökli, óskum að láta í ljós
þakklæti okkar fyrir hetjulegar
tilraunir íslenzkra og amerískra
leitarflokka til þess að komast að
flugvélarflakinu. Þarf eigi annað
en að lesa um kuldann og ill-
viðrið, sem þeir áttu við að striða,
til þess að gera sér það ljóst,
hvílikt erfiði þeir lögðu á sig.
Vonumst við innilega til, að þeir
hafi eigi beðið alvarlegt mein af
vosbúðinni. Þeir hafa sýnt hetju-
skap og áunnið sér þakklæti allra
aðstandenda hinna látnu fiug-
manna. Einnig færum við þakkir
flugmönnum þeim, er gættu að
flakinu við hin erfiðustu skilyrði
og einkum til stjórnenda heli-
kopter-vélarinnar, sem lenti á
slysstaðnum. Eigum við varla
orð til að lýsa þakklæti okkar
fyrir hetjuskap þann, er þeir
sýndu við tilraunir sínar til að
bjarga mannslífum, ef auðið yrði.
Þætti okkur hjónum mjög vænt
um, ef einhverjir þessara manna
vildu heimsækja okkur, verði
þeir einhverntíma á ferð nálægt
Waupacu í Wisconsin."
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Þar vanlar fljófandi
síldarbræðslur
Verksmiðjan er búin fullkomnustu
tækjum lil slíks reksfurs
ÞAÐ er nú þjóðarnauðsyn, að vér korni. Þá er verlcsmiðjan búin
íslendingar aukum innflutning fullkomnustu mölunar-, sigti-
frá Rússlandi, þannig að hægt
sé að viðhalda og helzt auka út-
flutning vorn af frystum fiski á
þennan markað. Meðal þeirra
vörutegunda, sem hægt væri að
hefja innflutning á frá Rússlandi
er maís o. fl. korntegundir til
kjarnfóðurs, en innflutningur
þessara vörutegunda getur numið
yfir 10.000 tonnum á ári.
Rússar munu einungis selja
maísinn ómalaðan og umbúða-
lausan, svo sem mest er tíðkað
í verzlun með kornvörur þjóða
í milli. Með tilliti til sparnaðar í
farmgjöldum, kostnaðar við ferm
ingu og affermingu væri án efa
hagkvæmast fyrir íslendinga að
kaupa þessar vörur umbúða-
lausar.
Hingað til hefur maís eingöngu
verið fluttur inn sekkjaður, hvort
sem um heilan maís eða mjöl
hefur verið að ræða, enda skort
ir innflytjendur og fóðurblönd-
unarfyrirtæki þau, sem starfrækt
eru, nauðsynlegar korngeymslur
fyrir laust korn og afkastamikl-
ar mölunar og sekkjunarvélar.
til þess að þau geti tekið á móti
korninu ómöluðu og umbúða-
lausu í þeim mæli, sem þörf
krefur, ef kostnaðurinn á að vera
hóflegur. í þessu skyni þyrftu
þau að leggja í milljóna fjárfest-
ingu, og óhjákvæmilega tæki all
langan tíma að koma þeim mann-
virkjum upp.
Nú vill svo heppilega til, að
í Faxaverksmiðjunni eru öll
skilyrði fyrir hendi til þess að
taka við heilum skipsförmum af
ómöluðu korni og mala það og
sekkja. Þrær verksmiðjunnar
eru byggðar með sama sniði og
korngeymslur erlendis og búnar
öllum nauðsynlegum flutninga-
tækjum. Mundu þær geta rúmað
2500—3000 tonn af ómöluðu
og sekkjunartækjum, sem til eru
í landinu, og hafa þau nægileg
afköst til þess að annast umrædda
starfsemi, en auk þessa hefur
verksmiðjan geymslurúm fyrir
allt að 1000 tonn af sekkjaðri
kornvöru.
Lega verksmiðjunnar á hafn-
arbakkanum gerir það mögulegt
að dæla korninu beint úr skipi
í geymsluþrærnar, þannig áð upp
skipunarkostnaður og biðtími
flutningaskipanna gæti orðið
hverfandi.
Aðstaðan í Faxaverksmiðjunni
til mölunar á fóðurkorni er því
sambærileg við það sem gerist
í erlendum kornmyllum.
Ef þessari starfsemi yrði hrint
í framkvæmd, mundi þar fást
æskilegt verkefni fyrir Faxaverk
smðjuna, er nú hefur skort hrá-
efni árum saman. Þessi starf-
ræksla mundi veita mörgum
mönnum ársatvinnu í verksmiðj-
unni einni. Losað væri það rúm
í vörugeymslum, sem nú er bund-
ið við geymslu á innfluttu kjarn-
fóðri en brýn þörf er fyrir til
annarra nóta. En þýðingarmest
er það, að opnast mundu mögu-
leikar til aukins útflutnings á
hraðfrystum fiski til Rússlands
og þar með aukinnar atvinnu í
frystihúsum, á togurum og öðr-
um veiðiskipum.
Faxaverksmiðjan er einasta
fyrirtækið hér á landi, sem gæti
tekið þessa starfsemi að sér nú
þegar. í þessu sambandi kemur
sú fyrirhyggja að gagni, sem
höfð var við byggingu verk-
smiðjunnar, að gera hana þannig
úr garði, að hún gæti tekið fyrir
önnur verkefni heldur en sildar-
bræðslu einungis.
Reykjavík 28. jan. 1954.
F. h. Faxa s.f.
Sv. S. Einarsson.
Tveggja vikna hátiðahöld í
lilefni af 65 ára afiuælinu
ÁrmenRÍniar bjóða upp á „sii! af hverju fægi"
15. DES. s.l. voru 65 ár liðin frá stofnun Glímufélagsins Ármann.
I tilefni af því munu Ármenningar nú, eins og þeir hafa jafnan
gert á fimm ára fresti, halda upp á afmæli félagsins. Standa hátíða-
höldin yfir í 14 daga — frá 2.—14. febrúar. Fyrstu hátíðahöldin
verða á þriðjudag í Þjóðleikhúsinu. Verða þar ræður fluttar, þjóð-
dansar sýndir svo og glíma, fimleikar og dans. Á hverjum degi þar
á eftir til 14. febr. gangast Ármenningar fyrir íþróttamótum Qg
tnka þátt í þeim af hálfu félagsins 350 manns.
ÞJÓÐLEIKHÚS-
SKEMMTUNIN
ÁLASUNDI 28. jan. — í gær
var einhver bezti sildarafli,
sem menn muna eftir við
vesturströnd Noregs. Lauslegt
yfirlit yfir aflamagn á þess-
um slóðum sýnir 715 þúsund
hektólítra. Skiptist þetta þann
ig niður að 307 þúsund hektó-
lítrar hafa komið til Álasunds-
héraðsins og 408 þúsund til
Bergens-svæðisins. Er heild-
araflinn á þessari síldarvertið
samkvæmt þessu kominn upp
í 3,2 milljón hektólítra, en það
mun vera að verðmæti hátt á
annað hundrað þúsund króna.
Allar síldarþrær í Álasundi
eru yfirfullar. Báðir kolakran-
ar bæjarins hafa verið teknir
í notkun til að afferma skipin.
Síldin verður geymd til bráða-
birgða á stórum steinsteypt-
um stéttum. Leigð hafa verið
stór flutningaskip til að flytja
síldina. Harma menn að ekki
skuli vera til fljótandi síldar-
verksmiðjur til að flytja á
staðinn, þar sem mest þörf er
fyrir síldarverksmiðju núna.
Sjómenn segja að hafið virðist
vera ótæmándi af síld. — NTB
Á skemmtun Ármanns í Þjóð-
leikhúsinu á þriðjudag flytja
ræður þeir Ingólfur Jónsson ráð-
herra, Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri og Ben. G. Waage for-
seti ÍSÍ. Karlakór Reykjavíkur
og Guðmundur Jónsson syngja,
Erik Bidsted og kona hans Lisa
Kæregaard sýna ballet, glímu- og
fimleikaflokkar félagsins sýna og
16 telpur úr félaginu dansa blóma
valsinn undir stjórn Guðrúnar
Nielsen, sem alls stjórnar 4 sýn-
ingarflokkum þann dag, en hún
er aðalfimleikakennari félagsins
og kennir eftir nýju finnsku kerfi
— leikfimi undir hljóðfæraslætti.
ÍÞRÓTTAMÓTIN
Á miðvikudag er frjálsíþrótta-
keppni, á fimmtudag sundmót,
þar sem m. a. verður sýndur
sundballett. Á föstudag er Skjald-
arglíma Ármanns, á laugardag
barnaskemmtun að Laugavegi
162. Á sunnudag er skíðamót Ár-
manns 1 Jósefsdal, á mánudaginn
keppa 6 flokkar Ármanns í hand-
knattleik við Reykvíkinga og
Hafnfirðinga.
Á þriðjudag verður hnefa-
Framh. á bls. 12
LISTI REYKVfKIIMGA - D-LISTINN