Morgunblaðið - 29.01.1954, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.01.1954, Blaðsíða 12
f 12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 29. jan. 1954 • Afmælisgjöf til „Hringsins" Á 50 ÁRA afmæli Kvenfélagsins Hringsins, 26. janúar, barst stjórn þess gjöf, að upphæð 4.000.00 kr., til Barnaspítalasjóðs Hringsins frá móður, sem ekki vill láta nafns síns getið, með þeim um- mælum, að fjárupphæð þessi sé gefin í þakklætisskyni fyrir það, að börn hennar, sem öll eru upp- komin, hafa verig hraust og aldrei þurft á sjúkrahúsvist að halda. Stjórn Hringsins tjáir hér með sínar beztu þakkir fyrir þessa einkar kærkomnu afmælisgjöf. F.h. stjórnar Hringsins, Guðrún Geirsdóttir, varaformaður. Marriman hætt að syrgja KAIRO 28. jan. — Egypzki kvikmyndaleikarinn og söngv arinn Farid el Atrash skýrði frá því í dag að hann ætlaði að kvænast Narriman fyrrum Egyptalandsdrottningu, strax og hún fær skilnað frá Farúk. — Hvcrs vegna! Framh. af bls. 9. fram — heldur frelsi og fram- tak. ★ Hinn alþjóðlegi kommúnismi er að mínum dómi mesti bölvald- ur okkar tíma. Ég kynntist hon- um lítillega sjálfur, er ég dvald- ist um skeið í Berlín í sumar, skömmu eftir frelsisbyltinguna 17. júní, ræddi við austur-þýzkt flóttafólk og heimsótti höfuð- bong austur-þýzka kommúnista- ríkisins. Þar varð grunur minn staðfestur og ég skildi betur en nokkru sinni orð Tómasar: „í gær var hún máske brún þessi böðulshönd, sem blóðug og rauð í dag sínu vopni lyftir“. Sjálfstæðisflokkurinn er öflug- asta vígið hér á landi í barátt- unni við kommúnismann. — Af þeim sökum meðal annars hefi ég fylgt honum. Framtíð komm- únismans á ekki að verða fram- tíð íslands. Ef koma á í veg fyrir það verður Sjálfstæðisflokkur- inn að vera sterkur og öflugur. Frjálslyndir mennta-, lista- og alþýðumenn ættu að minnast þess. Þeir hafa aldrei átt sam- leið með afturhaldinu í Moskvu, postulum lögregluríkis. — Þeirra einkunnarorð eru: Frelsi, fram- tak. — Armann Framh. af bls. 6. leikamót Ármanns. Þar kepp- ir sem gestur Norðmaðurinn Leif Hansen. — Hann hefur keppt 180 sinnum og mun nú einn frægasti hnefaleikari Norðmanna. Hann keppir í veltivigt gegn Birni Eyþórs- syni. ’ Miðvikudaginn 10. febr. verð- Úr bikarglíma Ármanns, fimmtu- daginn 11. febr. verður fimleika- og þjóðdansasýning auk körfu- knattleikskeppni. Föstudaginn 12. verður fjölbreytt skemmtun í Austurbæjarbíói, á laugardag af- rnælishóf í Sjálfstæðishúsinu og á sunnudaginn hinn 14. febr. fcarnaskemmtun í Austurbæjar- þíói. Ármenningar bjóða því Reykvíkingum upp á „sitt af hverju tægi“ næsta hálfa mán uðinn. Hafa þeir undirbúið há tíðahöldin af kostgæfni og munu vafalaust uppskera eins og þeir hafa sáð. r Vr> Kærleiksheimili Framh. af bls. 8. fara svona með okkur eftir alla okkar góðu baráttu <stendur upp). > \ Gils: — Ég er ekíci til viðtals um þessi kjör. Sem.heiðarlegur flokkur — og þar að auki með oddaaðstöðu, heimtum við minnst 10—20 stöður handa okkar mönn- um og auk þess umboðslaun af öllu, sem bærinn kaupir inn. Magnús (ástúðlega en særður): — Við drögum okkur út úr póli- tík, ef þetta á að fara svona. G. Vigf. (byrstur); — Mér koma þessi uppástöndugheit ykk- ar f jórmenninganna mjög á óvart. En þetta sannar bara það sem allir máttu vita, að þið eruð allir auðvaldsbullur, landssölumenn og lýðræðisfjendur — og verður að fara sem fara vill. Magnús (ástúðlega): — Eigum við ekki að koma? (Magnús, Vilja hefia innflufn- ing hollemku stein- steypuhúsanna EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt með atkvæðum allra fundarmanna á fundi í Iðnaðar- mannafélaginu í Hafnarfirði 14. þ. m.: „Fundur í Iðnaðarmannafélag- inu í Hafnarfirði, haldinn hinn 14. jan. 1954, vítir harðlega að leyfður skyldi innflutningur á hinum hollenzku „Schocbeton“- húsum og skorar á ríkisstjórnina að hefta nú þegar innflutning þann, sem nú er að hefjast. Fundurinn telur þennan inn- flutning hina mesta óhæfu, þar sem gnægð af steypuefni, sandi og vatni er fyrirliggjandi víðast hvar í landinu og því með öllu óþarft og ámælisvert, að flytja þau efni inn erlendis frá“. Þar sem vinna hér á landi virð- ist ekki of mikil, álítur fund- urinn það fjarri öllum sanni, að hefja hér þá húsagerð, sem full- víst má telja að framkvæma verði að miklum hluta með erlendum vinnukrafti. Síðast en ekki sízt, þegar það er vitað, samkvæmt gerðum tilboðum, að hús þessi verða stórum mun dýrari í bygg- ingu og auk þess ótraustari en þau hús, sem hér eru gerð af inn- lendum iðnaðarmönnum. Jafnframt skorar fundurinn á iðnaðarmenn, hvar sem er á land- inu, að fylkja sér gegn þessum óþarfa og óþjóðlega innflutningi. Enn fremur samþykkir fundur- inn að skora á stjórn Landssam- bands iðnaðarmanna, að leita samstarfs við Alþýðusamband ís- lands og aðra þá, sem hún telur þurfa, um gagnaðgerðir og að gera að öðru leyti það, sem hægt er til að hefta innflutning hinna hollenzku húsa. Hafnarfirði, 16. jan. 1954. Steingr. Bjarnason. (form.) Vigfús Sigurðsson (ritari.) Óskar, Þórður og Gils ganga til dyra). Petrína: — En þeir borgara- legir í sér!! Jónas: — Þessi Þórður minnir mig svo á hjálparkokkinn á Straumeynni. Ingi: — Þurfum við ekki að ná í Brynjólf og biðja hann að síma austur? G. Vigf.: — Ekkert liggur á. Ég þekki mína. Það má bjóða þessum peyjum allt. Þeir koma áreiðanlega aftur ræflarnir. Hrafnkell. Mikil hrlfning á háiíðasýningu Þjéðleikhússins í GÆRKVÖLDI var hátíðasýn- ing í Þjóðleikhúsinu í tilefni af 200 ára ártíð Ludvigs Holbergs. Sýndur var gleðileikurinn „Æðikollurinn“ (Den Stundes löse), í þýðingu Jakobs Bene- diktssonar, undir leikstjórn Lárusar Pálssonar. Leikhúsgestir tóku „Æðikoll- inum“ forkunnar vel, og var leikendum ákaft fagnað. Áður en sýning hófst, var fluttur þáttur úr simfóníu í es-dúr eftir Mozart. — Forseti íslands og frú hans, ráðherrar og sendiherrar hinna Norðurlandanna voru meðal gesta. Framrúðurnar broin- uðu — lakkið skemmdist AKRANESI, 28. jan. — Árdegis í dag lagði bifreiðastjóri á Akra- ne^i, Haraldur Kiiíttmundsson, af stað héðan á 4 tonna bifreið og ætlaði upp að Hvanneyri. Var vindur hvass á suðaustan og kom í gusum ýmist ofan af eða með fjallinu. Þegar Haraldur var kominn innarlega í Hafnarskóg, skóf lausagrjót og smásteina af slíkri harðneskju að báðar fram- rúðurnar brotnuðu í bílnum og einnig glerin á ljósaugunum tveimur. Á heimleiðinni var Haraldur að nema staðar í skóginum ein- uhi 10 sinnum, svo að stormsveip- irnir bæru bílinn ekki út af veg* inum. Er heim kom var að auki allt lakk framan á bílnum stór- skemmt. •—Oddur. Bátur skemmist SELFOSSI 28. jan. — Aftaka- veður gekk yfir Suðurland í dag. í Þorlákshöfn sleit vélbátinn Ög- mund upp og rak hann á land. Er báturinn mikið skemmdur en meiðsli urðu ekki á mönnum. Vélbáturinn Ögmundur hafði nýlega verið settur niður og unn- ið var að því að búa hann til vertíðarinnar. Slitnaði hann upp af legunni og rak upp eins og fyrr segir. FÉLAGSVIST OG OAIMS í G. T.-húsinu í kvöld kl. 9. stundvíslega. Sex þátttakendur fá kvöldverðlaun, 350—400 kr. virði. DANSINN HEFST KL. 10,30. GÖMLU OG NÝJU DANSARNIR CARL BILLICH stjórnar hljómsveitinni. Aðgöngumiðasala frá kl. 8 — Sími 3355 Ath.: Komið suemma til að forðast þrengsli. DANSSKÓLI Guðnýjar Pétursdóttur Kennsla byrjar 2. febrúar næstk. — Kennt verður: Ballett og samkvæmisdansar. Nemendur mæti í Edduhúsinu við Lindargötu mánudag 1. febrúar frá klukkan 5—7. Einkatímar í samkvæmisdönsum eftir samkomulagi. Appelsínur I ■ Epli, ny ítölsk \ ■ ■ ■ Melónur \ m m m m ^JJriótjánóóon &E* (Jo. h.j^. \ Garðyrkjumt&nn ■ ■ ^ ■ Oska að kaupa eða leigja garðyrkjustöð Uppl. í síma • 82358. Tilboð sendist afgr. Morgbl. merkt: Gróðrarstöð —287, fyrir 10. febrúar. ■ '■ ■. ■ ■> MARKtS Eftlr Ed Dodd WÍ'VE COT TO FIND A WAV rOC YOU AND YOUR GEAND- FATHE42 TO KEEF> THIS PLACE, JANr£» 1) — \ P verðum að finna leið út úr ógóngunum. 2) — Markús væri ekki lengi að leysa úr þessu. — Hver er Markús? 3) — Bezti vinur minn. Skóg- armaður og snillings ljósmynd- ari. 4) — Ég verð að fara. Van Horn bíður eftir mér. Ég kem aftur o greyni að hjálpa þér. — Komdu fljótt aftur, Siggi. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.