Morgunblaðið - 10.04.1954, Blaðsíða 16
Veðurútlif í dag:
SA eða S hvassviðri, rigningr.
Húsðleigufrumvarpið
Sjá grein á blaðsíðu 2.
84. tbl. — Laugardagur 10. apríl 1954.
Tvö af sfórmálum rfkissfjórn-
arsnnar urðu að lögum í gær
í GÆR afgreiddi Alþingi sem
lög skattafrumvarp rikisstjórn
arinnar. Frumvarpinu hefur
áður verið lýst rækilega, en
skattstofan telur að skatta-
lækkun samkvæmt því, verði
að meðaltali 29% á persónu-
lega gjaldendur, en skatta-
lækkun félaga verður 20%.
Frumvarpið fór breytinga-
lítið gegnum báðar deildir.
Aðeins var um að ræða veiga-
litlar lagfæringar og orðalags-
breytingar.
Annað stórmál ríkisstjórn-
arinnar varð að lögum í gær,
en það er frumvarpið um við-
auka við raforkulögin frá
194G. Er í þessum nýju lögum
svo fyrir mælt. að á næstu 10
árum skuli varið a. m. k. 250
millj. kr., til rafvæðingar í
sveitum landsins. Fjárframlög
in eru mest fyrstu árin og
framkvæmdum verður skift
þannig að sem jafnast komi
niður á hinar ýmsu byggðir
landsins. Verður þegar í sum-
ar hafizt handa um fram-
kvæmdir samkvæmt þessari
10 ára áætlun.
Frumvarpið fór óbreytt og
umræðulaust með öilu í gegn-
um báðar deildir þingsins og
er slíkt fremur sjaldgæft.
HáKdán Helgason
prófastur lálinn
Bygging byggðnsnfns
Vestfjnrðn undirbúin
Veslfirðingafélagið safnar fé II! þess
UM ALLLANGT skeið hefur verið unnið að undirbúningi að
byggingu Byggðasafns Vestfjarða. Hefur verið rætt um að það
yrði reist í botni Skutulsfjarðar í nágrenni ísafjarðarkaupstaðar.
Nokkurt fé hefur þegar safnast í þessu skyni og söfnun muna í
í;afnið er hafin fyrir nokkru. Er gert ráð fyrir að þar verði bæði
munir úr sveítum og frá sjávarsíðu. En eins og kunnugt er hefur
atvinnulíf Vestfirðinga jafnan byggst jöfnum höndum á sjósókn
<>g landbúnaði. — Þegar hefur verið gefinn í safnið héill sexæring-
Tir með öllum búnaði. Gefandi hans var Jóhann Bjarnason, smið-
■ur á ísafirði.
T-ÁTTUR VESTFIRÐINGA- ®---------------------------
FÉLAGSINS
Vestfirðingafélagið hér 1
Keykjavík hefur mikinn áhuga
íyrir því, að styðja að byggingu
byggðasafnsins í Skutulsfirði. —
Hefur það nú boðað til skemmti-
<jg spilafundar n. k. mánudags-
Kvöld kl. 8,30 í Tjarnarcafé. —
Verður þar ýmislegt til skemmt-
unar en allur ágóði af samkom-
■unni mun renna til byggðasafns-
sns. —
Vestfirðingar ættu að fjöl-
ynenna á þessa samkomu. Með
J>ví styðja þeir í senn gott mál-
efni heimahaga sinna og njóta
ánægjulegrar kvöldstundar. —
Kygging byggðasafnsins er hið
inesta menningarmál. Mundi
margur kjósa að eiga þess kost,
er hann kemur til ísafjarðar að
♦■kceppa inn að Seljalandi og
kynnast þar baráttu og lífi vest-
íirzks fólks á liðnum tíma.
Bátarnir komu hoilír til hafnar
en óttast var m afárif þeirra
Sauðárkróki, 9. apríl.
¥ NÓTT var hér allsæmilegt veður og reru allir trillubátarnir laust
V upp úr kl. 4 í morgun. Strax eftir að bátarnir voru rónir,
byrjaði að hvessa, en þó ekkert að ráði fyrr en kl. 8.30 í morgun.
Brast þá á með suð-vestan vonzku veður, sem náði hámarki sínu
milli kl. 9-^-9.30 og mátti þá kalla að aft'jk væru. Upp úr því fór
að draga úr veðrinu, en ekki verulega fyrr m eftir hádegi, en þá
gekk á með bleytu og hríðaréljum.
Smyslov hefir nú
yfirhöndina
MOSKVU. — Eftir 11. umferð
I í skákeinvigi þeirra Botvinn-
iks og Smyslovs, hefur sá sið-
arnefndi nú 6 minninga, en
Botvinnik 5.
í gær fór hópur rússneskra
skákmanna til Óslóar til þess
að taka þátt í hinu alþjóðlega
skákmóti stúdenta, sem hefst
I þar næstkomandi sunnudag.
* — Meðal Rússanna verða
nokkrir þekktir skákmenn,
svo sem Viktor Kortsjnoj, sem
varð efstur á alþjóða skákmóti
er haldið var í Búkarest í vet-
ur. — T. d. vann hann þar
I sænska stórmeistarann Gideon
Staahlberg. — NTB.
Sæmllegur afli Eyja-
bála, en erfið fíð
VESTMANNAEYJUM, 9. apríl.
— Veiði Vestmannaeyjabáta hef-
ur verið sæmileg að undanförnu,
en tíðin verið ákaflega erfið. Sjó-
veður hefur ekki verið gott í
langan tíma, þannig að bátar.nir
hafa oft ekki getað dregið nema
um helming netja sinna.
Þá hafa bátar misst nokkuð af
veiðarfærum vegna ágangs er-
lendra togara, en mikið er nú
um þá hér fyrir suðurströndinni.
Afli bátanna hefur verið mjög
misjafn, ýmsir hafa fengið góða
veiði, en ekki er hægt að segja
að netjahrotan, sem venjulega
kemur í apríl, sé byrjuð.
— B. Guðm.
SR. HALFDAN HELGASON
prófastur að Mosfelli í Mosfells-
sveit andaðist snögglega í fyrra-
kvöld. Banamein hans var hjarta-
slag. Hafði hann farið um morg-
uninn austur að Selfossi til að
heimsækja tilvonandi tengdadótt-
ur sína og hennar fólk og voru
með honum kona hans, sonur og
tvær systur. Er þau voru á heim-
leið, á Hellishgiði, skammt fyrir
austan Skíðaskálann veiktist
hann snögglega og andaðist þeg-
ar. Sr. Hálfdan var glaður fram
á hinztu stund og þessi dagur
hafði verið honum sérstaklega
ánægjulegur í heimsókn hjá góð-
um vinum.
Sr. Hálfdan var 56 ára að aldri.
Hann var sonur Jóns biskups
Helgasonar og konu hans Maríu.
Hafði hann verið þjónandi prest-
ur að Mosfelli í 29 áf og prófast-
ur í Kjalarnesþingi síðan 1941.
Hann var mikilsmetinn og vin-
sæll maður bæði meðal sóknar-
barna og annarra, er til hans
þekktu.
Um 40 Danir sæmdir
ísleitxkum beiðurs-
merkjum
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
Kaupmannahöfn í gær.
í SAMBANDI við hina opinberu
heimsókn forsctahjónanna til
Danmerkur hefur forseti íslands
sæmt um 40 Dani heiðursmerkj-
um hinnar íslenzku Fálkaorðu.
Meðal þeirra íslendinga, sem
hlotið hafa dönsk heiðursmerki,
er dr. Kristinn Guðmundsson,
sem sæmdur var stórkrossi
Dannebrogsorðunnar.
BATARNIR KOMU
AÐ LANDI
Alls reru í morgun 8 bátar héð-
an, og komu 4 þsirra að landi
milli kl. 9 og 10 í morgun, þegar
óveðrið brast á, en þeir bátar
höfðu verið skammt undan landi.
Skömmu fyrir hádegið kom 5.
báturinn að landi og nokkru síð-
ar fréttist til þess 6., sem hafði
haft sig upp undir Reykjaströnd-
ina norðan til og lá þar í vari.
FARIÐ AÐ ÓTTAST
UM TVO BÁTANA
Voru þá tveir bátanna, And-
Vari og Svavar, sem báðir eru
2% tonn að stærð, enn ókomnir.
Var farið að óttast um afdriC
þeirra, en ekkert hægt að aðhaf-
ast vegna vcðursins. Um tvö
leytið fréttist af Andvara, en
hann hafði leitað sér skjóls aust-
an fjarðarins við Kolkuós, og
mun hann bíða þar þangað til
veður lægir. Kl. hálf þrjú bárust
eir.nig fréttir af Svavari, en hann
hafði lagzt í var, norðan Hegra-
ness. Veður er nú óðum að lægja,
og má búast við bátunum hingað
til Sauðárkróks allt hvað líður.
— Guðjón.
12 lög aigreMi i gær
IGÆR voru afgreidd frá Alþingi 12 ný lög. Hefur afgreiðslu
mála mjög verið hraðað síðustu dagana, aukafundum og kvold-
fundum iðulega skotið á, því aðeins eru eftir 4 dagar til þingslita.
NÝJU LÖGIN
Samþykkt var sem lög frum-
varpið um aukatekjur ríkissjóðs.
Er í því kveðið á um dómsmála-
gjöld í einkamálum, gjöld fyrir
fógetaaðgerðir, skiftagjöld, gjöld
fyrir uppboðsaðgerðir, notarial
aðgerðir, þinglýsingar, fyrir leyf-
isbréf o. fl., gjöld fyrir skrásetn-
ingar o. fl.
Þá var og samþykkt breyting'
á lögum um Framkvæmdabank-
ann þess eðlis að ríkisstjórnin má
Þjóðdansafélag Rvíkur efnir
til sýningar í Austurbæjarbíói
Þjóðdansar frá 15 löndum, Karlakór Rvíkur syngur
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykjavíkur efnir til þjóðdansasýningar á
morgun, sunnudag, kl. 2 e. h. í Austurbæjarbíói. Er þetta fyrsta
sjálfstæða sýningin, sem þessi ungi félagsskapur stofnar til, en
Karlakór Reykjavíkur mun hafa samvinnu um sýninguna á morg-
un. Syngur bæði allur kórinn og auk þess einsöngvari og tveir
tvöfaldir kvartettar með söngvurum úr kórnum.
ífunir Nelsons
I.UNDÚNUM — Fundizt hafa nú
um 60 þeirra 90 muna, sem stolið
var úr minjasafni Nelsons flota-
foringja í Abergavenny í nóvem-
•>er s.l.
ÞJÓÐDANSAR
FRÁ 15 LÖNDUM
Þjóðdansasýning þessi er ætl-
uð, eins og öll starfsemi félags-
ins, til að kynna almenningi hvað
þjóðdansar eru. Verða sýndir
dansar frá 15 löndum, frá öllum
Norðurlöndunum, og öðrum Ev-
rópulöndum og einnig frá Ame-
ríku. Á milli 50 og 60 manns taka
þátt í dönsunum, sem æfðir eru
af kennurum þjóðdansaféiagsir^s.
ÁNÆGJULEG NÝJUNG
Reynt hefur verið, svo sem tök
hafa verið á, að gefá sýningunni
sem þjóðlegastan blæ, þ. e. a. s.,
að séreinkenni hinna ýmsu landa
komi fram í dönsunum. Dansað
er í þjóðbúningum hvers lands,
og tónlist og söngur í samræmi
við dansana. Hér er um að ræða
ánægjulega nýjung í skemmt-
analífi höfuðborgarinnar, sem
vænta má, að eigi mikla framtíð
fyrir sér.
Skélaskemmfun
Hafnarfjarðarbarna
HAFNARFIRÐI — Hin árlega
skólaskemmtun Barnaskóla Hafn
arfjarðar til ágóða fyrir ferða-
sjóð fullnaðarprófsbarna, verður
í Bæjarbíói í dag og á morgun
(sunnudag).
Eins og jafnan áður, verður
skemmtunin mjög fjölbreytt. —
Skemmta eingöngu börn úr skól-
anum með söng, upplestri, dansi,
leikritum og fleira. — Hafa börn-
in og kennarar þeirra lagt sig
mjög fram til að gera skemmt-
unina sem bezta úr garði. — G.E.
Síldarlei! lyrir Norð-
ur- og Auslurlandi
lögfesf
í GÆR afgreiddi Alþingi sem
lög frumvarp fjögurra Sjálf-
stæðisþingmanna um síldarleit.
Kveða lögin á um, að í júní—
sept. ár hvert skuli leita síldar
fyrir Norður- og Austurlandi*
Kostnaði við síldarleitina er skift
á milli Fiskimálasjóðs (V:<, hluti)
en tveim þriðju hlutum er jafn-
að niður á síldarútvegsnefnd og
síldarverksmiðjur, er reknar eru
á svæðinu frá Horni að Djúpa-
vogi. Miðast skiptingin við
tunnufjölda saltaðrar síldar og
málafjölda bræðslusíldar.
ábyrgjast 225 millj. kr. lán er
bankinn kann að taka erlendis.
Er breyting þessi gerð vegna
hinna miklu framkvæmda, er rík-
isstjórnin nú hyggur á.
Þá var samþykkt lagabreyting
á almannatryggingalögunum. Það
var stjórnarfrumvarp og miðar
að hækkun bóta til aðstandenda
sjómanna er láta lífið við störf
sín.
Samþykkt var frumvarp um
fyrningarafskriftir. Er það um
að framlengt verði ákvæðum um
afskriftir, sem verið hafa í lög-
um.
Samþykkt voru tvenn lög um
heimild fyrir ríkisstjórnina til
þess að láta öðlast gildi samn-
ingsbreytingu milli Norðurland-
anna, annars vegar um alþjóðleg
einkamálaréttarákvæði um hjú-
skap, ættkiðingu og lögráð og
hins vegar um innheimtu með-
laga.
Tvenn lög voru samþykkt um
breytingu á lögum um skipun
læknishéraða. f öðru þeirra er
Egilsstaðalæknishéraði skipt í
tvennt og í hinu er ákveðið að
Blönduóslæknishéraði verði skipt
í Blönduóshérað og Höfðahérað.
Þá voru( samþykkt lög um síld-
arleit úr lofti, um fuglaveiðar og
fuglafriðuh, raforkufrumvarp og
skattafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar. Þeirra ,er getið á öðrum stað
í blaðinu.
Skákeinvígið
KRISTNES
VÍFDLSSTAÐIR
7. leiknr Vífilsstaða:
Bcl—d3
7. leikur Kristness:
Bb4xd2ý