Morgunblaðið - 22.05.1954, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.05.1954, Qupperneq 9
Laugardagur 22. maí 1954 MORGUNBLAÐIÐ Q Sjálfstæðisflokkiirinn viH haldn friði um varnarmálin við aðra lýðræðisflokka Konúnistar reyna ú spiSla scnwinmi ábyrgra aðilja w þau Eskimóarnir drepa æSarfugl- inn til malar og skfólklæða En níi á að kenna þeim að nytja dúninn Samtal við tvo Kanadamenn er kynna sér æðartekju á íslandi KOMMÚNISTAR hafa undan- farna daga gert mikið úr þeim ágreiningi, sem þeir segja, að sé kominn upp milli Sjáifstæðis- flokksins og Framsóknarflokks- jns, í sambandi vig varnarmálin, og reyna að færa sér í nyt blaða- skrif, sem orðið hafa um þessi mál milli Flugvallarbiaðsins og Tímans. Er greinilegt, að komm- únistar vonast til þess, að þeir geti með sínu alþekkta ábyrgðar- íeysi og rógi spillt samvinnu þess- ara flokka í þessum viðkvæmu málum, en þá væri þeirra tilgangi náð. SAMEIGINLEG STEFNA Sjálfstæðismenn hafa álitið, að stefna sú, sem fylgt hefur verið 5 utanríkismálum þjóðarinnar, allt frá því að íslendingar tóku þessi mál í sinar hendur, hafi ekki verið stefna neins einstaks stjórnmálaflokks, heldur sameig- inieg íslenzk stefna lýðræðisafl- anna. Málgögn flokksins hafa því forðast, að hefja flokkspólitískar deilur um þessi þýðingarmiklu mál, en aftur á móti stefnt að því, að sameina öll þjóðholl öfl til farsælla átaka til styrktar málstað Islands, bæði inn á við og út á við. Því er aftur á móti ekki að léyna, að stundum hefur þessarar stefnu ekki gætt sem skyldi í sumum blöðum lýðræðísflokk- anna. Og eru mönnum enn í fersku minni árásir Tímans á fyrrverandi utanríkisráðherra, Bjarna Benediktsson, er hann fór með þessi mál og stýrði þeim af sinni alkunnu viðsýni og dugn- aði. Reyndi Tíminn þá að gera ýmsar framkvæmdir í varnar- málunum tortryggiiegar og gaf þá oft andstæðingum lýðræðis- flokkanna vopn í hendur til beinna árása á utanríkisstefnu þjóðarinnar. FRAMSÓKN TEKUR VIÐ VARNARMÁLUNUM Er núverandi stjórn var mynd- uð, féll það í hlut Framsóknar- flokksins að stýra þessum málum og óskuðu þeir eftir því að fá sem víðtækust völd á sviði varnar- málanna, sem þeir og fengu. Sjálfstæðismenn töldu eftir ástæð um rétt, að Framsókn fengi stjórn þessara mála og hét þeim fullum stuðningi í frarokvæmd þeirrar utánríkisstefnu, sem mörkuð hafði verið. af öllum ]ýð- xæðisflokkunum. Enda hafa blöð flokksins síðan stutt þá stefnu og á engan hátt reyna að gera verk utanríkisráðherra tortryggileg í augum alþjóðar gagnstætt því sem blöð Framsóknar höfðu gert í tíð fyrrverandi utanríkisráð- herra. ÁRÁS TÍMANS En nú fyrir skömmu tek- nr Tíminn upp nokkuð nýja .stefnu í þessum málum. í Tíman- um 13. maí s.l. er grein um Flug- vallablaðið, en það blað er gefið út af nokkrum starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli og fyrst og fremst helgað málefnum þeirra. í þessari Tímagrein er ráðist með persónulegum svívirðíngum að ákveðnum starfsmönnum á Kefla ‘ víkurflugvelli og þeir sakaðir um njósnir í þágu varnarliðsins og jafnframt eru orð látin liggja að því, að þessi verk þeirra séu Unnin með vilja og vitorði Sjálf- stæðisflokksins. Slíkar ásakanir eru vissulega mjög alvarlegar og ekki sízt þar sem þær koma fram 5 málgagni utanríkisráðherra og eru með öllu tilhæfulausar. Er vissulega leitt til þess að vita, að Framsóknarflokkurijm skuli fara út á þá hálu braut að koma með órökstuddar sakir á starfs-i menn flugvallarins í svo alvar- legu máli sem þessu, og brígsla samstarfsflokkj sinum um þátt- töku í þeim. Slíka framkomu get- ur ekki ábyrgur stjórnmálaflokk- ur leyft gér, beri hann einhverja viiðingu fyrir sjálfum sér og finni eitthvað til þeirrar ábyrgð- ar sem hann hefur tekið á sig með því að fara rneð þessi mál. GAGNRÝNI EN EKKI PERSÓNULEGAR ÁDEILUR Tíminn kvartar yfir því, að Flugvallarblaðið haldi uppi stöð- ugum árásum á hendur utanríkis ráðherra. Þessi ummæli blaðsins eru mjög orðum aukin. I Flug- vallarblaðinu er eins og eðlilegt verður að teljast fyrst og fremst skrifað um málefni þau er snerta Keflavíkurflugvöll og aðstöðu starfsmanna þar. Það er því ekk- ert óeðlilegt þó að í blaðinu komi fram gagnrýni á ýmislegt, sem framkvæmt er af valdhöfunum í sambandi við þau mál. En Tím- inn virðist telja alla slíka gagn- rýni persónulegar árásir á hend- ur utanríkisráðherra þó að slíkt sé að sjálfsögðu fjarri sanni. Einnig hefur Timinn tæpt á því, að Flugvallablaðið væn gefið út á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins, þrátt fyrir það, þó Flugvallar- blaðið hafi marg lýst því yfir að svo væri ekki, þó að það styðji þá utanríkisstefnu, sem mörkuð var er Sjálfstæðismenn fóru með þau mál. HLAUP Á MILLI FLOKKA Það er heldur ekki úr vegi að minnast þess, að á tímabili gáfu nákomnir menn Framsóknar- flokknum út annað blað á Kefla- víkurflugvelli er kallað var „Stapafell". Það blað hélt uppi látlausum árásum á fyrrverandi utanríkisráðherra og var þá ekk- ert að heyra á Framsóknarmönn- um að þeim þætti það miður. Það hefur komið í ljós, að Varnarmáladeildin hefur ráðið menn til trúnaðarstarfa á Kefla- víkurflugvöll, sem telja verður að hafi vafasama fortíð til þeirra starfa, .sem þeir hafa verið settir til að gegna. Það er reyndar vit- að, að fjölmargir menn hafa leikið þann leik að ganga á milli Framsóknarflokksins og komm- únista og látið þá á stundum hagnaðarvonina ráða gerðum sínum, og er þó allsendis óvíst hvorum flokknum þessir menn raunverulega fylgja. Þetta vita forustumenn Framsóknarflokks- ins manna bezt enda hefur þetta orðið þeim oft til mikilla von- brigða og leiðinda og ættu þeir þvi að þekkja þessa menn og forðast að setja þá til sérstakra trúnaðárstarfa og það ekki sízt í sambandi við varnir landsins. MBL STYÐUR UTANRÍKIS- RÁÐHERRA í leiðara í Timanum í fyrradag var því beint til Morgunblaðsins, að það gæfi skýr svör varðandi afstöðu Sjálfstæðisflokksins til deilu þeirrar, sem upp er komin milli Tímans og Flugvallarblaðs- ins. Morgunblaðið telur, að það sitji sízt á Tímanum að vera með dólgslegt yfirlæti í bessum mál- um, eða hótanir um atvinnuof- sóknir. Mbl. mun þó ekki láta það verða til þess, að það hefji illdeilur um þessi mál, því að Sjálfstæðisflokkurinn vill halda friði um varnarmálin við aðra lýðræðisflokka á þeim grundvelli sem markaður hefur verið og til þjóðarheiiia horíir. Mbl. mun hér eftir sem hingað til ekki halla á núverandi utanríkisráðherra gagnstætt því sem Tíminn gerði oit í tíð fyrrverandi utanríkis- ráóherra Bjarna Benediktssonar. En Sjálfstæðismenn munu aftur á móti ekki þola að ráðist sé að sínum fylgismönnum og flokkn- um í heild með ásökunum, sem eru uppspum írá rótum og til þess eins gerðar að vekja tor- tryggni og spilla fyrir málstað þjóðarinnar i öryggismálum. ÁBYRG SAMVINNA LYÐRÆÐISAFLANNA Það er ábyggilega bezt fyrir ís- lenzku þjóðina að allir ábyrgir menn, sem unna frelsi og vilja samstart '=lands við hinar írjálsu þjóðir ns sameinist um að hindra iiokkspólitískar árásir í sambandi við utanríkis- og ör- yggismálin og standi fast saman um það að bæta úr því sem aflaga kann að fara í þeim efnum. Per- sónulegar svívirðingar og tilefn- islausar árásir og ofsóknir mega ekki eiga sér stað. Er vonandi að allir ábyrgir aðilar skilji nauð- syn þessa og breyti eftir því. Leiðrélling um áburðarvagn í TÍMANUM 15. maí i954 birtist stutt grein um „Áhald, sem kem- ur áburðinum undir grasrótina“. I grein þessari er ótrúlega mikið af ónákvæmni og staðleysum. Sú er stærst, er snýr að uppfyndingu áhaldsins. Verkfæri þetta er talið fundið upp og smíðað af Magnúsi Árna- syni á Akureyri. Það síðarnefnda er að vísu rétt, en uppfyndinguna á Guðmundur Jóhannesson ráðs- maður á Hvanneyri Smíðaði hann fyrsta áhaldið af þessari gerð á Hvanneyri árið 1945 og hafði þá gert tilraunir með það undanfarin 1 eða 2 ár. Vorið 1946 mun Magnús Árnason hafa séð verkfæri þetta hér á Hvanneyri og var þá sýnt það af skólapilt- um. Það hefði verið skemmtilegra fyrir Magnús Árnason að láta þess getið strax, hvaðan hug- mynd hans að undirburðar-áhald inu er komin, heldur en að eigna sér hluti, sem aðrir hafa gert. Hvanneyri, 17. maí 1954, Guðm. Jónsson. H & H Mbl. birti í fyrradag frétt frá Akureyri um áburðarvagn þenn- an, og er þetta því einnig leið- rétting við þá fregn, hvað snertir uppruna áhaldsins. Eifrun ekki dánar- orsökin FYRIR skömmu lézt hér í Reykja vík barn á þriðja ári, sem veikzt hafði snögglega um það bil sóÞ arhring áður. Sú saga komst á kreik í sambandi við lát barnsiná að gizkað var á að um eitruri hefði verið að ræða. Við krufn- ingu í Rannsóknarstofu Háskól- ans kom í ljós að ekki var urrí neina eitrun að ræða, heldur bráðan sjúkdóm. VÍÐAST hvar með ströndum fram í heimskautslöndum Kan- ada, bæði á heimskautseyjunum miklu og á ströndum Hudson- flóa og Hudson-sunds búa heldur frumstæðir eskimóar, er hafa jafnan lifað á veiðum. I.eitað hefur verið ýmissa ráða til að skapa þessum eskimóaþjóðum ör- uggari atvinnuvegi, sem bæti af- komu þeirra og kjör. KENNSLA í ÆDARTEKJU Nú síðast hefur Kanadastjórn ákveðið að gera tilraunir til að kenna eskimóunum æðartekju, hvernig á að hlúa að æðarfugl- inum, hræla dúninn o. s. frv. Er svo mikið talið liggja við, að nú ekki alls fyrir löngu komu hingað til lands tveir fulltrúar Kanadastjórnar, sem ætla að kynna sér æðartekju á íslandi og kenna eskimóunum síðan aðferðir íslendinga. Menn þessir, sem heita David Munro fuglafræðingur og Willi- am Larmour, sem er fulltrúi í heímskautalandaskrifstofu Kan- ada. Þeir skýrðu Morgunblaðinu svo frá að áhuginn fyrir því, að kenna eskimóum æðartekju hefði helzt vaknað, er Finnur Guð- mnudsson fuglafræðingur var á ferð í Kanada s.l. ár. Hafði hann rætt við ýmsa málsmetandi menn og m. a. gefið þeim upplýsingar um æðartekju á íslandi. ÆÐARKONGUR OG ÆÐARFUGL — Er mikið um æðarfugl í heimskautalöndum Kanada? — Já, það eru tvær tegundir, æðarkóngurinn, sem er meira vestan til, þegar nálgast Alaska. Æðarkóngarnir verpa ekki í hóp, heldur hver í sínu lagi og er æð- artekju af þeim því óframkvæm- anleg. Æðarfuglinn sá sami og er hér á íslandi, er hinsvegar í mjög stórum hópum á Baffins- eyju og öðrum heimskautaeyjum í Hudsonflóa og víðar. KOLLAN SKOTIN — Nytja eskimóarnir hann ekkert? — Jú, aðallega skjóta þeir hann og éta, en t. d. á Balchereyjum í Hudsonflóa gera þeir sér skjól- flíkur úr haminum. Eru skjól- flíkur þessar tvöfaldar og snýr fiður bæði inn og út, svo það má ímynda sér, að fyrirferða- miklir eru þær, en hlýjar um leið. Einnig taka þeir eggin. HVÍTREFURINN AÐAL- TEKJULTND ESKIMÓA — Er æðarfuglinn ekki frið- aður í heimskautalöndum Kan ada? — Hvítir menn mega hvorki skjóta landdýr né fugla í öllu Norður Kanada. Eskimóarnir, sem sjálfir búa þarna og hafa lífsviðurværi sitt, mega hins- vegar veiða. Þó er nokkuð far- ið að takmarka veiðina á seinni árum. Nú er svo komið, að af landrefum mega eski- móarnir aðeins veiða hvítref- inn, en hann er þeirra aðal- tekjulind. Þeir selja refaskinn- in til hvítra manna og fá ýms- an nauðsynjavarning í stað- inn. Fuglar ýmsir eru einnig friðaðir. ÞÝÐINGARALAUST AÐ REFSA — Er eskimóum refsað, ef þeir brjóta friðunarreglur? — Nei, það væri þýðingar- laust. Þeim, sem refsinguna hlýtur stæði alveg á sama þóít hann sæti nokkra daga í fang- elsi. Þar fengi hann meira aíf segja betra viðurværi en hanA á að venjast heima hjá sér. Rcfsingin kæmi því aðallega yfir fjölskyldu hans, sem oft er bjargarlaus á meðan. Sekt- ir koma heldur varla til greina. Um allar heimsskauts- eyjarnar er fjöldi kanadískra lögreglumanna, en í stað þess að refsa, beita þeir fortölum og reyna að fá eskimóana með góðu til að hlíta reglunum. MED BOGA OG ÖRVUM — Hvernig stunda eskimóar veiðar? — Þeir hafa byssur, en oft er það, þegar skotfæri þrýtur, að þeir taka fram sín gömlu veið- arfæri, boga og örvar. Sumir eru leiknir að beita þeim, en þó er skothæfni með boga farið að hraka frá því áður var og sögur herma. ÁRVISSARI ATVINNUGREIN — Teljið þér, að það gæti orðicl til að bæta kjör eskimóanna acf mun, ef þeir kæmust upp á æð- artekju? — Já, eins og ég sagði áðan, er aðalatvinnugrein þeirra að skjóta hvítrefi.En sjúkdómar hrjá refi þessa, svo að fjölgun þeirra gengur í bylgjum. Er mikið af þeim með fimm ára millibili, en þess á milli ber skorturinn á dyr hjá eskimóunum. Æðartekjan er miklu öruggri og árvissari at- vinnugrein. TIL BREIÐAFJARÐAR OG VESTFJARDA — Hvert farið þér hér á landi til að, kynna ykkur æð- artekju? — Við förum til Stykkis- hólms og þaðan í æðarvörp á Breiðafirði. Síðan á Þingeyri við Dýrafjörð og til ísafjarð- ardjúps. Einnig munum við fara austur að Mývatni til að skoða fuglalífið þar, sem mikl- ar sagnir fara af. — Svo viljum við að lokum, segja tvímenningarnir biðja um að skila kæru þakklæti til allra er hafa aðstoðað okkur og þá einkum til Árna G. Eylands stjórnarráðsfulltrúa og Finns Guðmundssonar fuglafræðings, er bezt hafa undirbúið ferð okkar. Þ. Th. Leikheimsókn til Slykkishóltns STYKKISHÓLMI, 16. maí: — Stúkan Borg í Borgarnesi, kom með leikflokk undir stjórn Marinós Sigurðssonar, bakara- meistara þar, til Stykkishólms, s.l. laugardag og sýndi leikritið „Karólína snýr sér að leiklist- inni“ eftir Harald Á. Sigurðsson. Er leikurinn mjög vel æfður og vel með farinn af leikendum, enda var leikendum vel tekið hér og klappað óspart lof í lófa. Hús- fyllir var. Eiga Borgnesingar skil ið þökk fyrir kornuna. Eru Stykk ishólmsbúum kærkomnar slíkar heimsóknir sem.þessar, því und- anfarin ár hefir ekkert verið um leikstarfserni hér í Hólminum, og sakna þess margir, sem minnast frá fyrri árum margra góðra leik krafta hér og prýðilegra sýninga. — Á. H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.