Morgunblaðið - 10.07.1954, Page 8
8
MORGVH VLAÐIB
Laugardagur 10. júlí 1954
i
i
JttaQgittttMiiMfe
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
Uppreisnaríoringi á forsetastól
BARDÖGUM er nú lokið í
Guatemala. Uppreisnarherinn
hefur borið algeran sigur úr být-
um. Forsetinn er flúinn úr landi
og foringi upreisnarliðsins hefur
verið kjörinh forseti lýðveldisins
í hans stað. Var það fámenn
bráðabirgðastjórn, sem kaus hinn
nýja forseta.
Þessi saga hefur ósjaldan
gerzt í ríkjum Mið- og Suður-
Ameríku. Þar eru vopnin oft
látin skipta í ágreiningi milli
manna og flokka.
Engum lýðræðissinna getur
komið til hugar að það stjórn-
arfar, sem nú ríkir í Guate-
mala eigi hig minnsta skylt
við lýðræði eða þingræði. Það,
sem gerzt hefur með uppreisn-
inni er ekkert annað en það
að ofbeldi hefur leyst ofbeldi
af hólmi. Einræðisstjórn hefur
tekið við völdum af einræðis-
stjórn.
Það er vitað að fyrrverandi for-
seti landsins, sem nú hefur verið
velt frá völdum með blóðugri
byltingu hafði rutt einum keppi-
nauta sinna úr vegi með mann-
drápum. Ofbeldi hans hefur nú
getið af sér nýja uppreisn og of-
beldisverk.
Þannig felur einræði og ofbeidi
ævinlega í sér vísir til nýrra
hryðjuverka og uppreisna.
Ólíklegt er, að varanlegur
frýiður sé á kominn í Guatemala
með þessum málalokum. Hin
nýja stjórn hefur að vísu lýst því
yfir, að hún ætli sér að koma á
lýðræðislegu stjórnarfari í land-
inu. Væri vel farið ef það tækist.
En miklar líkur virðast ekki vera
tiF þess. Þegar einræðisstjórn
hefur einu sinni hrifsað til sín
völdin er hún vanalega ófús á að
afsala sér þeim í hendur lýð-
ræðislega kjörinnar stjórnar. Ein
ræðisherrann finnur að jafnaði
einhverja afsökun, sem réttlætir
áframhaldandi völd hans.
Því miður stendur lýðræðið
höllum fæti í mörgum ríkjum
Mið- og Suður-Ameríku. í
Argentínu, Bolivíu og Venezuela
verður varla sagt að um lýðræð-
isstjórn sé að ræða.
En það er víðar en í þessum
heimshluta sem einræðið ræður
nú ríkjum. Tvö stórveldi, Rúss-
land og Kína lúta einræðisstjórn,
sem er miklum mun svartari en
stjórn fyrrnefndra Ameríkuríkja.
Kommúnisminn liggur eins og
mara á þessum fjölmennu þjóð-
um.
I Rússlandi notuðu kommún-
istar hatur fólksins á kúgun zar-
stjórnarinnar til þess að hrifsa
þar völdin. Þeir lofuðu rússnesku
þjóðinni frelsi og lýðræði. En
þeir sviku öll sín loforð. í stað
lýðræðislega kjörins löggjafar-
þings fengu Rússar flokkssam-
kundu kommúnista.
Við þetta „austræna lýðræði"
hefur rússneska þjóðin búið síð-
an. „Kosningar“ í landi hennar
eru í því fólgnar, að kommún-
istaflokkurinn setur upp einn
frambjóðandalista í hverju kjör-
dæmi. Fólkið á kost á því að
„kjósa“ hann. Það hefur ekkert
kjörfrelsi. Aðeins einn flokkur
býður fram.
Þetta segja kommúnistar að sé
fullkomnasta „lýðræði" í heimi.
Og þeir vilja koma því á í öðr-
um löndum, einnig hér á íslandi.
Brynjólfur, Einar, Kristinn og
„gegnherílandi" telja bezt fara á
því, að þeir séu einir í kjöri. Þá
gera þeir sér helzt von um sigurH
í Kína situr einræðisstjórn
kommúnista nú einnig að völd-
um. Vinnur hún nú ötullega að
því að breiða kommúnismann út
um Asíu. Við það starf hikar hún j
ekki við að beita hervaldi. /
I
Því miður eru miklar likur J
til þess að varanlegur friður
geti ekki skapast meðan komm
únistum og öðrum einræðis-
og ofbeldisseggjum tekst að
halda miklum hluta mann-
kynnsins í fjötrum. Lýðræði
og jafnrétti er leiðin til friðar
og uppbyggingar í heiminum.
Einræðið felur í sér hrun og
kyrrstöðu.
Fiskúiflufmngurinn
fi! Bandaríkjanna
ÞEGAR þau tíðindi bárust hing-
að til lands fyrir nokkrum vik-
um að meirihluti tollamálanefnd-
ar Bandaríkjaþings hefði lagt til
að hækkaður yrði verulega toll-
ur á innfluttum fiski til Banda-
ríkjanna vöktu þau hér töluverð-
an ugg. Bandaríkin hafa undan-
farin ár keypt verulegt magn af
íslenzkum freðfiski. Hækkun inn
flutningstolla á þeirri vöru gat
því auðveldlega haft mjög óhag-
stæðar afleiðingar fyrir íslenzkan
sjávarútveg, |
En hinn 3. júlí s.l. neitaði
Eisenhower forseti að fallast á
þessa tillögu tollamálanefndar-
innar. í bréfi, sem hann ritaði
fjárhagsnefnd Öldungadeildar-
innar um þessi mál minnist hann
m. a. á hagsmuni ýmsra landa, '
þar á meðal íslands, af fiskinn- I
flutningi til Bandaríkjanpa. Telur
forsetinn öruggt að fiskneyzla
muni aukast verulega í landinu ’
á næstu árum. Lýsir hann jafn- '
framt yfir þeirri skoðun sinni, að
óheppilegt sé að setja hömlur við
fiskinnflutningi. .
Islendingar fagna því mjög, að
afstaða forsetans skyldi verða
þessi. Markaður okkar fyrir hrað-
frystan fisk í Bandaríkjunum I
hefur farið batnandi undanfarin
ár. Nýjar pökkunaraðferðir hafa
rutt íslenzkum freðfiski til rúms
á hinum bandaríska markaði En
á honum eru miklir möguleikar
forsetinn öruggt að fiskneyzla
Bandaríkjamanna er ennþá til-
tölulega mjög lítil. Líkur benda
til þess að hún muni aukast veru-
lega á næstu árum, eins og for-
setinn bendir á í fyrrgreindu
bréfi sínu. Það er því ákaflega
þýðingarmikið fyrir íslenzkan
sjávarútveg og fiskiðnað að hafa
sem stöðugasta og bezta fótfestu
á þessum markaði.
En við verðum að gæta þess,
að fullkomin vöruvöndun er frum
skilyrði þess að við höldum hon-
um og öðrum mörkuðum fyrir
islenzkan freðfisk. Samkeppnin
um fiskmarkaðina er mjög hörð.
Sá, sem býður bezta og vandað-
asta vöru hlýtur að hafa þar
bezta aðstöðu.
Það verður því aldrei of oft
brýnt fyrir framleiðendum hér
heima að Ieggja allt kapp á
vandvirkni og nákvæmni við
framleiðslustörf sín, hvort sem
er út á fiskimiðum á bátum og I
togurum, eða í hraðfrystihús- |
unum, sem vinna úr hráefninu.
Donskur Kfl/M
staddur hér í
drengfakór
Reykjuvth
Hefur hlotið mikið iof um öll Norðurlönd
inn í Austurbæjarbíói á þriðiju-
dagskvöldið n. k. kl. 7. Þá halda
þeir kirkjukonsert í Dómkirkj-
unni á fimmtudagskvöldið, og
mun dr. Páll ísólfsson aðstoða
þar. Þá munu þeir syngja í út-
varpið einhvern daginn. — Á
Selfossi verða þeir 22. júlí og
syngja þar, og væntanlega halda
þeir konsert á Akranesi einhvern
tíma milli 17.—21. júlí, en þann
tíma munu þeir dvelja í Vatna-
skógi og er þá í ráði að skreppa
á Akranes. *
KFUM-drengjakórinn
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
IFYRRADAG kom hingað til landsins drengjakór KFUM í Kaup-
mannahöfn, sem nefnir sig Parkdrengekoret .Mun kórinn dvelj-
ast hér þar til 24. júlí og fara þá aftur til Danmerkur með Gull-
fossi. Drengirnir eru 24 og með þeim er stjórnandinn Jörgen Brem-
holm og undirleikari Anna Teglbjærg. Tilgangur komunnar hing-
að, er að kynnast KFUM hér á landi og svo landi og þjóð og halda
konserta. —
FJORIR KONSERTAR AUES
Drengirnir eru á aldrinum 10—
15 ára. Meðal þeirra er einsöngv-
ari Ole Helms, 13 ára. Mun kór
inn halda tvo konserta hér í
Reykjavík, verður fyrsti konsert
BOÐNIR í SMÁFERÐALÖG
Eins og aðrir erlendir ferða-
langar munu drengirnir ferðast
um Suðurlandið og sjá það mark-
verðasta hér. Eimskipafélag ís-
lands hefur boðið þeim í skemmti
ferð til Gullfoss og Geysis og
Reykjavikurbær í ferð til Þing-
valla. Þá mun K.F.U.M. annast
ferð með þá um Mosfellssveit og
eins eru þeir boðnir að Kaldár-
seli við Hafnarfjörð, en þar á K.
F. U. M. lítið sumarhús. Dreng-
irnir búa á 20 heimilum hér f
bænum o geru það flest heimili
félaga í K.F U.M. og heimili ís-
lenzku K.FU.M. drengjanna, sem
fóru í ferðalag um Danmörk i
fyrrasumar. Danski drengjakór-
inn kostaði sjálfur för sína hing-
að, en K.F.U.M. hér mun greiða
kostnað heimfararinnar.
Snjöll upfinning.
EIN þarfasta, snjallasta og
skemmtilegasta uppfinning
síðustu tíma vildi ég segja, að
væri málningarrúllan. Sjálfsagt
eru þeir fjölda margir, sem ég
þarf ekki að kynna hana fyrir
sem þegar hafa reynt hennar
ágæti, en hinum, sem ekki hafa
áður vitað um né þekkt þetta
tæki, vildi ég sterklega ráða til
að leggja leig sína inn í ein-
hverja málningarvörubúðina hér
í bænum og athuga hvað hér er
á seyði. Ég staðhæfi, að málning-
arrúllan hefir þegar létt meira erf
iði og tíma af samborgurum mín-
um heldur en ég gæti mögulegt
talig upp eða gert grein fyrir.
Ljómandi árangur.
EN það er nú óþarfi að hafa
frekari umbúðir um þetta,
En þeim, sem ekki þekktu tækið
áður ætla ég í örstuttu máli að
segja, hvað þessi málningarrúlla
er. Það er rúlla, 15—20—30 sm.
löng sem notuð er í stað máln-
ingarpensla. Rúilan er með hand-
fangi og leijíur auk þess á lið-
ugum láréttum málmás. Máln-
ingunni er helt í grunnan bakka,
svipaðan á breidd og rúllan og
svo er rúllað yfir veggi og loft
í einum snarhvelli, það gengur
ótrúlega fljótt fyrir sig og árang-
urinn er ljómandi, einhver mun-
ur frá gamla dúllinu með pensl-
unum. Að vísu er ekki hægt að
nota rúllurnar, nema um hina
svonefndu gúmmímálningu sé að
ræða, en hún ryður sér líka stöð-
ugt til rúms.
Ég hefi verið að velt því fyrir
mér, hversvegna atvinnumálarar
láta sér svo fátt um finnast um
máiningarrúlluna. Það skyldi þó
ekki vera af því, að hún er óþarf-
lega afkastamikil? — Gvendur
Dúllari."
Stökkbretti í
Sundhöllinni
Stúlka nokkur, G. A. kvartar
yfir því að ekki skuli vera
stökkbretti í Sundhöllinni „Ef
það er kostnaðarhliðin, sem
stendur á — segir hún — mundi
almenningur áreiðanlega ekki sjá
eftir að leggja fram eitthvað úr
sínum vasa til að þetta mætti
komast í framkvæmd sem fyrst.
„En svo er það annað, heldur
G. A. áfram. Það er lítt mögulegt
og langt í frá hættulaust að vera
á ferli í miðbænum um miðnætti.
Aliskonar dónaskríll veitist að
fólki með sauryrðum og stundum
árásum, og lögreglan er nú eins
og hún er. Það er varla að maður
virðingar sinnar vegna, fái sig til
að svara slíkum ræflum. En mér
hefir dottið í hug, að ef til vill
bæri það einhvern árangur ef,
kvenfóik, sem er eitt á gangi um
miðbæinn um þetta leyti hefði
góðan skammt af steyttum pipar
í töskunni sinni til að skvetta
framan í hvolpana, ef þeir sýndu
sig í áreitni. Það ætti að duga.
G. A.“
Skreiðarferðin.
EINU sinni sendi séra Hálfdán
prestur í Felli nokkra púka
út til Grímseyjar til. að sækja
fisk og lofaði þeim fögrum laun-
um, ef þeir kæmust með allan
fiskinn þurran á land. Aftur áttu
þeir að verða af kaupinu, hvað
lítið sem út af brygði. Púkarnir
héldu nú af stað, en þegar prest-
ur vissi, að þeir voru komnir
langt á leið til lands, sendi hann
aðra púka á móti þeim og lofaði
þeim ærnu kaupi, ef þeir gætu
bleytt allan fiskinn. Annars áttu
þeir að verða af kaupinu. Þessir
púkar fóru nú af stað og fóru að
ausa ágjöf á hjá hinum, en þeir
vörðust vel alla leið, þar til kom-
ið var í lendingu, þá gátu seinni
púkarnir bleytt það aftasta á öll
um sporðblöðkunum. Með þessu
móti urðu hvorirtveggja púkarn-
ir af kaupinu, en síðan er mönn-
um illa við sporðblöðkuna á
hverjum fiski sem er.
HVÖTTU ÞÁ TII
ÍSLANÐSFERHAR
í fyrra sumar þegar íslenzku
K.F.U M drengirnir voru á ferða
lagi um Danmörk, hittu þeir
þennan danska drengjakór og
heyrðu til hans. Hvöttu forráða-
menn þeirrar farar dönsku
drengina eindregið til íslands-
ferðar, en þeir hafa fengið sér-
staklega góða dóma bæði í Dan-
mörk og Noregi og Svíþjóð. Og
nú eru litlu söngvararnir hingað
komnir, og bjóða íslendingum
upp á fagrar drengjaraddir sínar
og þær eru sannarlega þess virði
að á þær sé hlítt.
STOFNENDUR
ÍÞRÓTTAIÐKENDUR
Kórinn var stofnaður 1943 með
drengjum úr þeirri deild K.F.U.
M. í Kaupmannahöfn, sem starf-
rækir íþróttaiðkanir í Emdrup
Park og voru stofnendur með-
limir íþróttafélaganna þar. Til-
gangurinn var upprunalega sá
einn að'eignast nýjan þátt í fé-
lagsstarfinu, en brátt kom ð því,
að verksvið hans færðist út fyrir
takmörk félagsins. Þrátt fyrir
það eru tengslin við K.F.U.M. þau
sömu og áður eins og nafn hans
bendir til^
SUNGIÐ VÍÐA Á NORÐUR-
LÖNDUM
Vorið 1946 söng kórinn í fyrsta
skipti opinberlega og það sumar
var farin söngför til nokkurra
danskra bæja. RHkar ferðir hafa
verið farnar síðan á hverju sumri
og má nú heita að kórinn hafi
sungið I nær öl'.um bæjum í Dan-
mörku.Haustið 1948varfarin sön
söngferg til Svíþjóðar, og ferðast
þar um. Vakti kórinn hvarvetna
mikla athygli þar og fékk mjög
góða blaðadóma. Næsta ár var
farið til Noregs og Norður-
Þýzkalands. Síðan kórinn var
stofnaður hefur hann sungið á
yfir 500 mannamótum. Jafnhliða
því, sem starfsemi kórsins hefur
aukizt, hafa krofurnar um efnis-
val breytzt frá léttum sönglög-
um til söngverka, er meiri hæfni
krefjast í dag er því að finna
á efnisskrá kórsins verk allt frá
Palestj-ina og Bach til Jóhanns
Strauss. , (
Í
FLYTTJR EINNIG
LJÓÐSÖNGLEIKI
Auk kórlaga flytur kórinn og
oft stutta þætti óperettur eða Ijóð
Framh. á bls. 12 |