Morgunblaðið - 10.07.1954, Síða 11

Morgunblaðið - 10.07.1954, Síða 11
Laugardagur 10. júlí 1954 MORGVNBLAÐI9 11 Ávarp til kvenna SAMNORRÆNA sundkeppnin stendur nú yfir. Hófst hún 15. maí og lýkur 15. sept. — Þetta er önnur samnorræna sund- keppnin, sem við tökum þátt í og sigruðum við í þeirri fyrri og hlutum þá viðurkenningu að vera talin mesta sundþjóð Norður- landa. . Sigur okkar var þá svo glæsilegur, sem raun bar vitni, vegna þátttcku kvenna, og þvi heitum við nú á allar konur, syndar sem ósyndar að gera sitt bezta, æfa og læra sund, draga ekki að taka 200 metrana og auka með því á möguleika okkar til sigurs. í þetta sinn verður sigur ekki eins auðfenginn vegna hinnar miklu þátt- töku i síðustu keppni, en bót er' þó í máli, að þátttakendur mega synda 200 metrana með hvaða sundaðferð, sem þeir vilja og skipta um sundaðferð á leiðinni sér til hvíldar. Við skorum því á alla kveniþróttakennara, kvenfélög og einstak- ar konur hvar sem er á landinu að hefja sameiginlegt átak til að tryggja sigur okkar í þessari sundkeppni. lÁsdís Erlingsdóttir, sundkennari Kristjana Jónsdóttir, sundk. Þuríður Árnadóttir, sundkennari Sigurlaug Zóphoníasdóttir, íþrk. [Ástbjörg Gunnarsdóttir, íþróttak. Erla ísleifsdóttir, íþróttak. Guðrún Nielsen, íþróttakennari JÞorgerður Gísladóttir, íþróttak. Erla Erlingsdóttir, íþróttak. Fríða Eyfjörð, íþróttak. Sigríður Valgeirsdóttir, íþróttak. Hrefna Ingimarsdóttir, íþróttak. Unnur Jónsdóttir, íþróttak. íþróttafélag kvenna: Fríður Guðmundsóttir, form. Sundfélag kvenna: Svava Pétursdóttir, form. Kvenstúdentafélag Reykjavíkur: Rannveig Þorsteinsdóttir, form. Kvennadeild Slysavarnafél. ísl.: Guðrún Jónasson, form. Félag ísl. hjúkrunarkvenna: f. h. stjórnarinnar María Pétursdóttir. Kvenfél. Alþýðufl. í Reykjavík: Soffía Ingvarsdóttir, form. Kvenfélag sósíalista, Reykjavík: Helga Rafnsdóttir, form. Verkakvennafélagið Framsókn: Jóhanna Egilsdóttir, form. Kvenfél. Alþýðufl., Hafnarfirði: Guðrún Nikulásdóttir, form. Starfsstúlknafélagið Sókn: f. h.' stjórnarinnar Steinunn Þórarinsdóttir Kvenfélag Hallgrímskirkju: Guðrún Ryden, form. Sjálfstæðiskvennafél. Vorboðinn, Hafnarfirði: Jakobína Mathiesen, form. Kvennadeild Sósíalista, Hafnarf.: Sigríður Sæland, form. Mæðrafélag Reykjavíkur, f. h. stjórnar: Ragnh. Möller. Þvottakvennafélagið Freyja: Þuríður Friðriksdóttir, form. Kvenfél. Óháða Fríkirkjusafn.: Álfheiður Guðmundsd., form. Stéttarfélagið Fóstra, Reykjavík: Lára Gunnarsdóttir, form. A.S.B. Fél. afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurhúðum: Guðrún Finnsdóttir, form. Húsmæðrafélag Reykjavíkur: Jónína Guðmundsdóttir, form. Kvenfélag Fríkirkjunnar: Bryndís Þórarinsdóttir, form. Kvenfélagið Keðjan, Reykjavík: Þorbjörg Jónsdóttir, form. Kvenskátafélag Reykjavíkur: f. h. stjórnarinnar Sigríður Lárusdóttir Félag Framsóknarkvenna, Rvík: Rannveig Þorsteinsd., form. Húsmæðrakennarafélag íslands: Halldóra Eggerts, form. Kvennadeild Slysavarnafél. Hafn arfjarðar, „Hraunprýði“: Rannveig Vigfúsdóttir, form. Kvenfélag Bústaðasóknar: Auður Matthíasdóttir, form. Kvenfélag Neskirkju: Ingibjörg Thorarensen, form. (Frá framkvæmdanefnd samnorrænu sundkeppninnar). Bygyingafélag verkamanno iauk vií 5 hús með 20 íbúðnm s.l. ár AÐALFUNDUR Byggingarfélags verkamanna í Reykjavík var haldinn í Sjálfstæðishúsinu 5. júlí s.l. á fimmtánda afmælisdegi félagsins. Á fundinum var Guðmundur í. Guðmundsson, sýsiumaður — sem var formaður félagsins fyrstu 10 árin, kjörin heiðursfélagi fé- lagsins, og 6r hann fyrsti heið- ursfélagi þess. — Þá lagði félags- stjórnin blómsveig á leiði Guð- jóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins, að morgni afmælisdags- ins, en Guðjón var mikill og góð- ur stuðningsmaður félagsins og gerði teikningarnar að húsum þess. Á fundinum voru bornar fram margar árnaðaróskir til félagsins í tilefni 15 ára afmælisins, og heillaóskaskeyti barst m. a. frá borgarstjóranum í Reykjavík, Gunnari Thoroddsen, og Magnúsi Þorlákssyni, einum af sofnfélög- unum. Fundurinn var fjölsóttur og ríkti mikill áhugi á starfsemi félagsins og ánægja með það sem unnizt hefur. Það kom þó greini- lega fram, að félagsmenn óska eindregið eftir því, að félagið eigi þess kost að halda áfram á þeirri braut að byggja íbúðirnar í lausri byggð, en að 'ekki verði farið út í það að byggja stórar sambyggingar. Formaður félagsins flutti skýrslu stjórnarinnar og rakti nokkuð framkvæmdir félagsins á liðnum fimmtán árum, en eink- um ræddi hann þó um fram- kvæmdirnar á síðasta ári. Sagði hann að á árinu sem leið hefði ver ið lokið við byggingu 5 húsa með samtals 20 íbúðum, verið væri að ljúka byggingu 4 húsa til við- bótar með 24 íbúðum og loks væri byrjaðar framkvæmdir við þrjú ný hús með samtals 13 íbúð- um. Þegar þessi hús verða full- búin hefur félagið byggt samtals 62 íbúðarhús með 262 íbúðum og auk þess skrifstofu- og verzl- unarhús, og eru lóðir þess nú þrotnar í Rauðarárholtinu, en stjórnin vinnur að því um þess- ar mundir að fá lóðir fyrir bygg- ingar félagsins í framtíðinni. Að lokum las gjaldkeri félags- ins, Grimur Bjarnason, reikninga félagsins og skýrði þá, og gat þess m. a. að eignir félagsins væru nú 18.4 milljónir króna. ■— Stjórn félagsins var öll endur- kjörin. í fundarlok bauð félagsstjórnin öllum fundarmönnum til kaffi- drykkju og útbýtt var afmælis- riti því, sem gefið var út í tilefni 15 ára afmælis félagsins. Stjórn félagsins skipa: Tómas Vigfússon formaður, og er hann stjórnskipaður, Magnús Þortseins son varaformaður, Alfreð Guð- mundsson ritri, Grímur Bjarna- son gjaldkeri og Bjarni Stefáns- son meðstjórnandi. A HIZT AÐ AVGLfSA A T / MOfíGinSBLAÐlISU T Það var sigraði — F»AÐ var sterkara liðið, r sem sigraði í lands- Ieiknum á sunnudaginn, sagði Alf Berg, fararstjóri norsku knattspyrnumannanna, er fréttamaður Morgunblaðsins ræddi við hann í gær. „ís- lenzka landsliðið var betra en það norska, það sýndi meiri hraða og meiri getu.“ Alf Berg er einkar alúðlegur og viðfelldinn maður. Þann viku- tíma sem hann hefur verið hér hefur hann gert sér far um að kynna sér land og þjóð. Það finn- ur maður þegar í viðræðum við hann. Og hann ber okkur vel sög- una, knattspyrnumönnum sem öðrum, og kann vel við sig hér - eða með hans eigin orðum: . . Norska og íslenzka þjóðin eru eins og ein þjóð að okkar dómi. Við tjáum okkur á sama hátt og lífsmátinn er hinn sami. Þegar er við komum hingað á flugvöll- inn, fannst okkur sem við stæðum á norskri grund.“ VAL NORSKA LANDS- LIÐSINS Talið barst síðan að knatt- spyrnu og fréttamaðurinn tók að spyrja. — Hvaða aðferð hafði norska knattspyrnusambandið við val norska liðsins, sem svo margir vilja kalla B-lið? — 36 knattspyrnumenn voru valdir til utanfarar. Tvær ferðir bar upp á sama tíma — til Rúss- iands og til Islands. Liðið sem til Islands fór skipa hinir yngri leik- menn, sem sumir hverjir hafa margoft komið fram í B-landslið- um eða verið varamenn. Hitt lið- ið skipa reyndari menn. Við vild- um ekki blanda liðunum, því þá hefðum við getað eyðilagt bæði. En munurinn á liðunum er ekki mikill, þó fullyrða megi að hitt sé sterkara. — Hvernig eru landsliðin æfð? — Er knattspyrnumennirnir eru valdir, er þeim tilkynnt með 3—4 vikna fyrirvara um utan- förina. Þeir eru beðnir að gæta þjálfunar sinnar sjálfir. Síðustu vikuna koma þeir svo saman í Osló og þar höfðu liðin bæði sameiginlegar æfingar og endan lega valdir þeir menn er lands- leikina áttu að leika. „LYKILL" LIÐSINS — Norska sambandið hefur ef til vill vanmetið íslenzka knatt- spyrnumenn? — Nei. Við vissum að mótstað- an yrði hörð. En við bjggumst ef til vill við meiru af okkar mönn- um. Við höfðum frétt að Ríkharð ur væri einskonar „lykill“ liðsins, en þekkfum hann ekki nógu vel. Við settum einn af okkar beztu framvörðum til að gæta hans. En honum tókst það ekki eins og bezt varð á kosið í landsleiknum. í leiknum við Akranes þekkti hann Ríkharð og leikaðferð hans betur að okkar dómi. • FRAMFARIRNAR GREINILEGAR — Hafið þér séð landsleiki ís- lands í Noregi? — Nei. En ég sá leik er ísl. liðið lék eftir landsleik og fór sá leikur fram í Gjörvik. Þá sýndi liðið allt annan og mun verri leik en nú í landsleiknum. Ég sá einnig leik Akranesliðsins í Hamar. Og léikur liðsins þar var allt annar og langtum verri en nú. Það hafa því að mínum dómi orðið miklar framfarir meðal ís- betra liðið, sem í landsleikniiiii - segir Alf Berg, fararsfjóri, norska lamfsliðsins. Alf Berg Ienzkra knattspyrnumanna. — Hafa einhverjir einstakir leikmenn ,íslenzUir, sýnt lofs- verðan leik að yðar dómi? — Já. Fyrstan vil ég telja' Ríkharð Jónsson. Hann er mjög góður leikmaður og stórhættu- legur, sérstaklega fyrir hinn mikla hraða. Hann býr. og yfir mikilli tækni. En hjá honum sjást- og gallar. Einkum það að hann vill ýta mótherjanum frá sér all- harkalega með olnbogum og skrokk. Á það myndi stranglega dæmt á meginlandinu. Þá finnst mér Guðjón Finnboga son hafa sýnt frábæran leik. Hann er harður í horn að taka og mjög góður og leikur knatt- spyrnu eins og á að leika hana —• gefur ekkert eftir og sýnir mikla kunnáttu. Halldór Sigurbjörnsson er mcr einnig minnisstæður úr lands- leiknum, sérstaklega úr síðari hálfleik. Þá undirbjó hann margt stórhættulegt. — í heild fannst mér ísl. liðið gott og skipað mönn um sem búa yfir flýti og eru hættulegir með knöttinn. AÐSTÆÐURNAR — Völlurinn? — Sem malarvöllur er hann mjög góður — sá bezti sem cg hefi séð. En þó að ég segi að norsku leikmennirnir séu óvanir slíkum völlum, þá er ég ekki að afsaka úrslit landsleiksins. Gras- vellir krefjast meiri æfingar og á þeim eru leikirnir allt öðru vísi. Þar nýtur knattmeðferð.in sín fyrst. Völlurinn ykkar í Laug ardalnum verður til fyrirmynd Framh. á bls. 13 * Strandamenn siffruðu n frjálsíþróttakeppninni URSLIT frá íþróttadegi F.R.Í. sem fram fór um aðra helgi júní- mánaðar s.l. eru nú kunn. Alls tóku 9 héraðssambönd þátt í keppninni með samtals 560 þátttakendur. Að þessu sinni var keppfc í fjórum íþróttagreinum, 100 m hlaupi, 1500 m hl„ kúluvarpi og j hástökki. Mest var þátttakan í kúluvarpinu eða 527 keppenduiv því næst í hástökki 479. 100 m hlupu 319 og 1500 m hlupu 74. STIGIN Keppni þessi var stigakeppni milli héraðssambandanna og skyldi það hérað hljóta sigur er flest stig hlyti í hlutfalli við meðlimatölu, þó með þeirri und- antekningu, að kaupstöðunum var heimilað að deila með 2 í meðlimatölu sína og stigatala þeirra reiknuð út frá því. Úrslit keppninnar urðu þessi: bandinu Skarphéðni. Hið þróít- mikla ungmennasamband á Suð- urlapdsundirlendinu átti um Vr> allra þátttakenda og hlaut fleiri stig en Reykjavík. DAGURINN gaf GÓÐA RAUN Þetta var í fyrsta skipti sem slíkur íþróttadagur er haldinn á 1. Héraðssamb. Strandam. hlaut 190 stig, meðlimat. 273 eða 69,6% 2. Hafnarfjörður — 265 — — 420 — 63,1% 3. Vestmannaeyjar — 254 — — 416 — 61,1% 4. U. M. S. Kjalarnesþings — 252 — — 465 — 54,2% 5 Akureyri — 338 — — 656 — 51,5% 6. Héraðss. Skarphéðinn. — 560 — — 1.660 — 33,7% 7 ísafjörður — 141 — — 429 — 32,9% 8. Reykjavík — 523 — — 4.489 — 11 7% 9. Ungm. og íþr.s. Austurl. — 150 — — 1.780 — 8,4% ÞAU BERA AF íslandi. Hafa Frjálsíþróttasam- Héraðssamband Strandamanna bandinu borizt nokkur ’ bréf fi á hefur á undanförnum árum vak- ýmsum stöðum á landinu þar sem ið á sér athygli fyrir það, að þaðan hafa komið góðir frjáls- íþróttamenn og má þar til nefna Sigurkarl Magnússon, sem er nú- verandi íslandsmeistari í fimmt- arþraut. Með sigri sínum í þess- ari keppni afa þeir sýnt að hjá ræddir eru kostir og gallar á því fyrirkomulagi og þeirri fram- kvæmd, sem nú var á höfð. Ej u bréfritarar á einu máli um að halda ■ beri íþróttadag á hverju ári og að slíkt almenningsmófc geti orðið frjálsum íþróttum tU. þeim er áhugi almennur fyrir j mikils gagns. Vonandi verður sú frjálsum íþróttum og er það reynsla sem fékkst af íþrótta- vissulega aðalatriðið. Sérstaka eftirtekt vekur hin deginum að þessu sinni, til þesa að næsti íþróttadagur verði e nn mikla þátttaka frá Héraðssam- [ betur heppnaður en þessi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.