Morgunblaðið - 10.07.1954, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.07.1954, Blaðsíða 16
Veðurúflii í dag: NA kaldi, léttir til. Churchill í klípu. Sjá bls. 9. 154. tbl. — Laugardagur 10. júlí 1954 Aíteins tímaspursmál, hvenær stórhlaup hefst í Skeiðará Áin er nú í örum vexfi. ■%jAÐ FER ekki milli mála, að stórhlaup virðist vera í aðsígi úr Grímsvötnum. í gærdag fóru þeir flugleiðis til Fagurhólsmýr- tír Jón Eyþórsson, veðurfræðingur og dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur. Flogið var inn yfir Vatnajökul, en skyggni var mjÖg takmarkað. . — Er við flugum yfir upptök jskeiðarár, virtist okkur hún vera aiokkru vatnsmeiri en t. h. þegar liún er í stórvexti, sagði dr. -Sigurður. Er flugvélin flaug yfir Skeið- -ará, lagði megna brennisteins- lykt upp af henni og á málma iéll. Flogið var inn yfir Gríms- vötn. Þar var svo lágskýjað, að ekki sá þar niður í jökulinn, en ekkert benti þó til að nein elds- nmbrot ættu sér stað. AOEINS TÍMASPURSMÁL, HVENÆR STÓRHLAUP HEFST Það virðist nú aðeins tíma- spursmál, hvenær stórhlaupið Jiefst í Skeiðará. — En dr. Sig- nrður kvaðst álíta, að í lok næstu vikú myndi hlaupið hafa náð Jiámarki. En gos í Grímsvötnum hefur jafnan fylgt í spor hlaups- ins. Hvort svo verður einnig nú skal ekkert fullyrt um. VAXIÐ MIKIÐ SÍÐAN í FVRRAMORGUN Fréttaritari Mbl. á Kirkjubæj- arklaustri, sem nú er staddur á jfagurhólsmýri, átti tal við Ragn- «ir Stefánsson, bónda í Skaftafelli, urn vöxtinn í Skeiðará í gær. Sagðist honum svo frá, að ■Skeiðará hefði vaxið mikið síð- an í gærmorgun og er vatnið nú orðið helmingi meira en venju- Jegt sumarvatn. Áin skiftist strax við jökulröndina. Annar állinn íeliur í hinum venjulega farveg, <en hinn rennur um einn km. vestur með jökulröndinni. Er hann mjög niðurskorinn og djúp- ur og þess vegna bar ekki mikið á honum úr lofti ,þegar frétta- ritarinn flaug þar yfir í gær. TVENNT FRÁBRUGÐIÐ Ragnari bónda sýndist tvennt vera frábrugðið fyrri Skeiðarár- hlaupum, sem hann man efcir. Annað er það, að brennisteins- fýlan er nú meiri en áður og hitt, að málmar hafa nú strax fengið brennisteinssvip, en það hefir ekki fyrr orðið, nema þegar hlaupin hafa verið að ná há- marki. Gott veður á mið- unum í gærkvöldi SIGLUFIRÐI 9. júlí. — í kvöld mun síldarverksmiðjan SR-46 hefja bræðslu um 13000 mála af síld, sem hingað hafa borizt. í kvöld var komið gott veður á síldarmiðunum og var vitað að tvö skip höfðu fengið ajlgóða veiði, Hannes Hafstein 300 tunnur og Smári, Hnífsdal 300. — Geta má þess, að Helga mun hafa verið búin að fá eitthvað af síld. — Á austanverðu miðsvæðinu sá síldar leitarflugvélin síld vaða í kvöld, en þegar þetta er símað, hafa ekki borizt nánari fregnir. — guðjón. m ^ ^ Erlendu fulltrúarnir á norræna búnaðarþinginu ásamt konum sínum: — Aftari röð, frá vinstri: Johan Lycke, Noregi, Helge Uverud, Noregi, Otto Lier, Noregi, ívar Dokken, Danmörk, J. Lag, Noregi, Lars Kaarvald, Noregi, H. Schacht, Danmörk, Birger Nyström, Svíþjóð, Lars Spildo, Noregi, Arne Thorsrud, Noregi, T. P. Ketonen, Finnlandi, Frú Spildo, Noregi, I. Törnqvist, Svíþjóð, S. Berge, Noregi, Frú Iversen, Danmörk, K. Iversen, Daumörk, P. Kaitera, Finnland, O. Klokk, Noregi, JC Vethe, Noregi, Frú Jensen, Danmörk, H. Jensen, Danmörk. i Miðröð frá v.: E. Langkaas, Noregi, Frú Langkaas, Noregi, E. Weydal, Noregi, Frú Lier, Noregí, I. Dokken, Danmörk, Theodora Sigurðardóttir, Reykjavík, M. Eylands, Reykjavík, Frú Nymalm, Finnland, Frú Klokk, Noregi, Frú Ketonen, Finnland, O. Todnem, Noregi, F. Niison, Svíþjóð. Fremsta röð: R. Skærpe, Noregi, Árni G. Eylands, Reykjavík, T. Nymalm, Finnland, J. Teig- iand, Noregi. Tveggja m þykkf aurlag á tímm Unnið að því að gera bráðahirgða- brú FYRIR norðan er unnið af fullum krafti við að lagfæra þær Jcemmdir allar er orðið hafa þar vegna skriðufalla og vatns- ýlóða. Munu vonir standa til að þjóðvegurinn verði að nokkru kominn í lag á sunnudaginn. Á veginum verður, sem og við brúna, um bráðabirgðaviðgerð að Iæ<3a. Þrír fullfrúar á þing norrænna málarameisiara HINN 15. júlí n.k. verður háð í Stokkhólmi þing norrænna mál- arameistara, sem Málarameistara félag Reykjavíkur er aðili að. Þing þessi eru haldin til skiptis á hverju Norðurlandanna á tveggja ára fresti, síðast í Reykja vík 1952. Málarameistarafélag Reykjavíkur mun nú senda þrjá fulltrúa á þing þetta, þá Jón E. Agústsson form. félagsins, Jón Björnsson málaram. og Ágúst Hákanson málaram. Einnig munu þeir málaram. Sæmundur Sigurðsson og Jökull Pétursson, sækja þingið. Sennilegf þykir að bóndinn aS Fremri Kolum bregði búi Nær alll túnið undir skriðu SAUOARKROKI, 9. júlí: — Við nánari fregnir, sem borizt hafa af skriðuhlaupinu á tún og bæinn að Fremri Kotum, á dögunum, er Ijóst að svo mikii landspjöll ha pa orðið á þessari litlu jörð, að vonlaust virðist að reka þar búskap framar. Túnin að Fremri Kotum voru 2Yz—3 hektarar lands. Skriðu- hlaupin þar á þriðjudaginn færðu túnið alveg í kaf og er malar og aurlagið mjög þykkt yfir túninu öllu. Annað slægju land frá bænum er mjög lítið. Tjón Gunnars Valdimars- sonar bónda að Fremri Kotum er óbætanlegt, hvað viðvíkur framtíðarbúskap á þessari jör,. Ekki er annað sýnna, en hann verði að bregða búi þar og stofna nýtt bú, mcð öllum þeim tilkostnaði, sem það hef- ur í för mcð séi. Gunnar bóndi og kona hans, Sigurlaug Sigur- laugsdóttir, eiga fimm börn, sem öll eru mjög ung. — guðjón. SAUÐÁRKRÓKI, 9. júlí: — Skriðuföllin hér í Skagafirðin- um á þriðjudaginn ollu gífurlegu tjóni á einum bæ vestan Héraðsvatna, Fjalli í Sæmundar- hlíð. Skriða féll skammt frá íbúð arhúsi bóndans, Halldórs Bene- diktssonar og gróf undir 1—2 m þykku lagi af urð og grjóti meiri hluta túnsins um 3 hektara. Var þetta nýrækt og hið bezta tún. Geta má þess, og að heimreiðin að Úlfsstöðum í Blönduhlíð stór- skemmdist. Bæjarlækurinn, sem undir venjulegum kringumstæð- um er aðeins lítil lækjarspræna, gróf sundur heimreiðina, er hann flæddi yfir bakka sína og flóð- ið fjaraði út, skildi lækurinn eftir tveggja mannhæða djúpan skurð í veginum. —Guðjón. Verða að ganga yiir ófærurnar NORÐURLEIÐIR H.F. sem ann- ast farþegaflutninga milli Reykja víkur og Akureyrar, hafa nú tek- ið upp ferðir aftur til Akureyrar. Vagnarnir aka allt norður að Valagilsá, sem lögð hefur verið göngubrú yfir. — Þaðan og nokk urn spöl, eða allt að hálftíma gang yfir skriður, en þar tekur annar vagn við og ekur til Akur- eyrar. Með þessu'fyrirkomulagi mun ferðum verða haldið uppi milli Reykjavikur og Akureyrar unz nauðsynlegum bráðabirgðavið- gerðum á veginum verður lókið. Hundur bítur mann. LUNDÚNUM — Kjöltarakki drottningar beit vörð Við Buck- inghamhöll illilega í fótinn ný- lega. Liggur kauði og grær sára sinna. í DAG leggja Heimdellingar upp í ferð sína vestur í Ðali. Farið verður af stað stundvíslega kl. 2 frá skrifstofu félagsins í VR-hús- inu. Nokkrir farmiðar verða seld- ir í skrifstofunni kl. 1 í dag. Þjónar á Hótel Borg, sem undanfarið hafa. dúkað vínlaus veizlu- borð, munu héðan í frá einnig bera vín í glösum. Hótel Borg hefur almenn- íj ar vínveitingar í das b b KLUKKAN 7 í gærkvöldi öðlaðist Hótel Borg heimild til þess aS hefja almennar vínveitingar með svipuðum hætti og hótelið hafði fram til 1. janúar 1953. Gistihúsið hóf þó ekki vínveitingar þegar í gærkveldi en mun gera það um hádegi í dag að því er frú Hekla Jósefsson tjáði blaðinu í gær. KLASSISK HLJÓMLIST Á KVÖLDIN Vínveitingum Hótel Borgar mun verða hagað með svipuðum hætti og áður var. Mun vín verða veitt frá kl. 12 á hádegi til kl. 2.30 og frá kl. 7 síðd. til kl. 11.30. Landsmót liesta- maima hefst í dag f- DAG hefst á Þveráreyrum í Eyjafirði hið veglega landsmót Landssambands' hestamanna, en þár verða hestasýningar og kapp- reiðar, sem um 150 hestar taka þátt í. Utansveitarmenn eru fjöl- mennir á mótinu. Þangað komu Kjalveg hestamenn af Suður- landi. Landsmótið verður sett með ræðu formanns Landssambands- ins, Steinþórs Gestssonar á Hæli. — Meðal gesta á mótinu verður landbúnaðarráðherra, Steingrím- ur Steinþórsson, og mun hann flytja raéðu. í dág fara hestasýn- ingar fram og í kvöld verður keppt í undanrásum kappreiða- hesta. Gistihúsið gerir ráð fyrir því að hafa ekki :dans á kvöldin eins og áður tíðkaðist. í staðinn fyrir það mun verða leikin klassisk hljóm- . list frá kL 7.30 til kl. 10 síðd. ;Tjáði frá Hekla Jósefsson blað- inu í gær að þetta væri gert til reynslu til að byrja með. Það væri ósk gistihússins, að sem mestur menningarbragur væri á allri ‘ starfsemi þess. Óráðið mun ennþá hvenær Sjálfstæiðshúsið og Þjóðleikhús- kjallarinn fá slíkt almennt vín- veitingaleyfi, en sennilega verð- ur það á næstunni. Ennfremur er gert ráð fyrir að veitingahúsið Röðull muni að fullnægðum viss- um skilyrðum fá slíkt leyfi. MorSmenn bursfuðn Reykjavík í GÆRKVÖLDI léku Norðmenn síðasta leik sinn hér, þá gegn Reykjavíkurúrvali og sigruðu með 5:1. Fyrri hálfleik lauk 4:0. Fyrri hálfleik og framan af þeim síðari höfðu Norðmenn yfirburði, en seinnipart þess síðari, var leikurinn jafnari og skoraði þá Þorbjörn Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.