Morgunblaðið - 01.09.1954, Side 1
16 síður
41. árgangur.
198. tbl. — Miðvikudagur 1. september 1954.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
i kurteisbbeinsékn
Ólafur Thors
Eisráðherra
Franska freigátan Ailette kom til Reykjavíkur fyrir nokkrum dög-
um. Skip þetta er starfrækt sem eftirlitsskip með fiskiflota Frakka.
IVIun það vcrða nú um sinn á miðunum umhverfis ísland, þegar
flest frönsk fiskiskip eru hér. Er það til skiptis á miðunum í Hvíta
hafinu, við fsland, við humraveiðar hjá írlandi og síðar í haust
mun það sigla til Skoílandsmiða. Sltipið er 600 smálestir á stærð
og skipstjóri þess er M. Bertholet. í dag fer skipshöfnin í skemmti-
ferð til hingvalla í boði Aliiance Francaise.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
fgiin
ÓLAFUR THORS forsætisráð-
herra kom heim í gærkvöldi. —
Hann hefur eins og kunnugt er
dvalið erlendis síðan 7. ágúst,
er hann fór á fund Norðurlanda-
ráðsins. Þaðan fór hann til Lond-
on og Parísar.
wmg
Friðarsókn Rússa í framkvæmd
LONDON, 27. ágúst. — Reuter.
RÚSSAR ERU nú að koma sér upp öflugasta herskipaflota heims-
ins. *— ínnan skamms mun floti þeirra verða stærri en sam-
einaður floti aðilja Atlantshafssáttmálans — og hver fleyta er
eftir nýjustu gerð og áhafnir skipaðar.
NÝJASTA GERÐ VOPNA
Þessi öflugi floti hefur auk
þessa nýjustu leynivopnum á að
skipa, svo sem fjarstýrðum
atómskeytum, sjálfstýrandi tund-
urskeytum og tundurduflum. —
Ekkert NATO herskip hefur yfir
þessum vopnum að ráða.
TRYLLT VÍGBÚNAÐAR-
KAPPHLAUP
Þessi uggvænlegu tíðindi, stað-
fest af leyniþjónustunni brezku,
voru gerð opinberlega kunn af
brezka flotamálaráðuneytinu á
miðvikudaginn var. Þau sýna
hversu gífurlegum fjárupphæð-
um Sovétsíjómin ver nú í tryllt
kapphlaup um að verða mesta
flotaveldi heimsins.
STÆRRI EN NATO
OG BRETLAND
En skelfilegustu tíðindin eru
þó þau, að Rússar geta nú hrað-
að skipasmíðum sínum svo, að
þeir geta hleypt kafbát af stokk-
unum vikulega, og beitiskipi á
tveggja mánaða fresti. Flota-
málaráðuneytið hefur áætlað að
1957 muni Rússar eiga herskipa-
stól, sem ræður yfir 500 kafbát-
um, 30 beitiskipum, 150 tundur-
spillum, 500 hraðbátum, 1000
tundurduflaleggjurum, 300 minni
skipum og 4000 sjóflugvélum.
ENGIN ORUSTU- NÉ
FLU G VÉL AMÓÐ URSKIP
ENNÞÁ
Rauði flotinn mun engin or-
ustuskip né flugvélamóðurskip
hafa ennþá. Bretar eiga 5 slík
og Bandaríkin jafnmörg. Að
öðru leyti munu Rússar verða
sterkari en bæði NATO og Bret-
land til samans og hafa lang-
samlega stærsta kafbátaflota og
flugher þessarra þriggja aðila.
NELSON LÆRÐI
AF RÚSSA!
Kommúnistastjórnin hefir nú
öll spjót úíi til að sannfæra
þjóðina um nauðsyn þessa mikla
herbákns. Nú sem stendur er
verið að sýna kvikmynd í Rúss-
landi af aðmírál nokkrum, Usha-
kov að nafni, sem uppi var á
18. öldinni. Er honum lýst í
myndinni sem flotaforingjanum,
sem kenndi Nelson allt sem hann
þurfti að vita!!
Sá maður, sem stendur bak við
risaáform Rauða flotans er
aðmíráll Kuznetsov, sem nú er
lýst sem jafnoka Nelsons og ann-
ara mestu sjóhetja heimsins,
enda þótt hann hafi aldrei af
púðurreyk þefað.
aiðrc
LONDON, 31. ágúst. — Brezka
sendinefndin til Kína frá Verka-
mannaflokknum gaf út opinbcra
tilkynningu sama kvöldið, sem
hún yfirgaf Peking, höfuðborg
Kína, og var tilkynningunni út-
varpað frá Peking í morgun.
S í tilkynningu þessari segir,
að sendinefndin hafi samúð mikla
með tilraunum kínversku þjóð-
arinnar til þess að koma á nú-
tíma skipulagi á hið kínverska
ríki og binda endi á kyrrstöðu
og hnignun.
13 Ennfremur er því Iýst yfir,
að sendinefndin sé þess fullviss,
að leiðtogar kínversku þjóðarinn-
ar vilji af einlægum huga binda
endi á einangrun hennar, og að
nauðsynlegt sé fyrir friðinn í
heiminum að samskifti hefjist
milli Kína og vestrænna þjóða.
13 Sendinefndin lýkur orðsend-
ingu sinni með því, að segja að
enda þótt þeim sé það ljóst, að
djúpsettur ágreiningur sé milli
Kína og vestrænna þjóða í marg-
víslegum efnum, ætti það ekki
að koma í veg fyrir samvinnu
milli þessara aðila, þar sem hags-
munir þeirra liggja saman.
— Reuter-NTB.
Fundi utanríkisráðherra í Reykjavík lokið:
ilorðyrBönd sammála um a3
imtar í SÞ sé æskileg '
FUNDI utanríkisráðherra Norðurlandanna, sem haldinn var i
Reykjavík, lauk í gær. Helzta viðfangsefni fundarins var varð-
andi samstöðu Norðurlandanna í stofnun S. Þ. Sérstaka athygli
mun vekja út um allan heim, að Norðurlöndin lýstu yfir samstöðu
um að stuðla að því að kommúnistastjórnin kínverska í Peking
tæki sæti Kina hjá S. Þ.
Hér fer á eftii fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu um
ráðstefnuna.
Utanríkisráðherrar Danmerk-
ur, íslands og Noregs og fulltrúi
Svíþjóðar, A. Lundberg, forstjóri
sænska utanríkisráðuneytisins,
komu saman í Reykjavík dagana
30. og 31. ágúst 1954 til reglu-
legs utanríkisráðherrafundar
Norðurlanda.
SAMSTARF NORÐURLANDA
í S. Þ.
Rædd voru sameiginleg áhuga-
mál, einkum málefni þau, sem
verða tekin fyrir á 9. allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna. Var
rætt um ýmsar kosningar, er þar
eiga að fara fram.
Ráðherrarnir voru ásáttir um,
( að styðja viðleitni í þá átt að
,auka tölu þátttökuríkja í Sam-
einuðu þjóðunum.
VILJA SETU KÍNA í S. Þ.
Einnig voru þeir sammála um,
að æskilegt væri að Peking-
stjórnin tæki áður en langt um
j liði sæti Kína hjá Sameinuðu
þjóðnum.
Að því er snertir umræður
þær, er fram eiga að fara innan
Sameinuðu þjóðanna um stofn-
skrána, varð samkomulag um, að
; sérstökum nefndum í hverju
i landi um sig yrði falið að skýra
j hinar ýmsu hliðar málsins og
j undirbúa sameiginlega norræna
afstöðu.
NÆSTI FUNDUR í ÓSLÓ
Að boði norsku ríkisstjórnar-
innar verður næsti reglulegi ut-
anríkisráðherrafundur Norður-
landa haldinn í Osló vorið 1955.
Ofvlðri geisaði á
U.S.A. í gær
WASHINGTON, 31. ágúst. —
Ofviðri geisaði á austurströnd
Bandaríkjanna í dag. Komst veð-
urhæðin upp í 160 km hraða á
klukkustund, þegar verst lét. —-
Vitað er þegar um níu manns,
sem látið hafa lífið í ofviðrinu.
Hefur fárviðri þetta víða teppt
samgöngur og slitið síma- og raf-
magnslínur. Reuter NTB
m LÖG U'M NOTKUIV
KJARNORKU
WASHINGTON, 30. ágúst. — Reuter-NTB
EISENHOWER, forseti Bandaríltjanna, hefur undirskrifað ný
lög um meðferð kjarnorku, sem munu e/tir því, sem hann
sagði við það tækifæri, í ræðu í Washington í dag, hraða því að
hægt verði að hagnýta kjarnorku til friðsamlegra starfa.
RYMKUN KJARNORKU-
LAGA FRÁ 1946
Samkvæmt lögum þessum
munu Bandaríkin geta látið
bandamönnum sínum í té ýmis-
konar upplýsingar um kjarn-
orkuvopn og hagnýtingu kjarn-
orku, en þetta hefur verið bann-
að síðan kjarnorkulögin voru
sett 1946. Lög þessi heimila einn-
ið einstaklingum að hagnýta sér
uppfindingar kjarnorkulegs eðl-
is til iðnaðar og annara friðsam-
legra nota.
Fram til þessa hefur Banda-
ríkjastjórn haft einkarétt á
þessu sviði.
RÚSSAR VELKOMNIR EF ....
Eisenhover sagði við þetta
tækifæri, að Bandaríkin stefndu
nú að því að koma á fót al-
þjóðastofnun til hagnýtingu
kjarnorku. Ef Rússar vildu vera
með stæðu þeim dyrnar opnar,
Afstoða fransko þingsins veldur
ngg í Vestur-Evrópu
Hiutieysi Mendes France sætir gagnrýni.
PARÍS — LONDON, 31. ágúst. — Reuter-NTB
AFDRIF Evrópuhersins í franska þinginu hafa valdið stjórnmála-
mönnum á Vesturlöndum allmiklum áhyggjum og kvíða. —
Franska þingið kom saman í morgun til þess að ræða viðhorfið
eftir úrslit atkvæðagreiðslunnar á mánudaginn. Gætti allmikils
taugaóstyrks meðal þingheims og voru uppi háværar raddir um
að Mendes-FVance bæri að segja af sér vegna þess að hann hefði
setið hjá við atkvæðagreiðsluna á mánudagskvöldið.
ef ekki þá án þeirra.
Forsetinn sagði ennfremur við
þetta tækifæri, að Bandaríkin
væru jafnan reiðubúin að taka
upp friðsamlega samvinnu við
Ráðstjórnarríkin. Bandaríkin
hefðu engan veginn gefið upp
alla von um að slíkt mætti tak-
ast.
AUKIN SAMVINNA
Forsetinn sagði einnig n ð
Bandaríkin og bandamenn þeirra
yrðu að halda áfram að vinna
fyrir frelsinu í heiminum. Ef
slíkt mistækist byði það hætt-
unni heim. Bandaríkin myndu nú
stíga það spor í áttina til auk-
innar samvin.nu að miðla þeim
af kjarnorkuþekkingu sinni. Þau
myndu að vísu ekki láta af hendi
nákvæmar upplýsingar á minni
atriðum, enda ekki krefjast þess
af öðrum.
UPPNAM A ÞINGFUNDI
Þingið kom saman í morgun
samkvæmt kröfu 50 þingmanra
um að taka til umræðu þegar í
stað utanríkisstefnu stjórnarinn-
ar. Var erfitt að koma á ró í
þingsalnum vegna hrópa og kalla
úr röðum kommúnista og þjóð-
veldismanna, en þeir síðarnefndu
eru ákafir stuðningsmenn Ev-
rópuhersins.
Forseti þingsins spurði Mend-
es-France hvenær hann vildi að
þingið hæfi umræður um utan-
ríkisstefnu stjórnar hans og
stakk þá Mendes-France upp á
3. nóvember er þingið kæmi sam-
an eftir sumarfríið. Við þessa
uppástungu urðu stjórnarand-
stæðingar óðir og uppvægir og
dundu hróp um salinn, að ráð-'
herrann skyldi biðjast lausnar.
UTANRÍKISSTEFNA M-F ....?
Reynaud, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, sagði að hann vildi vita
nú þegar hvaða stefnu stjórnin
ætlaði að taka í utanríkismálum.
Það væri ekki nóg að segjast vera
fylgjandi Evrópuhernum og
Nato. Þingmenn vildu fá að
vita hvaða afstöðu hann tæki til
Vestur-Þýzkalands og endurvíg-
búnaðay þess. Engin leið væri til
að vita hvaða afstöðu endurher-
vætt Þýzkaland tæki, er hinir
gömlu nazistar væru komnir til
valda á ný.
EDEN FRESTAR FÖR SINNI
TIL MANILA
Winston Churchill hefur boð-
að til ráðuneytisfundar á morg-
un tii að ræða hið nýja viðhorf
Framh. á bls. 2