Morgunblaðið - 30.09.1954, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.09.1954, Qupperneq 8
8 MORGtnSBLAtílÐ Fimmtudagur 30. sept. 1954 orgxm&IaMlN, ^ mii Utg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Síðasta hálmstráið FRÁFARANDI formaður Al- þýðuflokksins eygir nú aðeins eitt hálmstrá sér til trausts og halds, samvinnu við kommúnista um stjórn Alþýðusambands ís- lands. Þegar allt ér tapað innan hans eigin flokks, allt traust fok- ið út í veður og vind snýr hann sér til Brynjólfs Bjarnasonar og býður honum samvinnu. Á yfirborðinu á svo að heita að þessu nýstofhaða bræðralagi sé beint gegn þeim mörinum, sem „eigi samstöðu rrieð atvinnurek- endum“. En hvað þýðir það? Kommúnistar eru atvinnurek- endur á Norðfirði og Alþýðu- flokksmenn á ísafirði. Að sjálf- sögðu á eitthvert fólk í verka- lýðsfélögunum á þessum stöðum „samstöðu“ méð atvinnurekend- um. En má það fólk þá ekki hafa áhrif á kosningar til Alþýðusam- bandsþings? Eða er bræðralagi Brynjólfs og Hannibals aðeins beint gegn öðru fólki í verkalýðs- samtökunum, sem kann að eiga „samstöðu“ með atvinnurekend- um?!! Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur, hvað hér er í raun og veru á ferðinni. Hinn nýfallni formaður Alþýðu- ílokksins hefur beinlínis tekið upp baráttu fyrir því, að engir aðrir verði kosnir á þing Ai- þýðusambandsins en þeir, sem vilja samvinnu við kommún- ista. Sjálfur hefur hann samið við þá um stuðning til þess að verða forseti samtakanna. Tii þess að ná því takmarki verð- ur að hindra að lýðræðissinn- að fólk, sem er andvígt þess- um ráðagerðum, fái fulltrúa á Alþýðusambandsþingi. Yfirgnæfandi meirihluti lýð- ræðissinna í verkalýðssamtökun- um er mótfallinn samstarfi við kommúnista um stjórn hagsmuna samtaka sinna. En Hannibal Valdemarsson hikar ekki við að freista þess, að nota örfáa fylgis- menn sína í einstökum verka- lýðsfélögum til þess að hjálpa kommúnistum til valda í Alþýðu- sambandinu. Hann berst eins og Ijón fyrir því að gera þúsundir lýðfæðissinnaðra verkamanna, sjómanna og iðnaðarfólks at- kvæðis- og fulltrúalaust á þingi sambandsins. Fyrir hvern er maðurinn að heyja þessa baráttu? Ekki fyr- ir þann lýðræðissinnaða verka lýð, sem fyrirlítur kommún- ista og veit að öll samvinna við þá er beint tiiræði við hagsmuni hinnar íslenzku þjóðar, ekki sízt hinna vinn- andi stétta. Það getur heldur ekki verið að hann sé að heyja hana fyr- ir Alþýðuflokkinn. Sú efling kommúnistaflokksins, sem ó- hjákvæmilega leiðir af völd- um hans í Alþýðusambandinu hlýtur að vera flokki jafnað- armanna stórhættuleg. En fyrir hvern er maðurinn þá að berjast? Fyrir sjálfan sig og Brynjólf Bjarnason. Það er engin furða þótt blað kommúnista snúist nú nær ein- göngu um þessa nýju samvinnu milii flokks þess og fráfarandi Fyrst „Frænkan“, en siðan nýtt leik- rit, „Erfinginn“ eftir Henry James Vetrarstarfsemi Leiktélags Reykjavíkur að hefjast formanns Alþýðuflokksins. i Kommúnistaflokkurinn á íslandi hefur verið að visna upp undan- farin ár. Fylgi hans í verkalýðs- j félögunum hefur þorrið og hann var algerlega vonlaus um nokkur áhrif á ' þingi Alþýðusambands- | ins ef lýðræðissinnar hefðu stað- ið þar saman við þessar kosning- ar eins og undanfarin ár. En vegna þess að Hannibal Valde- | marsson hefur oltið út úr trún- aðarstöðum í flokki sínum og vill þá komast til áhrifa í Alþýðu- I sambandinu á að endurreisa þar völd kommúnista og gera tilraun til þess að blása nýjum lífsanda í flokk þeirra. Þetta atferli er svo lánlaust og heimskulegt, að til þess var engum trúandi nema einmitt manninum, sem skoraði á Al- þýðuflokksfólk í Kópavogi að kjósa framboðslista kommún- ista á s.l. sumri. En lýðræðissinnað fólk í verkalýðssamtökunum verður að hrinda sókn kommúnista og leiguþýja þeirra. Alþýðu- samband íslands á að vera skjólgarður um hagsmuni verkalýðsins en ekki áróðurs- j hreiður fyrir kommúnista. Leikfélag reykjavíkur er nú að hefja starfsemi sína. Af því tilefni átti blaðið tal við hinn nýkjörna formann félags- ins, Lárus Sigurbjörnsson, og sagðist honum frá á þessa leið: Að undanförnu hefur Leikfélag Reykjavíkur verið í óða önn að búa sig undir vetrarstarfið. Voru hafnar æfingar á nýju leikriti síðustu dagana í ágústmánuði og er æfingum svo langt komið, að gera má ráð fyrir frumsýningu fyrir miðjan næsta mánuð. Nýja leikritið heitir „Erfinginn“ og er samið eftir sögunni „Washington Square“ eftir hinn heimsfræga rithöfund Henry James. Leikritið hefur verið sýnt við mikla at- hygli víða um heim og hvarvetna hlotið þann dóm, að það sé fram- arlega í flokki beztu leikrita sam- tíðarinnar. Leikfélagið hefur að undan- förnu átt við að stríða erfið skil- yrði, hvað snertir geymslu eigna sinna, búninga, leiktjalda og húsgagna. Hefur verið unnið að því að sameina á einn stað alla muni félagsins og von um að betur rætist úr húsnæðismálun- um, þegar líður á veturinn, m. a. fyrir æfingar og vinnustofur fyr- ir leiktjöld og búninga. Þá hafa nokkrar smábreytingar verið gerðar á leiksviðinu í Iðnó til hagræðis við tjaldskiptingar og hússtjórnin hefur góðfúslega leyft félaginu afnot af herbergi fyrir skrifstofu, þar sem félags- stjórnin verður daglega til við- tals á tímanum kl. 5—7. Við aðgöngumiðasölu félagsins Arni Tryggvason í hlutverki „frænkunnar" uu andi óhrifar: Þar unir æskan. í SAMTALI við oddvita Hruna- mannahrepps, Sigmund Sigurðs- son bónda í Syðra-Langholti, sem birtist hér í blaðinu í dag, skýrir hann m. a. frá því, að æska sveit- arinnar hefji yfirleitt búskap þar heima og vilji búa áfram í heima högum sinum. Um þetta kemst oddvitinn m. a. að orði á þessa leið: „Bændurnir skipta jörðunum milli barna sinna, og það er farið að byggja, síðan er bænum gefið nafn og innan skamms hafa nýir húsbændur setzt á nýja jörð og byggja gott til framtíðarinnar“. Þetta er vissulega ánægjuleg mynd af því, sem er að gerast í þessari fögru og þróttmiklu byggð. Og hún bendi áleiðis til þess er koma skal í hverju héraði á íslandi. Áhugasöm og starfs- glöð æska tekur við óðulum feðra sinna, nýbýli rísa, jarðirnar stækka og fólkið í sveitunum unir glatt við sitt. Lífskjörin jafnast og trúin á framtíðina glæðist. Þetta er það, sem verður að gerast í þessu landi. íslendingar eru að uppruna bændaþjóð. Land búnaður er enn þann dag í dag einn aðalatvinnuvegur þeirra. Það væri fráleitt ef þessi atvinnu grein, sem matvælaframleiðsla þjóðarinnar byggist að verulegu leyti á, ætti að dragast saman vegna vantrúar æskunnar á fram tíð hennar. í íslenzkum sveitum bíða mikil og glæsileg verkefni. Sií æska, sem leggur þar hönd á plóginn á bjarta framtíð fyrir höndum. Það hefur unga fólk- ið í Hrunamannahreppi skilið. Þessvegna unir það í sveitinni sinni og brýtur þar nýtt land. Eitt af mörgum vandamálum. EITT af þeim mýmörgu vanda- málum, sem heimurinn streit ist stöðugt við að finna lausn á — án mikils árangurs, eru hin mörgu og ólíku tungumál, sem hinar ýmsu þjóðir og þjóðflokkar jarðarinnar tala. Hvílíkur hægð- arleikur það væri að komast á- franr í heiminum, ef allir skildu alla hvar sem væri á jörðinni, í staðinn fyrir að kosta of fjár og ofstopatíma til að læra að tala framandi tungur, sem svo er alveg undir hælinn lagt, að komi manni nokkurn tíma að verulegu gagni. Heldur treglega gengur með Esperanto-ið, sem ýmsir hafa gert sér vonir um, að geti orðið alheimsmál með tímanum, aðrir hrista höfuðið: — sussu-nei, kemur ekki til mála. Það eru helzt smáþjóðir, eins og við, sem tölum tungumál, sem engir aðrir leggja sig niður við að læra, er helzt að sjá í hillingum alheims- tungumál, sem gera mundi okkur „gjaldgenga“ hvar sem er. Nýtt tungumál — „interlingua“. EN nú er nýtt tungumál komið til sögunnar — „interlingua“ er það kallað, sem virðist eiga nokkra framtíð fyrir sér. Það er greinilegt samblöndunartungu- mál, byggt upp úr hinum helztu vestrænu málum, aðallega ensku, spænsku, frönsku, ítölsku og portúgölsku. Á þingi sérfræðinga í hjartasjúkdómum, sem haldið var í s.l. viku í höfuðborg Banda- ríkjanna, Washington, var þetta nýja mál notað og kom langflest- um hinna 49 þjóða doktora, sem þingið sátu að góðu gagni. Eng- inn þeirra hafði lært málið áður en gátu engu að síður lesið og skilið það sér til gagns. Mál framtíðarinnar? OLÍKT því, sem er með Esper- anto og önnur alþjóðamál, þá hefir interlingua engar nýjar til- búnar orðmyndanir og orðhluta, málið er eínfaldlega hin vest- rænu mál eins og þau koma fyrir hæfilega samblönduð. Er ekki ó- líklegt, að það muni eiga fram- tíð fyrir sér. Væri fróðlegt að fá að vita eitthvað meira um þetta nýja mál frá þeim, sem til þekkja. Skýring á Krók og Lykkju. MAÐUR nokkur, sem er kunn- ugur á Kjalarnesinu, hefir stungið að mér skýringu á bæjar- nöfnunum, Krókur og Lykkja, sem og minntist lítillega á hér í dálkunum fyrir nokkru. Maður- inn sagðist reyndar hafa þetta meira á tilfinningunni, heldur en að hann hefði nokkra óræka sönnun fyrir því, hvernig þessi nöfn eru til komin. „Mín hyggja er sú“, sagði hann, „að þessar tvær smájarðir hafi byggzt frá höfuðbólinu Hofi, hvor þeirra fyrr veit ég ekki. Hugsum okkur, að Krókur hafi byggzt fyrr, þá hefir hann senni- lega fengið nafn sitt af því, að jörðin hefir myndað krók inn í Hofstúnið og um leið hefir mynd- ast lykkja. Hafi Lykkja byggzt fyrst hefir þessi sama lykkja myndazt á undan króknum og er þá miðað við sjálf landamerkin. K Póstkort í Þjóðminja- safninu. ÆRI Velvakandi! Ég kom á Þjóðminjasafnið á sunnudaginn var og sá, að þar eru nú til sölu póstkort með myndum af nokkrum góðum gripum safnsins. Það gladdi mig að sjá þessi kort, því að þau eru mjög vel heppnuð og sómi að senda þau hvert í heim sem er, en það er meira en sagt verður um öll íslenzk kort, sem á boð- stólum eru höfð. Ekki hefi ég séð, að þessi kort hafi verið auglýst utan safnsins og því tek ég mér bessaleyfi til að vekja á þeim athygli með þessu bréfi. — Virð- ingarfyllst, G.S.D.“ hefir nú tekið Jóna Jónasdóttir, en frú Kristín Thorberg hefir látið af þeim störfum eftir 25 ára þjónustu. Um stöðu þessa bárust félaginu 48 umsóknir. „FRÆNKA CHARLEYS“ ENN Um fyrirætlanir félagsins f vetur er að svo stöddu full- snemmt að ræða. Eins og fyrr segir verður fyrsta frumsýning ; vetrarins í byrjun næsta mánað^ I ar, en fyrsta sýning félagsins verður á morgun og þá sýndur gamanleikurinn „Frænka Char- leys“, sem vinsælastur varð allra viðfangsefna félagsins í fyrra, með 34 sýningar þó að komið væri langt fram á vor áður en sýningum lyki. Vafalaust eru þeir fjölmargir, sem vilja sjá þennan skemmtilega gamanleik, áður en hann verður lagður á hilluna næstu árin. Árni Tryggvason, sem nú er orðinn einn vinsælasti gamanleikari bæjarins, fer með aðalhlutverkið sem fyrr. Meðal annarra leikenda má nefna Brynj ólf Jóhannesson, Þorstein Ö. Stephensen, Gerði Hjörleifsdótt- ur, og Einar Þ. Einarsson, auk unga fólksins í leiknum: Helgu Valtýsdóttur, Kristjönu Breið- fjörð, Önnu Stínu Þórarinsdótt- ur, Einar Inga Sigurðsson og Steindór Hjörleifsson. Leikstjóri er Einar Pálsson. „ERFINGINN“ í nýja leikritinu hefur Gunnar R. Hansen leikstjórn á hendi, en aðalhlutverkið, erfingjann, leik- ur Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Elskhugahlutverkið leikur Bene- dikt Árnason, sem stundað hefur leiknám í London undanfarin ár, og er þetta fyrsta hlutverk hans hér á leiksviði. Þorsteinn Ö. Stephensen og Hólmfríður Páls- dóttir leika systkini, auðugan lækni og systur hans, aðra systur leikur Gerður Hjörleifsdóttir, en önnur hlutverk eru leikin af Margrétu Ólafsdóttur, Helgu Valtýsdóttur, Nínu Sveinsdóttur, og Jóhanni Pálssyni. GIMBILL Mjög margar fyrirspurnir hafa borizt um áframhaldandi sýning- ar á sjónleiknum „Gimbli“, sem hætt var sýningum á í vor, en um það, hvort unnt verði að sýna leikinn aftur, er enn ekki vitað. Félagsstjórnin hefur enn ekki 1 höndum fullnægjandi gögn frá höfundi, til þess áð svo geti orðið. Ólafur Siprðsson efslur eftir 6 umf. SEX umferðum er nú lokið 1 Septemberskákmótinu í Hafnar- firði. Úrslit í fimmtu umferð urðu þessi: Baldur vann Sigurð T., Ól- afur vann Sigurgeir, Arinbjörn vann Trausta, og Jón Pálsson vann Jón Jóhannsson, en biðskák var hjá Gilfer og Jóni Kristjáns- syni. Úrslit í sjöttu umferð urðu þessi: Sigurgeir vann Jón Kr., Ólafur vann Arinbjörn, Baldur vann Jón Pálsson, og jafntefli varð hjá þeim Trausta og Jóni Jóhannssyni, en biðskák hjá Sig- urði T. og Gilfer. Biðskákir voru svo tefldar s.L þriðjudag og varð röð keppenda, eftir að þær höfðu verið tefldar, þessi: 1. Ólafur með 4% vinn., 2. Baldur með 3V2 vinn. og biðskák, 3.—5. Arinbjörn, Jón P. og Sigur- geir með 3!4 vinn. hver, 6. Jón Kr. 3 vinn. og biðskák., 7. Sigurð ur T. 3 vinn., 8. Gilfer IV2 vinn. og tvær biðskákir, 9. Trausti IVz vinn., 10. Jón Jóhannsson V2 vinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.