Morgunblaðið - 30.09.1954, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 30.09.1954, Qupperneq 9
Fimmtudagur 30. sept. 1954 toORGUXBLAtílB 9 Gaufaborg er mikiB tækni- og menningarsetur QVÍAR eru efnuð þjóð og Í3 stórhuga, myndarleg og siðfáguð, og almenningur býr þar við hin beztu kjör í gnægtaríku landi. Það leyndi sér ekki, að tvær heimsstyrjaldir á einum smannsaldri hafa gengið hjá garði sænsku þjóðarinnar og látið hana alls óáreitta. Reisulegar bygging- ar, háþróuð tækni og almenn vel- sæld færir ferðamanninum ótví- rætt heim sanninn um, að í Sví- þjóð hefur mannshöndin fengið að vinna ræktunarstarf sitt í friði; hér er það ekki eins og í Þýzkalandi, þar sem borgir liggja enn í sárum, bæklaðir betlarar ganga um strætin og sviðnir veggir bera við himinn. Manni verður ósjálfrátt hugsað til þess, þegar ferðast er um blómleg hér- uð og reisulegar borgir Suður- Svíþjóðar, að hér sé eina land .Norðurlandanna, sem kalla mætti stórveldi, bæði fyrir stærð sína, tnannfjölda, forna sögu og ágæt- an efnahag. Stórveldi hefur og Svíþjóð verið, og enn í dag, þeg- ar landið er orðið lítið á mæli- kvarða heimsríkjanna, eimir þó eftir af þessari afstöðu, minning- ar frá hinni voldugu Svíþjóð Karlakónganna, einkum á 17. þldinni. Svíþjóð nýtur líka enn í dag öneitanlega þeirrar sérstöðu, sem allvoldugt ríki, að hafa með her- snætti sínum og stjórnvizku sam- einaðri stýrt hjá heimsstyrjöld- uxnum báðum og eftir styrjöldina talið sér unnt að standa hjá, er önnur Evrópuríki og hin Norður- Jöndin gengu til samstarfs á sviði hermála og efnahagsmála. Sú af- staða þeirra hefur löngum verið Götur Gautaborgar eru fagrar og breiðar, og bera vott um snyrti- l mennsku íbúanna. Þessi mynd er frá Brunnsparken og styttan ei gerð af myndhöggvaranum Hasselberg, er nefndi hana „Jóhönnu“. Höfnin í Gautaborg er ólgandi athafnasvæði. Hún er hafna stærst í Svíþjóff og önnur aff stærð á Norðurlöndum. umdeild að vonum og ekki átt f>átt í að auka vinsældir þeirra hjá grannþjóðunum, er mest viðskipti eiga við Svía. En livað sem að öðru leyti má segja um hlutleysisstefnu í veröldinni eins og hún er í dag, hefur hún augsjáanlega borið góðan ávöxt í Svíariki, og ferðamanninum dylst ckki, að landið byggir dugmikil og einörð iðnaðar- og menningar- þjóð, sem kann fótum sínum for- xáð. framkvæmd heimsóknarinnar hvíldi þó að mestu á herðum rit- ara félagsins, Erics Borgströms, forstjóra getraunanna í Vestur- Svíþjóð. Hann er maður hinn ötulasti, einstaklega starfssamur og fylginn sér, sannkallaður kjarnorkumaður, enda var dag- skrá fararinnar hin strang- asta og hver stund dagsins nýtt til heimsókna og gagnlegra kynna í borginni. íslendingar, sem leið sína leggja til Gautaborgar eiga góðan hauk í horni þar sem Eric Borgström er og kona hans Marta, en heimili þeirra hjóna stendur öllum íslendingum jafn- an opið. Daginn eftir að íslenzku blaða- mennirnir komu til borgarinnar, sunnudaginn 19. september, fóru fram bæjar- og sveitarstjórnar- kosningar í landinu. Vorum við blaðamennirnir staddir við ráð- hús bæjarins kl. 9 um morguninn, er kosning skyldi hefjast í Gauta- borg, en hún er með all frá- brugði\um hætti hjá því sem hér heima tíðkast. Á þeirri stund gengu fjórir lúðurþeytarar fram á tröppur ráðhússins og blésu í lúðrana að fornum hætti og að því búnu gekk borgarstjórinn út á svalir hússins og hófst þá kjör- fundurinn. Fylgdumst við nokkuð með kosningunum, komum á allmarga kjörstaði og ræddum við kjós- endur og starfsmenn í kjördeild- um. Fyrírkomulag kosninganna er þannig í Svíþjóð, að þar þekk- ist ekki hin svokallaða „smölun“ á kjördág, þ. e. að stjórnmála- flokkarnir fylgist nákvæmlega með því hvort hæstvirtur kjós- andi hafi neytt þess réttar, sem stjórnarskráin heimilar honum, og ef einhver dráttur verður á téðri athöfn, þá er mannafli og bílakostur sendur á vettvang til þess að flýta fyrir atkvæðagreiðsl unni. Slíkt atferli þekkist alls ekki með Svíum; þar er hver og einn kjósandi einráður um það, hvort hann heldur á kjörstað og óáreittur, þótt hann kjósi heldur að sitja heima. Það athyglisverða er, að þrátt fyrir þetta er kjör- sóknin í Svíþjóð að jafnaði engu slakari en hér heima, þar sem hinn hátturinn er hafður á; kjör- sókn í Gautaborg er um 80% og stundum meiri. *Þ Á var það og áberandi hve blöð borgarinnar skeyttu kosningunum lítt, varla var hægt á þeim að sjá, að þær stæðu fyrir dyrum, svo lítt var efni blað- anna blandað stjórnmálaáróðri. Jafnvel síðustu dagana fyrir kosn ingarnar voru það lítið annað en leiðarar blaðanna, sem gáfu til kynna hverjum flokknum blaðið *S' okkar íslenzku blaða- rnannanna sjö, sem eyddum fimm •dögum í næst stærstu borg Sví- þjóðar, Gautaborg, 18.—23 sept. Þar þáðum við hið prýðilegasta boð, og mættum einstakri gest- risni og góðvild hvarvetna, sem við komum, í borg og byggð. í Gautaborg er nú starfahdí sænskt íslenzkt félag, rétt ársgamalt, og átti það frumkvæðið að þessari fyrstu íslenzku blaðamarmaheim- sókn til Gautaborgar. Auk þess tóku þátt í boðinu blaðamanna- félag borgarinnar og blaðaútgef- <endur, en ýmis stór fésýslufyrir- tæki, sem átt hafa skipti við ís- land, styrktu heimsóknina fjár- bagslega. Formaður sænsk ís- lenzka félagsins í Gautaborg er Peter Hallberg, sem um skeið var sendikennari hér á landi í sænsku, en gegnír nú dósents- stöðu í bókmenntum við háskól- ann í Gautaborg. Skjpulag og íslenzku blaðamennirnir, sem heimsóttu Gautaborg dagana 18.— 23. sept. fyrir framan ráðhús borgarinnar, morgumnn 19. sept., er bæjarstjórnarkosningarnar hófust. Frá vinstri: Guimar G. Schram ^ (Morgunbiaðið), Magnús Kjartansson (Þjóðv.), Þórarinn Þórar- I insson (Timinn), Guffni Guðmundsson (Alþýðubl.), Bjarni Guð- ^ mundsson blaðafulltrúi og Eric Borgström, ritari sænsk-íslenzka félagsins í Gautaborg. Á myndina vantar Thorolf Smith (Vísir), zkra ábrifa fylgdi, og kom manni ósjálfrátt í hug samanburður við íslenzk blöð. í Gautaborg hafa sósíal- demokratar farið með völdin síð- an 1923, ærið langan tíma, að því er mörgum þar finnst og héldu þeir kjörfylgi sínu þó við kosningarnar 19. sept. Er Gauta- borg stærsta sænska borgin þar sem flokkurinn hefur slíka meiri- hlutaaðstöðu, þar sem þeir ráða ekki Stokkhólmi. Kosningaúrslit- anna í Gautaborg var einnig beð- ið með mestri eftirvæntingu um gjörvalla Svíþjóð, þar sem mjög lítill munur var á stærstu flokk- unum, sósíaldemókrötum og frjálslynda flokknum eða Folk- partiet, eða aðeins eitt sæti. Úr- slitin urðu þó þau, sem kunnugt er ,að sósíaldemókratar héldu nær óskertu fylgi sínu bæði í Gautaborg og öllu landinu, en hægri flokkurinn jók og allmik- ið við sig og kommúnistar einnig lítilsháttar. /af því að byggja hana og gætir nokkurs nábúakrits og kapps um það hvor sé meiri, hún eða Stokk- hólmur. Um aldaraðir hefur borg in verið hlið Svíþjóðar, samgöngu æðin vestur til nálægra landa og allt vestur til Bandaríkjanna. Gústaf Adolf stofnaði borgina ár- ið 1611.Áður hafði nokkrum sinn- um verið stofnað til byggðarlagsi á svipuðum slóðum, á 12. og 13- öld, við ósa Gautelfar, en þær byggðir höfðu allar eyðst og árið 1611 tóku Danir borgina herskildr eyddu hana og brenndu. Upp úr rústum þeirrar borgar reisti síð- an Gústaf Adolf borgina, sem var vísir til þeirrar Gautaborgar, sem í dag stendur við ána. Sökum legu sinnar varð borg- in snemma mikil verzlunar- og samgöngumiðstöð, og nú er þar stærsta höfn Svíþjóðar og önnur stærsta höfnin á öllum Norður- löndum; aðeins höfn Kaupmanaa. hafnar er nokkru stærri. Borgin byggðist upphaflega aff mestu af útlendingum, Þjóðverj- unj, Hollendingum og siðar Eng- lendingum og Skotum, höndlur- Aðalmál ^kosninganna var al- um 0g útgerðarmönnum, og ena í dag ber borgin þess merki. menn skattalækkun, en Svíar telja, svo sem margar fleiri þjóð- ir, að þeim sé oíþyngt með skött- um og skyldum og undrar engan. í rauninni voru aliir flokkarnir sammála um að lækka skattana, og greindi aðeins á um leiðirnar að markinu. Þá var og mikið deilt um hvort koma bæri á stofn sjúkrasamlögum í landinu, og var það mál mikið hitamál. Sjómennirnir í Gautaborg eru harðgerir menn og víðförlir. *Þ ANN tíma, sem íslenzku blaðamennirnir dvöldust í borginni voru þeim sýnd fjöl u 1>REZK áhrif eru mjög áber D andi í Gautaborg í dag, geysimikil viðskipti liggja á milll landanna beggja og Gautaborg- arbúar segja í gamni, að þegar rigni í Lundúnum spenni þeir þegar í stað upp regnhlífarnar sínar í Gautaborg! Húsagerð Stokkhólms ber greinilegan svip franskra og þýzkra áhrifa; húsin í Gautaborg eru ensk að yfirbragði og sama er að segja um húsgögnin, þau eru af hreinviðar og maghonigerð' í Gautaborg, en skorin og máluff mikiu fremur að frönskum hætti í höfuðborginni. En það er ekki aðeins, að borg- in sé alþjóðleg hvað snertir verzl- un og viðskiptahætti. Sagt er, að fólkið í Gautaborg sé líka miklu glaðlyndara og óþvingaðra i framkomu en Stokkhólmsbúar, sem þykja hásænskir að yfir- bragði. Náttúrufegurð er ekki sér stök í Gautaborg, og nærsveitir heldur hrjóstrugar, jökulnúnar granítklappir og hæðir skjóta víða upp kollinum, en þó er eink- ar vinalegt út við Vesturhafið, í skerjagarðinum, einkum þó í Sárö, þar sem auðugir Gauta- borgarar eiga sér sumarhús, og kóngur gamnar sér við tenniS- leik á sumrum. En þótt borgin sé ekki jafn. fögur og Stokkhólmur, er hún mörg fyrirtæki og stofnanir, er reisuleg og afburða hreinleg, göt gert hafa garðinn frægan. Við skoðuðum hina þekktu kúlulegu- verksmiðju S.K.F., einu og stærstu kúluleguverksmiðju Sví- þjóðar, sáum geysimikla vefnað- arvörusýningu, sem haldin var í borginni og 4000 kaupmenn víðs- vegar að úr landinu sóttu, sáum stærstu skipasmíðastöð Gauta- borgar Eriksberg Mekaniska Verksted, komum í skóla, sjúkra- hús og elliheimili, er búin voru öllum nýtízku tækjum og rekin á hinn fullkomnasta hátt, heim- sóttum. listasöfn og leikhús og hljómleika, vorum viðstaddir, er leiklistarsafn borgarinnar var vígt, vorum staddir á íþróttaveili Gautaborgar, er Nilsson setti þar Evrópumet í hástökki, skoðuðum nýtízku byggðahverfi, sem upp rís í útjaðri borgarinnar og er ætlað að útrýma húsnæðisskort- inum á fáum árum, og svo mætti. lengi telja. Oll báru fyrirtækin og stofn- anirnar vott um, að Svíar hafa ' tileinkað sér fullkomnustu vinnu ' aðferðir og nýjustu tækni til hins 'frasta og ekkert til.sparað um að vcita starfsmörinunum og þeim, sem þjónustuna þiggja, hina beztu afkomu og lífSskil- yrði. Gautaborg er mikil borg og auðug, enda íbúar hennar stoltir urnar breiðar og beinar, næstum svipaðar breiðgötum Parísar, enda sagði engu ómerkari maður en grasafræðingurinn Linné á sinni tíð, að Gautaborg væri perla sænskra bæja. ★ u FN Gautaborg er ekki að- M-J eins musteri fésýslu og mikil samgönguæð, þar er einnig stórt setur menningar og mennta. í borginni eru þrír háskólar og er verkfræðiháskóli borgarinnar, Chalmersháskólinn sérlega víð- kunnur. í miðri borginni hefur verið reist háborg listanna, eins konar Akropolis, ef svo má að orði komast. Á stóru torgi, Götaplatsen, stendur mikil stytta af sjávarguðnum Poseidon, gerð af frægasta og jafnframt umdeild. asta myndhöggvara Svía í dag, Carl Milles. Að baki Poseidon. rís veglegt listasafn borgarinnar, sem m. a. er þekkt fyrir safn sitt af franskri myndlist. Til vinstri handa'r er Stadsteater, nýtízkuleg og stílhrein bygging, sem líkist míög Þjóðleikhúsinu að innrétt- ingu, en er nokkru stærri. Og til hægri handar við torgið rís hið nýja og mikla hljómleikahús borgarinnar, teiknað af ungum húsameistara Nils Eriksson, sem þykir í senn bæði fagurt, og Fiamh. á bls. 13, A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.