Morgunblaðið - 31.10.1954, Blaðsíða 2
s
MORGUTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 31. okt. 1954 1
ítalska stfórnin býður lerisir-
landaþjóðnm til sameiginiegrar
listsýningar í Któm
v@rl
FYFIR nokkru barst Norræna
listsambantíinu bcð frá ítölsk-
um yfirvöltíum, um að það geng-
ist fyrir, að haida samnorræna
listsýningu í Rómaborg. Sýning
þessi er fyrivhuguð í aprílmán-
uði næstkomandi og verður hald-
in í mestu sýningarhöll borgar-
innar. Eru öll skilyrði þar hin
beztu og ákjósanlegustu.
Er boðinu hafði verið tekið,
var haldinn undirbúningsfiyidur
í Róm til að semja við ítali og
gunga frá öllum nauðsynlegum
aíriðum varðantíi undirbúning
sýningarinnar.
Fulltrúar frá öllum Norður-
löndunum sátu þennan fund, sem
lraldinn var seinnihluta septem-
bermánaðar, og var þar endan-
lega gengið frá samningum um
sýninguna og öðrum undirbún-
ingi. Valtýr Pétursson listmálari
sat fundinn af íslands hálfu, er
hann nýkominn til landsins og
skýrir þannig frá í aðalatriðum:
Þetta er í fyrsta skipti í sög-
unni, sem Norðurlöndum hefur
verið boðið að halda sameigin-
lega listsýningu í ítaliu, en þang-
að hafa margir listamenn á Norð-
urlöndum sótt menntun sína og
dvalið þar langdvölum, eins og
t.d. Thorvaldsen. Það er því vel
til fallið, að listamenn á Norður-
löndum fái tækifæri til að sýna
list sína í því landi, sem miðlað
hefur þeim svo miklu af þeim
ijársjóðum, sem myndlistin hefur
að bjóða í ítaliu.
Norraéna listbandalagið. sem er
félagsskapur listamanna á Norð-
urlöndum, var sá aðili, sem
ítölsk yfgirvöld sneru sér til, og
aendu boð sitt. Engu að síður ber
auðvitað að skilja hið góða boð
þannig, að fyrst og fremst er
hverri þjóð fyrir sig og öllum
Norðurlandaþjóðunum í heild,
sýnd sú virðing og vinsemd, sem
í þessu boði felst.
Þessi fyrirhugaða samnorræna
listsýning verður, að öllu forfalla-
lausu, opnuð í PALAZZ DELLE
.ESPOSIlýlONE í Róm, í byrjun
aprílmánaðar næstkomandi. Sýn-
ingarhöll þessi er sú veigamesta,
sem ítalir ráða yfir í höfuðborg-
inni og stendur við eina aðalgötu
Rómaborgar. Vart er hægt að
liugsa sér öllu ákjósanlegra sýn-
ingarhús. Á undirbúningsfundi
þeim, er ég sat í Róm, var deilt
uiður sýningarsöium milli Norð-
urlandanna og gengið frá öllum
nauðsynlegum undirbúningi að
sýningunni.
Sýningin mun standa yíir tæpa
tvo mánuði, og er búizt við, að
ekki færri en 300,000 gestir sjái
hana, ef dæma má eftir venju-
legri aðsókn að sýningum, sem
haldnar hafa verið undanfarið í
sömu sýningarsölum. Sýningin
vei ður nefnd „Sýning á norrænni
nútímalist“, en list hvers lands
fyrir sig verður í sérstökum sýn-
ingarsölum, sem verða greini-
lega merktir með nafni hvers
lands og fána. Einnig verður sýn-
ingarhöllin skreytt fánum Norð-
urlandanna að utan, og allt mun
i verða gert til að vekja, sem mesta
athygli á viðkomandi löndum,
meðan sýningin stendur yfir. For-
• seti Ítaiíu mun opna sýninguna
og verður verndari hennar.
Sýningin, verður mjög umfangs
j mikil, og er lauslega áætiað að
um 500 listaverk verði þar til
sj^nis. Er ætlazt til, að sýnd verði
! þarna verk, sem sköpuð hafa ver-
ið á Norðurlöndum, frá því um
> seinustu aldamót fram á þennan
dag, þannig að þau gefi sem
gleggsta hugmynd um, hvað hef-
, ur skeð í myndlist í hverju landi
f fyrir sig og hver þróunin hefur
orðið.
ísiandi hefur verið úthlutað
j sýningarsölum, sem rúma það
mikið af listaverkum, að hægð-
arleikur ætti að vera að gefa góða
Tækifæri til afleiðinga-
ríkrar landkynningar
VaStýr Pétursson máiari sækir undir-
húningstund fyrir hönd is'cndinga
*
Attræður á mcrgtiis:
Kristján Jónsson Móabúð
1 heildarmynd af íslenzkri list og
sýna það markverðasta, sem gerzt
hefur hjá okkur í myndlist, en
j auðvitað verður að vanda mikið
t til vals verka á sýninguna, og
j undir því verður að miklu leyti
komið, hvernig íslendingar
standa sig á sýningunni.
Vönduð myndskreytt sýningar-
skrá verður gefin út í tilefni
sýningarinnar. Verður það fyrsta
ritið, sem út er gefið á ítölsku
um norræna list í heild.
Þar sem sýningin verður að
fara langa leið, héðan til Rómar,
mun undirbúningur hennar hér-
lendis byrja strax eftir áramót, og
verður að hraða honum eins og
hægt er.
Áhugi ítala á þessari sýningu
er auðsær og mikill, og get ég
íullyrt að þessi menningartengsl
verða fyrst og fremst til gagn-
kvæms skilnings og fræðslu á
jafn fjarlægum löndum og hér
eiga hlut að máli.
Öllum fulltrúum, sem sátu
undirbúningsfundinn, kom ein-
róma saman um, hverja þýðingu
sýningin hefði fyrir Norðurlanda-
þjóðirnar og hve stórt spor væri
stigið með því að hefja suður-
göngu norrænnar listar á svo
veglegan hátt, sem hér gefst
tækifæri til.
Strax og heyrast fór um það á
Norðurlöndunum, að til stæði.að
halda norræna listsýningu í Róm,
kom mikill áhugi í ljós bæði hjá
því opinbera og almenningi. Til
gamans má geta þess, að norski
fulltrúinn á Rómarfundinum full
• yrti, að eitt af útgerðarfélögunum
í Osló hefði tilkynnt Norska lista-
mannasambandinu, að það byðist
til að flytja listaverkin til og frá
ítalíu endurgjaldslaust, strax og
nefnt hafði verið í einu dagblaði
þar, að þessi sýning stæði til.
Þeir Norðurlandamenn, sem
mest hafa lagt til þessa máls, eru
þeir sendiherra Svía í Róm, hr.
Beck-Friis, og norskl málarinn,
prófessor Axel Revold, en þeir
vöktu fyrstir manna máls á hug-
! myndinni við ítalska aðila og
hafa unnið ósíngjarnt og merki-
legt starf í þágu þessa málefnis.
Að endingu vil ég óska af heil-
um hug, að íslenzkum listamönn-
; um auðnist að gera landi og þjóð
j hinn mesta sóma með þátttöku
' sinni í þessari merkilegu sýningu,
og að öll þjóðin skilji, hve merki-
legur atburður er að gerast hér
í menningarlífi voru.
Fé slátrað
í varúðarskyni
BÆ, Höfðaströnd, 28. okt. — Sauð
fjársjúkdómanefnd hefur ákveðið
að allt féð frá bæjunum Kjarvals
stöðum og Kálfsstöðum, alls um
200 fjár, skuli slátrað. — Er hér
um varúðarráðstafanir að ræða
frá hendi nefndarinnar, en fé
þetta liefur gengið saman við féð
frá Hlíð, en því fé var öllu slátr-
að fyrir nokkrum vikum vegná
þurramæðistilfellis í einni kind
þaðan.
Oákveðið er nær fénu verður
slátrað. — Að Kjarvalsstöðum
býr Hallgrímur Pétursson og að
Kálfsstöðum Árni Sveinsson.
— Björn.
gistivini sína í Kína
SAIGON, 30. okt.: — Nehru for-
sætisráðherra Indlands fór í
morgun flugleiðis frá Kanton í
Kína áleiðis til Suður Viet-nam,
en þangað kom hann til flugvall-
arins í Saigon síðla dags. Nehru
átti samtöl við Mao Tse-tung og
Chu En-lai í Kína. í kvöld situr
hann veizlu mikla, sem forsætis-
ráðherra Suður Viet-nam hefur
honum til heiðurs — Reuter.
KRISTJAN JONSSON, formaður
og bóndi í Móabúð, verður átt-
ræður á morgun.
Hann er fæddur að Hallbjarn-
areyri í Eyrarsveit hinn 1. nóv.
1874, en fluttist með foreldrum
sínum, Guðrúnu Hallgrímsdóttur
og Jóni Jónssyni, að Móabúð, 10
ára að aldri, og hefur hann átt
þar heima, þar til allra síðustu
árin að hann hefur dvalið að
mestu í Grafarnesi.
Hann er tvíkvæntur, fyrri
kona hans var Guðríður, en hin
síðari er Kristín, báðar dætur
Gísla Jónssonar frá Tröð í Hall-
bjarnareyrarþorpi. Með fyrri
konu sinni eignaðist hann tvö
börn og er annað þeirra á lífi,
en með hinni síðari þrettán og
lifa ellefu þeirra.
Þrátt fyrir háan aldur er hann
ern og heilsugóður, að öðru leyti
en því að heyrnin er biluð og
heíur svo verið um langt skeið.
Kristján í Móabúð hefur stund-
að sjóinn frá því á unglingsaldri
og allt fram á síðustu ár. Hann
er einn í hópi hinna mörgu, góðu
og atorkusömu sjómanna Eyrar-
sveitar, og mun vissulega af öll-
um, sem til hans þekkja, vera
| talinn þar í fremstu röð. Hann
| rak nokkurn búskap, ásamt sjó-
^ sókninni, eins og flestjr búendur
J Eyrarsveitar gerðu. En fyrst og
fremst er hann sjómaður. Hann
var formaður á árabát um marga
áratugi, farsæll og heppinn for-
i maður. Ekki voru aðrir þar í
sveit aflasælli en hann, og því
| var hann aldrei í hraki með há-
seta, heldur sóttu menn um
I skiprúm hjá honum, þar var jafn
j an góðs hlutar að vænta. Hásetar
hans og aðrir þeir, sem um lengri
eða skemmri tíma, dvöldu á
heimili hans, minnast hans með
miklum hlýleika og innilegri vin-
áttu.
„Þéttur á velli og þéttur í lund,
þrautgóður á raunastund". Þess-
ar ljóðlínur má vel heimfæra til
Kristjáns. Hann er þéttvaxinn og
skapgerðin traust og föst. Greind
ur er hann vel, myndar sér sjálf-
NGíiTian-fríóið vænfanSeg! h'mgað
Ferming í dsg
Fermingarbörn í Dómkirkjunni,
sunnud. 31. okt. kl. 2 e. m.
Sr. Óskar J. Þorláksson.
aá
Árni Petersen, Unnarstíg 2
Carl Bjarni Rasmusson,
Þingholtsstræti 8
Björgvin Hafsteinn Kristinsson,
Hvammsgerði 5
Egill Lars Jakobsen,
Sóleyjargötu 13
Björn Lúðvig Einarsson,
Skúlagötu 70
Haukur Hjaltasen, Bræðraborg-
arstíg 23A
Jón Hjaltason, Bræðraborgar-
stíg 23A
Jón H. Magnússon, Smiðjustíg 9
Ólafur Þór Ragnarsson,
Grettisgötu 10.
aá
Hér birtist mynd af hinu víðkunna Normans-tríói, sem er Reyk-
víkingum að góðu kunnugt. — Tríóið hélt nokkra hljómleika ásamt
Alice Babs á vegum SÍBS í nóvembermánuði s. 1. Vöktu þessir
hljómleikar mikla hrifningu, enda var hvert sæti skipað á þeim
öllum. — Þessi hljómsveit er nú væntanleg hingað til fjögurra
daga dvalar um, miðja þessa viku. Hún mun halda nokkrar skemmt-
anir í Austurbæjarbíói. í fylgd með henni verða að þessu sinni
tveir dægurlagasöngvarar, Marion Sundh og Ulf Carlén, bæði
frá sænska sjónvarpinu. Auk þess verður með í förinni kunnur
gítar-snillingur, Rolf Berg að nafni.
Guðbjörg Svanfríður Runólfs-
dóttir, Hringbraut 87
Ingibjörg Ásta Egilsdóttir,
Hringbraut 110
Jóhanna Stefanía Einarsdóttir,
SkúlagÖtu 70
Karólína Björg Sveinbjörnsdóttir
Hávallagötu 35
mfl
stæðar skoðanir á mönnum og
málefnum, og ekki er á allra
færi að hagga við skoðunum
hans, því engin er hann veifi-
skati. Og sú er þá líka reynsla
hinna fjölmörgu vina hans, að
hann sé þrautgóður á raunastund.
Hann getur á þessum tíma-
mótum æfinnar litið með gleði
og hugarró yfir langan lífsferil.
Hann hefur leyst mikið dagsverk
af hendi og verið gæfumaður. —
Alinn upp hjá góðum og trúuð-
um foreldrum. Báðar konur hans
hafa reynst honum góðir og
traustir lífsför-unautar. Hann
hefur eignast mörg og mannvæn-
leg börn, sem ásamt konu hans,
vilja öll stuðla að því að æfi-
kvöldið verði honum friðsælt og
hlýtt
Við hinir mörgu vinir hans
óskum honum af heilum hug til
hamingju á áttræðisafmælinu og
biðjum guð að blessa hann og
ástvini hans alla.
Á morgum verður hann stadd-
ur hjá dóttur sinni og tengdasyni,
Melgerði 15, Reykjavík.
Jósef Jónsson.
í lista yfir fermingarbörn sr.
Jóns Auðuns er birtist í blaðinu
í gær misritaðist heimilisfang
i Björns Matthíassonar. Heimili
| hans er Þingholtsstræti 3, Kópa-
j vogi (ekki Kársnesbraut 30). —
j Fermingarbarnalisti Fríkirkjunn-
. ar og Laugarneskirkju birtist
Leiðrétfing frá forsföðu-
manni upplýsinga- og
ráðningaskrifstofu
varnarmáladeildar
ÉG undirritaður leyfi niér hér
með að leiðrétta grein þá, sem
birtist í „Tímanum" í dag, föstu-
daginn 29. október, undir fyrir-
sögninni: „Klíkuskapur í manna-
ráðningum á Keflavikurvelli“
Samvinna mín við tvo um-
rædda ráðningastjóra Metcalfe,
Hamilton, Smith, Beck Co’s, þá
Konráð Axelsson og Ingólf Árna-
son, hefur frá fyrstu byrjun og
til þessa dags verið hin bezta í
hvívetna og hafa engir árekstrar
átt sér stað okkar í milli út af
einstökum ráðningum til félags
þess, sem þeir eru umboðsmenn
fyrir.
Ég harma það, að „Tíminn“
birti þessa nafnlausu grein án
þess fyrst að hafa samband við
mig til að sannprófa sannleiks-
gildi hennar. Ennfremur vil ég
taka það fram, að menn hafa oft
verið ráðnir í venjulega verka-
mannavinnu þegar ekki hefur
verið um annað að ræða þótt þeir
hafi sótt um aðra vinnu. Þá hef-
ur jafnframt fylgt ósk frá mér
um að viðkomandi menn yrðu
fluttir í betri störf eftir því sem
hægt væri og veit ég ekki annað
en svo væri gert eftir því sem
unnt hefur verið.
Með þökk fyrir birtinguna.
Keflavíkurflugvelli, 29. okt. ’54.
Sigm. M. Símonarson.
Agæhir af!i
á Akranesi
AKRANESI, 30. okt.: — Sameig-
inlegur afli 13 trillubáta, sem
reru hér í dag var 10—11 tonn.
Afli bátanna var frá 700—1400
kg. Baldur, sem er 18 tonna skip
hafði 1600 kg. — Oddur.
Atvinnuleysisskrán-
ing 1.-3. nóv.
SAMKVÆMT ákvörðun laga fer
atvinnuleysisskráning fram í
Ráðningaskrifstofu Reykjavíkur-
bæjar, Hafnarstræti 20, á mánu-
dag, þriðjudag og miðvikudag.
Eiga hlutaðeigendur, er óska
að skrá sig, að gefa sig fram kl.
10--12 f. h. og 1—5 e. h. tilgreinda
daga.