Morgunblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 2
18
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 18. des. 1954
Oflugur landbúnaður, sem iœr werði um
að fullnœgja matvœlaþörf þjóðarinnar
SVO SEM áður hefir verið
sagt frá, efndu Sjálfstæðis-
félögin í Árnessýslu til héraðs-
fundar á Selfossi dagana 26. og
27. nóv. s. 1. Var fundurinn fjöl-
sóttur og voru þar rædd öll
helztu hagsmunamál héraðsins og
ítarlegar ályktanir gerðar. Fara
hér á eftir helztu ályktanir
fundarins.
HÚSNÆÐISMÁL
Fundur fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Árnessýslu
haldinn á Selfossi 27. nóv. 1954
heinir eindregið þeirri áskorun
til þings og stjórnar, að fundin
sé hið fyrsta fær leið til þess
að bæta úr lánsfjárskorti til
byggingu íbúðarhúsa í kaupstöð-
um og kauptúnum landsins.
LANDBÚNAÐARMÁL
, Fundur Sjálfstæðismanna hald-
irin á Selfossi 27. nóv. 1954, lítur
i svo á að höfuðskilyrði fyrir
irienningu, heilbrigði og efna-
hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar,
sé að í landinu þróist öflugur
landbúnaður, sem fær verði um
að veita verulegum hluta lands-
manna lífsmöguleika, til jafns
við aðrar stéttir og fær verði
um að fullnægja matvælaþörf
þjóðarinnar. Auk þess sem hann
verði veigamikill þáttur í út-
flutningsverzluninni.
í stórum dráttum leggum fund-
urinn aðaláherzlu á þessi fram-
tíðarmál:
1. Að landbúnaðurinn hafi að-
ganga að meira fjármagni en ver-
ið hefur, og lán til varanlegra
framkvæmda verði veitt til
lengri tíma en nú er gert.
2. Að tilraunastarfsemi í þágu
landbúnaðarins verði stóraukin,
og fræðsla í hagnýtri búnaðar-
þekkingu. elfd.
3. Að verðlagning landbúnað-
arafurða verði algjörlega í hönd-
um bænda.
4. Að rafvæðingu sveitanna
verði hraðað sem mest, og verð
á rafmagni frá rafveitum ríkis-
ins verði sama um land allt.
5. Að ákveðið og markvisst
verði unnið að rannsóknum og
útrýmingu búfjársjúkdóma. —
"Varnarlínur verði efldar og skor-
ar fundurinn á bændur og trún-
aðarmenn þeirra að standa vel á
verði á því sviði.
6. Að skógrækt verði stór auk-
in, með tilliti til nytjaskóga og
skjólbelta meðfram gróðurlönd-
um.
7. Að jarðræktarlögin verði
rækilega endurskoðuð og sér-
staklega athugað hvort ekki beri
að flokka jarðrækt eftir kostn-
aðarverði og gæðum, frekar en
uú er gert, og lán og styrkir
mismunandi eftir því. Engir
styrkir verði veittir á illa gerðar
og óvaranlegar framkvæmdir. .
8. Að bændur verði kvattir til
þess að gera jarðir sínar að
óðalseign.
HEILBRIGÐISMÁI.
Fundur Sjálfstæðismanna í
Árnessýslu haldinn að Selfossi
26. og 27. nóvember 1954 skorar
hér með á háttvirt Alþingi og rík-
isstjórn að veita nú þegar á
þessu þingi fjárveitingu til bygg-
ingar sjúkrahúss á Selfossi.
Fundurinn skorar ennfremur á
sýsluyfirvöld Árness- og Rangár-
vallasýslu og jafnframt alla
sýslubúa beggja sýslna, að hrinda
þessu máli í framkvæmd tafar-
faust á árinu 1955.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
Fundur sambands Sjálfstæðis-
félaganna í Árnessýsíu 26. og 27.
nóv. 1954, lýsir ánægju sinni yfir
framkomnu frumvarpi á Alþingi
um eflingu Fiskveiðasjóðs ís-
lands og beinir þeirri áskorun til
þingmanna kjördæmisins að
fylgja því fast eftir, að verstöðv-
arnar hér austan fjalls verði ekki
afskiptar um aukinn stuðning í
útgerðarmálum, í sambandi við
hið aukna fjármagn sjóðsins, og
Og verS'i
í úifl
ess v eicpamikill
bpv erzlanSnni
ennfremur að vinna áð því, að
meira framlag fáist úr ríkissjóði,
en nú er, til áframh ildándi hafri-
argerða í Þorláksiiöfh. Eiririíg
telur fundurinn nauðsynlégt að
ríkisstyrkur til lendingárbóta á
Stokkseyri og Eyrarbakka vérðí
aukinn að mun, til samrærríis við
þá miklu hækkun er orðið hefUr
á kostnaði við slík verk.
VERZLUNARMÁL
Fundurinn telur að frjáls verzl-
un sé eitt aðalundirstöðuatriði
fyrir góðri afkomu þjóðarinnar.
Má sjá af sögu íslands, að þá
fyrst fór þjóðin að rétta við,
er verzlunin var gefin frjáls og
því betur sem lengur leið og
hún varð að öllu leyti í höndúm
íslendinga sjálfra. Fundurinn er
samþykkur ályktun landsfundar
Sjálfstæðisflokksins 1953 i verzl-
unarmálum og leggur áherzlu á
þessi atriði:
1. Að öll verzlun verði frjáls
og haftalaus.
2. Að eðlilegt sé að einkaverzl-
un og samvinnuverzlun starfi
hlið við hlið í frjálsri sam-
keppni.
Leggur fundurinn því áherzlu
á, að Sjálfstæðisflokkurinn
stefni ótrauður að því, sem fyr,
að öll viðskiptamál þjóðarinnar
verði að öllu leyti frjáls og hafta-
laus.
IÐNAÐARMÁL
Fundur Sjálfstæðisfélaganna í
Árnessýslu telur að iðnaður sé
svo snar þáttur í afkomu þjóð-
arinnar, að hann e'igi að njóta
eigi lakari fyrirgreiðslu ríkis-
valdsins en aðrir atvinnuvégir
þjóðarinnar.
Fundurinn telur nauðsynlegt
að upp sé tekinn fyrirgreiðsla og
aðstoð með skipulagsbundnum
hætti iðnaðinum til handa. Má
þar til nefna aðstoð til iðnaðar-
málaskrifstofu fyrir allan iðnað
og iðju í landinu.
Fundurinn leggur áherzlu á
eftirfarandi:
1. Bankar og aðrar lánsfjár-
stofnanir reyni eftir fremsta
megni að leysa úr lánsfjárþörf
iðnaðarins. Álítur fundurinn sér-
staklega þýðingarmikið, að Iðn-
aðarbanka íslands h.f. verði séð
fyrir nægu rekstrarfé og að iðn-
aður njóti eigi lakari vaxtakjara
en aðrir atvinnuvegir'þjóðarinn-
ar, t. d. landbúnaður og sjávar-
útvegur.
2. NéyzluþÖrf landsmanna
verði fullnægt, sem mest með
frafnleiðslu innanlands til sparn-
aðar á gjaldeyri og aukinnar
fjölbreytni í atvinnulífi lands-
manna.
3. Jarðhiti, vatnsorka og aðrar
auðlindir landsins verði nýttar
eftir því, sem unnt er, m. a. til j
framleiðslu iðnvara til útflutn-,
ings. Þá vill fundurinn lýsa á-'
nægju sinni yfir þeim fram-
kvæmdum, sem hafnar eru fyrir
forgöngu Sjálfstæðisflokksins í
raforkumálunum, og telur þaf
spör í rétta átt til aukinnar stór- j
iðju í landinu.
4. Ekki séu send úr landi þau
verkefni, sem íslenzkir iðnaðar-
mer.n eru færir um að leysa. |
í því sambandi vill fundurinn
benda á að teknir verði til at-
hugunar möguleikar á fram-
leiðslu landbúnaðarvéla.
GRÓÐURHÚSAMÁL
Fundur Sjálfstæðismanna í
Árnessýslu á Selfossi, 27. nóv.
1954, beinir þeim tilmælum til
þings og stjórnar,
A. Að hafin verði nú þegar til-
rauna og leiðbeiningastarfsemi í
garðyrkju, og tekinn verði nokk-
ur hluti garðýrkjústöðvarinnar
að'Reykjum í Öífusi (Ga'rðyrkju-
skóla ríkisins) til tilraunastarf-
serrií og ráðinn verði sérstakur
tiífaúriástjófi og ætti þessi ráð-
stöfuri að'gera skólann enn full-
komriari, kennslustofnun.
B. Að skíþuð verði nú þegar
skólariefnd við Garðyrkjuskóla
ríkisiris skv. lögum nr. 91, 23i júni
1936.
C. Fundurinn álítur að garð-
yrkjari sé orðín það stór og þýð-
ingamikil atvinnugrein, að tíma-
bært sé að ráðlnri sé sésrtakur
réðunautur fyrir garðyrkjubænd-
ur, líkt og bændúr nú eru að-
njótandi.
D Að fulltrúi garðyi’kj ubænda-
félaganna verði framvegis með í
ráðum um rnál er varðar stétt-
ina.
E. Að lögum um nýbýli verði
breytt á þann veg, að garðyrkju-
bændur njóti sömu réttinda og
bændur, án tillits til landsstærð-
ar garðyrkjustöðvanna.
VÚRKALÝÐSMÁI,
,1. Sjálfstæðismenn í Árnes-
sýslu eru á hverjum tíma fúsir
til að vinna verkalýðsfélögunum
allt það gagn er þeir rriega.
2. Fundurinn leggur sérstaka
áhérzlu á, að sérhver vinnufær
maður geti haft atvinnu við arð-
bæran atvirinurekstur. M. a. tei-
ur fundurinn æskilegt, til aukn-
ingaf og jöfnunar atvinnu allt
árið, að iðnaður í héraðinu verði
stóraukirin. f því sambandi vill
fundurinn benda á að nú fer
mikið af óunnu hráefni úr hér-
sði, t. d. ull, húðír og skinn. Tel-
ur fundurinn nauðsyn bera til,
að þessar vörur o. fl. verði unn-
ar í héraðínu.
3. Þaf sem ríkissjóður veitir
fé til margskonar framkvæmda
i héraðinu, svo sem rafvirkjana,
brúargerða, vegagérða o. fl., tel-
ur fundurinn að utanhéraðsmenn
ættu alls ekki að vinna að slíku
meðan verkfærir menn í hérað-
inú eru atvinnulgusir. Ennfrem-
ur telur fundurinn nauðsyn til
bera, að uriguin héraðsmönnum
verði veitt svo rúm aðstaða til
iðnnáms, að ekki þurfi að sækja
iðrilærða verkamenn úr öðrum
héruðum framvegis.
4. Fundurinn telur kröfuna um
sömu laun karla og kvenna við
sömu vinnu, fullkomið réttlætis-
mál.
MENNTAMÁI,
Funduririn lýsir sig samþykk-
an stefnu menntamálaráðherra í
skólamálum og vítir harðlega
þær ómaklegu árásir, sem hann
hefír orðið fyrir. Jafnframt bend-
ir fundurinn á að nauðsyrilegt sé
að búa skólana betur að kennslu-
tækjum og bókum og beinir þvi
til fræðslumálastjórnarinnar, að
gera úrbætur í þessum efnum.
2. Fundurinn telur, að með
stofnun Menntaskólans að Laug-
arvatni hafi aðstaða ungs fólks
til framhaldsnáms batnað að
mun, ekki aðeins í héraðinu,
heldur einnig um land allt, og
væntir þess, að starfsskilyrði
skólans verði bætt svo fljótt, sem
unnt er, til þess að skólinn geti
sem bezt gegnt menningarhlut-
verki sínu.
3. Fundurinn lýsir ánægju sinni
yfir því, sem gert hefir verið í
Skálholti og er í meginatriðum
samþykkur því, sem þar er á-
formað að gera. Jafnframt legg-
ur fundurinn ríka áherzlu á, að
hann telur stofnun reglulegs
biskupsstóls í Skálholti nauð-
synlegasta og sjálfsagðasta þátt
í endurreisn staðarins.
4. Fundurinn telur að afskipti
hins opinbera og stjórn á Þing-
völlum hafi ekki borið þann
árarigur, sem vænta hefði mátt.
Þar sé auðnarlegt að koma, skóg-
ur í órækt, þinghelgin óvirt og
ekki sé aðhafst staðnum til
sæmdar og vegs. Hyggur fund-
urinn því, að endurskoða beri
skipan þessarra mála allra og
færa í horf, sem hæfir þjóð, sem
ann sögu sinni og arfi feðranna.
Bendir fundurinn og á, að hraða
þarf lagningu rafmagnslínu frá
Sogi til Þingvalla, því að án þess
mun ógerlegt að hefja staðinn,
sem verðugt er.
5. Fundurinn bendir á tvær
menningarstofnanir í héraði,
sýslubókasafn og byggðasafn. —
Telur hann alla nauðsyn á stuðn-
ingi almennings til þrifa og vaxt-
ar stofnunum þessum og væntir
þess, að opinberir ■ aðilar veiti
þeim brautargengi.
Fundurinn hvetur almenning
til að hirða um gamla muni og
láta þá byggðasafninu í té.
SAMGÖNGUMÁL
Fundur sjálfstæðismanna í
Árnessýslu, haldinn á Selfossi 26.
og 27. nóvember 1954 telur, að j
hverju héraði sé það höfuðnauð-!
syn, að samgöngur, bæði innan*
héraðs og til markaðsstaða, séu [
í sém beztú lagi, svo að atvinnú-
líf og menningarlíf megi dafna
og þroskast.
1. Eins og háttað er, hér í Árnes
sýslu, verða samgönguleiðirnar
ekki taldar vera í sæmilegu lagi.
Til dæmis má nefna að:
a) Lögin um Austurveg hafa
enn ekki verið látin koma til
framkvæmda.
b) Brúin á Hvítá hjá Iðu hefur
enn ekki verið fullgerð og ekk-
ert verið unnið að smíði hennar
í heilt ár.
c) Enn hefítr ekki verið lagður
vegur frá Þingvöllum um Laug-
arvatn og Geysi að Gullfossi og
þaðan að Brúarhlöðum og Tungu-
fljótsbrú hjá Vatnsleysu.
Allar þessar framkvæmdir eru
stórnauðsynlegar og skorar fund-
urinn á Alþingi og ríkisstjórn að
veita fé og nota lánsheimildir, I
sbr. Austurvegur, til þess að
hrinda þeim fram án frekari
tafar.
Ennfremur vill fundurinn
benda á, að viðhald veganna í
Árnessýslu hefur verið fádæma
lélegt að undanförnu. Til þess að
bæta um það, telur fundurinn
nauðsynlegt að veita nokkru
meira fé til þess, svo og að not-
aðar verði stærri og að mun
fleiri vinnuvélar (t. d. heflar) eu
hingað til hafa verið hér í notk-
un. Þá má minna á að æði oft
hefur það ráðið mestu um val
ofaníburðar hvort hann er nær-
tækur eða ekki, þótt leggja berí
fyrst og fremst. áherzlu á hversu
haldgott slitlag hann gefur veg-
inum. Væntir fundurinn þess að
meiri gaumur verði gefinn að
því framvegis en hingað til, svo
mikilvægt er þetta að dómi hans.
2. Vegna legu Árnessýslu verð-
ur ekki um miklar samgöngur
á sjó að ræða við sýsluna (strand
ferðir), en hins vegar telur fund-
urinn að sýslunni sé mikill á-
vinningur að því að fá út- og
innflutningshöfn á Þorlákshöfn
fyrir Suðurlandsundirlendið og
vill því lýsa yfir eindregnum
stuðningi við það verk, sem þar
er hafið.
3. Fundurinn lýsir ánægju
sinni yfir því, hvað áunnizt hefir
í símamálum í sýslunni s. 1. 2 ár,
en telur, að ekki megi staðar
nema fyrr eri sími er kominn inn
á hvert býli í sýslunni.
Fundurinn telur það mjög að-
kallandi, að neyðarþjónustu um
nætur verði komið upp við lands-
símann á Selfossi, bæði til að
svara læknisvitjanabeiðnum og
brunaliðskalli utan úr sveitinni.
4. Fundurinn telur nauðsynlegt
að athugaðir verði í hverri sveit
möguleikar á að gera flugbrautir
fyrir litlar flugvélar, er nota
mætti þegar slys eða bráða sjúk-
dóma ber að höndum og vegir
eru illfærir eða ófærir.
5. Fundurinn telur, að vegna
vaxandi ferðamannastraums um
Árnessýslu, beri brýna nauðsyn
til að bæta úr gistihúsaskorti hér-
aðsins og bæta um aðbúnað og
þjónustu alla, svo sem verða má,
svo að gistihúsin megi laða ferða-
menn til að heimsækja fagra og
sögufræga staði, svo sem Þing-
völl, Geysi, Haukadal, Gullfoss
og Skálholt.
Væntir fundurinn þess, að rík-
isvaldið beiti sér fyrir raunhæf-
um úrbótum á þessum málum.
/ hátíðamatirm:
Hangikjöt
svínakótelettur
svínasteik
hamflettar rjúpur
dilkasvið
hamborgarhryggur
rauðkál
rauðrófur
hvítkál
Vinsamlega pantið tímanlega.
^JJjötue rzltAW
^JJjalta oCý&óóontit'
Hofsvallagötu 16 (Verkamannabústöðunum).
Sími: 2373.