Morgunblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 11
Laugardagur 18. des. 1954 MORGUNBLAÐIÐ 27 „Hafið hugann dregur" UM síðustu helgi kom út ungl- ihgabók eftir Dóra Jónsson er riefnist „Hafið hugann dregur“. Dóri Jónsson hefur áður sent frá sér tvær unglingabækur: „Vaskir drengir“ og „Áslákur í ájögum“, er báðar náðu miklum vinsældum hjá unglingum. Hin nýja bók Dóra Jónssonar, „Hafið hugann dregur“, er í senn mjög athyglisverð og skemmti- leg bók. Efni bókarinnar er hið lokkandi haf, sem svo marga unga og hrausta drengi dreymir um að kynnast af eigin raun. Sagan segir frá æfintýri tveggja ungra pilta, sem leggja á hafið í sína fyrstu veiðiför, ánægju þeirra í starfinu og því gagni, sém unglingar hafa af því að kynnast sér eldri og reyndari mönnum til þess að læra af. Það er ekki að efa að „Hafið hugan dregur" verður mjög vin- sðel hjá ungum sem gömlum og hafi Dóri Jónsson mikla þökk fyrir þessa bók sína. Bókin er prýdd mjög smekklegum mynd- um, gerðum af Ásgeiri Júlíussyni teiknara. M.Á. • Trúarbrögii mannkyns Frh. af bls. 22. ingu og mikla þekkingu og sýni- lega aðdáun á trúarhugsun þeirra. Allt þetta gerir kaflann mjög lif- andi. Ekki má síður segja þetta um kaflann um Búddha og búddhadóm. Talsverður áhugi hef- ur verið fyrir i ndverskum bók- menntum á íslandi, út hafa komið nokkrar þýðingar á íslenzku og yfirleitt verið auðvelt að ná í þýð- ingar á nágrannamálunum. Trú- arbragðasagan er lykill að skiln- ingi á þeim. Jafnframt því að greina frá helztu trúaratriðum Indverja, béndir þessi kafli á tryggustu gögnin til að fræðast betur um hugsun Indverja. Kaflinn um Kínverja og Japana er afar fróðlegur, og virðist höf- uridur þar sem annars staðar halda vel á efni. Enginn trúarhöfundur hefur verið níddur eins mikið á Vestur- löndum eins og Múhamiried, um hann hafa gengið margar sögur, sem sýna grimmd hans og nautna- sýki. Á síðari árum hafa augu manna einnig opnazt fyrir já- kvæðu hliðum hans. Er þessi af- stöðubreyting ekki sízt að þakka rannsóknum Tor Andræ biskups, sem um eitt skeið var prófessor í trúarbragðasögu í Uppsölum. Styðst höfundur að nokkru leyti við rannsóknir hans og bendir á jákvæðu hliðarnar. Greint er frá trúfræð^ múhammedstrúarmanna á glöggan og skipulegan hátt. Súfstefnunnar er getið á bls. 339. Súfar eru meinlætamunkar, sem klæddust kuflum úr grófu vað- máli (súf), sem þeir draga nafnið af. Mest ber á þessari hreyfingu í Persíu á 11., 12. og 13. öld. Mörg súfísk skáld lýsa snilldar- lega trúarreynzlu sinni. Ég sakna kafla um trú for- feðra okkar, mikill skortur er á góðri^yfirlitsgrein um þá. Eins og ég hefi reynt að benda á með þessum línum, hefur höf- undur á mjög lofsverðan hátt fylgt vísindareglum. Ber bókin vott um mikla þekkingu höfundar og um góðan skilning á trúar- hugsun. Yfirleitt virðist mér aðal- atriða getið. Jafnframt því að vera handbók og leiðarvísir við rannsóknir trúarheimilda, er bók- in sjálf mjög vel skrifuð og er unun að lesa hana. Þessi bók á erindi til flestra, hún opnar nýjar leiðir. Uppsölum í desember 1954. Jón Sveinbjörnsson. KRISTALL Nýjar sendingar komnar. BORÐSILFUR Fallegt'og fjÖlbreytt. SILFURPLETT Ilinn eítirspurði norski „Vidar“-borðbúnaður. ÚR Nýjar sendingar voru að berast. tlðn Sipunílsson Skúri^ípoverzlun í dag og næstu 2—3 daga, kjóior með tækiiærisverði \Jerzl. ^JJjóttinm Þingholtsstræti 3 Arabahöfði^glsm o g Synir Arabahöfðingfans Þessar vinsælu og spennandi ástarsðgur fáát í fallegu bándi hiá bóksölum. — Tilvaldar gjaíabíékur. Aðrar bækur Sögusafnsins, sern hlotið hafa almennar vinsældir, eru: DÆTUR FRUMSKÓGARIN3, í ÖRLAGAFJÖTRUM, ÆTTARSKÖMM. Munið, að láta ekki neina af bókum' Sögusafnsiris varita í safnið. — Það verður með tímanum — gott og vinsælt búkasafn. — ÞETTA VERÐUR SKEMMTILEGASTA SKÁLDSAGAN Á JÓLAMARKAÐINUM í ÁR JÓLABÓKIN 1954 SYSTIR KEISARANS Þetta er sagan um Pálínu Bonaparte, systur Napóleons mikla Frakkakeisara, konuna fögru og vergjörnu, sem kunni bezt við sig í ys og þys samkvæmislífsins eins og það var fjörugast og ástriðufylist. Hún vafði karlmönn- nnum um fingnr sér, var tvígift, en hvorugum manni sínum trú, duttlungafull og hégómagjörn, en eigi að síð- ur gædd óvenjulegri skaphöfn. Ríkasti þátturinn í fari Páiínu var órofa tryggð hennar við Napóleon bróður sinn, sem hún rejmdist bezt allra systkinanna á örlagastundu, er hamingjudísin hafði snúið við honum baki. Ástralski ritliöfundurinn Harrlson Brent segir í bók þessari sögu Pálínu af sanngirni og skilningi, sér glögg- iega galla licnnar, dregur ekkert undan, en fjallar um leið af nærfærni um örlög þessarar ævintýralegu konu. „Systir keisarans“ hefur fengið ágæta dóma erlendis, enda bráðskemmtileg aflestrar. (sienzkir lesendur taka henni árelðaniega tveim höndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.