Morgunblaðið - 23.12.1954, Síða 12
28
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 23. des. 1954
ÓDÝRAR JÚLAGJAFIR
Fallegir borðdúkar nýkomnir, ~
Stærðir 80x80, verð kr. 29,70
Stærðir 90 x 90, verð kr. 34,40
Jóladúkar kr. 34,40 og 37,00
VEFNAÐ ARVORUDEILD
Tannlæknar segja að
HREINSIilM
TANNA
MEÐ
COLGATE
TANN-
KREMI
STOÐVl
BEZT
TANN-
SKEMMDIR!
Hin virka COLGATE-froða rer um allar tann-
holur — hreinsar matarörður, gefui ferskt bragð
í munninn og varnar tannskemmdum.
HELDUR TONNUNUM MJALLHVITUM
GEFUR FERSKT MUNNBRAGÐ
Fordæma kúgun
AMSTERDAM 21. des. — Alþjóða
ráðstefna Jafnaðarmanna er hald
in hér í borg. Þar var samþykkt
í dag, ályktun þar sem fordæmd-
ar eru ofsóknaraðgerðir tékk-
neskra kommúnista gegn sósíal-
istum Tékkóslóvakíu Voru birtar
á þinginu ýtarlegar upplýsingar
sem sýna að sósíalistar verða að
þola miklar þrengingar í Tékkó-
slóvakiu, pyntingar og dauða.
vegna þess eins að þeir vilja
stefna að lýðræðislegum stjórn-
arháttum. — Reuter.
Bók um Reykvíkinga fyrri tíma
Jón Helgason: ÞEIR, SEM
SETTU SVIP Á BÆINN —
Bókfellsútgáfa.
ÞAÐ ER löngu alkunna, að dr.
Jón Helgason biskup var
einhver margfróðasti maður, um
sögu Reykjavíkur, ritaði margt
um sögu bæjarins og dró upp
myndir af bænum og einstök-
um bæjarhlutum og húsum.
Væri öll þessi saga stórum fá-
tæklegri ef hann hefði ekki unn-
ið þetta verk.
En hér er bók, sem má heita
alveg einstæð. Hún er rabb, sem
Lofsamleg ummæli danskra
blaða um ísl. píanéleikara
UNG íslenzk listakona, Guðrún
Kristinsdóttir frá Akureyri,hef-
ur nýlega getið sér góðan orðstír
í Kaupmannahöfn. Hefur Guðrún
undanfarið stundað nám í píanó-
leik í Kaupmannahöfn, og lauk
námi við Tónlistaháskólar.n þar
um síðustu mánaðamót. Fara
Guðrún Kristinsdóttir.
dönsk blöð mjög lofsamlegum
orðum um leik hennar. Fara hér
á eftir lauslega þýdd ummæli
nokkurra þeirra.
Berlinska Tidende „.... Kon-
unglegi TónlLstarháskólinn
kynnti í gær óvenju efnilegan
nemanda sinn á nemandatónleik-
um í hljómlistasal skólans. Það
var Guðrún Kristinsdóttir frá
Islandi, sem hefur dvalizt hér í
Kaupmannahöfn og stundað
píanóleik í nokkur ár. Hún fékk
sannarlega tækifæri til þess að
sýna hvað í henni býr, verkin
voru valin þannig, en það duldist
engum er á leik hennar hlýddu,
að hún er búin sérstaklega góð-
um hæfileikum á sviði tónlistar-
innar.“
Poletiken: ..... Maður hafði
það alls ekki á tilfinningunni að
þetta væri í fyrsta skipti sem
Guðrún Kristinsdóttir kæmi
fram. Tækni hennar, vald yfir
hljóðfærinu og öryggi í fram-
komu var svo mikið. Hún lék
verk eftir Bach, Mozart og Beet-
hoven af þvílíkri snilld, að manni
flaug í hug að ekki væri hægt að
framleiða fleiri og fegurri tóna
úr einu hljóðfæri.“
Social-Demokraten „. . . . Guð-
rún Kristinsdóttir er án efa
óvenju góðum hæfileikum búin
á sviði tónlistarinnar. Það hlýtur
öllum að vera ljóst er hlvddu á
leik hennar í gærkveldi. Hér er
áreiðanlega á ferðinni píanósnill-
ingur sem á eftir að gera ógleym-
anlega hluti á því sviði í fram-
tíðinni."
Land og Folk: „.... Það varð
mörgum mikil gleði og jafnframt
undrunarefni að hlýða á píanó-
leik íslenzku listakonunnar Guð-
rúnar Kristinsdóttur í gær í
hljómleikasal Konunglega Tón-
listaskólans. Hún hefur tekið list
sína mjög föstum tökum og er
píanósnillingur af guðs náð. Svo
ósvikið og voldugt lék hún verk
Beethovens, að það var stór stund
fyrir þá er á hlýddu."
Van Fleef vill ekki
sfyðja McCharty
WASHINGTON — Fyrrverandi
yfirhershöfðingi bandarísku herj-
anna í Kóreu, James van Fleet.
lét svo ummælt nýlega, að hann
hefði misst alla virðingu fyrir
McCarthy eftir hina ofsafengnu
árás hans á Eisenhower forseta.
í símskeyti, er van Fleet sendi
McCarthy, segir m. a., að hann
hafi getað réttlætt baráttu öld-
ungaþingmannsins gegn alþjóða
kommúnismanum, þó að hann
hafi aldrei verið samþykkur þeim
aðferðum, er McCarthy beitti. En
eftir árásina á Eisenhower vill
van Fleet á engan hátt styðja
McCarthy. *
BEZT AÐ AUGLÍSA
I MORGVTSBLAÐim
Veglegasta jólagjöfin:
Öldin okkar I.—II.
Hið merka og margeftirspurða rit, ÖLDIN OKKAR I.—II., samtíðarsaga í fréttaformi, prýdd mörg hundruð
myndum, fæst nú aftur. Hér er þó aðeins um mjög takmarkaðan eintakafjölda að ræða, og áður en varir verð-
ur þetta stórfróðlega rit ófáanlegt aftur, eins og það hefur verið undanfarin ár.
Öldina okkar má ekki vanta i bókaskápinn
á neinu íslsnzku beimili
Iðunnarútgáfan
Skólavörðustíg 17. — Sími 2923.
höfundur hennar flutti í útvarp,
en jók svo nokkuð, er til greina
kom að gefa þessi erindi út í
bók. Hún fjallar um fólk það,.
sem var í blóma aldurs á árun-
um 1870—80 þegar höfundurinn,
sem er fæddur 1866, gekk hér
um og þekkti hvert mannsbarn,
því að þá var bærinn ekki stærri
en svo, að það gerðu þau ung-
menni, sem mikið voru á ferð.
Skiptir hann bókinni í 6 kafla:
Embættismenn iðnaðarmenn,
kaupmenn, tómthúsmenn, náms-
menn og húsmæður. Auk þess
eru inngangsorð og nafnaregist-
ur.
Hér er áreiðanlega saman kom-
inn fróðleikur, sem hvergi er til
annarsstaðar, ekki sízt um þær
stéttir ,sem annars fara fæstar
sögur af. En jafnvel um þá, sem
eru svo frægir að komast í eitt-
hvert „tal“, eins og t. d. em-
bættismennimir, er hér ýmisleg-
an skemmtilegan fróðleik að
sækja. Höfundurinn er ekkert
spar á að segja um þá sitt af
hverju, og er þó velvild jafnan
í fyrirrúmi.
í engri af bókum Jóns Helga-
sonar heyri ég málróm hans eins
vel og í þessari. Hann hefir auð-
sjáanlega hripað hana niður al-
veg eins og í hugann kom. Þetta
gerir stíl bókarinnar svo ein-
kennilega hnökróttan, m. a. er
allt fullt af svigum og jafnvel
svigum innan í svigum, og setn-
ingarnar oft og einatt svo
skemmtilega ófágaðar, að það er
eins og efnið sé lagt beint á
borðið, ósniðið og ósnikkað. í
öllum „formalisma“ nútímans er
þetta hressandi frávik. Það er
rétt eins og 4—14 ára pilturinn
komi óðamála inn til okkar og
segi okkur fréttir.
Bókin er prýdd hundruðum
mynda, mikil skrautútgáfa, sér-
staklega eiguleg og skemmtileg.
Magnús Jónsson.
Myndabökin a!
safnmyndum Einars
Jónssonar
ÞESSI mikla listprentaða mynda-
bók er nú komin á bókamarkað-
inn. Er hún gefin út af KE’s bok-
förlag í Stokkhólmi og prentuð
hjá Nordisk Rotogravyr í sömu
borg. En það er talið fullkomn-
asta listprent sinnar tegundar á
Norðixrlöndum. Ber og bókin öll
merki þess hversu vel hefur ver-
ið til hennar vandað. í henni eru
öll þau höggmyndaverk, sem
Listasafn E. J. hefur að geyma,
nema myndir, sem gerðar voru
eftir pöntun og höf. ekki taldi
sjálfstæð verk. Myndir eru bar
einnig af safnhúsinu að utan og
innan og litmyndir af málverk-
um.
Umsjón með útgáfunni höfðu
þeir Benedikt Gröndal ritstjóri
og Ch. G. Behrems af hálfu hins
sænska forlags. — Vigfús Sigur-
geirsson tók flestar ljósmyndirn-
ar. Þess var gætt að formálinn
væri ritaður í samræmi við lista-
stefnu og skoðanir próf. Einars
Jónssonar sjálfs.
Aðal söluumboð bókarinnar
hefur Bókaútgáfan „Norðri" í
húsi SÍS. Með því að verkið
hlaut að ,verða óvenju hátt (kr.
670) vegna hins mikla tilkostn-
aðar, óttuðust sumir að sala bók-
arinnar yrði treg. En raunin er
þegar orðin önnur. Bókin rennur
út. Enda hægt að fá afborgunar-
kjör hjá aðalumboðinu.
H. J.
Kalkúnhænsn hækka í verði.
LONDON — Kalkúnhænsn munu
verða dýrari um þessi jól í Bret-
landi heldur en þau síðustu. Er
það vegna þess að þau munu
ekki verða flutt inn frá Ung-
verjalandi, Póllandi og Tékkó-
slóvakíu vegna fuglapestar, sem
þar er. ,