Tíminn - 12.05.1965, Qupperneq 2

Tíminn - 12.05.1965, Qupperneq 2
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 12. maí 1965 Þriðjudagur, 11. maf NTB-Osló — Helga Sivertsen, menntamálaráðherra Noregs, yar í dag spurður um álit hans i handritamálinu, og sagði tiann að hér væri um mjög þýðingarmikið mál fyrir ís- lendínga að ræða. Hann sagðist telja fullvíst, að þegar mál þetta væri endanlega afgreitt, myndi öll norska þjóðin óska íslendingum til hamingju. NTB-Torino, — Tveir sex ára gamlir síamskir tvíburar léku sér með dúkku og stóra gula plastönd í súrefnistjaldi á sjúkrahúsi einu í Torino í dag, glaðir og ánægðir eftir að hafa verið skildir að með fimm klukkustunda langri aðgerð. 14 læknar tóku þátt í aðgerð- inni. NTB-Moskvu. — Tunglflaugin „Luna 5“ mun komast í ná- lægð tunglsins á morgun, mið víkudag en tunglflaugin á m.a. að fara umhverfis tunglið og taká myndir. Ekki hefur enn verið tilkynnt i Moskvu hvort Luna 5 á að lenda á tunglinu, né heldur, ef svo væri. hvort hún eigi að lenda „mjúkri lend- ingu“ — þ.e. að lenda á tungl inu án þess að eyðileggjast NTB-Moskvu. —Bandarískum sendiráðsstarfsmanni var vísað úr iandi í Sovétrfkjunum. Var hann ákærður fyrir að hafa komið óvinsamlega fram við afríkanska stúdenta þar. Sendi rí*Cct '-maðurinn Norris D. Gamett, sem er blökkumaður, fer frá Moskvu í lok þessarar viku. Bandaríkin hafa mótmælt ásökunum þeim, sem á Norris em bornar. NTB-Haag. — Landbúnaðarráð herra Hollands, Ba'hrend Bish- auvel, sagði í ræðu í dag, að Holland myndi bjóða Dan- mörku velkomna i Efnahags- bandalag Evrópu ef danskír ráðamenn myndu gera ráðstaf anir til þess að ganga í banda lagið. NTB-London. — Áreiðanlegar heimildir segja, að Bandaríkin Bretland og Frakkland hafi náð samkomulagi um sameigin Iega yfirlýsingu um sameiningu Þýzkalands, og er talið, að yfir- lýsingin verði birt á morgun miðvikudag. NTB-Sagion. — Fregnir í Sai gon í kvöld herma að herlið Suður-Víetnam væri á góðri leið með að ná aftur yfirráðum yfir bænum Song He og flug vellinum fyrir utan bæinn, sem er 100 km. norð-austur af Sai gon, eftir heiftarlega bardaga við Viet Gong- hermenn. 20 menn úr liði Suður-Víetnam hafa fallið, þar af 5 Banda ríkjamenn, en 50 særzt. USA gegn Uruguay í öryggisráði S.Þ. NTB-New York, þriðjudag. • Bandaríkin vísuðu í dag á bug fillögu frá Uruguay í sam- bandi við Dominikanska lýðveldið á fundi Öryggisráðs Sam- einuðu Þjóðanna. Var umræðum um málið frestað til fimmtu- dags. • í kvöld var enn óljóst, hvort Elias Wessin Y Wessin hershöfðingi hafði sagt af sér sem einn þeirra fimm hers- höfðingja, sem myndað hafa „ríkisstjórn" í lýðveldinu undir stjórn Barrera hershöfðingja. Eru fréttir um þetta atriði mjög ósamhljóða. • Philip Noel-Baker, sem fengið hefur friðarverðlaun Nóbels, hélt ræðu í neðri deild brezka þingsins í dag, og sagði, að Bandaríkin virtust hafa brotið sáttmála Sameinuðu þjóðanna með því að senda herlið til þess að aðstoða „fas- istíska herforingjastjórn" í Santo Domingo, og væri þetta mál áhyggjuefni þeirra, sem væru ákafastir í að elga góða samvinnu við USA. f tillögu Uruguay, sem Banda- ríkin hafa fyrir sitt leyti vísað á bug, er lagt til að Öryggisráðið samþykki eftirfarandi atriði: 4. U Thant, framkvæmdastjóri SÞ, verði beðinn um að fylgjast nákvæmlega með þróuninni í lýð- veldinu og gera nauðsynlegar ráð- stafanir. 5. OAS, Samtök Ameríkuríkja, verði beðin um að gefa Öryggisráð inu allar nauðsynlegar upplýsingar um starfsemi sína í Dóminikanska lýðveldinu. 6. OAS verði boðið að hafa sam- vinnu við U Thant í máli þessu. Ætluðu sænskir nazistar að steypa NTB—Stokkhólmi, þriðjudag. Sænska öryggislögreglan hafði í dag hendur í hári leynilegrar nazistahreyfingar, sem líklega hafði það takmark að steypa sænsku stjóminni frá völdum. í aðalstöðvum hreyfingarinnar fundust vopnabirgðir og ýmis skjöl, m.a. listi yfir um 100 meðlimi hreyfingarinnar. Leiðtogi hreyfingarinnar, hinn þrítugi Björa Lundahl, var handtekinn í dag, og fjórir aðr- ir menn nokkru síðar .Era þeir grunaðir um landráð. Stórgjafir til kirkju Óháða safnaiarins Sinfónía á Litla sviðinu í kvöld GB—Reykjavík, þriðjudag Aukatónleikar Sinfóníuhljóm- syeitar íslands verða haldnir á miðvikudágskvöld ög sú hýbreytni vypp tekin, að tónleikarnír fara fram á Litlá sviðiriú í Lindá’rb'æ,’ og verkefni valin fyrir litla hljóm sveit eða hljóðfæraflokka. Stjórn andi verður Igor Buketoff, en einleikari Averil Williams í fyrsta , verkinu á skránni, svítu nr.l. í h-moll eftir Bach, sem samin var fyrir flautu og strengi. Þá verða tvö nútímaverk kynnt hér, fimm dansar eftir gríska tónskáldið Nicos Skalkotas, og flytur strengja sveit það verk, en hins vegar flytur blásarasveit næsta verk, sem eru lög úr óperunni „Góði dátinn Svæk“ eftir tékknesk- ameríska tónskáldið Robert Kurka. Bæði þessi tónskáld létust fyrir nokkrum árum á bezta aldri. Tónleikunum lýkur með sinfóníu nr. 29 í A-dúr K. 201 eftir Mozart, er hann samdi í Salzburg 18 ára og er talin meðal yndis- legustu verka hans. 1. Öryggisráðið láti í ljósi á- hyggjur sínar vegna atburðanna í Dominikanska lýðveldinu. 2. Dominikanska þjóðin hafi^ rétt til sjálfsákvörðunar án þrýst-j ings frá öðrum ríkjum. 3. Deiluaðilar í Dominikanska j lýðveldinu hætti átökunum þar og leiti friðsamlegrar, lýðræðislegrar lausnar deilunnar. 2 landsleikif-við Daiii IpBb 6 i ti6ll 8b ihyl Mfirij’p f-el «ttí ar Aðils-Khöfn, þriðjudag. Formaður Handknattleikssam bands íslands hefur, að sögn danska blaðsins Politiken, nýlokið nokkurra daga heimsókn i Kaup mannahöfn, og óskaði hann þar eftir því, að fá danska landsliðið hingað tíl lands tvívegis á næsta ári. Hafa Danir fallizt á þetta. Fyrst mun danska landsliðið koma hingað til lands i sambandi við vígslu íþróttahallarinnar í Laugardal 4. janúar 1966, og síð an aftur í nóvember sama ár. Danir telja síðari keppnina mjög heppilega, þar sem loka- keppni heimsmeistarakeppninnar verður í janúar árið eftir, 1967, i Svíþjóð. Nýverið afhenti prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík, séra Emil Björnsson, safnaðarstjórn- inni að gjöf .til kirkju safnaðarins kr. 88.000 — (88. þúsund krón ur) frá safnaðarkonu, sem ekkí vill láta nafns síns getið. Minnt- ist hann þess jafnframt að á liðn um vetri hefði kirkjunni borizt önnur stórgjöf, eða um 80 þús. krónur, sem varið var til fram- kvæmda við kírkjubygginguna. Sú gjöf var einnig frá safnaðarkonu, serri'-ebki vildi láta nafns síns get ið- að svo stöddu. Presturinn kvað nú rnega skýfa frá því að þá gjöf hefði Guðrún Þorgeirsdóttir Grett isgötu 60 gefið kirkjunni en Guð- rún er nú nýlátin. Hún var gjald keri í Kvenfélagi Óháða safnaðar ins í mörg ár, en það félag hefir jafnan unnið að óvenjulegum dugn aði og fórnfýsi að fjáröflun til að byggja kirkju safnaðarins og búa hana sem veglegast á allan hátt eíns og raun ber vitni. Geta má þess í því sambandi að Kven félag Óháða safnaðarins hefir baz ar í safnaðarheimilinu Kirkjubæ á sunnudaginn kemur, (16.maí) til ágóða fyrir starfsemi sína fyrir kirkjuna. Yfirgáfu Arlis i gærmorgun MB—Reykjavík, þriðjudag. Klukkan 7 í morgun fór síðasti maður af Arlis II um borð i is- 30. sýning Virginíu Woolf f kvöld verður leikritið „Hver er hræd~«r við Virginiu Woolf? sýnt í 30. sinn í Þjóðleikhúsinu. Aðsókn hefur verið mjög góð á i þennan leik og hafa allir er tóku | þátt í þessari sýningu hlotið mjög i góða dóma fyrir frammistöðu sína. Nú hefur verið ákveðið að; senda þessa sýningu út á land í i sumar og verður leikurinn sýndur í öllum helztu samkomuhúsum landsins Leikurinn verður aðeins sýndur þrisvar sinnum enn í Þjóðleikhúsinu. brjótinn Edisto. Var það Johnston leiðangursstjóri, einn þeirra, sem stofnuðu þessa fljótandi rannsókn arstöð 23. maí árið 1961. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að flytja tæki og út- búnað leiðangursmanna um borð í ísbrjótinn Edisto. Leiðangurs- menn hefðu getað verið lengur á jakanum, en Edisto þarf að sinna áríðandi verkefnum annars staðar og því er ekki um annað að ræða en flytja leiðangursmenn á brott nú. Við flutningana um borð hafa verið notaðir traktorar með sleð- um aftan í, og svo þyrla frá ís- brjótnum og hefur hún farið 20 ferðir í flutnirigurium Alls hafa verið flutt tæplega 30 tonn um borð í Edisto. Þegar leiðangursmenn yfirgáfu bækistöð sína var hún á 66 gráð- um og 38 mínútum norðlægrar Framhald á bls. 14 Æskuvlnurinn (Gestur Pálsson og „Sú gamla" (Regína Þórðardóttir. Frumsýning L.R. á föstudag: „Sú gamla kemur í heimsókif GB—Reykjavík, þriðjudag. Níunda og síðasta verkefni Leik félags Reykjavíku) á þessu leikári verður fyrsta leikritið. sem aftaflf Friedrich Diirrenmatt heimsfrægð- ar, „Sú gamla kemur í heimsókn“ og fer frumsýning hér fram í Iðnó n. k. föstudagskvöld undir stjórn Helga Skúlasonar, en Þýð- ing er eftir Halldór Stefánsson. sem og þýddi „Eðlisfræðingana“ er L.R sýndi fyrir nokkram miss irum. Aðalhlutverkið i þessu teikriti eins og hinu fyrra leikur Regína Þórðardóttir. sem sé „þá gömlu“ sem kemur í heimsókn til fæðing arborgar sinnar. Æskuvin hennar ar leikur Gestur Pálsson, Harald- ur Björnsson borgarstjórann og Guðmundur Pálsson kennarann. En alls koma fram á sviðið yfir þrjátíu leikendur. Æfingar hafa staðið lengi yfir, nærri tíu vikur. En L.R. hefur lengi haft í bígerð að flytja þetta leikrit, sem fyrst var sýnt fyrir nærri tíu árum og síðan farið sigurför um fjölmörg lönd Leikmyndir fyrir þessa sýn ingu hefur gert Magnús Pálsson. sem áður starfaði hjá L.R L.R. hefur á prjónunum að fara leikför út um land að loknu leik- ári í iðnó. og getur svo farið. að það flytji tvö leikrit úti á lands- byggðinni í sumar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.