Morgunblaðið - 04.01.1956, Side 1
16 síður
4o. árgangnr
2, tbl. — Miðvikudagur 4. janúar 1956
Prentsmiðja Morgunblaösins
veasmenn stöðva
ann
HöfnuSu Hlmælum ríkissljórnar um fresfun
BÁTAÚTVEGSMENN hafa nú stöðvað bátaflotann. Endanleg
ákvörðun um þetta var tekin á fundi stjómar og verðlags
ráðs L.Í.Ú. í gær, þar sem útvegsmenn höfnuðu tilmælum ríkis-
stjórnarinnar um að fresta útvegsstöðvuninni.
Um þetta barst blaðinu í gær eftirfarandi tilkynning frá ríkis-
stjórninni:
ÓSKAÐ EFTIR FRESTUN
Á STÖÐVUN
úndanfarna mánuði hefur
rlkisstjórnin ásamt ráðunautum
sínum unnið að því að greiða
fram úr vandamálum sjávarút-
vegsins. Þar sem ekki hafði
náðst samkomulag við Lands-
samband íslenzkra útvegsmanna
þann 30. f. m. um lausn þessa
máls, ritaði forsætisráðherra
Landssambandinu bréf svohljóð-
andi:
„Ráðuneytið skírskotar til
viðræðna milii fulltrúa rik-
isstjórnarinnar og fulltrúa
Landssambanðs íslenzkra út-
vegsmanna um starfsgrund-
völi bátaflotans á næsta ári.
Mál þetta er það umfangs-
mikið að fyrirsjáanlegt er að
ekki mun takast að ráða því
tíl lykta fyrir áramót, en inn-
flutningsréttindi bátaútvegs-
manna ná aðeins til fiskaf-
urða, sem afiað hefir verið á
þessu ári.
Til þess að útgerð geti haf-
izt með eðlilegum hætti í ver-
tíðarbyrjun í næsta mánuði,
hefir ríkisstjórnin ákveðið að
framlengja innflutningsrétt-
indin fyrst um sinn til janúar-
loka óbreytt frá því sem nú
er og þá jafnframt samþykkja
að núverandi áiag á B-skír-
teini haldist.
O—®—O
Ríkisstjórnin mun leggja á
það höfuðáherzlu að samn-
ingar takist við Landssam-
band íslenzkra útvegsmanna
um viðunandi starfsgrund-
vöil bátaflotans svo snemma
í janúar sem auðið er.
í þessu sambandi vill rikis-
stjórnin taka það fram að
framangreint fyrirheit um
framlenging innflutningsrétt-
indanna er bundið því skil-
yrði að Landssamband ís-
lenzkra útvegsmanna ieggi
til við félagsmenn sína að
róðrar hefjist á venjulegum
tíma“.
Næsta dag, þann 31. f. m.,
barst forsætisráðherra svarbréf
frá Landssambandi íslenzkra út-
vegsmanna svohljóðandi:
„Vér höfum móttekið heiðrað
bréf hæstvirtrar ríkisstjórnar
dagsett 30. des. 1955 og samþykkt
að leggja það fyrir fulltrúaráðs-
fund L. í. Ú. til úrskurðar og
verður sá fundur haldinn 3. jan.
næstk.
Á fundi stjórnar og Verð-
lagsráðs L.Í.Ú. í dag kom fram
einróma álit um það, að æski-
legt væri að halda bátagjaid-
eyriskerfinu áfram, hins veg-
ar var framkomin tillaga rík-
isstjómar ekki talin fela í sér
þær hagsbætur, sem nauðsyn-
legar væru til þess að útvegs-
menn gætu hafið róðra á
komandi ári.“
Selwyn Lloyd nýtur
trausts í ráðherrastóli
ÞAÐ ER SAGT, að hinn nýi utanríkisráðherra Breta, Selwyn
Lloyd, sé dæmigerður fyrir hina yngri þingmenn íhaldsflokks-
3ns. Hann hlaut hið stjórnmálalega uppeldi sitt í stjórnartíð Verka-
mannaflokksins og tekur nú sæti þeirra í fylkingaíbrjósti and-
stæðinganna.
ÚNGUR AÐ ÁRUM
Innan skamms mun Selwyn
Lloyd fara til Bandaríkjanna ef
til vill í fylgd með sjálfum for-
rætisráðherranum, sem áður og
jjyrr hafði allan veg og vanda af j
stjórn utanríkismála Breta. Það
er samt álitið, að Lloyd sé ein-
beittur og ákveðinn í stöðu sinni
og sé einráður í utanríkismálun-
um að svo miklu leyti sem hægt
er.
Hann er nú 51 árs — og yngsti
maður, sem sezt hefur í sæti utan
ríkisráðherra, síðan Anthony
Eden tók við því embætti árið
1935 — þá aðeins 38 ára að aldri.
GLÆSILEGUR FERILL
Selwyn Lloyd á að baki sér
mjög merkan og sérstæðan stjórn
málalegan feril, og á starfssviði
hans hafa verið mörg og ólík mál-
efni — allt frá útsvarpsstöðvum
til tryggingarfélaga. Hann er til-
þrifamikill og skemmtilegur
Gaitskill
deiiir á
Eden
LONDON, 3. jan.
FYRSTU átökin milli hins ný-
kjörna leiðtoga brezka verka
mannaflokksins, Hugh Gaitskills
og Sir Anthony Edens, forsætis-
ráðherra Bretlands, fóru fram í
gærkveldi. Hugh Gaitskill gekk
á fund forsætisráðherrans í
Downing Street 10 og krafðist
upplýsinga um vopnaflutninga
til nærliggjandi Austurlanda. —
Einkum vekja deilur flutningur
á 180 brezkum skriðörekum til
Egyptalands. Bretar höfðu selt
Belgum þessa skriðdreka sem
„afgangsvöru" frá stríðsárunum,
en Belgir höfðu gert við þá
skriðdreka að nýju og selt
Egyptum.
Brezka stjórnin þykir standa
höllum fæti í þessu máli.
Brezki verkamannaflokkurinn
hefir gert kröfu til þess að þing
verði kallað saman þegar í stað
út af þessu máli, en Sir Anthony
Eden hefir neitað að verða við
þeirri kröfu.
Brezka þingið kemur saman
21. þ. m.
Tilkynnt var frá Downing
Street 10 í kvöld að gefin myndi
verða út „hvít bók“ um vopna-
söluna til ísraels og Egypta-
lands.
Kemmónistor
iagna
LONDON 3. janúar: — Fylgis-
aukning kommúnista í Frakk-
landi vekur nokkrar áhyggjur í
höfuðborgum vestrænna þjóða.
Kommúnistar bæði í austur
Evrópu og vestur Evrópu fagna
sigrinum mjög.
Stjórnmálamenn í London láta
í Ijós mikil vonbrigði yfir því að
miðflokkunum tókst ekki að fá
nægilegt fylgi til þess að mynda
stjórn. — Reuter.
Lögreglan þari að
iala yið $9-70
• MENDES FRANCE
HLAUT EKKI MEIRI-
HLUTA AÐSTÖÐU
LONDON, 3. jan.
REUTERSFREGN frá París herinir að Frakkland eigi fyr-
ir höndum stjórnmálakreppu, sem stofnað geti í voða
lýðræðiskerfi Fralvklands. í kosningunum, sem fóru frant
í gær, hlaut engin samsteypa stjórnmálaflokka meiriWuta.
Litlir möguleikar eru á því að hægt verði að mynda meiri-
hlutastjóm.
Flokkasamsteypa Edgars Faures, forsætisráðherra, sem
er studd af hægri mönnum, hlaut um það bil fjórðung at-
kvæða, eða 190 þingsæti. Kommúnistar, sem höfðu áður 96
þingmenn, hlutu nú 150 þingsæti.
Þótt kommúnistar hafi aukið þingmannatölu sína, bættu þeir
ekki við sig atkvæðum. Þeir eru nú stærsti flokkur á þingi Frakk-
lands.
í Reutersfregninni segir, að möguleikar fyrir því, að örugg
stjóm verði stofnuð í Frakklandi, hafi orðið mun minni við þess-
ar kosningar.
Fiokkarnir lengst til hægri og vinstri tóku mikið fylgi trá mið-
flokkunum. Deilan milli Mendes France, úr radikalaflokknum,
sem gerði bandalag við jafnaðarmenn, og Edgar Faures, forsætis-
ráðherra, úr sama flokki, sem gerði bandalag við hægri menn, mun
valda miklum örðugleikum um stjórnarmyndun í Frakklandi, að
því er segir í fregn frá Reuter.
■ Kommúnistar jóku mjög þing-
j mannatölu sína, en atkvæða-
aukning þeirra var lítil.
I „Maðurinn utan v:ð kosning-
Antoine Pinay er talinn munu
reyna stjórnarmyndun í Frakk-
landi.
Selwyn Lioyd
ræðumaður, hvort sem hann ræð-
ir um utanríkismál í þinginu, eða
Framh. á bls. 12
EINS og kunnugt er af fregnum
varð hinn mesti fjöldi bíla-
árekstra dagana fyrir jól og einn-
ig milli jóla og nýárs.
í gær skýrði rannsóknarlög-
reglan blaðinu frá því að hún liti
á það alvarlegum augum, að
bíleigendur og ökumenn, sem í
þessum árekstrum hafa lent,
hafa ekki komið til þess að gefa
skýrslur, þrátt fyrir boðun um
það frá embættinu. Eru nú milli
5—70 menn sem þannig hafa ekki
gert grein fyrir máli sínu hjá
rannsóknarlögreglunni. ViU hún
biðja þessa menn að koma til við-
tals hið fyrsta, svo hægt sé að
t ljúka málum þeirra.
tvær milljónir atkvæða. Flokka-
samsteypa Mendes France jók
fylgi sitt lítilsháttar og er það
skilið á þann hátt, að óánægja
sé nokkur með stjórn Faures. Er
litið svo á, að óánægjan með
stjórn Faures hafi ráðið mestu
um það, að flokkaarnir lengst til
hægri og vinstri gátu aukið fylgi
sitt.
Fréttaritari Reuters telur, að
'j úrslit kosninganna hafi í för með
*sér að mikil vandræði séu fram-
undan i stjórnmálum Frakklands.
Einkum valda deilur þeirra
Faures og Mendes France vand-
■3*^ðum.
Þótt kosningasamsteypa Men-
des France hafi aukið fylgi sitt,
er talið líklegast að Rene Coty,
forseti Frakklands muni kalla á
Antoine Pinay, og oiðja hann
að gera tilraun til þess að mynda
nýja stjórn Pinay er íhaldsmað-
ur og hefir gegnt stórfum utan-
ríkisráðherra undanfarið.
Samkvæmt síðustu fregnum
hljóta á hinu nýkjörna þkigi kom
múnistar 151 þingsæti, jafnaðar-
menn 93 þingsæti, sósíalradikalar
(Mendes Francs) 53 þingmenn,
minni hlutinn úr sósíalradikala-
flokknum (flokkur Faures) 13
þingmenn, M R.P. (Uokkur Bid-
| aults) 68 þingmenn og hægri
menn 96 þingmenn Gaullistar
hlutu að þessu sinni 61 fulltrúa.
FYRRA ÞING
Þingsæti á bingi Frakklands
voru áður, eins og hér segir:
Sósíalistar 105 sæti
Edgar Faure forsætisráðherra
Frakklands tapaði fyigi i kosn-
ingunum.
arnar“ Poujade, sem safnað hef-
ur fylgi á því: að vera andvígur
skattakerfi landsins, hlaut 50
þingmenn, en hafði engan áður.
Hins vegar tapaði flokkur de
Gaulles mjög fylgi, og er nú raun
verulega áhrifalaus á þingi. De
Gaulle tók ekki virkan þátt í
kosningunum.
Poujade hreyfingin hlaut yfir
Kommúnistar
M.R.P
R.P.F. (Gaullistar)
Radikalir (M.Francei
Óháðir radikalir
Óhéðir bændafl. (Pinay) 47
Action Rep et Sociale 32
Union Dem. et. Soc. de
Resistance
Óháðir
Óháðir framfaramenn
96 —
88 —
84 —
75 —
55 —
23 —
15 —
4 —
1
PARIS, 3. jan.: — Edgar Faure,
forsætisráðlierra Frakka, viður-
kenndi í kvöld, að flokkasam-
steypa hans hefði beðið ósigur í
kcsningunum í Frakklandi í gær.
Faure sagði að „hinar ófullkomnn
stofnanir Frakklands, til hess að
ráða bót á því, sem fólkið væri
óánægt með í landinu" hefðu
valdið því að öfgaflokkunun*
hefði aukizt fylgi í landinu.