Morgunblaðið - 04.01.1956, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.01.1956, Qupperneq 8
8 MORGUTSBLAÐIÐ Miðvikudagur 4. ja'iúar 3 956 Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jénsson. Ritstjéri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlandj. í lausaselu 1 króna eintakið. Samhugur og þjóðareíning þegor þjóðnrhngnr kreist þess IHINNI athyglisverðu áramóta- ræðu, sem Ólafur Thors for- sætisráðherra flutti í útvarpið á Gamlárskvöld brá hann upp lit- auðugri og áhriftunikilli mynd af íslenzku þjóðlífi. Hann lýsti þeim stórvirkjum, sem þessi smáþjóð hefur unnið og er stöðugt að vinna, sem kemur m. a. fram í því, að erlendur menntamaður, sem var hér á ferð s.L sumar lýsti íslandi, sem dásamlegasta smá- ríki veraldarinnar. Gæfusamasta þjóðin Forsætisráðherra komst svo a* orði: „Það er gott að vera afkom- andi tápmikilla og vitiborinna forfeðra, sem hertir i aldanna örlagaleik, hafa skilað okkur líkamlegri hreysti og andlegu atgerfi, sem með auknu þjóð- frelsi og þeim batnandi efna- hag, sem í kjölfarið sigldi hef- ur megnað, að gera kraftaverk, sem eriendir menn undrast yfh- og dá, svo að við krílin á hjara veraldar vekjum í vaxandi mæli eftirtekt og að- dáun umheimsins." Siðan ræddi hann nokkru nán- ar þær framfarir, sem orðið liafa og hvemig við sjálfir höfum leik- ið okkur að þeim eins og krakk- arnir leika sér að gullunum. Við höfum leikið okkur að nýj u stóru og fallegu skipunum okkar, f'.ug- vélunum o. s. frv. En mitt í allri þessari góðu af- komu þjóðarinnar vaknar samt upp spumingin, hvort hún hefur kunnað að gæta hófs. Atburðir hins síðasta árs virðast benda til að svo sé ekkL Hver skarar eld að sinni köku „Okkur Íslí ndingum er hnilt að gera okkur grern fyrir þvi, að við myndum hafa vafa- saman sóma a£ velmegun síð- ustu áratuga, ef hún yrði eink- um til þess að magna með okk ur síngirni, græðgi, úlfúð, áhyrgðarleysi og alvöruleysi, ef sá andi yrði allsráðandi í landinu með einstaklingum og stéttum, að hver hugsaði um það fyrst og fremst að neyta af hörku og óbilgimi aðstöðu og aftsmunar til að skara eld að sinni köku, hvað sem liði kjörum annarra og heilbrigðri þróun.“ Því miður er þessi lýsing svo, að alltof margir geta tekið hana til sín. Það er mikið ábyrgðar- leysi, sem kemur fram í því, þeg- ar hver stéttin hækkar kröfur sínar í kapphlaupi við aðra, sjá- andi það, að engin þeirra hagn- azt af þessu á endanum, en hins vegar að þjóðfélagið í heild biður stórtjón af. Það er einnig mikið alvöruleysi, þegar enginn vill taka á sig byrðarnar. Þegar lögð eru fram úrræði til lausnar efna- hagsörðugleikunmn, virðast þau kálla á fórnir og það þýðir ekki að nefna við íslehdinga. Hér er sannarlega farið að ræða þjóðar- mein, sem getur orðið okkur dýrt. Mikil alvara á ferðum Um þetta mælti Ólafur Thors forsætisráðherra þau orð, sem sýna, að hér er mikil alvara á ferðum. „Sú þjóð, sem forsjónin hefur leikið við eins og okkur síðustu áratugina, verðskuldar ekkert nema ævarandi skömm og fyrir- litningu, kasti hún gæfu sinni á glæ. En ég trúi því aldrei, að svo verði um okkur íslendinga, fyrr en ég horfist í augu við það.“ Og í bjartsýni á framtíðina og þrátt fyrir þau sjálfskaparvíti, sem við þurfum nú að glíma við, benti forsætisráðherra þjóðinni á kjarna þessa máls, en hann er þessi: „Það er skylda hvers einstakl- ángs í hverri deilu að reyna að hugsa málin bæði frá sjónarmiði sjálfs sín og frá sjónarmiði þjóð- arheildarinnar. Það er að vera góður íslendingur. Á því er engin hætta, að ísiend- ingum gleymist, að ágreiningur og átök eru nauðsyn. En á vissum mörkum verða átök og barátta að skaðvænlegu sundurlyndi og böli, sem kemur niður á þjóðinni í heild. Þess vegna ber okkur íslend- ingum, að efla með okkur sam- hug og einingu. Þegar þjóðarsómi býður fórnarhug og samhug Þegar stjómmálamaður talar um nauðsyn á einingu, hættir andstæðingum hans við að hugsa að hann eigi við einingu um þá stefnu, sem hann sjálfur fylgir. En slíkt vakir ekki fyrir mér. Það sem mig langar að brýna fyrir þjóð minni við þessi áramót er nauðsyn þess, að við látum ekki eingöngu skapsmunina stjórna því, að við berjumst, heldur kenni einnig skynsemin okkur að vinna saman. Að okkur Iærist að bekkja þau augnabTik í lífi bjóðarinn- ar, þegar bióðarsómi og þjóðar harur bjóða hóf, fórnarhug og samhug. Að okkur skiljist, að við verðum að standa saman, þeg- ar mest á r?ðtir og um það, sem mestu varðar. Ég á við, hversu áríðandi það er, að okkur takist að þroska með okkur hugarfar, hjartalag, mannvit og mann- gæði. sem geri okkur að far- sælli þjóð og vaxandi." Þetta eru sannarlega alvarleg orð í tíma töluð. Á þessu veltur farsæld hinnar íslenzku þjóðar. Að lokum mæiti forsætisráð- herrann á þessa leið: ,Ég ætla að biðja þjóð mína aó elæóa með sér samhug og einingu um sóma íslands. Ef við lærúm betnr að vinna sam- an, þrátt fyrir allt, sem í milli ber, þá höfum við gert það sem í okkar valdi stendur til þess að verða að græfnsamri þjóð." ÚR DAGLEGA LIFiNU (ddrlendi hvennjóónarirm í íói. óendióueitaróLri^óto^u unm Vilhjálmur Finsen sendiherra, sem var fulltrúi ísl. ríkifistjóm arirmar í Stokkhólmi á stríðs- árunum, hefur í norska blaðið Aftenposten, ritað meðt'ylgj- andi grein. Segir hann þar frá kynnum sínum við sænsku stúlkuna Jane Horney, sem var tekin höndum af dönsku „frels- ishreyfingunni" í,striðslokin. — Nú er að koma út bók þar sem sýna á fram á að Homey hafi ekki verið þýzkur njósnari — en í þessari grein virðist Vil- hjálmur Finsen vera A annari skoðun. En hér er grein. hans þýdd úr Aftenposten. DAG nokkurn meðan síðari heimsstyrjöldin stóð, kom kona nokkur á skrifstofur ísl. sendisveitarinnar í Stokkhólmi. Á fremri skrifstofunni sat einka- ritari minn, frú Þuríður Finns- dóttir, nú prófessorsfrú í Reykja- vík. Hún spurði konuna, hvað hægt væri að gera fyrir hana og fékk það svar að hún vildi tala við mig persónulega og var visað inn til mín. er gift sænskum blaðamanni og er sjálf að nokkru blaðamaður, þvi ég skrifa greinar fyrir ýms nor- ræn blöð. Ég hef ferðast víða og séð mig talsvert um í heiminum. Ég hef m. a. verið á Grænlandi og Svalbarða og er nú komin til að fá upplýsingar um hvernig ég get komizt til íslands. Kemur aldrei vél á vegum ísL ríkisstjórn- arinnar til Stokkhólms? Og gæt- uð þér ekki útvegað mér far með slíkri vél til Reykjavíkur? Hún sat á móti mér við skrif- borðið, þessi gestkomandi kona. Við horfðumst í augu. Mér fannst hún athyglisverð, næstum falleg. Fas hennar aUt sérlega aðlaðandi. Hún var gædd kynþokka og greindarglampi í augum hennar. Hún var rauðhærð, talaði sænsku, en þó með ágætum dönskum áherzlum. Hún lét þess getið, að hún þekkti marga sendiherra 5 Stokkhólmi og hitti fjölmarga utanríkisþjónustumenn í veizl- um. vilja fara þangað og skrifa um það, en sagði henni jafnframt, að næstum útilokað væri að kom- ast þangað nema um England. Ef hún gæti á einhvern hátt kom- izt til Skotlands, skyldi ég hjálpa henni til að komast með skipi frá Leith til Reykjavíkur; slíkri ferð Jane Horney ★ ★ ★ ★ — Nafn mitt er Janeí Ég þakkaði henni fyrir, hvern Homey, kynnti hún sig. Ég I áhuga hún sýndi landi minu; að Bak við rúllugardinur. FYRSTA virka daginn eftir áramótin er öllum verziunum lokað. Rúllugardínur em dregnar fyrir gluggana, eða umbúða- pappír hengdur upp. Þrátt fyrir það er þessi dagur einn erfiðasti starfsdagur verzlunarfólksins. Því að bak við læstar verzlunardyr og hulda glugga eru allar vöru- birgðimar teknar fram úr hvll- um ok skotum. Allt kemst í eitt heljarmikið róðarí. Búðarborðin eru full af pökkum og búðarfólk- ið stendur kófsveitt yfir þessu, teljandi skópörin, vatnsglösin, brjóstsykursmolana, og ég veit ekki hvað og hvað. Verst og mest er þó verkið í bókabúðunum, þar sem telja verður saman birgð- imar af hverri bók og sjá um að endursenda þær bækur til út- gefenda, sem ekki hafa selzt. Á kafi í vörubirgðum. EG minnist þess, að ég komst einu sinni af tilviljun inn í bókaverzlun, þegar þannig stóð á. Hafði gleymt því að verzlanir voru lokaðar, en af einhverjum ástæðum opnaðist hurðin, hafði verið kviklæst. Ég hef sjaldan séð aðra eins blaða- og bókahlaða. A gólfinu voru heil fjöll af bókum og jólakortum og jólapappír og alls konar dóti. Upp úr þessum pappírshlöðum gægðust við og við höfuð af- greiðslumannanna og hurfu síðau aftur niður í hrúguna. Það kon. að sjálfsögðu ekki til greina aö afgreiðslumennirnir, sem voru hinir vingjamlegustu gætu fnnd- ið fyrir mig bókina sem mig vant- aði. Hún var einhvers staðar í allri hrúgunni. — Þú verður að koma á morgun, sögðu þeir. Þá verður allt komið aftur i röð og reglu. Ég efaðist um það, því að það virtist margra daga verk að þrífa tiL Ein undantekning. EINMITT í sambandi við þetta ætla ég að birta hluta úr bréfi sem mér hefur borizt frá „Göngu manni“. „Starfi mínu er þannig hagað“, segir hann, „að á hverjum degi geng ég oftsinnis eftir Austur- strætinu. Nú hef ég tekið eftir þvi um þessi áramót, að öllum verzlunum hefur verið lokað og tjöld dregin fyrir gluggana, með- an birgðatalning fór fram. Hjá sumum verzlunum sá ég, að birgðatalning fór fram á gamlárs- dag, en hjá öðrum á annan í ný- ári. Aðeins ein undantekning er frá þessu. Það er verzlun, sem SÍS hefur i Austurstræti. Lokunar- tími hennar hefur að vísu verið allur hinn sami, en þar hefur ekki verið dregið fyrir glugga og þess vegna hefur verið auðvelt að fylgjast með því, að þar hefur engin birgðatalning farið fram. Ég hef gengið svo oft framhjá verzluninni, að ég tel að hér geti ekki leikið vafi á. Ilvernig er talið fram til skatts? NÚ langar mig til að spyrja þig, Velvakandi. Þarf SÍS ekki að i láta fram farð vörutalningu hjá sér? Og sé það rétt, hvernig fer SÍS þá að því að telja fram tll ! skatts? Og hvernig fer þetta risavaxna fyrirtæki þá að því að vita, hvernig hagur þess er, hvort það hefur tapað eða grætt? Skipt- ir það e.t.v. engu máli?“ Þetta er aðeins hluti úr bréf- inu og hirði ég ekki tim að hirta ályktanir „Göngumanns“. Ég hef ekki getaö aflað mér upplýsinga um þetta. En tel það nú heldur ólíklegt, að einhvers konar vöru- talii ng fari ekki fram, enda munu öll verzlunarfyrirtæki vera skyld til þess að framkvæma hana. gæti ég komið í kring, því að ég þekkti skipseigandann persónu- lega. En ég ráðlagði henni að fresta íslandsförinni, unz ófriðn- um lyki. ★ ★ ★ ★ — En það er einmitt nú, sem ég vil komast til ís- lands — einmitt vegna ófriðarins, vegna bandaríska varnarliðsins þar. Ég vil sjá hvernig málin standa á íslandi og kynnast sam- bandinu milM Ameríkumanra og Íslendínga. Hún lagði áherzlu á orðið „varnarlið" en notaði aldrei „hernámslið". Forvitni mín var nú vakin. Ég vildi nú vita, hvers vegna hún vildi endilega nú komast til ís- lands. Við sátum lengi og töluðum um aMt milli himins og jarðar. Hún sagði mér frá mörgum ferðum sínum. Hún dró ekki dul á, hve vonsvikin hún var yfir þeiro svörum er hún hafði fengið hjá mér og sagði tvívegis: „Þér \-erð- íð að hjálpa mér. Þér verðið að hjálpa mér. Mér er sagt að það séu svo mörg stöðuvötn á íslandi, fögrum unaðslegum bláum vötn- um, óendanlega djúpum. um- kringd hrauni og þéttsetin syngj- andi svönum, öndum og grágæs- um“ — og með jafnrómantískum hreim bætti hún við: „Ég elska stöðuvötn. Ég get ekki hugsað mér fagurt landslag án stöðu- vatns. Hvað væri fegurð Finn- lands án vatnanna? Eigið þér ekM myndir frá íslandi? Ef þér viljið lána mér myndir og segja mér eitthvað nánar um landið, þá gæti ég áreiðanlega skrifað góða grein um ísland í skandinavisk blöð.“ Ég tók fram myndir, en engin þeirra sýndi stöðuvötn. Ég lofaðl að reyna að útvega fleiri myndir frá fslandi og sagði að hún skyldi koma aftur síðar. Svo fylgdi ég henni til dyra og sagði: „Sjáumst aftur eftir 3 vikur“ og hún hvarf niður stigann. ★ ★ ★ ir Svo sat ég einn í skrifstofu minni og hugsaði. Það s!6 niður í huga mér þeirri hugsun, sð einmitt á þessa lcið hefði hin Framh. á bls. 13

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.