Morgunblaðið - 26.01.1956, Síða 7

Morgunblaðið - 26.01.1956, Síða 7
7 Fimtntudagur 26. jan. 1956 MOKGVTSBLAÐIÐ ---------------------------------------------- MEIRI BJARTSÝNI EN I FYRRA~ Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni Þökk fyrir gamla áriö. — Forsætisráðherrann (Gerhardsen) þakkar fonnanni verkamannaflokksins (Gerhardsen) fyrir góða samvinnu á árinu sem leið. ORÐMENN hafa verið að líta yfir liðið ár og spá fyrir því nýbyrjaða. Þegar ritstjórnar- greinar blaðanna um þessi mál eru bomar saman við sams kon- ar greinar í fyrra, kemur fram sá augljósi munur, að bjartsýnin er menri núna. Menn spáðu yfirleitt illa fyrir árinu 1955, en nú er viðkvæðið víðast þetta: ef kom- andi ár verður ekki lakara en það síðasta, er ekki ástæða til að mála fjandann á vegginn og berja sér. Vitanlega er róðurinn þungur hjá þjóðinni, hún glímh' við verðbólgu og tilfinnanlegan halla á utanríkisviðskiptunum, en aðstaða hennar virðist vera talsvert betri en í bvrjun síðasta árs. Það var hátt verð á öllum helztu útflutningsvórunum og farmgjöldunum, sern bjargaði síð asta ári, og ef það helst áfram þykir engin ástæða ril hrakspáa. Þjóðmegunarfræðingarnar eru ílestir þeirrar skoðunar, að ekki komi neinn afturkippur í alþjóða viðskiptin fyrst um sinn. Landbúnaðurinn varð að vísu fyrir skakkafalli á siðasta ári, vegna þurrkanna, sem gengu yfir mestu jarðyrkjuhéruð landsins. Þurrkarnir uiðu þess valdandi að fóðuröflua brást svo tilfinn- anlega, að 70 þúsuna nautgripum fleira var lógað en í meðalári. En slíks gætir ekki á utanríkisverzl- uninni, því að Norðmenn flytja ekki út landbúnaðarafurðir, svo teljandi sé. Hins vegar hefur þetta misæri orðið til þess að auka vandræði bænda, sem þó máttu illa við því. Þeir hafa hald- ið því fram, og sjálfsagt með léttu, að aðal framleiðsluvara þeirra — mjólkin — sé í of lágu verði, þrátt fyrir allmikla niður greiðslu, og þurrkarnir í fyrra hljóta að valda því, að kröfum þeirra um verulega hækkun verð ur ekki vísað á bug. Þann 16. jan. hófust samningar bændafull- trúanna við ríkisstjórnina, og er þeim enn skammt komið, þegar þetta er ritað. En víst er að mjólkurverðið hækkar, og jafn- vel aukin ftríðindi bænda að því er snertir áburðarkaup og fleira. Og verðhækkanirnar ganga í gildi 15. márz, í stað þess að verð- lagið átti ekki að breytast fyrr en 3. júlí, ef farið hefði verið eftir venjunni. MINNINGA-ÁRIÐ Það er ekkert vafamál að meira hefði orðið um dýrðir suma daga síðasta árs, svo sem 17. jún. <Dg 23. nóvember en raun varð á, ef Hákon konungur hefði verið á fullu fjöri, Bæði Stórþingið og ríkisstjórnin minntust að vísu at- burðanna, sem mörkuðu tímamót í sögu þjóðarinnar fyrir 50 árum, en veruleg hátíð voru þær minn- ingarathafnir ekki. Þar var eng- inn fögnuður, því að það hvíldi eins og skuggi yfir öllu, að kon- tmgurinn lá rúmfastur og gat hvergi komið nærri. Þjóðin sýndi á þennan hátt, hve hjartfólginn Hókon konungur er henni. Án hans var ekki hægt að halda neina hátíð né vera með gleði- brag daga sem minnzt var sam- bandsslítanna við Svíþjóð og komu konungsins til Noregs. — Bati konungs heldur áfram eftir Vonum, og hann hefur ferlivist hálfan daginn, en lítil líkindi eru til þess að hátíðahöldin, sem áttu að fara fram í fyrra verði fvrr en með vorinu. HUNDRAÐASTA STÓRÞINGIÐ f fyrsta skipti í stjórnartíð einni gat konungur ekki slitið Stórþinginu fyrir jólin, eða sett hið nýja Stórþing, er kom saman 11. janúar. Það gerði Ólafur krón prins og er þetta hundraðasta Stórþingið í röðinni. Það kom fyrst saman árið 1815, en að það er ekki meira en nr. 100 stafar af þvi oð fram til 1870 var Stór- þingið aðeins haldið þriðja hvert ár. Og þínginu sem kom saman í ársbyrjun 1940, var ekki form- lega slitið fyrr en 1945. — Stór- þingið í ár fær miklu betri húsa- kynni en áður, því að nú hefur verið tekinn til notkunar allmik- ill hluti af hinni miklu viðbygg,- ingu, sem reist hefur verið bak við þinghúsið, og þar eru nefnda- herbergi og salur handa hverj- um flokki til fundarhalda. Full- gert er þetta nýja hús ekki ennþá, m.a. stór samkomusalur á efstu hæð, sem stendur til að þingfund- ir verði haldnir í um tíma, meðan, gagnger breyting fer fram á gamla þingsalnum. Þingforsetarnir voru allir end- urkosnir: Oscar Torp stórþings- forseti, C. J. Hambro óðalsþings- forseti j)g Bent Röiseland (vinstri) lögþingsforseti. Vará- forsetar, taldir í sömu röð, eru: Johan Wiik, Martin Smeby og P. Jacobsen, allir úr stjórnarflokkn um. Hásætisræðan, sem krónprins- inn las upp, var í lengra lagi, en svipuð því, sem stjórnarboðskap- urinn hefur verið undanfarin ár. Fjárlagafrumvarpið, sem lagt er fyrir þingið, er hallalaust, gefin von um nokkrar ívilnanir á skött um einstaklinga og hlutafélaga til ríkisins og um nokkru lægri útsvör en áður. Framlög til sam- göngumóla, orkuvirkjunar og jarðræktar verða aukin. Þetta voru helztu nýmælin í stjórnar- boðskapnum. Að því er utanríkis- málin snerti var heitið fullum stuðningi við NATO og hervarn- arsamvinnu vesturveldanna. NEA-VIRKJUNIN HAFIN í þinglokin fyrir jólin sam- þykkti Stórþingið heimild til virkjunar á ánni Nea í Þrænda- lögum, þeirri er Svíar leggja fram féð til, gegn því að fá helm- ing rafmagnsins sem framleitt verður á næstu 15 árum eftir að stöðin er fullgerð. Þessi heimild hefur verið á döfinni lengi og mætt mikilli mótspyrnu. And- mælin hafa einkum byggzt á því, að það væri ekki þjóðlegt og auk þess mesta ráðleysa að selja útlendingum orku úr fallvötnum, sem ódýrt væri að virkja, og verða síðan að virkja dýrari fall- vötn handa sjálfum sér. En fylgis menn virkjunarinnar hafa haldið því fram, að ríkið hefði ekki fé til þess að koma þessari virkjun fram, og að þjóðinni væri skaði að slá hendi við sænska láninu. Auk þess væri það ekki í anda hinnar norrænu samvinnu. Gustav Sjaastad iðnmálaráð- herra fylgdi málinu svo fast eft- ir að hann hótaði að segja af sér ef heimildin yrði ekki samþykkt, og hefur hann hlotið ámæli fyrir, og þótt setja sínum eigin flokki stólinn fyrir dymar. Heimildin var samþykkt með litlum at- kvæðamun — og Sjaastad sat. Þrjú félög hafa tekið að sér byggingaframkvæmdir við Orku verið, eitt stíflugerð, annað húsa- byggingar og þríðja jarðgöngin og kosta þessi verk rúmlega 30 milljónir nkr. En samtals er áætl að að orkuverið kosti 118 milljón nkr. Og það fé hafa Svíar lagt fram. Þær virkjunarframkvæmdir sem lofað var í hásætisræðunni verða i Aura, Rossága og Tokka- fallvatninu í Þelamörk. Þar er hentug aðstaða til virkjunar og vatnsorkan mikil —talið að hægt verði að fá þar um 700 þúsund kílówött með fuilri virkjun. Áð- ur hefur veríð veitt smáfjárveit- ing til undirbúnings Tokka-virkj- unarinnar, en nú stendur ti< að byrja framkvæmdir. Mest af þeim virkjunum sem gert er ráð fyrir, gengur til að auka alumin- iumsframleiðslu og stálfram- leiðslu, sem hvort tveggja hefur reynzt mjög arðberandi iðnaður, það sem af er. J§P»k*» FÁRVIÐRIN í NORÐUR-NOREGI Árið byrjaði illa hjá mörgu fólki í Lófót og kringum Bodö, því að veðurofsinn sem geisaði þar 3.—6. janúar var meiri en sögur fara af 1 heilan mannsald- ur. Fjöldi fólks missti húsin of- an af sér, en þó fleiri það; sem færir þeim lífsbjörgin, nfl. bát- ana sína. Stjórnin hefur þegar veitt 2.5 milljónir, sem fyrst og fremst skal varið til þess, að gera fiskibátana sjófæra eða kaupa nýja, því að nú er síld- veiðin að bvrja, og það er síldin en ekki þorskveiðin, sem hefur fært Lófótbúum björg í bú und- lanfarin ár. Þorskvejfln hefur gengið hlutfallslega jafn illa og síldveiðin hefur gengið vel. Stórtjón hefur líka orðið á veg um og símum milli Narvíkur og Bodö, því með fárviðrinu kom asahláka, svo að vegarspildur tættust í sundur, og á öðrum stöðum urðu skriðuföll. Jafnvel jámbrautin milli Narvíkur og Kiruna tepptist í marga daga. Og enn hefur ekki verið gert við símalínuna til fulls. — í Suður- Noregi hefur verið hægviðri en nokkuð kalt — kuldinn komizt yfir 30 stig upp til dala, og suma dagana varð hann nær 20 stig í Qsló og það þykir mikið þar. En veðráttan hefur verið hag- stæð fyrir vetrar-íþróttirnar, og Norðmenn eru í óða önn að búa sig undir Olympíuleikana í Cor- tina. Hefur hvert mótið verið haldið eftir annað til þess að velja þátttakendur þangað. Og Noi-egsmeistaramótið á skautum er nýlega afstaðið. Það fór fram á Hamar dagana 14.—15. janúar og varð Roald Aas meistari, að- eins betri en Knut Johannessen, en þriðji maður varð „Hjallis“. Þeir fara allir til Cortina, og margir fleh’i. — í Holmenkoll- brekkunni var haldið mót upp úr nýjárinu til að velja skíðastökks- menn, en færi var svo slæmt að aldrei hafa jafn margir dottið í brekkunni og þá. Meðal þeirra var einn bezti stökkmaður Norð- manna, Thorbjörn Falkanger, sem brákaðist á hryggjarlið og liggur rúmfastur siðan. Þetta veikir mjög norska liðið, því að Falkanger var talinn líklegast- ur allra til þess að sigra. —Norð menn eru ekki eins vongóðir um sigur núna og oft áðui’, þeir ótt- ast Rússa. sem tefla fram ágæt- um mönnum og er búizt við að þeir hljóti flest verðlaunin í Cortina. STRÍÐSHR.TJöSLA? Á árinu sem leið var haldið áfram öryggisráðstöfunum gegn sprengjuárásum, með því að skipuleggja út í æsar flutning fólks úr stærri bæjunum, ef á þarf að halda, og gera loftvarnar byrgi. — Hefur Tobiesen, fram- kvæmdastjóri „siviÍforsvaret“ gefið blöðunum ýmsar upplýsing ar um þetta starf, sem aðallega varðar bæi með yfir 40.000 íbú- um, þ. e. Ósló, Bergen, Stavanger og Þrándheim. Þar skal, ef ófrið ber að höndum, flytja helming borgarbúa upp í sveit, en handa hinum helmingnum á að vera nægilegt rúm i byrgjunum. Er nú svo komið, að loftvarnarbyrgi eru til handa 100.000 manns, en enn- þá vantar byrgi fyrir 80.000. Hið stærsta af þessum byrgjum er undir Abelhaugen svonefnda, beint á móti íslenzku sendiráðs- skrifstofunni. Þetta byrgi hefur verið notað til sýninga, sem þurfa mikið húsrúm og er gert ráð fyrir, að svo verði einnig fram- vegis. Þá er einnig farið að fram- leiða nýja tegund af gasgrímum, sem á að geta varið fólk gegn radium-geislum. FJÁRLAG AFRUMV ARPIÐ var lagt fyrir þingið lfi. jan. Þar eru hærri tölur en áður hafa sést í þeim lagabálki, tekjur og gjöld hvort um sig 4975 milljón ki’ónur, en það er 398 milljón krónum meira en á núgildandi fjárlögum og bein afleiðmg af rýmandi gildi krónunnar. Til dæmis um hækkandi tölur fjár- laganna má nefna að kjarabætur þær, sem embættis- og sýslunar- menn fengu á síðasta ári, hafa 1 för með sér 158 milljón króna útgjaldaauka fyrir ríkið Rekstursútgjöld ríkisins eru áætluð 4327 milljón krónur, eða 290 milljón krónum hærrí en nú er. En tekjur af tollum og skött- um eru áætlaðar 4947 milljónir, og við þær bætast 28 milljónir, sem eru vextir af fé, sem ríkið á útistandandi í lánum. Tekjurn- ar verða því alls 4975 milljónir. Hervarnirnai’ hafa undanfar- in ár verið þyngsti bagginn á rík issjóði og eru það enn. Til þeirra var áætlað 1050 milljónir á síð- asta ári, en sú fjárveiting hefur ekki verið notuð að fullu og er því 70 milljónum minna áætlað Itil hernaðarþarfa nú en í fyrra. i Verður sparað talsvert fé meS f þvi að stytta æfingatíma eldri ; hermanna úr 30 dögum í 21 og '' sleppa þessum æfingum, að þvl er strandvamirnar snertir. Mestar eru hækkanirnar til fræðslumála. landbúnaðar, sam göngumála cg fjármálaráðuneyt isins. Gjöld til skóla hækka um 16 milljónir c-g til jarðræktár um 20 milljónir, en til vegagerða og viðhalds vega um 30 milljónír,. . Og vextimir af út- og innlend- um lánum 1 ækka um 32 millj.. „ Hafa útlerdu rkisskuldirnar , hækkað um 271 milljón krónur á síðasta ári og eru nú 2.106% milljón krónur: langmestur hluti þeirra er í doilurum (T.387 millj.> (i en 3051,? milljón í sænskum kron- um og 155.6 millj. í sterlings- pundum. Til vatnsvirkjana eru áætlaðai- 121 milljón, en það er 50% millj meira en í fyrra. Mestur hlut.t þessa fjár gengur til þess að auka vatnsvirkjanirnar í Aura og: Rössaaga, sem framleiða raf-, magn handa aluminiumbræðsl- . unni í Sundalsöyra og stálbræðs) ^ unni i Mo í Rana, sem hvort- . tveggja eru opinber fyrirtæki op , ríkisstjómin hefur mikla trú á. Einn af stærstu útgjaldaliðun- um er til niðurgreiðslu á inn- lendum afurðum. Hann er áætl- aður jafn hár og síðast, eða 52& milljón krónur, en óvíst hvort sú áætlun helzt. Það verður ekki séð fyrr en samningunum við bænd- ur lýkur, hve mikið þarf < hækka landbúnaðárafurðirnar- og þá fyrst getur stjórnin tekið ákv’örðun um, að hve miklu leyti ríkið getur greitt afurðírnar niS ? ur. í tekjuliðunum er gert ráð fyr ir að skattur til rikisins hækkj. um 100 milljónir, þó að lofað st’ : smávægilegum niðiu-færslum t\ núverandi skattstiga. Sömuleiðií j er gert ráð fyrir að veltuskattur- inn gefi 100 milljónum meira, eðf j 1500 milljónir. Þessir tveir liðij ! eiga að afla ríkissjoði 2.700 millj. króna tekna. Á benzíninu verðui skatturinn hækkaður um 4 aurc og nemur það 26 milljón króna tekjuauka, og tóbak hefur einnig verið hækkað í verði og nemur tekjuaukinn af þeirri hækkun 40 milljónum. En alls er gert ráð fyrir að tekjurnar hækki um 365 milljónir frá því sem nú er. Það er að segja: þjóðin greiðir rikinu eina milljón á dag umfram það sem hún greiðir núna. En Norðmenn stynja undan sköttunum og benda á að þeir séu hærri í Noregi en bæði í Dar,- mörku og Sviþjoð. Þeir hafa reiknað þetta út í sambandi við nýju tillögurnar, sem fram eru komnar um sameiginlegan mark að norðurlandanna þriggja og benda á að Norðmenn mundu standa höllum fæti þar, meðal annars vegna skattanna. Hins veg ar er það bót í máli að Norðmenu sleppa við skatta af tekjunr* fyrir síðustu mánuði þessa árs, vegna þess að lögin um skatt af tekjum líðandi árs ganga í gildi 1. janúar 1957. Skúli Skulason. Saemdir Fálkaorðu í TILEFNI af 100 ára afmæli frjálsrar verzlunar á íslandi hef- ur forseti fslands, að tillögu orðu- nefndar, sæmt þessa menn heið- ursmerkjum Fálkaorðunnar seno hér segir: Sigurð Ki-istinsson, fyrrverandi ráðherra, formann Sambands ísL samvinnufélaga, stjörnu stór- riddara; Eggert Rristjánsson, að- alræðismann, foi’mann Verzlun- arráðs íslands, stórriddarakrosSI ög Guðjón Einarsson, formann Verzlunarmannafélags Reykja- ’víkur, riddarakrossi — (Frá brðuritara).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.