Morgunblaðið - 26.01.1956, Page 16
Veðurúllil í dóg:
AUhvass A. Skýjað en úrkomu-
I laust.
úTgitmiMaMfo
21. tbl. — Fimmtudagur 26. janúar 1956
Svipmyndir
frá París. — Grein á bls. 6.
Stöplahús i Sandgerði
brennur til kaldra kola
Mikil verðmæli fórus! í eldinum
Sandgerði, 25. janúar.
1. SJÖTTA ■ tímanum í morgun, kviknaði í svokölluðu „Stöpla-
t\ húsi“ hér í Sandgerði og brann það til kaldra kola. Fórust
't. éldinum mikit verðmæti sem geymd voru í húsinu, en það var
notað til beitingar. Einn bátur sem byrjaður var beitingar þar,
missti í eldinum 60 bjóð af línu sinni. Eigandi hússins var Garð-
ur h.f.
ELDSINS VART A SJOTTA
XÍMANUM
Það var maður, frá Keflavík,
sem var að koma með snjóýtu
til Sandgerðis, sem fyrstur varð
eldsins var. Gerði hann fólki
þegar aðvart í næstu húsum, og
vár slökkvilið staðarins þegar
hvatt á vettvang. Var það komið
uð hinu brennandi húsi skömmu
eftir útkallið. Nokkru síðar kom
s1ökkvilið af Keflavikurflugvelli
og aðstoðaði við slökkvistarfið.
VERBUÐIR í HÆTTU
Eldurinn var mjög magnaður
um tíma, og voru verbúðir sem
aru í aðeins fjögurra metra fjar-
íægð frá „Stöplahúsinu" í mikilli
hættu á tímabili. Tókst slökkvi-
liðinu þó að verja þær. í ver-
búðunum býr margt verkafólk.
JSNGU BJARGAÐ
Ekki tókst að bjarga neinu úr
Linu brennandi húsi. Brann þar
mni, sem fyrr segir, 60 bjóð af
tínu eins báts, er byrjaður var
beitingar í húsinu. Var það Pálm
ar frá Seyðisfirði. Ennfremur
brunnu mikil verðmæti sem voru
eign Garðs h. f., svo sem skreið,
■murolía. ýmis áhöld og bræðslu-
vélar, er voru þar í geymslu.
TIMBURHUS
Hús þetta var timburhús 9x12
metrar að stærð, ein hæð með
risi. Húsið var vátryggt hjá
Brunabótafélagi fslands. Eldsupp
tök eru ekki kunn. —Axel.
15-20 siiga frosi
riagiega vfð fsa-
fjarðardjúp
ÞÚFUM, ísafjarðardjúpi, 25. jan.
— Mikil frost og harðindi eru
hér þessa dagana og 15—20 stiga
frost í innsveitum daglega. Djúp-
ið getur lokazt af ís hér innra,
þá og þegar og búasi menn við
þvi að svo verði.
Djúpbáturinn hefur haldið
uppi reglulegum áætlunarferð-
um en erfitt er orðið um af-
greiðslu sums staðar. Fer hann
venjulega hlaðinn hverja ferð, af
fóðurvörum og eldsneyti og öðr-
um nauðsynjum, því mjög er hætt
við að ferðir hans geti fallið nlð-
ur. •— Fannkoma hefui vérið lítil
undanfarna daga. —P. P.
Vfirlitssýning á listaverkum Ásgríms
nÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að efna til yfirlitssýningar á
listaverkum Ásgrims Jónssonar
i tilefni áttræðisafmælis hans 4.
marz n.k. og hefur þriggja
manna nefnd verið falið að ann-
ast undirbúning sýningarinnar. í
nefndinni esga sæti Ragnar Jóns-
son, forstjóri, formaður; Jón Þor-
leifsson, listmálari, og Kristján
F.ldjárn, þjóðminjavörður.
Eigi er enn ákveðið hvaða dag
sýningin verður opnuð. (Frétt
frá menntamálaráðuneytinu)
roa
AKRANESI, 25. jan. — Sauíján
bátar voru á sjó héðan frá Akra-
nesi í dag. Fengu þeir frá 4 upp
í 9 lestir á bát.
Hollenzkt skip, Sankti War-
burg, var hér í dag og losaði 600
lestir af salti til útgerðarmann-
anna á staðnum. — Oddur.
Ufveosmálin til umræðu á farðarMi í kvold
íramsöguræiíu flytur Davíð Úlafsson fiskimála-
stjóri—Forsætisráðh. Olafur Thors situr fundinn
Davíð Ólafsson,
UM fátt hefur meira verið
rætt undanfarnar vikur en þá
erfiðleika, sem steðja að út-
gerðinni og stöðvun megin-
hluta bátaflotans, sem af þeim
leiddi. Fyrir aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar hefur nú feng-
izt lausn á þessum málum og
eru veiðar almennt hafnar. —
Vegna þeirrar óheillavænlegu
þróunar, sem leiddi af verk-
fcllunum og launahækkunum
síðasta árs, hefur orðið að
gera viðtækari ráðstafanir en
áður, til hess að vega á móti
þeim byrðum, sem á útgerð-
ina hafa verið lagðar.
LJÓSMYNDIR þessar, er teknar voru úr flugvél yfir
Mýrdalsjökli sýna glöggt verksummerki í sambandi við
hlaupið, sem kom í síðustu viku í Múlakvísl. Þykir nú Ijóst
af þeim að hlaupið stafi ekki frá jarðhita, heldur af því að
jökullón suðaustan í Huldufjöllum hafi rutt sig 4 km undir
Höfðabrekkujökul.
Myndin hægra megin sýnir skálina utan í Huldufjöllum,
sem lónið hafði safnazt í. Fékk vatnið ek'ki framrás vegna
þess að jökull þrengdi að því á allar hliðar. Loks þegar
nægiiegt vatn hafði safnazt brauzt það undir jökulinn og
sést að skálin er nú nær vatnslaus. Björn Pálsson flugmað-
ur staðíestir að fyrir nokkrum dögum hafi vatn verið í
skálinni.
Myndin vinstra megin sýnir hins vegar árfarveginn, þar
sem vatnið brauzt undan jöklinum í svonefndu Rjúpnagili.
Jökulbrúnin er neðst á myndinni, en í fjarska sést Múla-
kvísl renna milli Hafurseyjar og Höfðabrekku. Fjallið beint
á móti er Hafursey.
Það er óvenjulegt að hlaup stafi frá jökullónum að
vetrariagi, en Sigurður Þórarinsson skýrir Mbl. svo frá, að
fleiri dæmi þess séu til. Ljósm. Snorri Snorrason.
Ágælur afli á
BTLDT.TDAL, 23. jan. — Rækju-
veiðarnar hafa verið mjög stopul-
ar hér upp á síðkastið. Ógæftir
hafa verið annað kastið og afli
mjög misjafn þegar gefið hefur.
í gær fékk annar rækjuveiða-
báturinn 500 kg af rækju, en
hinn aðeins T50 kg. Er veiðin
þannig mjög breytileg.
Einn bátur hér er byrjaður
róðra, og er búinn að róa tvisvar.
Er það Jörundur Bjarnason. Hef-
ur hann aflað alls í þessum tveim
róðrum 20 Testir af óslægðum
fiski. Tveir aðrir bátar verða
gerðir út héðan í vetur og munu
þeir báðir róa í kvöld. ■—Friðrik.
Mun fórmaður Varðar,
Davið Ólafsson, fiskimálastj.,
ræða þessi mál í framsöguer-
indi á fundi félagsins í kvöld.
Að loknu framsöguerindinu
munu verða frjálsar umræður
og má búast við að margir
muni taka til máls. — Ólafur
Thors, forsætisráðherra, mun
mæta á fundinum.
ÁgæluraflihjáSand-
gerðisbáfum
SANDGERÐI, 25. janúar. — 20
bátar hafa verið gerðir út frá
S^ndgerði á vetrarvertíð, 15 að-
komubátar og 5 heimabátar. Eru
7 bátar þegar byrjaðir að róa.
Afli er ágætur eða upp í-18 lestir.
í fyrra voru gerðir héðan út 16
bátar. — Axel,
Deila Yið bílsljéra leysf
ÍSAFIRÐI, 25. jan. — Samningar
hafa nú tekizt í deilu bifreiða-
stjóra og atvinnurekenda á ísa-
firði, en verkfall hafði staðið 1
tvo daga. Höfðu bílstjórarnir
gert kröfu til að atvinnurekend-
ur notuðu ekki sína eigin b-'la 1
uppskipunarvinnu, hvort sem um
væri að raeða úr veiði- eða flutn-
ingaskipum, ennfremur gerðu
þeir kröfu til að annast alla að-
keyrzlu á olíu, benzíni og kolum.'
Atvinnurekendur lýstú því yf-
ir, að þeir myndu ekki nota-eigin
bifreiðar til uppskipunar á tog-;
arafiski yfir vetrarmánuðina frá
1. nóv. til 1. marz að telja. Að
þessu tilboði atvinnurekenda
gengu bifreiðastjórarnir og leyst-
ist deilan þar með. — J.
Mikið fannkyngi í
Súgandaiirði
SUÐUREYRI, 23. jan. — Vegis?
eru allir tepptir hér í nágienn-
inu, og illfært um götur í þorp-
inu. Snjókoma hefur verið óvenju
mikil frá því á áramótum. Veð-
ur hefur verið gott undanfarna
daga, talsvert frost og heiðskít
himinn.
Haglaust er alls staðar í firðin-
um og hafa bændur aðallega
orðið að notast við fjörubeit fyrir
fé sitt, sem þó befur verið hcldur
léleg. Flestir munu þó vel hey-
birgir.
| Mjólkurskortur hefur ekki ver
ið í þorpinu, þar sem mjólk er
flutt til Suðureyrar með Djúp-
bátnum frá Önundarfirði.
i —Óskar.
IJmfangsmikil starfsemi
Sameinaðra verktaka
Stjérnin endurkjörin, Halldór iénsson lormaSur
SUNNUDAGINN 22. janúar s. 1.
héldu Sameinaðir verklakar aðal-
fund sinn.
Formaður stjórnarinnar, Hall-
dór H. Jónsson, og framkvæmda-
stjórar gáfu skýrslur um starf-
semi og framkvæmdir samtak-
anna á liðnu starfsári. Báru þær
með sér umfangsmikla starfseml
víðs vegar um land.
Þá voru einnig bornir upp og
samþykktir reikningar samtak-
anna.
■
Að loknum umræðum uití
skýrslur stjórnar og framkvemda
stjóra fór fram stjórnarkjör.
Árni Snævarr, verkfræð ngur,
hafði eindregið beðizt undan end-
urkosningu, og var Gúsíaf E,
Pálsson, verkfræðingur, ko únn 8
hans stað. Að öðru leyti vas
stjórnin öll endurkosin, og er
hún skipuð eftirtöldum mönnum:
Formaður Halldór H. Jónsson,
arkitekt — Meðstjórnendur:
Grímur Bjarnason, pípulagninga
meistari; Ingólfur Finnbogason,
byggingameistari; Tómas Vigfús-
son, byggingameistari; Gústaf E,
Pálsson, verkfræðingur.
Á fundinum ríkti mikill ein-
hugur og samstarfsvilji.
Sameinaðir verktakar hafa
sýnt þa'ð og sannað með störfum
sínum á undanförnum árum, að
þeir eru þess fúllkomlega megn-
ugir að leysa það hlutverk, sem
! þeim í upphafi var ætlað. enda
I hafa þeir áunnið sér traust og
I álit, bæði innan lands og utan.