Morgunblaðið - 24.02.1956, Side 14
14
MORGWSBLAÐIÐ
Föstudagur 24. febrúar 1956
SYSTURNAR ÞRJÁR
EFTiR IRA LEViN - Fyrsti hluti: DÖROTHY -
Z3CJ !
FramHaldssagan 27
Kingship, upp á fjórtándu hæð
skömmu eftir klukkan 12,30, en
hann man ekki greinilega, á
hvaða hæð það var, sem stúlkan
kom inn í lyftuna.
Samkvæmt umsögn deildarfor-
setans, Clark D. Welsh, gekk ung
frú Kingship námið prýðis vel.
Hinir furðu lostnu nemendur á
stúdentagarðinum, þar sem hún
bjó, gátu ekki hugsað sér neina
ástæðu fyrir því, að hún skyldi
fremja sjálfsmorð. Þeir lýstu
henni sem hæglátri stúlku og fá-
skiptinni.
„Það þekkti hana enginn mjðg
mjög vel“, sagði ein af stúlkun-
um á stúdentagarðinum.
Frá The Clarion-Ledger í Blue
River, laugardaginn 29. apríl
1950:
BANAMEIN HENNAR VAR
SJÁLFSMORÐ
Systirin fær bréf í pósti.
Umsjónarmaður lögreglunnar,
Eldon Chasser, tilkynnti blaða-
mönnum í gærkvöld, að Dorothy
Kingship, stúdína í Stoddard, sem
síðdegis í gær beið bana við það,
að hrapa niður af þaki hinnar
háu skrifstofubyggingar, hefði
framið sjálfsmorð.
Systir hennar, Ellen Kingship,
sem er stúdent í Caldwell, Wis-
consin, fékk seint í gærkvöldi
póstsent bréf, undirskriftarlaust,
en sem fullyrða má þó, að sé
skrifað með rithönd hinnar látnu
stúlku. Enda þótt efni þessa bréfs
hafi ekki verið nákvæmlega birt
opinberlega ennþá, fullyrti
Chesser umsjónarmaður, að í því
kæmi skýrt fram áform hennar
um að fremja sjálfsmorð.
Bréfið var sent héðan úr borg-
inni og póststimplað kl. 6,30 e.h.
Þegar bréfið barst Ellen King-
ship í hendur, reyndi hún tafar-
laust að ná sambandi við systur
sína, símleiðis. En þegar sú til-
raun bar engan árangur, var
henni gefið samband við deild-
arforsetann, Clark D. Welsh, sem
skýrði henni frá hinum sorglegu
afdrifum ungu stúlkunnar.
Ungfrú Kingship lagði þegar af
stað til Blue River og kom þang-
að í gærkveldi. Faðir hennar, Leo
Kingship, framkvæmdastjóri fyr- •
irtækisins Kingship Kobber h.f.;
er væntanlegur til borgarinnar
síðdegis í dag, en ferð hans seink
aði til muna vegna þess, að flug-
vélin varð að lenda í Chicago
sökum óveðurs.
ar ofkælingar. „Dorothy drap á
dyr klukkan á a. g. fjórðung
gengin tólf“, segir ungfrú Kock.
— „Ég lá í rúminu. Hún kom inn
og ég varð dálítið hissa vegna
þess, að við þekktumst tiltölulega
mjög lítið. Eins og ég sagði áðan,
þá brosti hún stöðugt og gekk
stanzlaust um gólfið, fram og aft-
ur. Hún var í baðkápu og spurði
mig, hvort ég vildi lána sér beltið
af grænu dragtinni minni. Ég ætti
kannske að geta þess, að við eig-
um báðar nákvæmlega eins,
grænar dragtir. Ég keypti mína í
Boston og hún sína í New York,
en þær eru, sem sagt, nákvæm-
lega eins. Við vorum báðar í þeim
til miðdegis, síðastliðinn laugar-
dag og það var satt að segja dá-
•lítið vandræðalegt.
Hún spurði mig, sem sagt,
hvort ég vildi lána sér beltið
mitt, vegna þess að sylgjan á sínu
hefði brotnað. Ég hikaði við, af
því að það er nýja vordragtin
mín, en hún virtist hafa svo mikla
þörf fyrir beltið, að ég sagði
henni loks í hvaða skúffu það
væri og hún fór með það.“
Þegar hér var komið sögu,
þagnaði ungfrú Kock og tók af
sér gleraugun: — „En nú kem ég
að því, sem merkilegast er í öllu
þessu. Þegar lögreglan kom,
nokkru eftir dauða ungfrú King-
ship, og rannsakaði herbergið
hennar, til þess að leita að ein-
hverju bréfi, þá fann hún, þ. e.
lögreglan, beltið mitt á skrif--
borði stúlkunnar. Ég þekkti það
á því að gyllingin var máð út
fremst á sylgjunni. Mér þótti
það alltaf mjög leiðinlegt, vegna
þess að dragtin kostaði mig mikla
peninga.
Lögreglan tók beltið í sína
geymslu.
Þá skildi ég loks, að þessi bón
hennar með beltið, hafði aðeins
verið fundin upp, til þess að hún
gæti haft tal af mér. Þegar hún
ætlaði að fara að klæðast dragt-
inni sinni, hefur hún sennilega
minnt hana á mig og allir vissu
að ég var kvefuð og lá í rúminu.
Þess vegna kom hún inn í her-
bergið og þóttist hafa þörf fyrir
beltið. Hún hlýtur að hafa þráð
það mjög ákaft, að tala við ein-
hverja manneskju.
Ósjálfrátt kemur mér það í
huga, að hefði ég þá aðeins getað
fengið hana til að segja mér frá
erfiðleikum sínum, hverjir svo
sem þeir hafa verið — þá myndi
þessi sorglegi atburður aldrei
hafa skeð.“
Þegar viðtali voru við ungfrú
Annabelle Kock var lokið og vér
gengum frá herbergi hennar,
bætti hún þessu við, sem sínu
lokasvari: — „Jafnvel þótt lög-
reglan skili mér einhvern tíma
beltinu aftur — eins og vænta
mál, — þá veit ég með vissu, að
ég mun aldrei framar geta klæðst
grænu dragtinni minni, eftir það,
sem nú hefur gerzt .“
15. KAFLI
Síðustu sex vikur kennslu-
misserisins urðu honum mjög
þreytandi og leiðinlegar, eða svo
fannst honum a. m. k. sjálfum.
Hann hafði búizt við því, að æs-
ingin, sem dauði Dorothy olli,
manna á meðal, myndi loða kyrr
í loftinu eins og ljósbjarminn
eftir flugeld. Og svo hjaðnaði hún
og varð að engu, nær samstundis.
Hann hafði búist við meiru um-
tali í háskólanum og fleiri grein-
um í blöðunum, sem gætu veitt
honum hið mikilfenglega yfir-
læti og svo, og svo — varð ekki
neitt úr neinu.
Þremur dögum eftir dauða
Dorothy, snéri háskólaþvaðrið
sér frá henni aftur, til þess að
kasta sér yfir nokkra marijuana-
vindlinga, sem fundizt höfðu í
heimavist háskólaborgaranna.
Hvað blöðunum viðkom, þá
sást nafnið Kingship í síðasta
skiptið í Clarion-Ledger, í ör-
stuttri grein, sem tilkynnti, að
Leo Kingship væri kominn til
Blue River. Ekki eitt orð um lík-
skoðun eða þunga stúlkunnar,
enda þótt það hlyti óhjákvæmi-
lega að verða hið íyrsta, sem tek-
ið yrði til rannsóknar, þegar ung
SÚ, SEM SÍÐAST TALAÐI VIÐ
UNGFRÚ DOROTHY KING-
SHIP, SEGIR, AÐ HÚN HAFI
VERIÐ ÆST í SKAPI OG
ÓRÓLEG
eftir LaVerne Breen.
„Hún hló mikið og brosti allan
tímann á meðan hún var inni í
herberginu mínu. Og hún gekk
stanzlaust fram og aftur um gólf-
ið. í fyrstu hélt ég að hún væri
mjög hamingjusöm vegna ein-
hvers, en nú sé ég að þessi ein-
kennilega hegðun hennar var ein-
ungis afleiðing af hinum ofsa-
lega taugaæsing hennar. Hlátur
hennar var óeðlilegur og fjörlaus,
ekki með neinni gleði. Ég hefði
átt að skilja þetta strax þá, þar
sem ég hefi lesið sálarfræði í
meira en tvö ár.“
Þannig lýsir Annabella Kock,
sem er stúdent við Stoddard-
háskólann, framkomu Dorothy
Kingship, tveimur klukkustund-
um áður en hin síðarnefnda
framdi sjálfsmorð.
Ungfrú Kock, sem er fædd í
Boston, er grannvaxin, hrífandi,
ung stúlka. í gær varð hún að
halda kyrru fyrir á herbergi sínu
í heimavistinni, sökum alvarlegr-
Þrjár berejnunidar kóngsdætur
15.
Já, hann var fús til þess, brátt sofnaði hann og fór að
hrjóta, og þá lét hún bekki og kodda undir höfuðin, stóð
svo upp og kallaði á hænurnar. Þá kom hermaðurinn að og
hjó til þursans svo að átta höfuðin fuku af í einu höggi,
sverðið var of stutt og náði ekki lengra.
Níunda höfuðið vaknaði og fór að öskra: „Tví, tví! Hér
er kristin lykt.“
„Já, já, og hér er kristinn maður“, sagði hermaðurinn,
og hjó níunda hausinn af þursanum, áður en hann gat staðið
upp og náð til hans.
Eins og nærri má geta, var fögnuður kóngsdætranna
mikill yfir að vera nú frjálsar aftur og leystar úr trölla-
höndum. Nú voru þær leystar undan þeirri smán, að verða
að sitja undir hausum þursanna og veita þeim blíðu. Þær
vissu ekkert hvernig þær áttu að launa manninum, sem
frelsaði þær. Yngsta kóngsdóttirin tók gullhring af hendi
sér og batt í hár hans. Svo tóku þau með sér eins mikið
, af gulli og silfri og þau héldu að þau gætu borið og héldu
! heimleiðis.
| Þegar þau komu að festinni, kipptu þau í hana, og þá
drógu höfuðsmaðurinn og flokksforinginn kóngsdæturnar
upp hverja á eftir annarri. En þegar þær voru allar komnar
upp heilu og höldnu, fór hermaðurinn að sjá eftir því, að
jhann hafði ekki látið draga sig upp á undan þeim, því að
hann treysti félögum sínum ekki meira en svo vel. Nú
ætlaði hann að reyna þá. Hann lét þungan gullmola í körf-
una og gekk svo spottakorn frá opinu. Þegar karfan var
komin rúmlega hálfa leið upp, skáru þeir á festina, svo að
hún datt niður og grjótinu rigndi í kringum hann.
Frú Gladis Griver, forstöðukona fræðsludeildar Madame
Rubinstein í London, heldur námskeið fynr íslenzkar
konur í næstu viku. — Kennd verða undirstöðuatriði í
meðferð hörundsins notkun snyrtivamings og likamsrækt
Mánudag 27. febrúar kl. 2—3,30, 5—6,30, 8—9,30.
1. kennslustund: Andlitshreinsun og snyrting sérhvers
nemanda framkvæmd af frú Grivei.
Þriðjudag 28. febrúar kl. 2—3,30, 5—6,30, 8—9,30.
2. kennslustund: Andlitshreinsun og snyrting með leið-
sögn frú Griver.
Miðvikudag 29. febrúar kl. 2—3,30, 5—6,30, 8—9,30.
3. kennslustund: Fyrirlestur um hvemig gæta ber hör-
undsins og um líkamsrækt, mataræði o. fl.
Námskeiðið verður haldið að Hótel Borg og með því
húsiúm er takmarkað er ráðlegt að væntanlegir þátt-
takendur skrásetji sig nú þegar.
Allar upplýsingar veitir
MARKAÐURINN
HAFN ARSTRÆTI 11
Tökum upp 'i dag
hálfsíða þýzka
karlmannarykfrakka
úr poplin
Nýjasta tízka
NY SENDING
Amerískir
Morgunkjólar og
sloppar
Vetrarkápur
Molskinnsbuxm
drengja, allar stærðir
Köflótt gaberdin, ný gerð
Frotte handklæði, ódýr
Gardínuefni og storesefni, margar gerðir
Vefnaðarvöruverzlunin Týsgötu 1
Sími 2335
Sendum í póstkröfu
VIIMMA
Getum bætt við nokkrum pökkunarstúlkum strax
í frystihús vort. Fæði og húsnæði á staðnum.
Uppl. í síma 104 og 95.
Hraðfrystihús Keflavíkur h.f.
ISSKAPUR
Litið notaður ísskápur 7 cubikfet til sölu og sýnis að
Melhaga 16, I. hæð. Utanmál: 80 x 143 cm. Dýpt 67 cm.
Hagkvæmt verð.