Morgunblaðið - 20.03.1956, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.03.1956, Blaðsíða 16
Veðurútlit í dag: SA-kaldi, rigning öðru hverju, 67. tbl. — Þriðjudagur 20. marz 1956 Skógræktin hefnr 760 b?isJj^ákmótið plöntur til ráðstöf trnar í vor Hýlep er lokið fundnm skógarvarða og fulltriía skógræktarfélaga ALAUGARDAGSKVÖLDIÐ var hafði Skógræktarfélag íslands feoð inni í Tjarnarcafé fyrir skógarverði landsins og fulltrúa .'.kógræktarfélaganna, en þessir aðilar hafa setið fundi hér í Reykja- vík undanfarna daga til þess að ráða ráðum sínum um störf skóg- ræktarinnar á komandi starfsári. rUNBUR SKÓGARVARÐANNA Fyrst stóð fundur skógarvarð- anna í landinu í þrjá daga. Hann sátu 8 skógarverðir, en þeir eru alls 9, en Einar Sæmundsen er nú staddur í Danmörku á vegum skógræktarinnar og átti þess því ekki kost að sitja fundinn. Skóg- arverðirnir höfðu á fundum þess- um það verk á hendi að semja starfsáætlun fyrir komandi starfs ár. Var aðalverkefnið að sam- ræma starfsáætlunina fjárhags- getu skógræktarinnar. Leggur hver þeirra þá fram óskir um þau störf er hann telur að vinna þwrfi í hans umdæmi, en síðan skipta þeir fé því, sem fyrir hendi er á milli sín, FGNmjR FULLTRÚA SKÓGRÆKTARFÉLAGANNA Að loknum fundi skógarvarð- anna halda fulltrúar allra skóg- ræktarfélaga í landinu fund með sér. Alls eru skógræktárfélögin 29 talsins og situr fundinn einn fuiltrúi frá hverju félagi. Starf þeása fundar er ekki frábrugðið otarfi skógarvarðafundarins. Þar eru gerðar áætlanir um störf fé- iaganna, gengið úr skugga um hve mikið muni vera af plöntum í lahdinu til ráðstöfunar í vor og dreifing þeirra ákveðin í stórum dráttum. I Samtímis þessu er svo rætt um ýmis hagsmunamál skógræktar- innar í heild. Fundurinn leggur fram óskir sínar til fjárveitinga- valdsins, svo og sendir það ýms- um aðilum erindi sín. j Skógrækt ríkisins hefur nú yf- ir að ráða um 760 þús. plöntum til úthlutunar í vor. Er gert ráð fyrir að þetta muni tæplega full- ; nægja eftirspurninni. En fari svo að á vanti er gert ráð fyrir, að takast muni að afla plantna frá Noregi til viðbótar. Yfirmenn skógræktarinnar vilja láta þess getið almenn- ingi til leiðbeiningar, að þau félagssamtök og þeir einstak- lingar, sem í hyggju hafa að annast gróðursetningu plantna á komandi vori, snúi sér sem fyrst til hennar og geri pant- anir sínar. Svo og vilja þeir brýna fyrir mönnum að fara vei með þær plöntur, sem þeir fá og sjá um að gróðursetja þær sem fyrst eftir að þeir hafa fengið þær í hendur og vanda gróðursetninguna eftir föngum. Starf skógræktarinnar í land- inu er stöðugt vaxandi. Fleiri og fleiri gerast þar virkir liðsmenn og hvaðanæva að af landinu ber- ast fregnir um vöxt hennar og eflingu. SKÁK þeirra Friðriks Ólafssonar og Ilivitskys lauk með jafntefli, eftir 22 leiki. Var taflstaðan allan tímann svipuð hjá báðum og jöfn uppskipti. Jón Þorsteinsson og Sveinn Kristinsson skildu og jafnir. — Mun Jón hafa framan af haft heldur betra, en þó ekki svo að það nægði til vinnings. Skák Taimanovs og Gunnars fór í bið. Gunnar á peði minna, en þó er engan veginn séð fyrir það hvernig fara muni. Guðmundur Ágústsson á senni- lega unna biðskák móti Benóný. Freysteinn á verri stöðu gegn Baldri, en þó ekki afgerandi. Þegar 5. umferðin hófst í gær- kvöldi var röð skákmannanna þessi: Friðrik 5 vinninga, Taiman ov og Ilivitsky 4V2 hvor, Benóný og Guðm. Ág. 2Vz, Gunnar og Jón Þ. 2, Sveinn og Baldur I hvor og Freysteinn engan. í kvöld heldur mótið áfram og tefla þá Ilivitsky og Taimanov, Guðm. og Friðrik, Sveinn og Ben, óný, Gunnar og Baldur, Frey- steinn og Jón. Þeir sem á undan eru taldir hafa hvítt. — Arin- björn Guðmundsson annast skýr- ingar í efri sal. Stjórnmáianámskeið í Keflavík NÆSTI fundur á stjórnmála- námskeiði Sjálfstæðismanna á Suðumesjum verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík í kvöld kl. 8,30. Á fundinum flytur Magnús Jónsson alþm. fyrirlestur um ræðumennsku. Stjórnmaiaviðhorfið rætt fulltrúaráðsfundi Sjálfstæðis- félaganna í kvlíld Ejarni Benediktsson démsmálaráðh. frymmælandi FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hcldur í kvöld fund og verður Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra, vara- formaður Sjálfstæðisflokksins þar málshefjandi. Umræðuefni hans verður: Ný viðhorf í stjórnmálum íslendinga. Fundur hefst kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. UMBROTATIMAR í íslenzkum stjórnmálum standa nú yfir mikil umbrot'. Stjórnarsamstarf Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokks- ins er að rofna. Verkalýðssam- tökin eru herfilega misnotuð og nýr flokkur stofnaður undir merki þeirra. Hinir svokölluðu vinstri flokkar eru margklofnir og þá fyrst og fremst Alþýðu- flokkurinn, sem segja má að nú sé klofinn í tvo eða þrjá hluta. Engin veit í dag, hvað upp úr þessum jarðvegi kann að spretta, þegar þjóðin gengur til kosninga á komandi sumri. Mun marga fýsa að kynnast þeim skoðunum, sem Bjarni Benediktsson setur fram um þessi mál í ræðu sinni. Má því vænta þess að fulltrúaráðs- fundurinn í kvöld verði mjög fjölsóttur. KOSIÐ Á LANDSFUND Á fundinum verða ennfremur Bjarni Benediktsson. kosnir fulltrúar á Landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn verður í næsta mánuði. Þá verð- ur rætt um félagsmál. Velheppnaðm* kirkjiisöngur STYKKISHÓLMI, 19. marz — Kirkjukór Stykkishólms efndi til söngskammtunar hér i kirkjunni s. 1. laugardagskvöld. Á söng- skránni voru 16 lög eftir inn- lenda og erlenda höfunda Auk þess varð kórinn að syngja auka- lög. Söngstjóri var Ólaíur P. Jóns son héraðslæknir, en undirleik- ari Víkingur Jóhannsson. Ein- söng sungu Maggý: Lárentsíus- dóttir og Njáll Þorgeirsson. Kirkjan var béttsetin áhorf- endum, sem tóku kórnum mjög vel. —Á. Heilsuhælið í Hveragerði Heilsuhæli Núttúrulæhninga- félugsins í Hverngerði ■RrÁTTURULÆKNINGAFÉLAG íslands bauð í gær fréttamönn- XV um felaða og útvarps austur í Hveragerði, en þár rekur fé- iagio myndarlegt heilsuhæli, Árið 1953 var hafin bygging þessa feæii- og í fyrrasumar var búið að reisa helming þess, sem fyrir- feugað er að byggja og það tekið í notkun þá. SIGLUFIRDI, 19. marz. — í vik- unni sem leið, losaði m.s. Ingvar Guðjónsson til frystihúss S. R. 27 lestir af fiski. í dag losar m.s. Sigurður 25 lestir og bæjartog- arinn Elliði 160 lestir af þorski og karfa. Þessi fiskur fer til frystingar og herzlu. Síðastliðna viku hefur verið einmunatíð hér, frost að nótt- unni, en hiti að deginum. Sjó- veður hafa verið góð, en afli fremur tregur hjá línubátunum. — Guðjón. VÍSTLEG HUSAKYNNI í þeim húsakynnum, sem þegar eru fullgerð, eru 14 sjúkrastofur og í þeim rúm fyrir 28 manns. Mníug er þar rúmgóður borð- salur og vistleg setustofa fyrir sjúklinga, auk vistarvera starfs- fóiks og Iæknis. Einn megin þáttur í starfsemi ttætains- era Ieirböð. Fyrirhugað er, að leirböðin verði í hluta þeirra húsakynna, sem enn eru óreist, en sem stendur er notazt við ófullnægjandi húsakynni til jKíssarar starfsemi. SKORTIR FÉ Þess vegna er Náttúrulækninga ééktginu það mikið áhugamál, að ( geta hafið fyrirhugaðar fratn- kv-æmdir hið fyrsta. Til þess skortir þó fé, og hefur félagið í því tílefni ákveðið að efna til happdrættis til fjáröflunar. Verða vinningarnir þrír — Skoda bif- reið, 10 daga dvöl á heilsuhæl- inu fyrir tvo og allar bækur, sem Náttúrulækningafélagið hef- ur gefið út — í skinnbandi. — Mun sala miða hefjast innan skamms og væntir félagið þess að- ágóðinn verði nægilegur til þess að hrinda aðkallandi verk- efnum í framkvæmd. Mikil aðsókn hefur verið’ að heilsuhælinu allt frá því að það tók til starfa. Oftast hafa færri komizt þar að en vildu og gerir félagið sér von um góðan árang- ur af starfrækslu hælisins. Arfleiddi SVFI að eigmim sínum SÝSLUMAÐUR Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu, Jón Steingríms- son, hefur nýlega afhent Slysa- varnarfélagi íslands kr. 17.747.03, sem er arfur eftir Guðlínu Jóna* dóttur, Mófellsstaðakoti, er and- aðist 5. sept. 1955, en hún arf- leiddi félagið að eignum sínum, Aðalfundur Siálf- slæðiskvennafél. Sóknar í Keflavík annað kvöld AÐALFUNDUR Sjálfstæðis- kvennafélagsins Sóknar í Kefla- vík, verður haldinn í Sjálfstæðis- húsinu í Keflavík annað kvöld og hefst kl. 9. Auk venjulegra aðalfundar- starfa fer fram kosning fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Að fundi loknum verður sameig- inleg kaffidrykkja og spiluð fé- lagsvist. Góð verðlaun. Félagskonur eru beðnar að fjölmenna á fundinn og mæta * stundvíslega. 1 AKRANESI, 19 marz — Bátarn- ir héðan fengu austan storm og vont sjóveður á miðunum í nótt, auk þess var loðnan sem beitt var tveggja sólarhrmga gömul, enda var aflinn eftir því, 2, 3 og 4 lestir á bát. f kvöld róa bátarn- ir með nýja loðnu, þvi að loðnu- bátarnir komu í dag, annar með 50, en kinn með 60 tunnur. Aflinn sem fékkst var allt rígaþorskur. í þessu sambandi skal þess getið að þaulvanur tog- aramaður sagði hér í dag að á ! þessari vertíð hefði enginn göngu þorskur komið á Halamið enn. j Á laugardaginn var heildar- : afli Akranesbátanna 176 lestir. —Oddur. HAFNARFIRÐI. — Afli hefur verið nokkuð misjafn hjá bátun- um síðustu daga. Þeir eru nú flestir byrjaðir á netum, en veiði hefur verið miklu meiri hjá þeirm en línubátunum. Núna um helgina var lifrar- magn bátanna sem hér segir, í lítrum: Auður 10.574, Ársæll Sig- urðsson 24.559, Björg 12.584, Dóra 11.531, Fagriklettur 14.100, Fiska- klettur 14.010, Fjarðarklettur 92Í9, Flóaklettur 11.194, Fram 9590, Fróðaklettur 14,929, Guð- björg 12.925, Hafbjörg 16.009, Hafnfirðingur 7872, Reykjanes 12.426, Stefnir 11.675, Stjarnam 11.533, Valþór 16.282, Víðir 16.086, Þorsteinn 8848, Örn Arnarsom 7495, Freyfaxi 7208, Goðaborg 5457, Hreggviður 1914. Bjarni riddari kom af veiðurn í gærmorgun með um 200 tonn af nýjum fiski. — G. E. Miklu nf kopnr- vír stolið Nýr bátui RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur hefur kært til rannsóknarlög- réglunnar stórfelldan þjófnað á koparvír til raflagna. Er vírinn 27 þús. króna virði, eftir því sem næst verður komizt. Þessi koparvír er á þrem kefl- um 350 kg hvert og voru þau merkt Elding RR. Voru vírarnir geymdir úti í Örfirsey, í nám- unda við Faxaverksmiðjuna. Eru bað tilmæli rannsóknar- lögreglunnar til þeirra er kynnu að geta gefið upplýsingum um þennan vír, að gera sér viðvart. Vírinn er þríofinn. GRUNDARFIRÐI, 17. marz — Það sem af er vertíð hafa sjö bátar stundáð róðra héðan, en nú nýverið bættíst við áttundi bátur inn og i gær hinn níundi. Eru bátarnir 38 og 65 tonna. Nýi bát- urinn er Grundfirðingur II, er var byggður í Danmörku og kom hingað eftir að hafa verið 514 I sólarhring á leiðinni. Er bátur- ! inn hið glæsilegasta skip, með 240 hestafla dieselvél. Geta má þess að stýrishúsið og þilfar er úr j tekkviði. Báturinn er búinn beztu . siglingatækjum og var byggður á vegum Eggerts Kristjánssonar h. f. í Reykjavik. — Eigandi báts- ins og skipstjóri er Sofonías Cecilsson. Báturinn fer í sinm fyrsta róður á morgun. — E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.