Morgunblaðið - 06.05.1956, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.05.1956, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók íí. árgaagu 102. tbl. — Sunnudagur 0- niaí 1956 Prentsmiðja HnrpnblaMii Fundi Atlantshafsráðsins lokið: 312 miljarðar dollara til varnármála Sókn hafisr á sviði Bjarni Benediktsson dómsmalaráðherra: efnahags- «g - Islenzk utanríkismál eiga að standa ofan við persónulegar dytgjur og karp Svar við Tímagrein utanríkisráðherra stjónmi. LONDON í gær. HORPUR eru á því, að þrjú mál, sem mestri sundrungu valda meðal þjóða Norður-At- lantshafsbandalagsins, komi aðeins lítið við sögu á ráðherra- fundinum, sem haldinn er í París um þessar mundir. Mál þessl eru: 1) Brottflutningur Bandaríkja- hers frá íslandi. Mun ráð- gert að fresta því máli fram yfir kosningar á íslandi. 2) Deilur Breta og Grikkja út af Kýpur. 3) Ilernaðaraðgerðir Frakka í Algier. Strax áður en ráðherrafund- uinn hófst í gær, ræddust þeir við Selwyn Lloyd, utanríkisráð- herra Beta og Theotokis, utan- ríkisráðherra Gikkja. Eitthvað þj'kja horfur hafa vænkast um það, að hægt verði að taka upp aftur samninga milli deiluaðila -um Kýpur. í Algier hafa hinir róttæku og hinir hægfara þjóðernissinnar sameinað krafta sína og virðast staðráðnir í því að berjast til þrautar fyrir fullveldi Algier. — Ástæða væri til þess að halda að af þessu muni leiða vaxandi hernaðarátök í Algier, en hátt- settir franskir stjórnmálamenn hafa látið í ljós þá skoðun, að með sameiningu þjóðernissinn- anna skapist betri möguleikar til samninga við þá. SÓKN Á SVIÐI EFNAHAGSMÁLA Aðal málefni ráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins, sem ' lauk í dag og hafði þá staðið í tvo daga, var efling starfsemi bandalagsins, með því að láta 2. grein bandalagssáttmálans koma til framkvæmda. Þessi grein fjallar um samstarf Atlantshafs- þjóðanna á öllum sviðum, en ekki aðeins á sviði varnarmála. Á hinn. bóginn mun gert ráð fyrir að samstarfið á sviði varn- armála verið enn aukið. Á þeim sjö árum sem Atlantshafsbanda- lágið hefir starfað, hefir það var- , ið til herraála 312 milljörðum dollara. Selwyn Lloyd, atanríkisráð- • herrá Breta, lagði til 4 fundin- ' um að skipuð verði nefnd þriggja ' utanríkísráðherra (tilnefndir voru 1 Pearson, utanríkisráðherra Kan- ada, Halvard Lange, utanrikisráð- ' herra Nörðmanna og Martino, Ut- 1 anríkisráðherra ítala) til þess áð hefja sókn af hálfu Atlantshafs- bandalagsins, á hendur Sovet- ‘ ríkjunum í efnahags- og stjórn- málum. Lloyd kallaði nefnd þessa nefnd „hinna vitru manna". — ■ Dulles hafði áður lagt fram til- lögu í svipuðum dúr. Markmiðið virðist vera að þjóðir bandalagsiks radnsaki hve mikið fjármagn þær geti lagt fram til efnahagslegs stuðnings við þjóðir, sem skamiflt eru á veg komnar í atvinnumálum. — . Mun hér einkum vera átt við þjóðirnar fyrir botni Miðjarðar- hafsins og í Suð-austur Asíu. DR. KRISTINN GUÐMUNDSSON utanríkisráðherra staafestir í Tímanum í gær þá frásögn, sem ég hafði eftir skilríkum Framsóknarmanni, að hann hafi alls ekki tekið til máls um utanríkismálin á flokksþingi Framsóknar í vetur. Ráðherrann bæt- ir því hins vegar við, að hann hafi látið til sín heyra á nefndar- fundi. Sjálfsagt er að halda þeirri upplýsingu til haga, enda þykir honum auðsjáanlega mikið til koma. Sömuleiðis er utanríkisráð- herra að vonum hinn hreyknasti yfir, að ekki varð úr flutningi ávítunartillögu gegn honum á landsfundi Sjálfstæðvsmanna. Þetta er rétt, en ráðherrann gleymir að geta þess eða er ókunnugt, að það var fyrir eindregin tilmæli mín, að fall ið var frá þeim tillögu- flutn- ingi. Algert mishermi er það aftur á möti, að á landsfundinum hafi verið bornar fram ádeilur á stjórn mína á varnarmálunum. Mörg hundruð manna víðs vegar að af landinu hlustuðu á umræð- ur um varnarmálin á iaridsfund- inum. Það er því vonlaust verk fyrir utanríkisráðherra eða aðra að ætla að halla réttu máli um það, sem þar fór fram, m. a. að ég bað ráðherranum vægðar en skoraði á menn að stefna gremju sinni gegn þeim, er rnunverulega hefði ráðið stjóm utanríkismála íslands hin síðustu misseri MISSAGNIR UM „ÍSLENZKA HERINN“ Miklu færri voru viðstaddir samtal ríkisstjórnarinnar og full- trúa stjórnarflokkanna í vetur um varnarmálin. Nógu margir voru þeir r.amt til þess að auð- sannað er, að utanríkisráðherra skýrir rangt frá, þegai hann seg-j ir, að ég hafi talið varhugavert! að láta hinn ameríska her hverfa; úr landi. fyrr en stofnaður væri' íslenzkur her Slíkt gerði ég ekki að tillögu minni, en benti á, að áður en| uppsögn vamarsamningsins væri ákveðin, þyrftu íslend- ingar að gera sér grein fyrir, hvemig þeir vildu koma fyrir gæzlu flugvallanna. og að það yrði ekki gert nema með aukn ingu lögreglunnar frá því, sem nú er. Hermann Jónasson hélt þessari nauðsyn fram i síðustu áramótagrein sinni, svo að ég hefi síður en svo verið einn um það, að ekki yrði komizt hjá eflingu íslenzks ríkisvalds, þegar varnarliðið færi úr landi. Framsóknarmönnum væri sannarlega nær að skýra almenn- ingi skýlaust frá, hvort, þeir hafa skipt um skoðun á þessu, heldur en að búa til ósannar sögur um skoðanir armarra. DYLGJUR RÁDHERRANS Úr því að utanríkisráðherra segir beinlínis rangt frá um ótvíræðar staðreyndir er þess ekki að vænta, að mikið sé að marka það, sem hann lætur sér nægja að setja fram í dylgju- formi. Þannig gefur hann í skyn, að ég hafi vanrækt embættis- skyldu mina með þvi að gegna ekki formennsku í Atlantshafs- bandalagi og Evrópuráði, er hún hafi komið í minn hlut. Ráð- herrann veit ofur vel, að aldrei kom til þess, að ég gcgndi for- mennsku í Atlantshafsbandalag- inu, einfaldlega vegnu þess, að stafrófsröðin var þá ekki komin að íslandi. Um Evrópuráðið mætti hins vegar færa dylgjur ráðherrans til sanns vegar, ef það er talin embættirskylda ís- lenzks utanríkisráðherra að fara í viku-ferðaiag til að : ækja fund, þar sem fyrirfram er vitað, að ekkert mál varðand: íslendinga kemur fyrir, einungis til að fá að sitja í fondarstjórasæti nokkra klukkutíma. Ég hygg að fáir hafi fremur en ég brýnt fyrir löndum mín- um nauðsynina á þátttöku okkar í alþjóðlegu samstarfi, en ljóst er að um tildurs-hlið þeirrar þátttöku höfum við utanríkisráðherra all-ólíkar skoðanir. » *>h 6 hls 2 Flokkur dr. Adenau- ers kýs vara-forseia Nokkur hnekkir fyrir kanslarann DR. Konrad Adenauer, kanslari V.-Þýzkalands, varð aó lúta vilja fiokksþings kristilega demókrata- flokksins og fallast á að nokkuð yrði dregið úr hir.a m.kla áhrifa- valdi hans persónulega í þýzkum stjórnmálum Samþykkt var á flökksbinginu að kjósa fjóra varaforseta flokks ins, í stað tveggja áður. Þessi samþykkt var gerð með 239 atkv. gegn 221. Hafði dr. Adenauer lagzt fast gegn samþykktinni og borið því við að samþykkt þessi myndi sennilega draga úr virð- ingu hans út á við. En flokksþingið dró jafnskjótt úr broddinum í samþykkt þess- ari með því að endurkjósa hinn aldna kanzlara sem forseta flokksins með lófataki. Það voru hinir yngri menn kristilega demokrataflokksins, sem beittu sér fyrir því að vara- forsetunum yrði fjölguð um fjóra. Tilgngur þeirra va r fyrst og fremst sá, að fá því til leiðar komið, að dr. Arnold, fyrrum forsætisráðherra í Norður-Rín og Westfalen, yrði kosinn vara- forseti. Margir hafa talið dr. Arnold líklegastan sem eftirmann dr. Adenauers, þegar 'ninn aldr- aði kanslari sleppir stjórnveli í V.-Þýzkalandi. Dr. Ainold er úr vinstra armi kristilega demó- krataflokksins. Fimm stjórnmálafundir Sjálf- stæftisflokksins á Austurlandi Ennfremur fundir frúnaðarmanna úr báðum Múlasýslum IÞESSARI viku verða haldnir á vegum Sjálfstæðisflokksins fimm almennir stjórnmálafundir á Austurlandi. Verffa þeir Bjarni Benediktsson, dómsmálaráffherra, og Jóhann Hafstein, al- þingismaður, frummælendur á fundum þessum. Fundirnar verffa sem hér segir: Seyffisfirffi, þriðjudaginn 8. maí. Egilsstöðum, miffvikudaginn 9. maí. Eskifirði, fimmtudaginn 10. maí. Reýffarfirði, fimmtudaginn 10. maí. Neskaupstaff, föstudaginn 11. maí. Nánar verffur auglýst síffar um fundartíma. Auk hinna almcnnu funda verffa haldnir fundir trúnaffarmanna Sjálfstæffisflokksins í Múlasýslunum báffum. Verffur fundur trún- affarmanna í Norður-Múlasýslu lialdinn aff Ekkjufelli, miffviku- daginn 9. maí kl. 4 síffdegis, en ekki hefir enn veriff endanlega ákveðið hvenær í vikunni fundur trúnaffarmanna í Suður-Múla- sýslu verffur haldinn. Kvöldvelzlan fræga í London Kruséff hófaði nýjum „Stalin— Hitler sáttmála LONDON — KRÚSJEFF sagði viff brezka jafnaffarmenn í London, að Rússar væru til þess búnir aff gera nýjan „Hitler-Stalin“-samn- ing viff V-Þjóffverja, ef brezka stjórnin breytti ekki afstöðu sinni í utanríkismálum. í veizlu brezka jafnaðarmanna- flokksins í London flutti Krúsjeff ræðu og fór í ræðu sinni m. a. að minnast á Hitler-Mussolini- samninginn. Greip Georg Brown þá fram i ræðu hans og^purði: „En hvað getið þér sagt okkur um Hitler-Stalin samninginn?“ Krúsjeff svaraði um hæl: „Jæja, þér brosið. Ég skal þá segja yð- ur frá Hitler-Stalin samningn- um.“ — Þegar Krúsjeff sagði að Rússar væru til þess búnir að semja við V-Þjóðverja á sama hátt og Stalin samdi við Hitler, setti jafnaðarmennina hljóða, en | Bevan greip fram í og sagði: i „Þetta er hættuleg röksemda- færsla.“ í brezkum blöðum er um þess- ar mundir nokkuð um það rætt, hvort það hafi i rauri og veru verið beiðni brezka jafnaðar- mannafl. um að 150 leiðtogar jafnaðarmanna austan jámtjalds yrðu látnir lausir úr fangelsi, sem leiddi til þess að Krúsjeff missti taumhald á skapsmunum sínum. Öll veizlan, sem leiðtogar jafnaðarmannaflokksins héldu Krúsjeff og Bulganin fór úr skorðum í byrjun, eða strax eft- ir að Bulganin var búinn að flytja ræðu sína. Ekki hafði verið ráð fyrir því gért að Krúsjeff flytti neina ræðu í veizlunni, en eftir ræðu Bulganins heyrðust raddir frá veizlugestum, sem kölluðu: „Krusjeff, Krusjeff.“ Margir telja að Krusjeff hafi verið orðinn ofsareiður áður en hann stóð upp. Eitt af því sem olli reiði hans var spuming Georgs Brown, eins af þingmönn- um jafnaðarmannaflokksins, sem var eitthvað á þessa leið: „’Segið okkur hvernig yður finnst að vera stór karl?“ („big boss“) Krúsjeff svaraði um hæl: „Segið okkur hvemig yður finnst að ijrora Stór litill karl?“ I ræou sinni hleypti Krúsjeff sér út í þá ófæru, að fara að svara einstökum þingmönnum, sem kölluðu fram í ræðu hans. Reyksúlan „aðeins“ 15 þús metra há Á MORGUN (mánudag) verffur sprengd yfir eynni Bikini á Kyrra hafi, vetnissprengja sem hefir styrkleika á við nokkrar milljónir smálesta af TNT sprengiefni. Sprengjunni verffur varpaff úr þrýstiloftsflugvél. í gær var sprengd minniháttar vetnissprengja, effa sprengja sem gert er ráð fyrir aff geymd verffi í oddinum á flugskeytum. Reyk- súlan frá þessari „minniháttar“ sprengju náði 15 þús. metra í loft upp. Meiri her á Ceylon ! COLOMBO í gær: — Bandanar- , ika, forsætisráðherra á Ceylon, | hefir farið fram á það að herlið landsins verði aukið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.