Morgunblaðið - 06.05.1956, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.05.1956, Blaðsíða 9
Sunnudagur 6. maí 1956 MORGUXBLAÐIÐ 0 Rey k javiku r bréf: Laugardagur 5. maíi * * * „Heimsaugu svipasi“ — Osigur beðinn á Islandi -* 1. maí — Drelt baráttutækfl — Vertíðin — Lrræöi iriræðslubandalagsins í efnahagsmálum — Hert skal á verðlags- eftirliti — Hversvegnrj iækka kaupfélögin ekki álagninguna? — iffeginstefnurnar n »,Heimsaugu svipast —“ ÍSLENDIN GAR hafa margir hverjir ekki enn gert sér ljóst hverja þýðingu afstaða þeirra í alþjóðamálum hefur Við erum vanir að líta á okkur sem fáa ©g smáa, telja að þýðing okkar sé lítil. Menn átta sig ekki á að nú er sá tími, sem „vírðir fálið- ann“ meir en áður. Allur heim- urinn er nú fastar tengdur sarrt- en fyrr. Aldrei fyrr en nú, hafa menn hugsað þá hugsun, að hnötturinn er órjúfandi einírig, — ein veröld eins mannkyns. Hver þjóð horfir á aðra yfir «jí- minnkandi víddir hafs og lands. Einangrun er hvergi lengur til Siema þar, sem ófrelsi og kúgun situr að völdum. Einar Benediktsson skildi hin- ar breyttu aðstæður okkar ís- lendinga einna fyrstur allra. Hann hvatti íslendinga til að {rjúfa einangrunina og „fylkja sér í flokki þjóða“. Og í einu hinna seinustu kvecða sinna, bendir hann á að „heimsaugu svipast um hlut allra landa“. Nú horfa ,Jieimsaugu“ til ís- lands og augu þeirra, sem eru næstir okkur, eru full undrunar, vonþrigffa og ótta. Ósigur, beðinn á íslandi ALLTAF berast nýjar og nýjar fregnir um það, hvemig ráða- menn Atlantshafsbandalagsins líta á yfirlýsilngu Alþingis í varnarmálunum. Það má fullyrða að almennt er litið á atbnrðina hér sem stórkostlegan hnekki og ósigur fyrir bandalagið, bæði hvað viðvíkur varnarstöðu hinna frjálsu þjóða og á hinu siðferði- iega sviði. Vitnisburour þeirra Gruenthers yfirhershöfðingja og Ismay lávarðar, auk margra ann- arra, eru Ijóst dæmi um þetta. Það er vitanlegt, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, taka ekki sterkar til orða en þeir hafa efni til. Ábyrgð þeirra er mikil og orð þeirra miðast við hana. Þó hér falli mörg ómagaorð kosningaæstra flokka, sem eru hræddir um fylgi sitt, þá er slíkt framandi þeim mönnum, sem eru odd- vitar milljóna mauna » lífs- nauðsynlegustu málefnum þeirra. Þessir menn telja allir að málstaður hins frjálsa heims hafi beðið ósigur á íslandi. 1. maí 1. MAÍ var sólskinsdagur og margir notuðu frítímann til að fara út á götu. Ekki þó endilega til að taka þátt í eða horfa á kröfugöngu, heldur til að njóta góða veðursins. Það var svipað umhorfs á Lækjartorgi og venjulega og svipað var þar borið á borð og áður. Áróður kommú.vsta er allt af sjálfum sér líkur. Þar er hnefinn settur á nasir þjóðar- innar með hinu venjuiega tungu- taki Stalinistanna gömlu. En sjálf kröfugangan var ekki í samræmi við hin stóru orð. Hún var að vísu löng en þunn •— alveg eins og málæði kommún- ístanna. Þsgar fremmsti flokk- urinn var kominn að gatnamót- um Pósthússtrætis og Hafnar- strætis, voru þeir öftustu enn í Aðalstræti. Þetta leit nógu stórkostlega út, en begar betur var að gáð. var þessi fjlking ótrú lega þunnskipuð — aðeins menn og menn á stangli og >niklar eyð- ur í, þar sem enginn gekk. Þeir seinustu voru langt á eftir. Þannig var kröfuganga komm- únista og þess hluta Hræðslu- bandalagsinc, sem cpinberlega kosníngabaráttunni — Ekki hefta - heldur ýta undir athafnalífið — Tvenn viðhorf í varnarmálum I Haftastefna i—" | Þettn er þoð, sem bomo skol þorir að láta sjá sig með þeim, dapurleg og dauf. Úrelt baráttutæki HJÁ tveim ræðumör.num i Bík- isútvarpinu um kvöldið kom fram sú skoðun, sem ætíð nær meiri og meiri viðurkenningu, að verkföll væru orðin úrelt bar- áttutæki. Hin skefjalausu, pólit- ísku verkföll eru þjóðfélagsböl og koma afleiðingar þeirra engu síður hart niður á verkalýðnum en öðrum landsmönnum. í nútima þjóðfélagi eru hags- munir allra svo samtvinnaðir, að einum verður ekki gert tjón neina það komi niður á öðrum. Slík tilræði við hags- muni allrar þjóðarinnar, sem gerð hafa verið í nafni hins „helga verkfallsréttar“, eru miklu háskalegri en menn hafa fram að þessu almennt viljað við'urkenna. En þeim, sem líta á verkföllin, sem úr- elt baráttutæki, vex fylgi. Það hlusta margir á þá. sem ekki vildu heyra slikt fyrir skön.mu síðan. Vertíðin INNAN viku er komið að lok- um þessarar vetrarvertíðar, sem mun hafa verið og eiga eftir að verða mörgum þung í skauti. Bttár að veiðar hófust hjá báta- flctanum upp úr 20. janúar, voru aflabrögð á línuna yfirleitt góð og sums staðar ágæt miðað við það, sem er venjulega á þeim tíma. En vonbrigðin komu um miðhluta og síðari hluta vertíð- arinnar, þ. e. a. s. að því er sneftir línuveiðarnar. Þó er þetta ákaflega misjafnt eftir veiðigvseðum og veiðistöðvum og þáð er m. a. eitt helzta einkenni þessarar vertíðar hversu misjöfn aflabrögðin hafa verið. Á það eirmig við um netaveiðina, sér- staklega við Vestmannaeyjar. Var oft góður afli á nokkum hluta flotans, en lang flestir bát- ar stunda þar netaveiðar síðari hluta vertíðarinnar, en aldrei kom hrota sú, sem venjulega kemur um páskaleytið og enda kennd við þá hátíð. Hins vegar var netaveiði í Faxaflóa svo góð, að þess eru fá dæmi nú um langt skeið: Til tölulega fáir bátar stunduðu þær veiðar nú enda eru línuveiðar mest stundaðar af bátum á þeim slóðum. Kom því hinn góði neta- afli í Faxaflóa aðeins tiltölulega fáum að liði. Fiskur hefir virzt haga sér með nokkuð öðrum hætti í þessari vertíð en venja hefir verið. Svo var að sjá sem mikill fiskur væri á miðunum en bæði virtist fiskmagninu mjög misskift á veiðisvæðin og auk þess var fiskurinn mjög tregur til að taka beitu. Við Breiðafjörð var vertíðin yfirleitt með lélegasta méti, en ' þar er nær eingöngu stunduð línuveiði. Hefir mönnum brugðið þar mjög við eftir hina ágætu vertíð á sl. ári. Á Vestfjörðum mun vertíðin hins vegar hafa verið með betra móti eftir því sem þar gerist, en um allmörg undanfarin ár hefir afli verið tregur þar um slóðir. i Við Suðausturlandið, en þar er I Hornafjörður aðalverstöðin, var vertíðin með allra bezta móti. Mun ekki í annan tíma hafa komið svo mikill afli þar á land miðað við tölu bátanna. Bæði var línuveiðin góð framan af og þó var aflinn í netin sérstaklega góður síðari hluta vertíðarinnar. Þá hafa bátar frá fjörðunum norðan Hornafjarðar einnig sótt með net sín á svipaðar slóðir og Hornfirðingar og fengið ágætan afla. Hafi v*ertíðin orðið bátaútgerð- inni vonbrigði víða, þá má þó segja það enn fremur um tog- arana. Hefir aflatregða mjög sett svip sinn á vertíðina hjá þeim, svo að óvenjulegt er. Kom aflahrota aðeins stuttan tíma í aprílmánuði og síðan ekki sög- una meir. Fyrstu þrjá mámiði vertíð- arinnar var heildarfiskaflinn . 104855 smál. og var það rúml. 15 þús. smái. minna en á sama tíma á fyrra ári. Raunveru- lega er þó munurinn enn meiri, þar sem þátttakan í út- gerðinni hefir verið mun meiri á þessari vertíð en í fyrra þ. e. a. s. að því er báta- flotann snertir. Er því útkom- an sú, að hvortveggja er, að aflinn á hvern bát er mun minni og einnig aflinn miðað við hverja sjóferð. Þegar svo er litið á þá stórkostlegu hækk un á öllum tilkostnaði útgerð- arinnar frá því, sem var á fyrra ári, þá verður ljóst, að afkoma hennar er mjög erfið nú við lok þessarar vertíðar. Úrræði Hræðslubanda- lagsins í efnahags- málum TÍMINN hsfi" að undanförnu álasað SjáHstæðisflokknum fyrir þa,ð, að hann ggti ekkh; bent á fullnægjandi úrræði til lausnar efnahagsvándamálum ‘ þjóðfé- lagsins. Sannleikurinn er þó sá, að enginn þeirra stjórnmála- flokka eða „bandalaga“,- sem i menn hefir í kjöri við kom- j andi kosningar, hefir gert svo, víðtækar og alhliða tillögur um ráðstafanir til lausnar hinum margþættu vandamál- um efnahagslífsins sem Sjálf- stæðisflokkurinn með sam- þykktum sínum á hinum ný- afstaðna landsfundi. Um það geta menn bezt sann- færzt með því að kynna sér sam- þykktir fundarins, sem undan- farna daga hafa birzt hér í blað- inu. En víst um það, að öll brigzl í garð Sjálfstæðisflokksins um úrræðaleysi í efnahagsmálum koma úr hörðustu átt, þegar þau koma frá málpípum Hræðslu- bandalagsins. Það hefir að vísu birt stefnuskrá undir stórum fyr- irsögnum, en lítið fer þar fyrir því, að bent sé á ákveðin úr- ræði, heldur aðeins látin nægja almenn slagorð. Ekki er t. d. bent á nein úrræði til þess að afstýra þeim vanda, sem nú er mest að- kallandi í efnahagsmálunum, en það er hinn fyrirsjáanlegi vöxt- ur dýrtíðarinnar í nánustu fram- tíð, ef ekkert verður að gert. Það er að vísu gefið í skyn að Hræðslubandalagið hyggist eftir kosningar að leita hófanna um það hjá stéttarsamtökum laun- þega og bænda, hvort þau muni fást til þess að sætta sig við einhverjar aðgerðir í efnahags- málum, sem vandlega er þó þag- að um í hverju eigi að vera fólgnar! Ekki geta það þó talizt tillögur um lausn efnahagsvanda- málanna, þó slíku sé slegið fram. Hert skal á verðlagseftirliti EINA viðleitnin, sem í stefnu- skrá Hræðslubandalagsins kem- ur fram í þá átt að bent sé á ákveðna leið til þess að draga úr vexti dýrtíðarinnar, er tillaga um það, að almennt verðlags- eftirlit skuli tekið upp að nýju. Þessi leið hefur nú að vísu verið reynd áður hér á landi undir forystu sumra leiðtoga Hræðslubandalagsins, en ekki skal það rakið nánar hér. Þarf og engan að undra þótt Alþýðu- flokkurinn leggi áherzlu á slíka ráðstöfun, þó ekki væri vegna annars en þess, hve góð von væri um margar ágætar skrifstofu- stöður við verðlagseftirlitið handa smærri spámönnum flokks ins. Hvers vegna lækka kaupfélögin ekki álagninguna? HITT kemur vissulega einkenni- lega fyrir sjónir, hversvegna Framsóknarflokkurinn, með þeim ítökum, sem hann hefir i sam- vinnuverzlunum landsins, sér ástæðu til þess að gerast aðili að slíkri stefnuyfirlýsingu. Ef möguleikar eru á því, að ná verulegum árangri i bar- áttunni gegn dýrtíðinni ».eð lækkun álagningar, hvers vegna beitir þá Framsóhnar flokkurinn ekki sínum sterk« áhrifum gagnvart kaupfélög unum í þá átt að þau fram kvæmi slíka lækkun álagningp ar nú þegar fyrir kosningai? Hvers vegna að fara þá króka leið til lækkunar álagningar að lofa því að setja upp dv ri og viðamikið eftirlitskerfi eft- ir kosningar til þess að knýja það fram sem flokkurinn sýn- ist hafa í hendi sér að gera nú þegar. Með því að framkvæma stór- fellda lækkun álagningar nú, i stað þess að bíða þar til eftir kosningar, myndi Framsóknar- flokkurinn slá margar flugui i einu höggi. Hann myndi bæta verulega aðstöðu sína í kosning- unum, auka traust manna og álif. á samvinnuhreyfingunni, og sýna það svart á hvítu, að barátta flokksins gegn hinum íllræmda milliliðagróða væri annað og meira en slagorðin tóm. En hvers vegna er þetta þá ekki gert? Sú gáta er raunar auð- ráðin. Það er vegna þess að for - ráðamenn Framsóknarflokks ins þekkja þó þrátt fyrir alllt það mikið tii verzlunar, a:ð þeir vita að ailar fullyrðingar stjórnarandstæðinga um það undanfarin ár, að hægt sé að ná stórfelldum árangri i bar ■ áttunni gegn dýrtíðinni með lækkun álagningar eru í meg' inatriðum lýðskrum eitt. Engu að síður láta þeir sér nú sæma að taka undir þennan söng, þótt þeir, sökum þeirrar aðstöðu, sem þeir hafa á verzlunarmál- um, hljóti að gera sig blátt áfram hlægilega með því. Þetta einn úrræði Hræðslubandalagsins í verðlagsmálunum er því vind- bóla ein og blekkingar. Meginstefnurnar í kosningabaráttunni KOSNINGARNAR, scm fram- undan eru, snúast um margt. En glöggt er af hinum ýmsu stjórn- málablöðum að tvennr ber einna hæst..-í fyrsta lagi er meginstefn- an í efnahagsmálunum. Flokk- arnir hafa að venju aðeins lagt fram stefnuskrár í þeim málum, sem einungis sýna stærstu drætt- ina, en þeir éru líka aiveg skýrir. Samsteypa Alþýðuflokksins og Framsó.knar samanstendur af gömlum haftaflokkum og er alveg ljóst að meirihiuti þings í höndum þessa bandalags þýðir endurreisn haftakerfisins í sinni j gömlu mynd. Þessir flokkar, og þó einkum Framsókn, leggja megináherziu á hömlur á fjár- festingu og verðlagseítirlit. Þó ekki sé tekið sterkt til orða þekkja allir hvað þessi orð þýða í munni þessara flokka. Þeir, sem yngri eru muna líka höftin upp úr stríðinu, þegai Framsókn og Alþýðuflokkurinn höfðu meíri hluta í ríkisstjórn cg forsæti hennar. Ef þessir gömlu haftaflokkaj' kæmust áftur til valda, ei> alveg ljóst að sækja mundi í hið fyrra horf. Þeir vita enga lausn á neinum efnahags- vanda nema höft á höft ofan, eins og reynslan hefur sýnt-. Ekki hefta — heldur • ýta undir athafnalífið SJÁLFSTÆÐISMENN hafa hins vegar haldið uppi gagnólíkri stefnu. Það var minniblutastjórn þeirra á árinu 1950, sem lagði grundvöllinn að því, að horfið var inn á þá braut að rýmka um viðskiptahöft og athafnafrelsi Frh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.