Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 5
Sunnudagur 27. maí 1956. m o r c v \ b r; a n i ð 5 A annað hundrað firmu í firmakeppni 1 £TOi ★ Golfklúbburinn flyfur af Öskjuhlíðinni GOLFVÖLLUR Golfklúbbs Reykjavíkur verður þessa viku og næstu vettvangur skemmtilegrar golfkeppni. Það er firma- keppni klúbbsins, en þátttakendur í henni eru hátt á annað hundrað firmu. Þetta er sem 811 önnur keppni í golfi, að íslandsmótinu einu undanskildu, forgjafar-keppni, og hafa því öll firmu jafna mögu- leika til sigurs, hvort sem þau fá golfmeistara íslands til að leika fyrir sig, eða þann sem skipaði síðasta sæti íslandsmótsins, svo dæmi sé nefnt. ■* 28 NÝIR FÉLAGAR Golf er skemmtileg íþrótt fyrir þá sem iðka og ekki síður fyrir áhorfendui'. Keppni í golfi er afar tvísýn oftast, spennandi og skemmtileg. Erlendis eru oft þúsundir áhorfenda að golf- keppni og áhugi hér er mjög að vakna. Iðkendum golfsins hér fer eignast nýtt heimili og nýjan og fullkominn golfvöll í Vatnsenda' hæð. HagnaSi er verður af firma- keppninni nú verður öllum varið til byggingaframkvæmda. Fram kvæmdir hefjast þegar er gengið hefur verið frá samningum við bæjaryfirvöldin, en núverandi golfvöllur, sem er 9 holu völlur Verðlaunin í firmakeppni Golfklúbbsins. í miðið er farandbikar er firmað sem sigrar geymir í eitt ár. Til vinstri eíu 1. og 2. verðlaun, er firmun fá til eignar. Til hægri eru 1. og 2. verðlaun, er golfmenn viðkomandi firma fá til eignar. •— Ljósm. Ól. K. M. MOLLET LEITAR TRAUSTS PARÍS og ALSÍR, 25. maí. — Bardagar milli franskra her- manna og skæruliða héldu áfram víða í Alsír í dag. Er umræðum um utanríkismálin lýkur í franska þinginu, mun forsætis- ráðherrann Mollet fara fram á traustsyfirlýsingu næstkomandi fimmtudag. — Talið er víst, að Mendes-France muni þá nota tækifærið til að gagnrýna stéfnu stjórnarinnar í Alsírmálunum, en Mendes-France sagði af sér em- bætti varaforsætisráðherra vegna meðferðar stjórnarinnár á Alsír- málunum. •— Reuter-NTB. •♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦• ♦ ♦ EZT AÐ AUGLÝSA í ♦ ♦ ♦ ORGUNBLAÐINU Togtmnn Vöttur kemur tíl heimuhufnur ú Fúskrúlsflrði : B : m FÁSKRUÐSFIRÐI 24. maí. - Hingað kom í kvöld hinn ný- keypti#>gari Vöttur, sem togara- félagið Austfirðmgur hf. hefur keypt, en áður hét skipið Kefl- víkingur. Mikið var ara dýrðir við komu akipsins. MANNFJÖLDI FAGNAÐI SKIPIN Togarinn lagðist að bryggju kl. 8,30 í kvöid. Skipstjóri cr Steinn Jónsson frá Eskifirði. Með tog- aranum var Þorleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Austfirðings hf. Mikill manngrúi hafði safnazt niður á brj-ggju við komu skips- ins og kauptúnið var allt fánum skreytt. Fiöldi báta nafði farið á móti skipinu út fjorðinn og voru bátarnir fánum skreyttir. Við komu Fkipsins flutti sveitar- stjórinn í Búðahreppi, Jón Er- lingur Guðmundsson ávarp og árnaði eigendum, sem eru vel- flestir íbuar 1 þremur nreppum, skipstjóra, framkvæmdastjórn og skipverjum heilla með nið glæsta skip. SAMEIGN ÞRIGGJA ÍIREPPA Nýlokið er 8 ára flokkun á skipinu og er það nú í hinu bezta ásigkomulagi, enda glæsi- legt og gott sjóskip. Þetia er ann- ar .ogarinn. sem togarafélagið Austfirðingur hi. eignast, hinn togarinn he’tir Austfirðingur og er hann heimilisfastur á Eski- firði. Félagið er eign þriggja hreppa þ. e. Búðahrepps, Eski- fjarðarhrepps og Reyðarfjarðar- hrepps. Aihir almenningur í þess um hreppum er hluthafi í fé- laginu. RiKir mjög mikil og al- menn ánæeja yfir komu þessa skips og vænta menn mikillar at- vinnu í sambandi við það. Það er skrásett til heimilis á Fá- skrúðsfirði f KVÖLD ER HALDIN VEIZLA f iramkvæmdaráð Austfirðings h.f. eru þeir Þorsteinn Jónsson, kaupfélags djóri á Reyðarfirði, Arnpór Jensen forstj. EsKifirði og Helgi Vigiússon kaupiél.stj. Fá- skrúðsfirði í Kvöld er skipverjum öllum boðið til veizlu á Fáskrúðsfirði, en í nótt" Leldur skipið svo til Eskifjarða:’ og mun þar taka veið arfæri og annað, er að útgerð- inni lýtur. Gert er ráð fyrir að skipið geti hafið veiðar næstk. sunnudag. og ört fjölgandi. Síðan í apríl hafa 28 nýir félagar verið skrá- settir í golfklúbbinn. Golf er fyrir alla, jafnt unga 'sem gamla. Og golf er skemmtilegra en flestar aðrar íþróttir, segja menn, sem lagt hafa stund á margt. + BYRJENDUR GETA SIGRAÐ Á vegum Golfklúbbs Reykja- víkur fara árlega fram 20—30 kappleikir og eins og fyrr segir er það í öllum tilfellum nema einu (íslandsmótinu) forgjafar- keppni, svo að allir hafa jafna möguleika til sigurs. Gerir það þátttökuna almennari og keppn- ina skemmtilegri — en það er höfuðtilgangurinn að sem flestir séu með og fái notið hins skemmtilega leiks. Fyrstu keppni klúbbsins, Hvítasunnukeppninni, er að ljúka og leika til úrslita Jón Sv. Sigurðsson og Gunnar Böðvarsson. ★ NÝR GOLFSKÁLI Stjórn Golfklúbbs Reykjavík- ur rabbaði við blaðamenn á föstudag um ýmislegt er snertir íþróttina. Viðtalið fór fram í hinum vistlega og skemmtilega skála félagsins á Öskjuhlíð, en innan fárra ára mun klúbburinn Útsala á skófatnaði Karlmannaskór frá kr. 95.00. Karlmannainniskór kr. 45.00. Karlmannagúmmístígvél fullhá kr. 195.00. Kvenskófatnaður í úrvali frá kr. 35.00—95.00. Barnastrigaskór lágir. — Verð kr. 20.00—25.00. Barnagúmmistígvél frá kr. 25.00, Bama- og unglingaleður- skór, lágir og uppreimað- Ir «. m. fl. SKÓSALAN Snorrabraut 36. (en fullkominn völlur er 18 hol- ur) stendur á 11 hektara rækt- uðu landi, sem hverfa mun und- ir byggingar og önnur mann- virki. * DANADROTTNING VERNDARI KLÚBBSINS Golfklúbbur Reykjavíkur á skemmtilega sögu a'ð baki. Hann var stofnaður 1934 og í klúbbn- um hefur alltaf verið fjörugt og skemmtilegt — misjafnlega að vísu, en alltaf skemmtilegt og ánægjulegt. Golfmenn léku fyrst í Laugardalnum, en fengu svo svæðið á Öskjuhlíð. Völlinn þar vígði Ingiríður Danadrottning árið 1938. Hún hefur síðan verið verndari klúbbsins. Mynd henn- ar skipar heiðurssæti í Golfskál- anum. Margar konur hafa leikið þar síðan, enda er golfíþróttin jafnt fyrir konur sem karla. Starfsmaimafél. Akuí "evrar Aðalfundur Starfsmannafélags Akureyrar var haldinn 8. maí s.l. í sjórn voru kosnir: Formaður: Jón Norðfjörð, bæj- jargjaldkeri. — Ritari: Gunnar Steindórsson, brunavörður. — Gjaldkeri: Sigurður Halldórsson, bókari. — Meðstjórnendur: Stein- unn Bjarman, ritari. og Þorsteinn Stefánsson, bæjarritari. — Vara- stjórn: Björn Guðmundsson, lög- regluvarðstjóri. — Sveinn Tómas son, vara-slökkviliðsstjóri. — Sigurður Helgason, eftirlitsmað- ur. — Oddur Kristjánsson, bygg- ingameistari. —'Bjarni Halldórs- son, skrifstofustjóri. — Endur- skoðendur: Garðar Ólafsson, efn- isvörður og Ásgeir Markússon, yfirverkfræðingur, og til vara: Magnús Ólafsson, sundkennari. Fundurinn var vel sóttur og var trú félagsmanna rík í þá átt, að bæjarstjórn mundi taka vel nýju frumvarpi til launalaga fyrir starfsmenn bæjarins, sem nú hef- ur verið lagt fyrir bæjarráð Og er sniðið að mestu eftir frum- varpi starfsmanna Reykjavíkur- bæjar, sem borgarstjórinn í R.vík hefur mælt með til samþykktar, samkvæmt fréttablöðum að sunn- an- Höfum riú aftur fengið þessa eftirspurðu kœ Iis ká p a sem ætfu að vera til á hverju heimili Kelvinator kæliskápurinn er rúmgóð og örugg matvælageymsla. 8 rúmfeta Kelvinator kælskápurinn rúmar í frystigeymslu 56 pund (lps.) og er pað stærra frystirúm en í nokkrum öðrum kæliskáp af sömu stærð. 5 ára ábyrgð á frystikerfi. Hillupláss er mjög mikið og haganlega fyrir komið. Stór grænmetisskúífa. — Stærð 8 rúm- feta Kelvinator. Breidd 62 cm. — Dýpt 72 cm. Hæð 136 cm. — Eigum fyr rliggjandi 3 mismun- andi gerðir af 8 rúmfeta Kelvinator skápum. Kelvinator 8 rúmfet Kelvinator verksmiðjurnar eru elztu framleið- endur rafknúinna Kæliskapa til heim.hsnotkun- ar og hafa alltaf verið í fremstu röð með allar nýjungar. 10,6 rúmfeta Kelvinator kæliskápurinn hefir 70 punda (lbs.) frystigeymsiu, tvær rúmgóðar grænmetisskúffur og miK-.ð hillurými. Stærð hans er: 72 cm. Dýpt 76 ern. Hæð 150 cm. Örfáir skápar fyrirliggjandi. Pantana óskast vitja-3 á morgun. Kelvinator 10,6 rúmfet. * Kelvinator er Drýði eldhússins op stolt húsmóðurinnar. * Kelvinator er allt af hægt að kynnast hjá okkur — Gjörið svo vel og lítið inn —« Sjón er sögu ríkari. ' i Jfekla Austurstræti 14 — Sími: 1687

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.