Morgunblaðið - 27.05.1956, Blaðsíða 16
Veðrið í dag:
Allhvass eða hvass SV. Þoka og
súld.
Reykjavíkurbréf
Sjá blaðsíðu 9.
Utankjörstaöa-
kosning hefst í dag
Hafið samband við kosningaskrifstofur
flokksins
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING hefst í da£, sunnudag. I Reykja-
vík fer kosningin fram í Melaskólanum frá kl. 10—12, 2—0
og 8—10 alla daga nema sunnudaga, en þá er kosið frá kl. 2—6.
Annars staðar á landinu er hægt að kjósa hjá bæjarfógetum og
hreppsstjórum.
Erlendis fer kosning fram hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis-
mönnum íslands, sem tala íslenzku og eru af íslenzku bergi
brotnir.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Vonarstræti 4, III.
hæð, opin 10—10 virka daga og 1—7 á sunnudögum, símar 7574
og 81860.
Skrifstofan veitir stuðningsmönnum flokksins allar upplýsingar
og fyrirgreiðslu í sambandi við utankjörstaða atkvæðagreiðslu og
kjörskrá.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til að gefa skrifstofunni upplýsingar
um kjósendur flokksins, sem dveljast fjarri heimilum sínum á
kjördag.
Athygli skal vakin á því, að kærufrestur vegna kjörskrár er
útrunninn 3. júní n.k., og ættu menn að athuga fyrir þann tíma
Itvort nöfn þeirra eru á kjörskránni.
Hesfamannamót
Elliðaárskeiðvelli
IBYRJUN júlímánaðar er á-
formað að haldið verði á
Skeiðvellinum við Elliðaár, mót
hestamanna á svæðinu milli
Ölfusár og Botnsár í Hvalfirði.
Hestamannafélagið Fákur hefur
einkum með höndum undirbún-
ing að móti þessu. Þar fer fram
góðhestakeppni og efnt verður til
kappreiða stökkhesta og skeið-
hesta.
Áhugi manna fyrir hestaíþrótt-
inni hefur farið mjög vaxandi á
undanförnum árum og munu nú
vera alls um 500 hestar í Reykja-
vík, að sjálfsögðu nær eingöngu
reiðhestar, enda má sjá um
hverja helgi fjölda mánns á hest-
um hér í nágrenni bæjarins.
Á þessu hestamannamóti munu
Reykvíkingar senda 12 hesta til
góðhestakeppninnar, bændur á
Kjarnarnesi og í Kjós 6 og Hafn-
lirðingar og bændur á Suðurnesí-
um 6 hesta. •
A SKEIÐVEI I INUM
Reykvískir hestamenn hafa
unnið mikið í sumar við svæði
sitt kringum Skeiðvöllinn, en þar
hafa þeir mikinn hug á að koma
upp félagsheimili, hesthúsi, 800
metra langri skeiðbraut o. fl.,
sagði Þorlákur Ottesen í stuttu
samtali við Mbl. í gær. Nú er t.d.
búið að girða með vandaðri girð-
ingu allt kringum landsvæðið og
þarna býður okkar mikil sjálf-
boðaliðsvinna, sagði Þorlákur,
en hestamenn hafa lagt fram
mjög mikla vinnu undanfarnar
vikur.
Á fyrsta kosningafundi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík var
mikið fjölmenni. Sjálfstæðishús-
ið var fullt út úr dyrum og urðu
margir að standa.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Með fullfermi
af Grænlandsmiðum
SEM KUNNUGT er, eru tog-
ararnir fyrir nokkru byrjað-
ir veiðar á Grænlandsmiðum,
en þar fiska þeir i salt, herzlu
og karfa fyrir frystihúsin. Þrír
togarar héðan úr Reykjavik
eru nú nýkomnir af veiðum,
þeir Askur, Geir og Úranus.
Hinir tveir fyrrnefndu voru á
ofanverðum Jónsmiðum og
komu báðir með fullfermi.
afði Geir aðeins verið 6 só!-
arhringa í allri veiðiferðinni,
þar af 3 á veiðum. — Tog-
arinn Úranus var aftur á móti
á svonefndum nafnlausum
banka við vestur Grænland
og var með fullfermi af þorski
og ýsu.
Togararnir Marz, Hallveig
Fróðadóttir og Egill Skalla-
grímsson. enu væntanlegir af
veiðum frá Grænlandi í dag.
Undirbúningur að stofnun
krabbameinsstöðvar lokið
AÐALFUNDUR Krabbameins-
félags íslands var haldinn
nýlega. Flutti formaður félags-
ins, próf. Niels Dungal, ýtarlega
skýrslu um starfsemi félagsins og
deilda þess á síðasta ári, Auk
víðtækrar fræðslustarfsemi og
útgáfu Fréttabréfs, hefur félagið
á hendi skráningu krabbameina
á’ íslandi og eru miklar vonir
tengdar við hana í fræðilegu til-
liti.
Þá hefur • félagið nýlok-
ið undirbúningi stofnunar
krabbameinsleitarstöðvar i
Reykjavík og mun stöðin
hefja starfsemi sina með
haustinu. Verður almenningi
nánar greint frá tilhögun starf
seminnar síðar. Einnig vínnur
félagið nú að undirbúningi víð
tækra rannsókna á lifnaðar-
háttum landsmanna í því
skyni að varpa ljósi á orsaka-
samband milii lífskjara manna
og krabbameins.
HEIMSÞEKKTIR LÆKNAR
í IIEIMSÓKN
Félagið á von á heimsókn
Sundmeistaramót Islands
í Hafnarfirði í dag kl. 5
SUNDMEISTARAMÓT íslands fer fratn í Sundhöll Hafnar
fjarðar á sunnudag kl. 2 e. h. og á mánudagskvöld kl. 8,30.
Keppt verður í öllum meistaramótsgreinum og auk þess í ung-
lingasundum.
* AI.I.IR BEZTU SUNDMENN
ÍSLANDS
Sundhöll Hafnarfjarðar er
glæsileg og hefur áður verið vett-
vangur stórra sundmóta. — Með-
al keppenda á mótinu þar nú
verða allir beztu sundmenn og
konur landsins. Meðal þeirra má
nefna hina nýju „stjörnu" Ágústu
Þorsteinsdóttur, Ármar.ni, Helgu
Haraldsdóttur KR, Pétur Krist-
jánsson og Þorgeir Ólafsson, Ár-
Ágústa með Flugfreyjubikarinn manni, Akurnesingana Sigurð
og Þorgeir með Sindrabikarinn Sigurðsson og Jón Helgason,
eru meðal keppenda á nceistara- Helga Sigurðsson, Ægi, að ó-
mótinu. gleymdum Hafnfirðingunum, en
meðal þeirra er Ólafur Guð-
mundsson, Haukum, einn af eldri
sundmönnunum, sem nú hefur
aftur hafið æfingar og keppni.
Bamferíkjametm
eru
Hvers vegna skipti
Rannveig um flokk?
Hvað eru „sameiginleg44 framboð?
EF einhverjir eru í vafa um, að Framsókn og Alþýðu-
flokk sé ljóst, hvert glappaskot þeir hafa gert með
sínum sameiginlegu framboðum, þá þarf ekkl annað en að
spyrja: Hvers vegna skipti Rannveig um flokk? Vilja blöð
þessara tveggja flokka svara þeirri spurningu?
Hafði Rannveig skipt um stjórnmálaskoðun? Ef svo er,
Þ* mun það einsdæmi í veraldarsögunni, að frambjóðandi
skipti gersamlega um stjórnmálastefnu daginn eftir framboð
sitt!!
VERSTA VANDRÆÐAMÁLIÐ
Getur nokkrum heilvita manni dulizt, að úrsögn Rann
veigar úr Framsóknarflokknum sýnir svart á hvítu, að henni
sjálfri og foringjum Framsóknar og Alþýðuflokks er fylli-
lega ljóst, að breilan með tvo flokka á sama lista er nú
þegar orðin að einu versta vandræðamáli, sem fyrir Hræðslu
bandalagið gat komið, — hvernig svo sem úrskurður land-
kjörstjórnar fellur.
Ekkert sýnir betur það vandræðafum, sem nú er t. d. á
Alþýðuflokknum, en sú furðulega staðhæfing í varnarskjali
hans fyrir landkjörstjórn, að framboð Hræðslubandalags-
flokkanna séu ekki „sameiginleg — því slíkt væri rangt eins
og framboðin sjálf bera með sér“!!
Hvað ertl sameiginleg framboð ef ekki framboð á sam-
eiginlegum lista?
þriggja heimsþekktra lækna, er
lengi hafa starfað á sviði krabba-
meinsrannsókna og krabbameins-
baráttu. Munu þeir verða hér í
júlíbyrjun, flytja hér erindi og
vera félaginu ráðgefandi um
ýmislegt er varðar krabbameins-
baráttuna hér á landi.
Stjórn félagsins skipa nú: For-
maður er próf. Niels Dungal, rit-
ari Alfreð Gíslason læknir og fé-
hirðir Hjörtur Hjartarson verzl-
unarstjóri. Aðrir í stjórn eru:
Bjarni Snæbjörnsson læknir, Frið
rik Einarsson læknir, Gísli Jón-
asson skólastjóri, Guðjón Gunn-
arsson fulltrúi, Gunnar Möller
lögfræðingur og frú Sigríður J.
Magnússon.
Starfandi deildir félagsins eru
í Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla-
vík, Vestmannaeyjum og á Akur-
eyri.
Byssuleyfin tekin
af pilfunum
LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykja-
vík, Sigurjón Sigurðsson, skýrði
Mbl. frá því í gær vegna skrifa
í blaðinu, að byssuleyfi hefðu ver-
ið tekin af piltunum tveim, sem
skutu í gegnum sumarbústaðinn
austur við Kaldárhöfða á dögun-
um, og mál þeirra sent sakadómi
Reykjavíkur. Kvaðzt lögreglu-
stjóri líta mjög alvarlegum aug-
um á það, ef í'ljóS kæmi, að byssu-
leyfishafar misnotuðu skotvopn
sín. Hann skýrði blaðinu og frá
því, að lögreglan óskaði einmitt
eftir því að fólk gæfi henni upp-
iýsingar ef það yrði þess vart að
ógætilega og óleyfilega væri far-
ið með skotvopn.
New York. — Bandarikjamönn-
um hefir Uólgað um rrteir en 16
milljónir frá því árið 1950.
Manntalssk; ifstofan í Bandaríkj-
unum telur Bandaríkjamenn nú
vera 167.4*J 000.
Stfóinmálafundir á Snæfellsnesi
OJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN heldur þrjá aimenna stjórnmála-
^ fundi á Snæfellsnesi í næstu viku. Fundirnir verða haldnir á
þessum stöðum: Hellissandi, Ólafsvík og Grafarncsi. Frummælendur
á fundunum verða: Bjarni Bcncdiktsson, dómsmálaráðherra og aL
þingismennirnir Jóhann Hafstein og Sigurður Ágústsson.
Fyrsti fundurinn verður haldinn á Heliissandi mánudaginn ?S.
maí. Á Óiafsvík þriðjudaginn 29. maí og í Grafarnesi miðvikudag.
inn 30. wú Fundirnir hefjast ailir kl. 9 s.d.