Morgunblaðið - 24.07.1956, Page 9
Þriðjudagur 24. júlí 195r
morcvnb:/aðið
9
Ræðo Krúsjeffs — Blóðferill Stalins
„ÉG ÞQLDI EKKI
PYNDII\IGARIMAR.“
í RÆÐU Krúsjeffs er grúi af frásögnum um þá ógnaröld,
sem ríkt liefur í Rússlandi og á rætur sínar í kommúnism-
anuin sjálfum, stefnu hans og skipulagi.
Sú saga Krúsjeffs, sem hér birtist, er um pyndingar og
morð byltingamannsins Eikhe. Ilún er aðeins ein af hinum
mörgu frásögnum um hið kommúnistiska grimmdaræði, en
Krúsjeff hefur valið hana ásamt mörgum öðrum, sem sýnis-
horn af því, sem gerðist.
MORÐIÐ á Eikhe er dæmi um
svívirðilegt fals og hrylli-
legt brot á lagahelgi byltingar-
innar. Eikhe hafði verið floklcs-
maður síðan 1905 og var eitt sinn
frambjóðandi til stjórnmáladeild
ar miðstjórnarinnar.
(Hreyfing í salnum.)
Félagi Eikhe var tekinn fastur
29. apríl 1938 á grundvelli gagna,
sem voru tómar lygar, og án sam-
þykkis frá saksóknara ríkisins,
sem ekki var fengið fyrr en 15
mánuðum eftir handtökuna. Rann
sókn á máli Eikhe var þannig
löguð, að hún var hið freklegasta
og andstyggilegasta réttarbrot,
hlutdrægni og falsanir. Rannsókn
ardómararnir létu pynda F.ikhe
og var hann þannig neyddur til
að undirskrifa bókun snemma,
þar sem hann játaði á sig mann-
dráp. Margir mjög vel þekktir
floklcsmenn voru þá ákærðir um
það sama.
Þann 1. okt. 1939 sendi Eikhe
yfirlýsingu til Stalins, þar sem
hann neitaði að vera sekur og
bað um rannsókn á málinu. I yfir
lýsingunni stóð:
„Það er ekki til neitt áumara
volæði en að sitja í fangelsi þeirr-
ar ríkisstjórnar, sem ég hef alltaf
barizt fyrir."
Önnur yfirlýsing er til frá
Eikhe, sem hann sendi Stalin 27.
október 1939. Þar skýfði hann á
sannfærandi hátt frá staðreynd-
unum og afsannaði hin upplognu
kæruatriði. Hann hélt því fram,
að þessi ruddalega ákæra, væri
verk manna, sem væru Trotsky-
istar í raun og veru, en hann
hefði samþykkt handtöku þessara
manna, þegar hann var aðalritari
flokksstjórnarinnar í Vestur
Siberíu. Nú væru þessir menn að
hefna sín á honum. Að nokkru
leyti væru kærurnar byggðar á
fölsun, sem rannsóknadómararn-
ir hefðu framkvæmt.
Eikhe tók svo til orða í þessari
yfirlýsingu:
.....Þann 25. október í ár var
mér skýrt frá að rannsókninni í
máli minu væri lokið, og mér var
leyft að kynna mér rannsóknina.
Væri ég sekur, þó ckki væri nema
um einn hundraðasta af þeim
glæpum, sem mér eru gefnir að
sök, mundi ég ekki þora cð senda
þér þessa yíirlýsingu á undan af-
töku minni. En ég hef ekki einu
sinni orðið sekur um einn af þess-
,um glæpum, og hjarta mitt er
• •'
Onnur grein
hreint af öllum skuggum hvers-
konar illmennsku. Ég hef aldrei
á ævi minni sagt bér ósatt orð og
nu þegar ég stend með báða fæt-
ur í gröfinni, segi ég líka satt.
Allt málið er glöggt dæmi um
persónulega árás, lygar og lög-
brot....“
„.... Nú kem ég að hinum
smánarlegasta atburði lífs mins,
sem er hin eina sök, sem ég ber
gagnvart flokknum og gagnvart
þér. Ég á þar við játningu mína
á gagnbyltingarstarfsemi
En ástæðan er þessi: Ég
þoldi ekkl hinar líkamlegu
pyndingar, sem Ushakov og
Nikolayev beittu við mig. Sú
fyrsta var einkum sár, en þeir
notuðu sér þá vitneskju, að
ég var rifbrotinn og ekki vel
gróinn, þannig að ég hafði af
þessu mikinn sársauka. Þann-
ig var ég þvingaður til að
ákæra sjálfan mig og aðra.
Mest öll játning mín er skrifuð
eftir forsögn Ushakov, en nokkuð
af henni er tekin úr gögnum lög-
reglunnar i Vestur Siberíu, en á
því ber ég ábyrgð. Ef eitthvað af
þeim sögum, sem Ushakov spann
upp og ég skrifaði undir. var
ekki nógu trúleg, var ég neyddur
til þess að skrifa iðra nýja.
Ég bið og grátbæni þig um að
rannsaka mál mitt aftur. Ég bið
ekki um þetta í þeim tilgangi að
mér verði hlíft, heldur til að af-
hjúpaðar verði þær grimmdar-
legu álygar, sem vafizt hafa um
persónu mina, lílct og höggormur,
og einnig hefur komið niður á
öðrum mönnum, og á séí engan
stað í öðru en veikleika mír.um
og glæpsamlegum ákærum. Ég
hef aldrei svikið þig né flokkinn,
ég veit að ég mun farast vegna
undirróðurs frá óvinum flokksins
og þjóðarinnar, sem fölsuðu kær-
ur gegn mér.“
Svo þýðingarmikil yfirlýsing
var auðvitað þess virði að vera
rannsökuð af miðstjórninni. En
þetta var ekki gert og yfirlýs'ng-
in var send Beria, en misþyrm-
ingin á Eikhe hélt áfram.
Hinn 2. febrúar 1940 var Eiirhe
leiddur fyrir dóm. Hann játaði
enga sök, en tók eftirfarandi
fram:
„í öllum þessum svokölluðu
játningum mínum er ekki nokkur
staíur skrifaður af mér sjálfum,
nema nafn mitt undir bókanirn-
ar, sem ég var þvingaður með
pyndingum til að skrifa. Ég hef
gert játningar mínar þvingaður
af rannsóknardómnrunum, sem
hafa kvalið mig, allt frá þvi að
ég var handtekinn. Eftir bað
byrjaði ég að skrifa alla þessa
vitleysu. Ég legg á það mesta
áherzlu að segja dómurunum,
flokknum og Stalin, að ég sé ekki
sekur. Ég hef aldrei orðið sekur
um neitt samsæri. Ég mun deyja
í trúnni á réttmæti stefnu flokks
ins, eins og ég hef trúað á hana
allt mitt líf.“
„SANNUEIKSFJANDSAM-
LEGT BLAÐUR“
„ÞETTA sannleiksfjandsam-
lega blaður um einræði Stal-
ins, kommúnistiskt ofbeldi,
rússneskt þrælahald, rúss-
neskan yfirgang, rússneska
heimsvaldastefnu, á ekki við
nokkur rök að styðjast. Það er
aðeins mannliatursáróður sið-
iausra fjárplógsmanna, til
þess að hræða fólk frá sósial-
isma og ginna það til að láta
múra sig undir kúgun, arðrán,
örbirgð, andlcgt ófrelsi og síð-
ar mcir milljónamorð í krafti
atómsprengjumiar, ef guð lof-
ar.“
Andlegt frelsi, erindi flutt
á fundi Stúdentafélags
Reykjavíkur 12. jan. 1950
af Þórbergi Þórðarsyni.
Þann 4. febrúar var Eikhe
skotinn.
(Hneykslunaróp í salnum).
En nú hefur það verið upplýst
að sakir gegn Eikhe voru upp-
lognar og hann hsfur nú fengið
uppreiisn æru í gröf sinni“.
Þriggjo milljónn
tjón
STOKKHÖLMI, 19. júlí: —
Snemma í morgun kom upp
mikill eldur í hverfi einu í
borginni — þar sem mikið er
af háreistum timburhúsum.
Tók það slökkviliðsmenn
langt á fjórðu kiukkustund að
ráða niðurlögum eldsins — og
urðu skemmdir af völdum
hans mjög miklar. Tjónið er
metið á 3 milljónir sænskra
króna, og er þetta einn hinn
mcsti eldsvoði, sem um getur
í Slokkliólmi á síðari árum.
Eldsupptök eru ókunn.
Krúsjeff og félagar hans báru Stalin til grafar og „söknuður
vætti nálega hverja brá“. Tveimur árum siðar var Stalin
afhjúpaður.
Þegar síldarskipin koma svona hlaðin til hafnar, en þetta er
Sigurður frá Siglufirði, þá segja menn á sildarplönunum, að
þetta skipið eða hitt, hafi komið inn og verið eins og fjöl á
vatninu og eiga þá við að svo litlu hafi mátt muna að skipið
færi á kaf að aðeins fjalarbreidd hefði staðið upp úr.
Ljósm.: Jóhannes Þórðarson, Siglufirði.
Afli síldveiðiflotans samkvæmt
skýrslu Fiskifélagsins
Botnvörpuskip:
Egill Skallagrímsson Rvík 3199
Jón Þorláksson Rcykjavík 508
Jörundur Akureyri 8050
Mótorskip:
Aðalbjörg Akranesi 2070
Ágústa Vestmannaeyjum 785
Akraborg Akureyri 527G
Akurey Hornafirði 1800
Arnfinnur Stykkishólmi 1361
Arnfirðingur Reykjavík 1362
Ársæll Sigurðsson Hafnarf. 3166
Ásgeir Reykjavík 1382
Atli Vestmannaeyjum 1325
Auður Akureyri 911
Baldur Dalvík 4911
Baldur Vestmannaeyjum 2823
Baldvin Þorvaldsson Dalvík 3152
Bára Flateyri 2878
Barði Flateyri 2878
Bergur Vestmannaeyjum 2547
Bjargþór Ólafsvík 913
Bjarmi Dalvík 4041
Bjarni Jóhannesson Akran. 2528
Björg Eskifirði 2905
Björg Neskaupstað 2126
Björg Vestmannaeyjum 1238
Björgvin Dalvík 3160
B.jörgvin Keflavík 2189
Björn Jónsson Reykjavík 3669
Björn riddari Vestmannaeyj. 1725
Búðafeil Búðakauptúni 967
Böðvar Akranesi 608
Dóra Hafnarfirði 1210
Einar Hálfdáns Bolungarvík 3727
Einar Þveræingur Ólafsfirði 2581
Erlinguf XII Vestmannae. 2070
Erlingur V Vestmannae. 1902
Fagriklettur Hafnarfirði 2910
Fákur Hafnarfirði 3961
Fanney Reykjavík 3656
Faxaborg Hafnarfirði 3976
Faxi Garði 728
Flóaklettur Hafnarfirði 1057
Flosi Bolungarvík 1687
Fram Akranesi 1422
Freyfaxi Hafnarfirði 856
Frigg Vestmannaeyjum 1456
Fróði Njarðvík 3066
Fróði Ólafsvík 1988
Garðar Rauðuvík 3695
Geir Keflavík 2628
Gissur hvíti Hornafirði 2190
Gjafar Vestmannaeyjum 2645
Glófaxi Neskaupstað 2073
Goðaborg Neskaupstað 2361
Grundfirðingur Grafarnesi 2538
Grundfirðingur II Grafarn. 2810
Græðir Ólafsfirði 1970
Guðbjörg Hafnarfirði 721
Guðbjörg ísafirði 2214
Guðbjörg Sandgerði 1005
Guðfinnur Keflavík 4097
Guðm. Þórðarson Gerðuiu 1506
Guðm. Þoriákur Reykjavík 1868
Gullborg Vestmannaeyjum 2403
Gullfaxi Neskaupstað 2982
Gunnar Akureyri 2510
Gunnólfur Ólafsfirði 5023
Gunnvör ísafirði 1987
Gylfi Rauðuvík 2433
Gylfi II Rauðuvík 2969
Hafdís Þingeyri 915
Hafbjörg Hafnarfirði 3668
Hafrenningur Grindavík 2512
Hafþór Reykjavík 1390
Hagbarður Húsavík 2921
Hannes Hafstein Dalvík 3050
Haukur I Ólafsfirði 2775
Heiðrún Bolungarvík 2668
Helga Reykjavík 5514
Helgi Hornarfirði 1102
Helgi Flóventsson Húsavík 3433
Helgi Helgason Vestmannae. 3586
Hildingur Vestmannaeyjum 1439
Hilmir Hólmavík 1159
Hilmir Keflavík 3557
Hrafn ’Sveinbj.son Grindav. 1863
Hringur^ Siglufirði 3036
Hrönn Ólafsvík 1370
Hrönn Sandgerði 1427
Huginn Neskaupstað 1395
Hvanney Hornafirði 1673
Höfrungur Akranesi 3696
Ingólfur Hornafirði 824
ísleifur Vestmannaeyjum 563
ísleifur II Vestmannaeyjum 1477
ísleifur III Vestmannaeyjum 1219
Ingvar Guðjónsson Akureyri 4168
Jón Finnsson Garði 2602
Júlíus Björnsson Dalvík 3737
Kap Vestmannaeyjum 2487
Kári Sölmundarson Rvík 2824
Keilir Akranesi 2198
Kópur Keflavík 3046
Kristján Ólafsfirði 3366
Langanes Neskaupstað 2613
Magnús Marteinsson Nesk.st. 1599
Marz Reykjavík 1839
Mímir Hnífsdal 1654
Mummi Garði 2522
Muninn Sandgerði 1825
Muninn II Sandgerði 1800
Njörður Akureyri 566
Nonni Keflavík 2^12
Ólafur Magnússon Akranesi 2240
Ólaíur Magnússon Keflavík 3062
Páll Pálsson Hnífsdal 2409
Páll Þorleifsson Grafarnesi 2500
Pálmar Seyðisfirði 1073
Pétur Jónsson Húsavík 2366
Rex Reykjavík 2296
Reykjanes Hafnarfirði 2057
Reykjaröst Keflavík 2714
Reynir Akranesi 2378
Reynir Vestmannaeyjum 3576
Rifsnes Reykjavík 1249
Runólfur Grafarnesi 1599
Sidon Vestmannaeyjum 1197
Sigurbjörg Búðarkauptúni 1653
Sigurður Siglufirði 3878
Sigurður Pétur Reykjavík 2480
Sigurfari Hornafirði 1466
Sigurfari Grafarnesi 1488
Sigurfari Vestmannaeyjum 1276
Sjöstjarnan Vestmannae. 2029
Sleipnir Keflavík 1256
Smári Húsavik 4038
Snæfell Akureyri 6146
Snæfugl Reyðarfirði 3256
Stefán Árnason Búðakaupt. 2111
Stefán Þór Húsavík 2510
Stefnir Hafnarfirði 1935
Steinunn gamla ICeflavík 2478
Stella Grindavík 2663
Stígandi Vestmannaeyjum 4102
Stígandi Ólafsfirði 10.06
Stjarnan Akureyri ^ 866
'Súlan Akureyri 5331
Svala Eskifirði 783
Svanur Keflavík 2677
Svanur Stykkishólmi 2568
Sveinn Guðms Akranesi 2474
Sæbjörn ísafirði 1744
Sæfaxi Neskaupstað 1311
Sæfaxi Akranesi 2580
Sæhrímnir Keflavík 1863
Sæljón Reykjavík 3167
Særún Siglufirði 2650
Sævaldur Ólafsfirði 2588
Framh. á bls. 15