Morgunblaðið - 24.07.1956, Qupperneq 16
166. tbl. — Þriðjudagur 24. júlí 1956
ÁRÍÐANDI FLLLTRIÍA- OG TRLIVIAÐAR-
IUAIMNARÁÐ8FUIMDIJR í KVÖLD
Fudarefni: Stjórnarskiptin
í KVÖLD kl. 8,30 verður fundur
haldinn í Sjálfstæðishúsinu í
fulltrúaráði og trúnaðarmanna-
ráði Sjálfstæðisflokksins í
Rtvykjavík.
Umræðuefni fundarins verður
Sildar-
söltun
stöðvuð
SÍLDARSÖLTUNvar
stöðvuð s.l. nótt kl. 12 á
miðnætti, þar eð saltað
hafði verið upp í gerða
samninga. Síldarsöltun
mun þá hafa numið rúm-
lega 230 þúsund tunnum,
stjórnarskiptin ogr mun Bjarni
Benediktsson verða málshefjandi
og gera grein fyrir þeim nýju við
horfum, sem skapazt hafa vegna
stjórnarskiptanna.
Aliir fulltrúar og trúnaðar-
menn eru hvattir tii þess að
mæta á þessum mikilvæga fundi
og sýna skírteini við innganginn.
Þeir nýir fulltrúar og trúnað-
armenn, sem ekki hafa fengið
afhent skíríeini sín geta fengið
þau við innganginn.
Þetta er nýjasta myndin frá Siglu
firði, tekin yfir bæinn í síðustu
viku, er síldarverlcsmiðjurnar
voru að fara í gang hver af ann-
arri. Reykinn úr þeim leggur hátt
í loft upp, því logn er í bænum.
Það er annars langt síðan, að
hægt hcfur verið að taka svona
mynd í hinum gamla síldarbæ. —
(Ljósm. Jóhannes Þórðarson,
Siglufirði).
en samið hafði verið um
sölu á 240 þús. tunnum.
Eftir var aðeins að salta
skv. sérverkunarsamning-
um, svo scm kryddsíld o. fl.
Síldarútvegsnefnd hefur
leitað eftir viðbótarsamn-
ingum við Sovétríkin um
sölu á 50 þús. tunnum, en
svör eru enn ókomin.
MiUH veiði í gær bæði við
Kolbeinsey og á Austursvæðinu
skip einnig fengið góð köst á
Siglufirði, 23. júlí. — Frá fréttaritara.
LITIL síldveiði var yfir helgina, enda þoka á miðunum. En á
sunnudagskvöld hófst veiðin aftur og var síld bæði á vestur-
svæðinu hjá Kolbeinsey og á mánudag var aftur mikil veiði
austur af Langanesi. — Síldveiðiskipin hröðuðu sér mjög til hafnar
þar sem líklegt var að síldarsöltun yrði stöðvuð um kvöldið. Var
saltað allan daginn bæði á Raufarhöfn og Siglufirði.
64 þús. tunnur saltaðar
Raufarhöfn 23. júlí:
í DAG, síðasta söltunardaginn, var mjög mikil söltun á Rauf-
arhöfn. Mun hún hafa numið samtals á sjö söltunar-
stöðvum um 8000 tunnum og er heildarsöltunin á Raufar-
höfn þar með nær 64 þúsund tunnur.
Söltunin skiptist þannig milli söltunarstöðva:
Hafsilfur 16800 tunnur, þar af 2000 tunnur í dag.
Óskarsstöð 12 þús. tunnur, þar af 1400 tunnur í dag.
Oðinn 10400 tunnur, þar af um 700 í dag.
Skor 9700 tunnur, þar af um 1100 í dag.
Norðursíld 6500 tunnur, þar af 800 í dag.
Gunnar Halldórsson 5000 tunnur, þar af 1000 í dag.
Hólmsteinn Helgason 2800 tunnur, þar af 500 í dag.
Cuðmundur í sækh
línuna iil Oslóar
Fara Hannibal ocj Luðvik
á næstunni til iltoskvu?!
HINN nýi utanríkisráðherra, Guðmundur í. Guð-
mundsson, flaug s.l. sunnudag til Oslóar. Var hann
væntanlegur heim aftur í morgun.
Getgátur eru uppi um það, að erindi hans hafi verið
það á fund jafnaðarmanna á Norðurlöndum, að fá að
vita hjá þeim, hvernig fara eigi að því að vinna með
kommúnistum. Hvort liann kemur miklu fróðari af
þeim fundi, skal ósagt látið að sinni.
FARA HANNIBAL OG LÚÐVÍK TIL MOSKVU?
Almennt er talið mjög líklegt, að næst muni þeir
Lúðvík og Hannibal leggja leið sína til Moskvu til
þess að fá „línu“ hjá „félögunum“ í Kreml til þess að
starfa eftir í ríkisstjórn íslands. Guðmundur I. hefir
væntanlega fengið sína „línu“ hjá „bræðraflokkunum“
í Oslóaríerðinni.
50 SKIP VEIDDU
VIÐ KOLBEINSEY
Um 50 skip fengu síld í nótt á
Kolbeinseyjarmiðum vestur af
eynni og fór öll sú síld í söltun
bæði hér á Siglufirði og til Eyja-
fjarðarhafna. í dag hafa mörg
vestursvæðinu. Var t. d. Fanney
komin með 700 tunnur og all-
mörg skip með 400 og 500 tunn-
ui\.
20 ÞÚS. MÁL Á HJALTEYRI
Hjalteyri 23. júlí:
Hér var haldið áfram að bræða
síld úr þróm og endast þær birgð
ir enn i tvo daga. Þijú skip komu
hingað með 4—500 tunnur til sölt
unar. Frétzt hefur, að Egill Skalla
grímsson, sem er að veiðum á
austursvæðinu sé búir.n að fá
1400 mál og heldur hann áfram
veiðum. Heildarbræðsla hér nem-
ur nú um 20 þús. málum.
2G00 TUNNUR Á EINUM DEGI
Húsavík, 23. júlí: — Á þessum
síðasta degi síldarsöltunarinnar á
þessari vertíð bárust hingað alls
um 2600 tunnur síldar af fimm
skipum: Von GK 400 tunnur,
Smári 500, Pétur Jónsson 1000,
Vörður 7—800.
Neskaupstað, 23. júlí: — Hing-
að ltomu í gærmorgun Huginn
NK með 255 tunnur síldar í salt
og Sæfáxi NK með 320 tunnur
í salt og 150 mál í bræðslu. Sölt-
unarstöðin hér hefur þá saltað i
2800 tunnur. Þráinn NK er á leið
inn með 200 tunnur í salt, sem
fengust út af Dalatanga.
Síldaraflinn nálgast hálfa
milljón tunnur og mál
Ambassador í París
WHKfflm
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ til-
kynnti í gær að Agnar Kl. Jóns-
son hefði yerið skipaður ambassa-
dor íslands með umboði í Frakk-
landi og jafnframt veitt lausn frá
sendiherrastarfi í London.
HIN opinbera síldarskýrsla Fiskifélags íslands greinir frá því að
kl. 12 á miðnætti s. 1. laugardag 21. júlí, hafi síldveiðiflotinn
við Norðurland verið búinn að leggja á land afla sem hér segir:
í bræðslu 202 þús. mál
í salt 217 þús. tunnur
í frystingu 7,2 þús. t.
(I fyrra 7,5 þús. mál).
(í fyrra 81 þús. tunnur).
(1 fyrra 4,3 þús. t.).
Heildaraflinn nú er því um 427 þúsund mál og tunnur, en var á
sama tíma í fyrra um 93 þúsund mál og tunnur.
Á þeim tíma sem skýrsla þessi er miðuð við, var vitað um 187
skip, sem höfðu fengið einhvern afla móti 130 skipum í fyrra. Af
þeim höfðu 180 skip aflað 500 mál og tunnur samanlegt eða meira,
móti 75 skipum í fyrra, sem náð- höfðu því aflamagni.
Skrá yfir þau 180 skip, sem aflað hafa meira en 500 mál og
tunnur er á bls. 9.
Nú hefur enn borizt mikill síldarafli á land. Var síldar-
söltun komin yfir 230 þús. tunnur í gær og telja má lík-
!egt að síld til bræðslu, senn, landað hefur verið sé nú
komin nálægt 250 þúsund málum.
Síidaraflinn mun því nema rétt tæpri hálfri milljón tunn-
um og málum.
Reknetjaveiðar í Faxaflóa hefjast
AKRANES 23. júlí: — Sjö Akra- J tveir fara út á morgun og eru
nesbátar fara á reknetjaveiðar í 1 það Ásbjörn og Sigrún. — Oddur.
Faxaflóa á næsturni. Þeir fyr«tu '