Morgunblaðið - 29.07.1956, Side 12

Morgunblaðið - 29.07.1956, Side 12
12 MOKCVNBT/AÐIÐ Sunnudagur 29. júlí 1956 „Sem sagt, kæri drengurinn minn, hittumst heil aftur. Pass- aðu þig nú að verða ekki veikur. Og lentu nú ekki undir spor- vagninum. Já, það er líka alveg satt, það eru engir sporvagnar hjá ykkur þarna uppi í fjöllun- um“. Hún hló: — „Mér líður ágæt- lega. Og margfaldar þakkir fyrir símtalið, drengur minn. Það var mjög fallega gert af þér. Veiztu hvernig samgöngurnar eru héð- an og til skrifstofunnar? Þú veizt það ekki ennþá. Hvað heitir fyr- irtækið? Tobler-verksmiðjurnar? Sem veittu þér verðlaunin í sam- keppninni? Það mun gleðja hr. Frank. Já, ég skal víst bera hon- um beztu kveðjur þínar. Auð- vitað. Svona, nú hættum við þessu rausi. Annars verður gjald- ið tvöfallt. Vertu sæll, drengur- inn minn. Já, auðvitað. Já, já. MARKÚS JEftir Ed Dodd ❖❖❖❖•:••:•❖•:«:•❖❖❖❖❖❖ 1) Þótt Kutu sé smávaxinn ræðst hann gegn hlébarðanum vopnaður einu spjóti. 2) Hann stefnir spjótinu að hlé barðanum en missir. 3) Þegar Phil kemur inn í byrg ið sér hann, að hann getur ekki skotið af byssunni á hlébarðann, því að þá er haétt við að skotið komi í Kutu. But as phil enters THE I HUT HE SEES HE CANT SHOCT FOR FEAR OF HITTINS KUTU rir menn f sipmim Framlialdssagan 52 kenndu taki tólinu að eyra sér og sagði við frú Kuchenbuch: „Bara að ég geti nú heyrt hvað hann segir. Hann er svo langt í burtu“. Svo þagnaði hún og hlust aði eftirvæntingarfull. Skyndilega ljómaði andlit hennar, eins og veizlusalur, sem fram til þessa hefur verið al- myrkur. „Já!“, hrópaði hún með léttri röddu. „Það er ég. Ert það þú, Fritz? Hefurðu fótbrotnað? Nú ekki það. Það var sannarlega gott. Eða handleggsbrotnað? — Ekki heldur? Þá er ég verulega glöð, drengur minn. Ertu þá alger lega heilbrigður? Hvað? Hvað segirðu? Á ég að taka vel eftir? Fritz, hagaðu þér nú vel og skikkanlega. Svona talar maður ekki við móður sína. Ekki einu sinni í símanum. Hvað er það?“ Hún þagnaði lengi, hlustaði með eftirvæntingu og brosti loks út að eyrum: „Kæri drengurinn minn. Þú ert þó ekki að spila með mig? Átta hundruð mörk á mán- uði? Hérna í Berlín. Já, en það er alveg dásamlegt. Hugsaðu þér, ef þú hefðir átt að fara til Kön- ingsberg eða Köln, en ég að sitja hér í Mommsenstrasse og veiða flugur. Hvað á ég? Talaðu hærra, Fritz. Það eru einhverjir í búð- inni. Nú, ég skal halda mér fast. Já, drengur minn. En hvers vegna? Til þess að ég detti ekki? Hvað hefurðu gert? Trúlofað þig, eða misheyrist mér? Hjálpi mér all ir heilagir. Hildegard Schulze? Hana þekki ég ekki. Hvers vegna hefurðu strax trúlofað þig? Þið hefðuð þó fyrst þurft að kyr.nast eitthvað teljandi. Reyndu ekki að þræta við mig. Ég veit það mikið betur en þú. Ég var þegar trú- lofuð, þegar þú varst enn ekki til. Hvers vegna vonarðu það? Nú þannig lagað“. Hún hló. „Nú, ég skal áreiðanlega kynn- ast stúlkunni þinni betur niður í kjölinn, þótt seinna verði. tiíki mér ekki við hana, þá leyfi ég það ekki. Bíddu bara svo lengi og drekktu te. Drekktu te, sagði ég. Bjóddu henni til kvöldverðar hjá okkur. Er hún vön dekri? Nei. Þar hefurðu verið heppinn. Hvað hefurðu sent? Tvö hundruð mörk? Ég þarfnast nú alls ekki neins. Gott. Ég kaupi nokkrar milliskyrtur og svona það sem þú þarfnast helzt. Eigum við nú ekki að fara að hætta, Fritz? — Annars verður það of dýrt. Hvað var það nú annars sem ég ætlaði að spyrja þig um? Eru fötin þín ekki öll komin úr lagi? Er gott veður hjá ykkur? Það er líka leysing hérna? Það var þó leið- inlegt. Skilaðu kveðju minni til stúlkunnar. Gleymdu því nú ekki. Og til vinar þíns. Heyrðu annars, heitir hann ekki líka Schulze? Hún er þá sennilega dóttir hans? Ekki neitt skyld? Já, einmitt það“. Svo hlustaði gamla konan aft- ur. Því næst hélt hún áfram: Vertu svo margblessaður og sæll.“ „Það voru sannarlega góðar fréttir“, sagði frú Kuchenbuch samfagnandi. „Átta hundruð mörk á mánuði" sagði gamla frúin. — „Eftir margra ára algert atvinnuleysi.“ „Átta hundruð mörk og unn- ustu“. Frú Hagedorn kinkaði kolli' — „Næstum því of mikið í einu, ekki satt? En til hvers á maður börnin, ef ekki til þess að þau eignist svo sjálf börn síðar?“ „Og við barnabörn". „Já, það viljum við sannarlega vona“, sagði gamla konan. Hún aðgætti hinar útstilltu vörur. Svo er bezt að ég fái hálft pund af súpukjöti. Og ein tvö bein aukreitis. Og fimmtíu grömm af svínakjöti. Slíkan og þvílíkan dag verður að halda hátíðlegan.“ Fritz hafði farið snemma um morguninn í bankann og fram- vísað ávísuninni. Svo hafði hann í pósthúsinu pantað símasamband við Berlín og meðan hann beið eftir því, hafði hann sent tvö hundruð mörk til móður sinnar. Nú, að samtalinu loknu, hélt hann í góðu skapi í gegnum litla, gamla sveitaþorpið og verzlaði. Það er undarleg tilfinning, þeg- ar maður hefur orðið árum sam- an að velta hverjum fimmeyring tíu sinnum í lófa sér, áður en maður lét hann af hendi. Árum saman hafði maður orðið að bíta saman tönnunum. Og nú, þegar hamingjunni hefur lostið niður, eins og eldingu, vildi maður helzt fara að háskæla. Jæja, nú er þetta allt saman yfirstaðið, liðið. Doktor Hagedorn keypti kassa af fínustu vindlum, til að gefa vel gerðamanni sínum, hr. Kessel- huth. Handa Eduard keypti hann gamlan tinbikar, í lítilli forn- munaverzlun. Handa Hilde fann hann einkennilega þrúgulagaða eyrnalokka. Þeir voru úr ó- skyggðu gulli og hálfgimsteinum. Að lokum pantaði hann fallegan blómvönd í blómaverzluninni, handa Julchen frænku og bað afgreiðslustúlkuna að senda gjaf- irnar til gistihússins. Handa sjálfum sér keypti hann alls ekki neitt. Hann var hálfa aðra klukku- Kelvinator þvottavél Höfum nú fyrirliggjandi nokkur stykki af Kelvinator þvottavélum, sem kosta aðeins Kr.: 6.565.00 Á: Kelvinator þvottavélin er vönduð ★ Kelvinator þvottavélin er falleg ★ Kelvinator þvottavélin er ódýr. Kynnið yður kosti KELVINATOR Sýnikennsla í búðinni Gjör’A svo vel að líta inn. Jjekh SÍMI 1687 AUSTURSTRÆTI14 Rœstingakona óskast um hálfsmánaðartíma Kenwood-hrærivélin hefir náð mestum vin- sældum hér á landi og er óskadraumur allra húsmæðra. Gefið konunni IMýurag Höfum nú fengið þessar eftir- sóttu hrærivélar í ýmsum litum Sýnilcennsla í búðinni á mánudag KENWOOD hrærivélin er ódýr miðað við afköst og gæði. Kostar með þeytara, hrærara, hnoðara, hakkavél, græn- metiskvörn og plastyfirbreiðslu kr.: 2.730,00. Ársábyrgð — Kaffikvarnirnar eru nú komnar aftur — Jfekla Austurstræti 14 sími 1687 Ferðist með Föxunum á Þjóðhátíðina í Vesfmannaeyjum Flugfélag Islands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.