Morgunblaðið - 29.07.1956, Síða 15
Sunnudagur 29. júlí 1956
MORCVNBLAÐIT
15
Þrír stórbrunar
í sömu viku
1 S.L. VIKU uiðu þrír stórbrun-
ar hér á landi, tveir í verksmiðj-
um og verkstæðum en einn í húsi
þar sem bjuggu 50—60 manns.
Þessir tíðu eldsvoðar í verlt-
smiðjum og vinnustöðum gefa til-
efni til þess að athugað sé, hvort
brunavarnir á slikum stöðum séu
í nægilega góðu lagi, hvort fullr-
ar varúðar sé gætt og sjálfsagðar
öryggisráðstafanir gerðar.
Sett hafa verið fullkomin iög
um brunamál. Er framkvæmd
þeirra í höndum Eldsvarnaeftir-
lits ríkisins, sem hefur aðsetur í
Hafnarfirði. Dugandi og sam-
vizkusamir menn veita því for-
stöðu.
Frekari ráðstafanir
nauðsynlegar
En engu að síður er auðsætt,
að við verðum að gera frekari
ráðstafanir til þess að afstýra
tjóni og slysum af völdum elds-
voða, ekki hvað sízt í verksmiðj-
um og verkstæðum. Kemur þar
m.a. til greina að auka verulega
upplýsingastarfsemi um bruna-
varnir. Það þarf að kenna fólki
betur meðferð slökkvitækja
koma upp sjálfvirkum aðvörun-
artækjum í verksmiðjum og
vinnustöðum. Ennfremur má
benda á að tii eru sjálfvirk úða-
keríi, sem fara sjálfkrafa í gang
fyrir áhrif hitaþreifara (thermo-
stad).
Kennsla í iðnskólum
Ennfremur er nauðsynlegt, að
tekin verði upp kennsla í iðn-
skólum um slökkvitæki og notk-
un þeirra og í eldsvörnúm á
vinnustöðum. Ennfremur mætti
gefa út bæklinga og rit um eld-
fim efni og um eldvarnir yfir-
leitt. Þá ættu verksmiðjur al-
mennt að taka til athugunar,
hvort næturvarzla borgaði sig
ekki í húsakynnum þeirra. Um
allt þeíta ætti að vera náin sam-
vinna mílli Sambands bruna-
tryggjenda á fslandi og verk-
smiðjueigenda og samtaka þeirra.
Þessu er hér með varpað
fram til athugunar og fram-
kvæmda. Við höfum ckki efni
á því, oð bíða miUjónatjón ár-
lega vegna ófullkominna eld-
varna, Af cldsvoðunum leiðir
heldur ekki aðeins fjárhags-
legt tjón heldur slys og ner-
sónulega óhamingju fjölda
fólks.
r
Ofsurrkar í l»isp?j-
arsýslum
HÚSAVÍK, 28. júlí — Alla þessa
viku hefur verið leiðinda veður í
Þingeyjarsýslum og ekki hægt
að hrejúa hey.
Óvenjumikill ferðamanna-
straumur hefur verið um Húsa-
vík í sumar og langt um meiri en
undanfarin ár. Er flest þetta fólk
á leið í Mývatnssveit og einnig
á leið lengra austur.
Bréf
Kjörinn hvsldarsfaður
NÚ er hásumar og stöðugt fjöldii
fólks í sumarleyíi. Sumir vilja
hendast sem lengst um byggðir og
óbyggðir og önnur lönd, og það
er í sjálfu sér ágætt að fara víða,
ef ekki er of hratt farið. Einkum
er eðlilegt að ferðaþráin sitji við
stýrið í sumarleyfiriu meðan
fólk er ungt og óþreytt.
En margir þrá ekkert heitara
en hvíld og írið í sumarleyfinu í
skauti íslenzkrar náttúru og
æskja eftir hreinlegum og hóf-
lega dýrum gististööum. Einkum
er það fólk, sem er tekið að eld-
ast og lýjast, eða fólk, sem er
ekki heilsuhraust, í þriðja lagi
fjölskyldufólk, sem ekki á farar-
tæki, og þannig nrætti lengi telja.
En það hefur hingað til skort til-
finnanlega gistihús í grennd við
höíuðstaðinn, þar sem menn
hafa getað notið friðsældar
sveitalifsins og jafnframt þeirra
þæginda, sem nútíminn hefur
upp á að bjóða.
En nú hefur oiðið breyting hér
á. Ég, sem þessar línur rita, geri
það til þess að benda fólki á sum-
argistihúsið í Hlíðardalsskóla í
Ölfusi. Ég veit að vísu ekki hvort
ég geri forráðamönnum þess
nokkurn greiða með því, þar sem
þetta gistihús hefur ætíð verið
fullskipað síðan það tók til starfa,
en ég bendi á þennan stað vegna
þeirra, sem þurfa á hvíld og
hressingu að halda í sumarleyf-
inu, ef þeir skyldu einhvern tíma
komast þangað til dvalar. Þessi
staður hefur flest til síns ágætis.
Þangað er örskammt frá höfuð-
staðnum og þó er gistihúsið
fjarri skarkala hinna fjölförnu
þjóðvega. I-Iúsakynni eru ný og
glæsileg, viðmót starfsfólks hlý-
legt og ánægjulegt, án yfirborðs-
mennsku, viðurgjörningur ágæt-
ur í mat og drykk og hreinlæti
svo augljóst utan húss og innan
að fágætt má teljast, ef ekki
einstakt um gististað hér á landi.
Húsakynni eru að vísu ný á fleiri
stöðum, en hreinlæti umhverfis
þetta hús tekur öðru fram. Þar
er grænt tún á alla vegu og íjall-
lendið tekur við ofan við túnið,
skjólsamt móti suðri, grösugt og
fjölbreytilegt landslag. Má geta
þess að hinn stórkostlegi en lítt
kunni Raufarholtshellir er
skammt frá þessum gististað. —
Útisundlaug er ekki á staðnum,
en þar eru hvers kyns böð,
finnsk guíubaðstofa, kerlaugar,
ljósböð (Finsens-ljós) og nudd.
Þessari hressingardeild veitir for
stöðu nuddkona, sem lengi hefur
starfað erlendis og er einkar fær
í sínu starfi.
Útsýn er undurfögur írá þess-
um stað, til hafs og yfir Suður-
landsundirlendið alit til Evja-
fjallajökuls og Vestmannaeyja.
Búrekstur er þarna á staðnum og
fyrir bragðið er eins og dvalizt
sé á sveitabæ með nýtízku búsa-
kynnum, þar sem allt er gert til
að gera gestunum dvölma sem
ánægjulegasta, þar sem friður og
farsæld ríkir. Það er enn einn
höfuðkostur við þennan stað, að
þar rúmast ekki margir gestir í
einu, og að þeir eru yfirleitt dvai
argestir en ekki lausagestir mcð
þeim ys og ærustu, sem þvi fylg-
ir að vera stöðugt að ltoma og
fara.
Það eru ASventistar sem rcka
þarna fyrirmyndar heimavistar-
skóla að vetrinum og síðan sum-
argistihúsið í skólahúsinu. Stað-
urinn ber þess merki að um hann
fjalla hugir og hendur, sem vilja
einlæglega hefja hann til vegs og
virðingar án tildurs og ski'ims,
vegna umhyggju fyrir gróandi
lífi hið ytra og innra.
í slíku andrúmslofti er gott að
hvílast og njóta næðis. Ég hlakka
til að gista Hlíðardalsskóla öðxu
sinni og vildi óska þess að sem
flestir ættu þess kost fyrr eða
síðar.
pyrrverandl dvalargestur.
Vinna
Hreingeniingar
Sími 6203. Vanfr menn til hreln-
gerningði.
— Reykjavíkurhréf
Framhald af bls. 9
tekur sæti í rík sstjórninni til
fundar við þann mann, sem
er í röð allra einbeittustu
talsmanna varnarsamtaka
vestrænu þjóðanna.
Verkefni
Flugfélags íslands
FLUGIÐ er alltaf að verða þýð-
ingarmeiri þáttur í þjóðlífi okk-
ar og á það bæði við um flugið
innanlands og millilandaflugið.
Flugfélag ísiands heldur
uppi mjög umfangsniiklu miili
landafiugi, sem eykst sífellt
þannig að aukning þess á
fyrstu 7 mánuðum þessa árs
er 55% miðað við sama tíma
í fyrra, eins og síðar verður
vikið að. Innanlandsflug fé-
lagsins má kaliast alveg ein-
stakt afrek. í því efni má
segja, að félagið hafi ekki
ósvipað hlutverk og Eimskipa-
féiag íslands, þegar það hóf
starfsferil sinn. Það þarf
raunar ekki að fara mörgum
orðum um þýðingu innanlands
flugsins, enda verða því ekki
gerð skil í síuttum greinar-
stúf, eu það má vera öllum
ljóst að innanlandsflugið er
eitt allra þýðingarmesta at-
riðið í því vandamáli að við-
halda dreifðri byggð landsins.
Mæítu þeir, sem hafa augun
opin fyrir þeim vanda, gefa
þætti Fiugfélags íslands í því
niáli verulega aukinn gaum.
Samkvæmt skýrslum félagsins
hafa flutningar þess á mönnum,
vörum og pósti stóraukizt nú á
fyrstu 7 mánuðum ársins miðað
við sama tíma í íyrra.
Frá áramótum til og með 25.
júlí s.l. höfðu verið fluttir 30.600
farþegar innanlands, en á sama
tíma í fyrra 24.600 og er aukn-
ingin í ár því 25%. Vöruflutning-
arnir á sama tima í ár námu 590
lestum, en í fyrra 450 lestum og
er aukningin þar 31%. Póstflutn-
ingar námu nú 92 lestum, en í
fyrra 63 lestum, aukning 45%.
Er hér um stórkostlega aukningu
að ræða, sem sýnir að lands-
menn taka flugið meira og meira
í þjónustu sína.
Milli landa hefur Flugfélagið
flutt í ár um 6000 íarþega, en á
sama tíma í fyrra 3850 farþega
og er aukningin 55%, eins og
áður segir.
Rétt er að geta þess að í fyrra-
vor voru allöng verkföll, sem
torvelduðu flugið en þó gert sé
ráð fyrir áhrifum þess, er hin
raunverulega aukning í ár samt
gífurlega mikil. í júlímánuði nú
vax'ð aukningin á farþegafjöldan-
um innanlands um 1000 farþegar
miðað við sarna tíma í fyrra, en
mesti flugtíminn er í júlí og
ágúst.
Vafalaust halda landsmenn
áfram að nota flugið í sífellt
ríbari mæli og ber starfsemi
Flugfélags íslands þcss ljósan
vott að það er mikið verk-
efni að siuna hinni sífellt
Félagslíi
K.R. frjálsíþvóvn-námskeiSiS
heldur áfram annað kvöld á 1-
þróttavellinum kl. 6, fyrir stúlkur.
Fr.jálsiþrðttadeild IC.R.
Skógarmenn K.F.U.Mi
Um verzlunarmanna-helgina,
4—6. ágúst, vexður efnt til ferð-
a að Landmannalaugum og Land-
mannahelli. Þátttalca tilkynnist á
skrifstofu K.F.U.M., sem er opin
vii'ka daga kl. 5,15 til 7 e.h. —
Stjórnin.
Samkomuar
Bræðraborgarslig 34
Almenn samkoma í kvöld kl.
8,30. — Ailir velkomnir.
Fíludelfía
Bænasamkoma kl. 4. — Almenn
samkoma ld. 8,30. — Ræðumenn:
Sigríður Jónsdóttir og Ti-yggvi
Eiríksson. — Allir velkomnir.
auknu eftirspurn eftir flug-
þjónustu innanlands og milli
landa.
Síldveiðarnar
FYRRI HLUTA næstliðinnar
viku liélt áfram dágóð veiði fyrir
Nox’ðurlandi, en um miðja vik-
una-hvessti af nor'ðaustri og enda
þótt veður gæti ekki talizt vont,
þá var ekki veiðiveður. Lá því
meginhluti flotans í landvari síð-
ari hluta vikunnar.
Um það leyti sem veður spillt-
ist var svo kornið, að lokið var
við að salta upp í þá samninga,
sem gerðir höfðu verið fyrirfram
um sölu saltsíldar, en það voru
um 250 þúsund tn., ef allt er
talið með. Mun raunar hafa ver-
ið búið að salta nokkurt magn
fram yfir hið umsamda. Síldar-
útvegsnefnd, sem annast alla sölu
saltsíldarinnar ákvað því að
stöðva síldai'söltun frá og með
24. þ. m. Var ætlunin að bíða
átekta ef takast mætti að ganga
frá frekari sölum á saltsíld, en
tilraunir til þess hafa farið fram
undanfarið.
Við lok fyrri viku, 21. þ. m.,
var heildaraflinn orðinn um 57
-þús. smál. en á sama tíma í fyrra
var hann aðeins 12 þús. smál.
Sýnist því hér vera um mikla
aukningu að ræða, en ário í fyrra
var eitt hið allra lélegasta, sem
komió' hefur. Er því gagnslítið
að gcra slíkan samanburð.
Heildarvei'ðmæti aflans til
skipanna mun liafa verið' sem
næst 52 millj. kr., en það
samsvarar þvi, að á hvert
skip komi að mcöaltali urn
280 þús. kr.
Enda þótt aflinn sá ákaflega
misjafn, að því er einstök skip
snertir, þá má þó ganga út frá
því sem vísu, að allur þorri skip-
anna hafi aflað nægilega til þess
að forða sér frá beinu tjóni á
þessari vertíð. Er slikt með öllu
óvenjulegt, nú um langa hríð.
Sama cr að scgja um söliunar-
stöðvarnai-, að þær hafa flestar
hverjar fengið það mikið magn
til söltunar, að þeim er sæmilega
borgið.
Er.n eru það síldarverksmiðj-
urnar, sem bíða að rnestu með
tómar þrær. Afkastageta þeix'ra
er um 80 þús. mál á sólarhring,
en 21. þ. m. var allur bræðslu-
síldaraflinn orðinn rúmlega 200
þús. mál. Hefur það að vísu kom-
ið mjög misjafnlega í verksmiðj-
urnar, þar sem t. d. Raufarhafn-
arverksmiðjan ein hafði þá feng-
ið nær 70 þús. mál.
Hinn góði árangur af söltun-
inni hefur að sjálfsögðu skapað
verulegt útflutningsverðmæti og
munu gjaldeyristekjur af salt-
síldinni aldrei hafa vex'ið jafn
háar og það sem þær nx'i eru
þegar orðnar miðað við það, sem
framleitt hefur verið.
Heildarútfiutningsverðmæfl
s'idarafurðanna miðað við
aflann 21. þ. m. mun hafa
numið náíægt 110 millj. kr.,
en til samanburoar má geta
þess, að útflutningsverðmæti
afurðanna eftir alla vertíðina
á fyrra ári nam um 70 millj.
kr.
Er því þegar augljóst að þessi
vertíð mun gefa þjóðinni mun
meiri telcjur en var í fyrra og
þó lengra væri leitað aftur.
Þakka innilega heimsóknii', gjafir og skeyti á sjötugs
afmæli mínu.
Jón Jónsson,
frá Hi'afnsstaðakoti,
Blönduhlíð 31.
SkrlfstofuEiúsnæði
Hæð í nýju húsi við Skólavörðustíg til leigu fyrir skrif-
stofur. Húsnæðið leigist í einstökum herbergjum, ef óskað
er. — Tilboð merkt: „Góður staður"—3628, sendist afgr.
fyrir mánudagskvöld.
Elskulegur sonur okkar
FRHJRIK RÚNAR JÓNSSON
andaðist í Landspítalanum föstudaginn 20. júlí sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Óiöf Frlðriksdótíir, Jón ICristmssoa.
Útför eiginkonu minnar
ÖNNU ELIMUNDARDÓTTUR
fer fram fx'á Fossvogskirkju mánudaginn 30. þ. m. kl. 10,30
og hefst með bæn að heimili hennar, Völlum, Seltjarnar-
nesi kl. 9,45.
■
Haraldur Erlendsson.
Bróðir minn
FIINNBOGI K. KRISTJÁNSSON,
sem andaðist 25. þ. m. verður jarðsunginn írá Fossvogskirkju
mánudaginn 30. þ. m., klukkan 3.
Fyrir hönd aðstandenda
Karlotta Kristjánsdóttir.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
SIGRÍÐAR RAFNSDÓTTUR
Grettisgötu 5, fer fram frá Fossvogskii'kju mánudagimi 30.
þ. m. klukkan 13,30.
Hjörleifur Þórðarson,
og börn.