Morgunblaðið - 31.01.1957, Page 1
44. árgangur
25. tbl. — Fimmtudagur 31. janúar 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eisenbower :
Gagnkvæmur skilningur NATO-ríkjanna
Irausfari en nokkru ssnni
Washington, 30. jan. Frá Reuter.
AFUNDI sínum við fréttamenn í dag sagði Eisenhower forseti,
að Eandaríkin hefðu ekki í hyggju að minnka herafla sinn í
Vestur-Evrópu. Ekki hefði heldur komið til orða að auka hann,
enda þótt Frakkar hefðu sent meginhlutann af NATO-herdeildum
sinum til Alsír og brezka stjórnin hefði kvartað undan of háum
■hemaðarútgjöldum. Eisenhower sagði, að samvinna og gagnkvaem-
vtx skilningur ríkjanna í Atlantshafsbandalaginu væri að treystast
og dýpka í miklu ríkari mæli en fram kæmi á yfirborðinu.
Eisenhower vék einnig að
þeirri gagnrýni, sem sums staðar
hefði komið fram varðandi heim-
sókn Sauds konungs í Saudi-
Arabiu til Bandaríkjanna og fyr-
irhugaða heimsókn Títós. Hann
kvaðst harma hvers konar ókurt-
eisi sýnda erlendum leiðtogum,
scm kæmu til viðræðna við hann.
leiðtogum tveim höndum, sem
vildu koma og ræða við hann
um sameiginleg hagsmunamál og
varðveizlu friðarins, og kæmi þá
ekki til álita, hvort hann væri
samþykkur stefnu slíkra manna
í innanríkismálum.
Forsetinn ræddi einnig um
gagnrýnina sem komið hefur
Hann bætti því við, að sér væri'fram á Dulles utanríkisráðherra,
ógerlegt að vinna að eflingu frið
arins, ef hann ætti aðcins að
ræða við þá leiðtoga, sem væru
honum algerlega sammála. Hann
kvaðst alltaf mundu taka þeim
Sendiherra Banda-
ríkjanna í Bonn
segir af sér
í ,
\ . > '■--■■■■ .jj.
i
en hann hefur verið sakaður um
að bera ábyrgð á misklíð Breta
og Bandaríkjamanna og á
ófremdarástandinu í nálægum
Austurlöndum. Sagði Eisenhow-
er, að utanríkisstefna Bandaríkj-
anna hefði ekki verið mörkuð af
neinu handahófi, og væri hann
sjálfur ábyrgur á henni engu síð-
ur en utanríkisráðherrann. Hann
ítrekaði fyrri ummæJi sín þess
efnis, að Dulles væri duglegur
og framsýnn utanríkisráðherra.
Sandys ánægður
með för sína
Washington 30. jan.
Frá Reuter.
Duncan Sandys, hermála-
ráðherra Breta, fór frá Wash-
ington í dag áleiðis til Ottawa
eftir tveggja daga viðræður
við bandaríska ráðamenn. í
dag átti hann klukkustundar-
fund við Dulles, utanríkisráð
herra. Sandys sagði frétta-
mönnum, að fullt samkomu-
lag hefði náðst unr öll þau
mál, sem rædd voru, en sum
þeirra væru flókin og við-
kvæm. Hann bjóst við að
koma til Washington aftur á
föstudag til frekari viðræðna
við leiðtoga Bandaríkjanna.
Brezku stúdentarn-
ir fangar Kadars
Enginn veit neitt um Örlög þeirra
Vínarborg, 30. jan. Frá Reuter.
F^ORMÆLANDI ungverska utanríkisráðuneytisins sagði í
* dag, að hann hefði enga hugmynd um, hvenær 4 brezkir
stúdentar, sem handteknir voru í Ungverjalandi, yrðu
dregnir fyrir rétt, eða hvaða sakir yrðu á þá bomar. Þessar
upplýsingar voru látnar í té símleiðis til Vínarborgar, en
þaðan höfðu fréttamenn hringt í ungverska innanríkisráðu-
neytið. Talsmaður innanríkisráðuneytisins kvað málið ekki
vera í verkahring þess og vísaði til forsætisráðuneytisins.
Þar fengust þær upplýsingar, að hinn opinberi ákærandi
ríkisins væri líklegastur til að vita eitthvað um málið.
Ritari ákærandans sagði, að það væri utanríkisráðuneytið,
sem hefði málið með höndum. Formælandi þess kvaðst ekki
geta bætt neinu við yfirlýsinguna, sem gefin var út eftir
að stúdentarnir höfðu verið handteknir 17. jan. s.l. Vom
r;ir þá á leið frá Belgrad til Vínarborgar um Ungverjaland.
yfirlýsingunni sagði, að stúdentaranir hefðu tekið þátt í
gagnbyltingarstarfsemi. Einn stúdentanna er dóttir Sir Staf-
ford Cripps, fyrrveandi ráðherra í stjóm Verkamanna-
flokksins.
Nýtt njósnamál í Svíþjóð
Annaö hljóð komið i kommúnista i landhelgismálinu:
Allt óókveðið um næstu uðgerðir
Nú verður oð dobo við
t
Stokkhólmi, 30. jan. Frá Reuter.
STOKKHÓLMI er nú verið aS komast til botns í umfangsmiklu
njósnamáli. Er hér um að ræða armenskan njósnara, Zartaryan
að nafni, sem hefur rekið njósnir um varnarkerfi Svíþjóðar og
annan vígbúnað. Njósnirnar stundaði hann frá 1954 fram til 30.
júní 1956, en hann var handtekinn 27. september. Það, sem valdið
hefur mestum töfum á rannsókn málsins, er tregða njósnarans til
að veita lögreglunni nauðsynlegar upplýsingar. Tveir Svíar hafa
og verið dregnir fyrir rétt og sakaðir um kæruleysi í meðferð
leyniskjala.
BONN, 29. jan. — James B. Con-
ant, sem verið hefir sendiherra
Bandaríkjanna í Vestur-Þýzka-
landi hefir sagt af sér og hefir
Eisenhower forseti samþykkt
lausnarbeiðni hans. Contant, sem
var áður forseti Harvardháskóla
segist ætla að snúa sér að mál-
efnum æðri skóla í landi sínu.
Þetta njósnamál er ekki tengt
hinu mikla njósnamáli, sem nú er
í rannsókn í Gautaborg.
FYRIK LUKTUM DYRUM
Stokkhólmsmálið er rannsakað
fyrir luktum dyrum og er ekki
vitað, hvenær dómur verður
felldur. Zartaryan er af armensk-
um ættum, sonur leðurkaup-
manns og fæddur í Istanbul 1925.
Talsmaour sænska utanríkisráðu-
neytisins neitaði að láta uppi,
fyrir hvaða stórveldi njósnarínn
Saud vel fagnað í Washington
Washington, 30. jan.
Frá Reuter.
SAUD konungur í Saudi-Arabíu
kom til Washington í dag í einka-
flugvél Eisenhowers forseta. Á
flugvellinum tók forsetinn sjálfur
á móti honum, umkringdur heið-
ursverði úr öllum deildum Banda
ríkjahers. Þegar konungurinn sté
út úr vélinni var hleypt af 21
fallbyssuskoti.
Áður en Saud ók með forset-
anum til Hvíta hússins, sagði
hann nokkur orð á flugvellinum.
Kvaðst hann vera mjög þakklátur
fyrir hinar hlýlegu móttökur og
alla vinsemd sér auðsýnda, og
bera í brjósti þá von, að heimsókn
sín til Bandaríkjanna mundi
treysta þau vináttubönd, sem fað-
ir hans hefði komið á milli Saudi-
Arabíu og Bandarikjanna. Þessi
vinátta væri byggð á gagnkvæm-
um hagsmunum og samúð.
Ben Gurion veikur
j JERÚSALEM, 29. jan. — Forsæt-
isráðherra ísraels, Ben Gurion,
sem nú er sjötugur hefir lagzt
veikur í lungnabólgu og er ekki
talið að hann geti tekið þátt
stjórnarstörfum næstu tvær vik-
ur. í fjarveru hans mun fjármála-
ráðherrann, Levy Eshkil gegna
störfum hans.
starfaði, en talið var víst, að hann
væri í þjónustu Rússa. Hann
kom til Svíþjóðar 1952 og hefur
unnið hjá sænsku verkfræðinga-
fyrirtæki.
Frá umræðunum á Alþingi um
fyrirspurn Sigurðar Bjarnasonar
ÞAB er ekki hægt að segja, hverjar næstu aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar verða í friðunarmálunum, eða hvenær þær verða
framkvæmdar. Nú verður að doka við.
Þannig komst Lúðvík Jósefsson sjávarútvegsmálaráðherra m. a.
að orði er hai.n svaraði fyrirspurnum Sigurðar Bjarnasonar á
Alþingi í gær. En í þeim var m. a. að því spurt, hvaða ráðstafanir
ríkisstjórnin hygðist gera til frekari útfærslu fiskveiðitakmark-
anna og hvenær mætti vænta slíkra ráðstafana.
Sigurður Bjarnason hafði framsögu fyrir fyrirspurnum sínum
og komst þá m. a. að orði á þessa leið:
ÚR RÆÐU
SIGURÐAR BJARNASONAR
Þegar fiskveiðitakmörkin voru
Staðgengill Makaríosar
biður S.Þ. um hjálp
Nikosíu, 30. janúar. — Frá Reuter.
SALAMIS JENNADIOS, biskupinn, sem nú fer með embætti
Makariosar erkibiskups á Kýpur, sendi í dag símskeyti til
Hammarskjölds framkvæmdastjóra S. Þ. og bað hann að koma því
til leiðar, að send yrði rannsóknarnefnd til Kýpur í því skyni að
athuga ástandið þar. Tók hann það fram, að ekki mættu eiga sæti
í þessari nefnd fulltrúar Breta eða annarra nýlenduvelda. Jennadios
biskup sagði m. a. í símskeytinu: „Ástandið á Kýpur er orðið mjög
alvarlegt síðan Tyrkir hófu að gera árásir á Grikki og eignir
þeirra á eyjunni. Brezku yfirvöldin reyndu ekki að koma í veg fyrir
þessa atburði í tæka tíð.
Þemistókles Dervis, borgar-
stjóri í Nikosíu, sendi Hammar-
skjöld svipað skeyti fyrir hönd
allra grískra borgarstjóra á Kýp-
ur. Var þar mælzt til, að sendur
yrði sérstakur eftirlitsmaður S. Þ.
til eyjarinnar.
MORÐÖLD
í dag var griskur leigubílstjóri
skotinn til bana fyrir utan stöð
sína í aðalgötu Hyrenia á Norður-
Kýpur. Undanfarna daga hefur
verið mikið um morð, brennur,
sprengingar og skemmdarverk á
eyjunni. í gærkvöldi fannst blaða
maður nokkur, sem starfað hafði
við grískt blað en horfið fyrir
2 mánuðum. Hann fannst í af-
skekktu húsi nálægt Nikosiu, og
telur lögreglan, að hann geti veitt
ýmsar upplýsingar í sambandi við
nokkur morð, sem framin voru í
Ledra-stræti, hinni alræmdu
„morð-mílu“ Nikosíu.
færð út fyrir nokkrum árum
vakti það almennan fögnuð ís-
lendinga. Enda þótt sú ráðstöfun
kæmi ekki öllum landsmönnum
að jafnmiklu liði var þó litið á
hana sem hagsmunamál alþjóðar,
ekki sízt þar sem augljóst var að
hún var fyrsta sporið í áttina að
því yfirlýsta takmarki að friða
allt landgrunnið umhverfis land-
ið fyrir botnvörpuveiðum útlend-
inga.
Síðan friðunin var framkvæmd
hefur hún þegar haft mikil og
heillarík áhrif á þeim slóðum,
sem hennar gætir mest, en það er
á Faxaflóa og Breiðafirði.
Fyrir Vestfjörðum, Norður-
landi og Austurlandi má hins veg
ar segja að fiskveiðitakmörkin
færðust sáralítið út Útgerð
þeirra landshluta hefur því ekki
notið aukinnar friðunar á heima-
miðum.
AUKIN RÁNYRKJA
Það er alkunna, að fyrir Vest-
fjörðum hefur útgerðin ekki að-
eins farið á mis við aukna vernd
fiskimiða sinna heldur hefur rán-
yrkjan á þeim margfaldazt. Þeg-
ar hinum stóru og fiskisælu fló-
um hér suðvestanlands var lokað
fyrir botnvörpuveiðum stórjókst
ásókn togara, innlendra og er-
lendra, á miðin fyrir Vestfjörð-
Framhald. á bls. 2.