Morgunblaðið - 31.01.1957, Page 12
12
MORCVyBL4Ð1Ð
Fimmtudagur 31. jan. 1957
The wilv wolverine
HAS BROKEN INTO JOHNNY
MALCTTTE'S trap line
CAMP AT BURNT LAKE
GULA
herbergiö
eftix MARY ROBERTS RINEHART
Framhaldssagan 40
foi-nleg krukka, þeirrar tegundar,
sem tilheyrðu þvottaskálum, áður
en vaskarnir komu til sögunnar.
Hún var að vísu kvörnuð hér og
þar, en engu að síður sást greini-
lega málningin á henni. Floyd vék
til hliðar og lét þau horfa á hana.
— Það eru engin fingraför á
henni, sagði hann. — Garðyrkju-
maðurinn hjá Ward fann hana í
runnunum, rétt við stíginn hérna,
í morgun. Hún getur verið búin
að liggja þar falin í eitt eða tvö
ár, en Nat gamla Ward datt í hug
að láta hreinsa þennan blett í dag.
Og þetta var árangurinn.
Dane leit á Carol. Hún starði á
krukkuna, eins og hún tryði ekki
sínum eigin auguni og hún hafði
Tölnað upp.
-— Kannske eitthvert ykkar
muni eftir henni? sagði Floyd. —
Líklega ekki þér, ungfrú Carol,
til þess eruð þér of ung. En Greg
og ungfrú Elinor?
Elinor hristi höfuðið og Greg
varð efablandinn á svipinn. Dane
viðhafði sína venjulegu aðferð og
beið með athygli.
— Mér finnst ég kannast við
hana, svaraði Greg dræmt. — Það
er mannsaldur síðan ég hef séð
eitthvað svipað, en ég þykist kann-
ast við munstrið. ...
Hann lauk ekki við setninguna
og Floyd brosti. — Það vill svo til,
sagði hann, — að ég veit hvaðan
hún er. Eg fór til hennar Önnu
UTVARPID
Fimmludagur 31. janúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Á frívaktinni“, sjó-
mannaþáttur (Guðrún Erlendsdótt
ir). 18,30 Framburðarkennsla í
dönsku, ensku og esperanto. 19,00
Harmonikulögi — 19,10 Þingfrétt
ir. — Tónleikar. 20,30 íslénzkar
hafrannsóknir; III. erindi: Plöntu
svif (Þórunn Þórðardóttir fiski-
fræðingur). 20,55 Islenzk tónlist-
arkynning: Verk eftir Victor Ur-
bancic. — Flytjendur: Elsa Sig-
fúss, Else Miihl, Ingibjörg Stein-
grímsdóttir, Þjóðleikhúskórinn og
höfundurinn. Fritz Weisshappel
undirbýr tónlistarkynninguna. —
21.30 Útvarpssagan: „Gerpla“ eft
ir Halldór Kiljan Laxness; XXII.
(Höfundur les). 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. — Kvæði kvöldsins.
22.10 Upplestur: Sigriður Einars
frá Munaðamesi les úr ljóðaðbók
sinni: „Milli lækjar og ár“. 22,25
Sinfónískir tónleikar (plötur). —
23.10 Dagskrárlok.
Föstudagur 1. febrúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Lesin dagskrá næstu viku.
18.30 Framburðarkennsla í
frönsku. 18,50 Létt lög. 19,10 Þing
fréttir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt
mál (Arnór Sigurjónsson ritstj.).
20,35 Erindi: Úr starfssögu lög-
reglunnar (Guðlaugur Jónsson
lögreglumaður). 21,00 Dagskrá
Sambands bindindisfélaga í skól-
um: a) Ávarp (Hörður Gunnars-
son formaður sambandsins). b)
Viðtal við íþróttamann ársins
1956, , Vilhjálm Einarsson. c)
Spurningakeppni milli Flensborg-
arskóla í Hafnarfirði og Gagn
fræðaskóla Vesturbæjar í Rvík. d)
Þáttur frá Samvinnuskólanum. —
22,00 Fréttir og veðurfregnir. —
Kvæði kvöldsins. 22,10 Erindi:
Andvökunótt voldugs konungs
(Pétur Sigurðsson, erindreki).
22.30 Tónleikar: Björn R. Einars-
son kynnir djassplötur. — 23.10
Dagskrárlok.
gömlu Holden í Postulínsbúðinni
og hún mundi strax eftir henni.
Þetta var sérstök pöntun. Hún
fann bækurnar sínar og sýndi mér.
Amma ykkar keypti hana fyrir
þrjátíu árum, áður en baðher-
bergjunum var fjölgað í húsinu.
— En hvað snertir þetta íkveikj
una? spurði Carol og vissi hvorki
upp né niður. — Eg fæ ekki séð..
— Bara það, að það hafði verið
benzín í krukkunni, sagði Floyd.
— Eldurinn var kveiktur með ben-
zíni, sem hellt var úr þessari
krukku.
— Nú var dauðaþögn. Dane
reyndi að athuga öll andlitin og
gat ekki séð, hvort svipur þeirra
bar fremur vott um undrun eða
ótta. En öllum brá þeim. Og það
mátti næstum segja, að sektarsvip-
ur væri á þeim öllum.
— Auðvitað verðið þér að sanna
að krukkan hafi komið héðan úr
húsinu, sagði hann rólega. Svona
hluti er hægt að gefa eða fleygja
þeim. Og ef það, sem könnunni til-
heyrir, er ekki hér. ...
— Þið getið sparað ykkur allt
ómak, sagði Carol, og röddin var
hljómlaus og sviplaus. — Kannan
hefur verið uppi á háa lofti árum
saman. Eg sá hana þar sjálf fyr-
ir nokkrum dögum. Þið getið gáð
þar upp ef þið viljið. Einhver
stúlkan getur vísað ykkur þangað.
Floyd kinkaði kolli og Mason
gekk út. Enginn sagði orð. Floyd
stakk fangamarksstafnum í vasa
sinn og leit á Carol.
Bíllínn yðar var á stígnum í
nótt, sagði hann. — Eg sá hann
þar þegar við vorum að slökkva.
Hún kinkaði kolli.
— Já, það er svo langt í skúr-
inn. Eg hef skilið hann þarna eft-
ir á nóttunni. Veðrið hefur verið
gott.
— Já, og líka til þess að kveikja
í. Hafið þið nokkra gúmmíslöngu
hérna?
— Það er víst nóg af þeim í
verkfæraskúrnum.
— Ég á við mjóa slöngu.
Hún reyndi að hugsa sig um. —
Ég býst við, að hún sé einhvers
staðar til. Hún er notuð t.d. við
hárþvott. Við skiljum þess háttar
venjulega eftir hér yfir veturinn.
En til hvers ætti að nota hana?
— Til þess að tappa benzín af
bíl. Það er ekki hægt að gera það
með því að skrúfa krana, eins og
þér vitið, heldur verður að nota
slöngu. Röddin var nú orðin mild-
ari og næstum afsakandi. — Hafið
þér saknað nokkurs benzíns af
bílnum í dag? Þessi kanna tekur
talsvert.
— Eg hef ekki tekið eftir því,
svaraði hún, og síðan varð þögn.
Nú heyrðist glamra í leirtaui
við dyrnar og Jim Mason kom inn.
Hann bar heilmikið af þykku
postulíni, þvottaskál, sápuskál,
tannburstakrukku o. s. frv., og
svipur hans var sigri hrósandi, er
hann setti allt þetta dót á borðið.
— Það er eitt stykki ennþá
þama uppi, sagði hann, — en ég
kom ekki með það, sagði hann og
þurrkaði sér í framan með rykugri
hendinni. ■— Það eru dömur við-
staddar, og ég býst líka við, að
þetta nægi.
Enginn mótmælti því, að svo
væri. Það var sýnilegt, að kannan
tilheyrði þessum stykkjum, aðeins
hafði hún verið þurrkuð, og svip-
urinn á Floyd var órólegur, er
hann leit á Carol. * .
— Jæja, sagði hann, og röddin
var enn mild, — hvers vegna fáluð
þér fötin af þessari stúlku og
kveiktuð í brekkunni, ungfrú
Carol? Hvem eruð þér að reyna
að vemda?
13.
Einni eða tveim klukkustundum
síðar fór Dane úr húsinu, og eins
Floyd og Mason, sem bar postulín-
ið og setti það varlega í bíl hús-
bónda síns.. Floyd var óánægður
á svipinn. Spurningar hans höfðu
engan árangur borið. Carol hafði
aðeins orðið eins og hálfringluð,
en það var líka allt og sumt.
— Eg veit það ekki, sagði hún
aftur og aftur. — Jú, ég gekk með
Dane majór yfir brekkuna, en mér
datt aldrei í hug að kveikja- í
henni. Til hvers hefði ég líka átt
að gera það?
Fólk var þegar farið að koma í
heimsóknir. Það hafði frétzt, að
Greg væri kominn og sumargest-
irnir komu, hóþum saman, til þess
að sjá hina heimkomnu hetju. Auð
vitað jafnframt til þess að1 sjá
brenndu brekkuna og koma með
nýjar getgátur um morðið.
Lögreglustjórinn hafði forðað
sér eins fljótt og hann gat, með
þvottakönnuna í umbúðum og að-
stoðarmann sinn á eftir sér. Og
Dane hafði ekki annað getað en
dáðst að systkinunum þrem. Það
var ekki að spyrja að höfðingja-
blóðinu, hugsaði hann. Þau létu
þarna öll eins og ekkert væri um
að vera: Elinor skenkti te, Carol
sá um, að karlmennirnir — og
flestar konumar — hefðu eitthvað
í glösunum, og Greg var hinn kát-
asti; vildi sem minnst gera úr
hetjudáðum sínum og baðst afsök
unar á útganginum á sér.
Dane tafði ekki lengi eftir að
Floyd var farinn. Vatnskannan
virtist örugg bending í málinu og
Carol hafði vitað um fangamarks-
stafinn, sem hann hafði fundið í
brekkunni. En svo datt honum líka
í hug, sér til gremju, að hún hafði
verið jafnrugluð og sek á svipinn
eins og saklaust fólk er oft, þeg-
ar svona stendur á.
Ný sending
Síbdegiskjólar
Kvöldkjólar
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5.
3.—14. marz 1957
Kaupsfefnan í Leipzig
40 lönd sýna vörur og vélar á 800,000 ferm.
sýningarsvæði.
Umboðsmenn:
Kaupstef nan—Reyk j avík,
Laugavegi 18 og Pósthússtræti 13.
Símar: 1576 og 2564.
i£!PZIGER Mf SSEAMI lllWIG C 1: ^HHIRSTHÁS SÍ Jf
Höfum fil sölu
góða 3ja herbergja íbúð á hæð, ásamt herbergi í kjallara
í Vesturbæ, hitaveita.
Fasteigna-og
lögfræðiskrifstofan
Hafnarstræti 8 — Sími 81115 eða 5054.
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) Hinn grimmi jörfi hefur
brotizt inn í veiðihús Jonna við
Eldvatn.
2) Skaðræðisdýrið veldur
skemmdum á veiðitækjum Jonna
og því næst fer það í veiöiboga
hans og eyðileggur bráðina i
þeim.