Morgunblaðið - 31.01.1957, Qupperneq 16
Veðrið
Allhvass eða hvass suð-austan, él
Sjá bls. 11.
Vegna ófærðariissiár var ekki h
að koasa til hjálpar er bærinsi brann
Víðines á KJalamesi
brann í gærkvoBdi
BÝLK) Víðines á Kjalamesi þar sem Birgir Halldórsson söngvari
hóf myndarlegan búskap fyrir nokkrum árum, brann í gær-
kvöldi, án þess að nokkuð yrði að gert vegna ófærðar.
Selfoss hefur undanfarna daga verið meira í fréttum blaðanna en
nokkur annar staður og eru ástæðurnar augljósar. Þar er sem
kunnugt er liið mikla Mjólkurbú Flóamanna, þó reyndar sjáist það
ekki á þessari mynd, sem tekin var úr flugvél í fyrradag af nokkrum
hluta þessa ört vaxandi kauptúns. Mjólkurbú Flóamanna er miðstöð
ailrar mjólkurframleiðslu Suðurlandsundirlendisins og berist
ekki nægjanleg mjólk þaðan, þá verður það óhjákvæmileg ráð-
stöfun að taka upp stranga skömmtun mjólkur. Ljósm. Mbl. Ól.K.M.
AUor samgöngur í bænum kom-
ust ú ringulreið í stórhriðininni
Það mun hafa verið um kl.
7,30, sem eldurinn kom upp.
Þá var enn hríð þar efra og
hvassviðri. — Hringt var eftir
hjálp til Álafoss, þar sem
slökkvitæki eru jafnan til
reiðu ef út af ber. Þá var og
hringt til Reykjavíkur. En svo
mikil ófærð var að ekki var
viðlit að senda bíla af stað. Þá
var um það rætt að reyna að
fá dráttarbátinn Magna til
hjálpar. En brátt kom í ljós
að það myndi verða svo tímá-
frekt að komast þangað á hon-
um með nauðsynleg tæki, að
slíkt myndi ekki koma að
gagni.
En nágrannar komu til hjálp-
«r og frá Álafoss-byggð var send
jarðýta af stað, en leiðin var,
SVO mikil var ófærðin í gær-
kvöldi urn klukkan 5, hér í
bænum að sjúkrabíll er sækja
átti konu inn í Bústaðahverfi,
varð frá að snúa. Annar bíll varð
að fara ótal króka og að lokum
gegnum skrúðgarð Landsspital-
ans, til þess að koma konu í fæð-
ingardeildina, — en allt fór vel.
Það var um kl. 5 síðdegis í
gær er einn versti bylur dagsins
gekk yfir, að beðið var um
sjúkrabíl inn í Laugarneshverfi
vegna sængurkonu. Það var ekki
greiðfært þangað inn eftir frekar
en um önnur úthverfi og margt
til þess að tefja’för sjúkrabílsins.
En með því að fara ótal króka,
sagði Filippus Bjarnason varð-
stjóri, tókst brunavörðunum að
komast að húsi því, er konan á
heima í. Nágrannar konunnar
komu nú til hjálpar með skóflur
til þess að hægt yrði að koma
Á leið til Reykja-
víkur í gærkvöldi
MEÐ sinni ódrepandi þraut-
seigju ætluðu vegagerðarmenn á
snjóýtum og snjóplógum að
ryðja mjólkurbilalest að austan,
veginn til Reykjavíkur í nótt. Eru
mjólkurbílarnir með 41.000 lítra
mjólkur, og voru þeir í Krísu-
vík um klukkan 10 í gærkvöldi.
Þá voru snjóplógar suður á
Keflavíkurvegi, en þar voru t.d.
þrír áætlunarbílar, sem tepptust
í hríðinni síðdegis í gær. Voru
þetta vagnar frá Steindóri og
1 þeim um 100 manns. Hafði
einn bílstjórinn gengið allt niður
að Hábæ til að ná í síma og var
hann um hálfa aðra klukkustund
á leiðinni í stórhríð og ófærð. Var
svo snjóplógur sendur vögnunum
til hjálpar og var hann kominn
með þá í Kúagerði klukkan 10 í
gærkvöldi, en ekki var vitað
hvenær vagnarnir kæmust til
bæjarins. Fólkinu leið öllu vel
í vögnunum, sem eru eins og all-
ir vita, hinir þægilegustu.
í gær var ófært um Mosfells-
sveitina og eins um Kjalarnesið.
sem fyrr segir, mjög seinfarin og
ýtan hægfara. Fólkið sem kom til
hjálpar er fallegt bæjarhúsið að
Viðinesi stóð í björtu báli, hafði
ekkert nema fötur og snjó til þess
að verja gripahúsin. Það mun
hafa tekizt að verja þau að mestu
eða öllu leyti frá verulegu tjóni.
Birgir Halldórsson og kona
hans, sem voru heima með þrjú
barna sinna, misstu allt sem þau
áttu, því engu varð bjargað úr
húsinu, sem var steinsteypt, en
innréttingar allar úr timbri.
Fregnir af bruna þessum voru
ekki öllu ýtarlegri en þetta seint
í gærkvöldi, enda mjög slæmt
símasamband frá Brúarlandi til
næstu bæja. Var t. d. ekki vitað
með vissu hver eldsupptök hafi
verið. En um kl. 9.30 var íbúðar-
sjúkrabílnum sem næst húsinu,
en úti var stórhríð.
Ferðin í bæinn gekk mjög
sæmilega. En þegar kom að
Landsspítala-hliðinu, en það er
mjög þröngt og steinstólpar
beggja vegna, sat þar fastur
læknisbíl, svo að sjúkrabíllinn
varð frá að hverfa. Var þá ekið
inn á spítalalóðina, frá Eiriks-
götu, síðan niður fyrir Lands-
spítalann og eftir gangstígnum,
sem liggur gegnum skrúðgarð
spítalans, að fæðingardeild-
inni, — og þangað var komið
nógu snemma, en eiíki mátti þó
öllu tæpara standa.
Um fimmleytið varð sjúkrabíll
frá að snúa á mótum Bústaða-
vegar og Hafnarfjarðarvegar.
Var þar röð af bílum föst m. a.
strætisvagn. Fyrir aftan sjúkra-
bílinn festust svo fleiri bílar og
var hann klukkustund í þessari
ferð. í gærkvöldi um klukkan
6.30, en þá var „síðdegisbylur-
inn“ um garð genginn — og kom-
in allt að því hláka, voru bruna-
verðir að leggja á ný upp í leið-
angur í Bústaðahverfi að sækja
konuna, sem fyrr er getið.
★
f gærkvöldi voru komnar ýtur
og verkfæri á Landsspítalalóð-
ina til þess að ryðja hana og
losa læknisbílinn, sem sat í hlið-
inu.
5 met sett
Á sundmeistaramóti Reykja-
víkur, sem fram fór í Sund-
höllinni í gærkvöldi voru sett
5 ný met, 2 íslandsmet og 3
unglingamet.
Ágústa Þorsteinsdóttir, Á,
setti íslandsmet í 100 m skrið-
sundi, synti á 1:09,3 og það er
að sjálfsögðu jafnframt ungl-
ingamet. Eidra metið, 1:09,5,
átti hún einnig.
Guðmundur Gíslason, ÍR,
setti íslandsmet í 100 m bak-
sundi, 1:13,6 mín. Það er einnig
unglingamet, því Guðmundur
er enn í þeirra hópi. Gamla
metið átti Jón Árnason, Akra-
nesi, og var það 1:14,3. Guð-
mundur setti og unglingamet í
400 m skriðsundi, synti á
5:18,3 mín.
húsið að Víðinesi hrunið að
mestu. Þá var Birgir þar ásamt
sveitungum sínum í kafófærð við
að safna saman skepnunum,
kúm, hestum og kindum, sem
öllum var hleypt út er óttazt var
að eldurinn myndi einnig eyði-
leggja útihúsin.
Það var ekki vitað hvort trygg-
ing hafi verið há á Víðinesi, en
allt um það, er tjón Birgis bónda
Halldórssonar mjög mikið. Hann
hefur rekið gott bú að Víðinesi
frá því hann keypti jörðina og
hóf þar búskap og var bæjar-
húsið nýlegt.
Vill banna ferðir
MEIÐ áframhaldandi ófærð og
hríðum dag eftir dag mun ekki
verða hjá því komizt að gera
nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að minni bílar fari ekki út úr
bænum, sagði Sigurður Stein-
dórsson fulltrúi, í samtali við
Mbl. í gær. Vagnar, sem halda
uppi nauðsynlegum samgöngum í
almenningsþágu verða þegar
ófærð er svona mikil, að ekkert
má út af bera, að hafa aigjöran
forgangsrétt á leiðunum hér utan
við bæinn. — Það eru fyrst og
fremst litlu vagnamir sem valda
stöðvun stærri vagnanna. Það
kemur aftur niður á farþegunum,
sem stundum verða að bíða tím-
unum saman í vögnunum.
Unglinga leitað
f GÆRKVÖLDI var lýst í út-
varinu eftir 13 ára stúlku og 14
ára dreng. LÖgreglan skýrði Mbl.
svo frá í gærkvöldi að ekki væri
ástæða til þess að óttast um
krakkana. Hér væri um að ræða
ástfangna unglinga, sem ekki
hefðu komið heim til sín frá því
á þriðjudag. Um hádegisbilið
þann dag hafði telpan farið að
heiman frá sér. í fyrrakvöld kl.
11 höfðu þau verið saman á ferð
hér í bænum \>g í gærdag um
klukkan 11 árdegis -komu þau í
hús eitt, en síðan hafa ekki bor-
izt fregnir af hjúunum. Hér er
um að ræða skólasystkin.
f gærkvöldi höfðu lögreglunni
borizt fregnir af börnunum, en
þau höfðu sézt hingað og þangað
um bæinn síðdegis i gær. Var á-
stæðan til þessa brotthlaups
barnanna talinn uppreisnarhugur
gegn aðstandendum þeirra. Lög-
reglan var að hefja skipulega
leit er síðast fréttist.
HAFNARFIRÐI — í gær urðu
einar mestu umferðartruflanir,
sem komið hafa um margra ára
skeið á Hafnarfjarðarveginum.
Klukkan var rúmlega 3 í gærdag,
þegar skall á stórhríð, svo að vart
sá út úr augum. Urðu bílar svo
tugum skipti fastir í sköflum á
leiðinni, og aðrir urðu að nema
Mikil snjókoma —
vegir spillasl
ÞÚFUM, 30. jan. — Undanfarna
daga hefur verið mikil snjókoma
af suðvestan.
Kominn er mikill snjór, en þó
eru hagar, þegar veður leyfir.
Síðan bryggjan á Arngerðar-
eyri skemmdist hefur Djúpbátur-
inn ekki getað afgreitt sig þar.
Vegir á landi hafa og spillzt
við snjókomuna. —P. P.
HANN er að skella á með stór-
hríð, sagði maður nokkur í
Austurstræti í gærdag um kl. 3,
er hríðarbyl gerði. Maðurinn
hafði á réttu að standa, því fyrr
en varði var komin 'stórhríð, sem
olli miklum truflunum hér í bæn-
um. Segja má, að klukkan 3.30
hafi strætisvagnarnir „fallið út
úr“ áætlun sinni hver af öðrum
á öllum leiðum, innanbæjar og
utan og var fullkomin ringulreið
ríkjandi almennt í farþegaflutn-
ingum hér í bænum milli klukk-
an 3.30 og 7 í gærkv. Lokuðust
þá margar götur og vegir, svo að
strætisvagnarnir komust margir
staðar sökum dimmviðris. Hvessti
þá líka allmjög og skóf í skafla.
Einna verst varð færðin á Arn-
arneshæðinni og báðum megin
hennar, og festust bílar þar unn-
vörpum. Til dæmis komst strætis-
vagn, sem lagði af stað frá Reykja
vík laust fyrir kl. 4, ekki til Hafn-
arfjarðar fyrr en á áttunda tím-
-anum í gærkvöldi. Vagninn var
fullur af fólki, sem tók biðinni
með hinni mestu ró og varð ekki
meint af. Var hann lengst af
timanum tepptur á Arnarnesháls-
inum.
Klukkan var um 7 þegar rofaði
til og heflar og ýtur gátu tekið
til starfa þar, sem verst var.
Unnið var látlaust i allt gær-
kvöld við að hreinsa leiðina, en
þó var færð allþung á fyrrnefnd-
um stöðum. Bilar, sem sátu fast-
ir í sköflum töfðu og mjög fyrir,
en ekki var gerlegt í gærkvöldi
að fjarlægja alla þá bíia, sem
festust. —G. E.
hverjir ekki á leiðarenda. Auk
þess urðu margir vagnar að fara
krókaleiðir. Af þessu hlutust sem
fyrr segir mikil vandræði. Milli
klukkan 6 og 7 var gífurlegur
mannfjöldi á Lækjartorgi. Kon-
ur voru þar með ung börn sín í
hríðinni, skólafólk, og menn á
heimleið úr vinnu. Mun margt af
þessu fólki hafa verið yfir 2 klst.
að komast heim til sín úr bæn-
um. — En þegar stórhríðinni
slotaði um kl. 6.30, fór smám
saman að komast lag á ferðir
vagnanna. Nokkrir þeirra höfðu
orðið fastir og þurfti kranabíl frá
Vöku til þess að ná vögnunum
upp.
í gærkvöldi kl. 10 mátti heita
að á öllum helztu leiðunum hafi
vagnarnir gengið vandræðalaust.
Lögbergsvagn komst þó ekki
nema upp að Selási, Seltjarnar-
nesvagn að Kolbeinsstöðum og
Blesugrófarvagn að Skeiðvell-
inum.
Með hverjum deginum sem líð-
ur versnar færðin og má nú ekk-
ert út af bera, eins og sjá má af
þessari frétt, að ekki komist full-
komin ringulreið á mannflutn-
inga hér í Reykjavík, en slíks eru
afar fá dæmi, allt frá því að
strætisvagnarnir komu fyrst til
sögunnar.
Laxneis veðurieppfur
í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI um kl. 8 urðu
farþegar í áætlunarbíl Mosfells-
sveitar að yfirgefa bílinn skammt
frá Lágafelli. Varð bíllinn þar
fastur, eftir að hafa verið um
3 V2 klst. á leiðinni frá Brúarlandi.
Leituðu farþegar skjóls á ýms-
um bæjum. Meðal farþega var
Halldór Kiljan Laxness rithöf-
undur.
Sjúkrabíllinn varð að fara
gegnum garð spífalans
3 klst. til Hafnarfjarðar