Morgunblaðið - 31.03.1957, Síða 1

Morgunblaðið - 31.03.1957, Síða 1
16 síður og Lesbók 44. árgangur 76. tbl. — Sunnudagur 31. marz 1957. Prentsmiðja MorgunblaSsÍM Danir munu ekki láta hótanir Búlganins /iræða sig segja dönsku blöðin Kaupmannahöfn, 30 marz. Einkaskeyti til Mbl. BRÉF BÚLGANINS til dönsku stjórnarinnar var þýtt í nótt og lagt fyrir ráðuneytisfund í morgun. Engin ákvörðun var tekin um það. Efni bréfsins hefur ekki verið birt, þar sem Rúss- ar hafa mælzt til þess, að það birtist samtímis í Kaupmannahöfn og Moskvu á mánudag. Listkynning Mbl. Kristin Jónsdóttir Þ E S S A viku verða verk frú Kristínar Jónsdóttur listmálara til sýnis á vegum Listkynningar Morgunblaðsins. Kristín Jóns- dóttir er ein af þekkt-ustu list- málurum þjóðarinnar. Er hún ættuð frá Arnarnesi við Eyja- fjörð. Hún hóf listnám við Kon- unglega listaháskólann í Kaup- mannahöfn árið 1911 og munu hún og Júlíana Sveinsdóttir hafa orðið fyrstar íslenzkra kvenna til þess að hefja myndlistarnám. Kristín lauk námi við listahá- skólann í Kaupmannahöfn árið 1916. Fór hún síðan m. a. tvær námsferðir til Ítalíu, Þýzkalands og Sviss. í Danmörk sýndi hún verk sín i fyrsta skipti á Charlottenborg árið 1915. Átti hún í mörg ár myndir á „Vorsýningunni“ þar og hlaut ágæta dóma. Auk þess hefur hún haft tvær sjálfstæðar sýningar í Höfn og eina í Stokk- hólmi. Fyrstu sýningu sína hér í Reykjavík hélt hún árið 1915. Með henni sýndi þá Guðmundur Thorsteinsson (Muggur). Hefur hún síðan haft hér samtals 5 sjálfstæðar sýningar. Þá hefur frú Kristín tekið þátt í sýningum í Noregi, Svíþjóð, Danmörk og Þýzkalandi. Enn- fremur tók hún þátt í hinni nor- rænu listsýningu, sem haldin var í Rómaborg árið 1954. Af opin- berum aðilum, sem keypt hafa listaverk af henni má nefna Listasafn íslenzka ríkisins, Lista- safn danska ríkisins í Kaup- mannahöfn, Listasafnið í Björg- vin og Listasafnið í Álasundi. o.fl. Frú Kristín sýnir nú 8 olíu- málverk í sýningarglugga Morg- unblaðsins. Eru þau öll til sölu hjá listakonunni eða Morguu- blaðinu. •fc Cambridge vann Oxford i hinum árlega kappróðri í dag. Hefur þá Cambridge unnið kapp róðurinn 57 sinnum, en Oxford 45 sinnum. ■yt Bandaríkjamenn hafa hleypt af stokkunum öðrum kafbáti, sem knúinn er kjarnorku. Nefnist hann „Sæúlfurinn“ og er um 100 metra langur og vegur um 3200 tonn. Var byrjað að byggja hann í fyrra. Fyrsti kjarnorku- kafbáturinn „Nautilus" hefur nú siglt um heimshöfin í 2' ár og far- ið yfir 60.000 sjómilur, en það svarar til þess að hann hafi farið tvo og hálfan hring umhverfis jörðina. Á þessum tíma hefur hann ekki þurft að taka elds- neyti, en nú fær hann nýjar birgðir. Bréf Búlganins til Dana er svipað að lengd og bréfið til Norðmanna, og er talið að þau séu mjög á einn veg. Danir munu ekki flasa að því að svara bréf- inu og munu ráðgast við Norð- BÚDAPEST, 30. marz. — Frá Reuter. 4 0 0 0 „VERKALÝÐSVER»IR“ þeirra á meðal nokkrar gamlar gráhærðar konur, gengu í skrúð- fylkingu um götur Búdapest syngjandi rauða lofsöngva. Þetta var í tilefni af því, að Kadar var að koma aJ fundi við hús- bændur sína í Moskvu. Þessir verðir verkalýðsins gengu í tveim löngum röðum klæddir bláum samfestingum með rauða borða á handleggjum og vélbyssur, riffla og skammbyssur í höndum. Á undan gekk hávær lúðrasveit. Fylkingin hélt til aðalstöðva verkalýðssamtakanna og til styttu Stalins, sem var eyðilögð í upp- reisninni í október. Þar skipaði hún sér í raðir báðum megin við 10 metra háan fótstallinn, þar sem 8 metra stytta Stalins hafði staðið. Að svo búnu komu um 100 flutningabílar með rauða fána á vettvang. „Verkalýðsverð- irnir“ klifruðu upp á þá, og síð- an var ekið um borgina með söng og húrrahrópum fyrir kvislinga- stjórninni. „Lengi lifi vinátta við Sovétríkin“ var eitt vígorðið. Fólk á götum úti stóð hljótt og afskiptalaust, þegar vagnarnir óku hjá. Þetta var i fyrsta sinn, sem „verðir verkalýðsins" komu fram opinberlega, en þessar sveit- menn um það, áður en þeir senda endanlegt svar. DANIR LÁTA EKKI ÓGNA SÉR Kvöldútgáfa Berlingske Tid- ir voru myndaðar fyrir rúmum mánuði til að halda uppi reglu í verksmiðjum og samyrkjubúum. Þannig er hin gamla ógnaröld komin á að fullu í Ungverja- landi. Hann réðst á þá afstöðu Banda- ríkjanna, að taka bæri til um- ræðu spuminguna um frjálsar siglingar án tillits til flóttamanna vandamálsins. Egyptar væru reiðubúnir að taka bæði vanda- málin fyrir, sagði hann. Hins veg- ar mundu þeir ekki láta neinar ógnanir eða utanaðkomandi áhrif hrekja sig frá þeirri ákvörðun að standa á rétti sínum. Nasser sagði, að Egyptar hefðu ákveðið að þjóðnýta Súez-félagið, þegar Bandaríkjamenn drógu til baka tilboð sitt um að kosta bygg ingu Ashram-stíflunnar. En sök- ende birtir leiðara, þar sem seg- ir m. a.: „Danir láta ekki hræða sig með ógnunum fremur en Norð menn. — Atlantshafssáttmálinn verður að vera grundvöllur utan- ríkisstefnu okkar.“ Ekstrabladet segir m. a.: „Ef sá grunur reyn- ist réttur, að í bréfi Búlganins komi fram áhyggjur vegna aðild- ar Dana að Atlantshafsbandalag- inu og þeirra afleiðinga, sem það hefur fyrir sambandið við Sov- étrikin, munu Danir svara því til, að Atlantshafsbandalagið sé ein- göngu varnarbandalag og geti því ekki vakið neinn óróa hjá frið- elskandi nágrannaþjóðum." Fyrsta skipolest PORT SAID, 30. marz. — Frá Reuter. FYRSTA skipalestin, sem farið hefur um Súez-skurðinn síðan í nóvember sl., sigldi um Port Said inn í Miðjarðarhafið í dag. Hér var um 6 skip að ræða, meðal þeirra 4000 tonna rússneskt flutningaskip. í skipalestinni voru engin skip frá Bandaríkjunum, Bretlandi eða Frakklandi. Önnur skipalest er nú á leiðinni norður skurðinn. um andspyrnu Breta og Frakka gætu Egyptar ekki enn hrundið áætlunum sínum um efnahags- viðreisn í framlcvæmd. Fyrir höndum væru nú enn meiri erf- iðleikar en þeir, sem þegar væru yfirunnir. Hann sakaði Vesturveldin um að beita Egypta efnahagsþving- unum í pólitískum tilgangi. Og síðan væru þeir ákærðir fyrir að snúa sér til kommúnistaríkjanna. En það er tvennt ólíkt að verzla við Rússa og gerast kommúnisti, sagði Nasser. Hann ítrekaði þá neitun sína, að Egyptar væru að ýta undir viðgang kommúnism- ans. Lloyd sagði, að hugrekki og þolgæði brezku hersveitanna á Kýpur hefði skapað svo mikið ör- yggi á eyjunni, að nú væri hættu- laust að sleppa erkibiskupinum úr haldi, enda hefði hann getað orðið Bretum þyngri í skauti sem fangi en sem frjáls maður. BARÁTTAN HELDUR ÁFRAM Formælandi brczku hersveit- anna á Kýpur sagði í dag, að baráttan við EOKA-skæruliðana væri ekki á enda. Hingað til Makaríos fer lil Aþenu AÞENU, 30. marz. — Frá Reuter. GRÍSKA stjórnin hefur látið það boð út ganga, að hvert það grískt skip, sem fyrst sigli hjá Seychell-eyjum, taki Makarios erkibiskup um borð og flytji áleiðis til Grikklands. — Búizt er við að hann fljúgi nokkuð af leiðinni. Gríski sendiherrann í Bret- landi hefur verið beðinn að fara aftur til London á morg- un, en hann fór þaðan fyrir rúmu ári, þegar Makarios var fluttur í útlegð. Á Úrslit í kosningunum ti! ind- verska þjóðþingsins urðu kunn í fyrrad., og hlaut Þjóðþingsfl. Nehrus yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Af 448 þingsætum fékk Þjóðþingsflokkurinn 365, komm- únistar 27, en önnur sæti skipt- ust á milli nokkurra minni flokka. Kommúnistar unnu fylk isþingið í hinu nýstofnaða Kerala fylkL hefðu engir skæruliðar gefið ság fram, þrátt fyrir loforð stjóm- arinnar um uppgjöf allra saka. Frá því í kvöld tekur útgöngu- bannið í borgum á Kýpur aðeins til grískumælandi karlmanna undir 27 ára aldri, en í Fama- gusta gildir bannið þó bæði fyrir griska og tyrkneska íbúa. ★ Tékkóslóvakía hefur vísað úr landi starfsmanni við sendiráð fsraels í Prag. Er hann sakaður um njósnir. í fyrri viku gerðu stúdentar á Kúbu tilræði við hinn blóðuga ein- ræðisherra eyjunnar, Fulgencio Batista, sem er 56 ára gamall. Til- ræðið fór út um þúfur, og féllu 30 stúdentar fyrir kúlum einræðis- herrans og skósveina hans. Meðal hinna föllnu var José Antonio Echevarría, 25 ára gamall stúdentaleiðtogi, sem sagði við bandarísk- an blaðamann ekki alls fyrir löngu: „Stúdentarnir á Kúbu eru ekki hræddir við daúðann". Hann sést hér á myndinni í blóði sínu. f kjölfar þessarar misheppnuðu tilraunar til að steypa einræðisherr- anum hófust pólitísk morð í stórum stíl. Andstæðingar Batista fundust skotnir og hengdir hér og hvar um höfúðborgina, þeirra á meðal öldungadeildarþingmaðurinn Pelayo Cuervo Navarro, sem hafði gagnrýnt einræðisherrann harðlega. Kúba logar nú í upp- reisnum og binda margir vonir sínar við herinn, en innan hans er nú mikil óánægja með blóðstjórn Batista. Skósveinar Kadars sýna sig Nasser ver hendur sínar Kairó, 30. marz. Frá Reuter. NA S S E R einræðisherra Egyptalands sagði í Kairó í dag, að spurningin um það, hvort leyfa skyldi skipum frá ísrael siglingar um Súez-skurðinn, væri nátengd spurningunni um örlög Araba-flóttamannanna. Þessar spurningar yrði að ræða sameig- inlega. Nasser sagði þetta í ræðu, sem hann hélt fyrir ameriska blaðamenn. Lloyd harmar afsöga Salisburys London, 30. marz. Frá Reuter. SELWYN LLOYD, utanríkisráðherra Breta, lét svo um mælt í dag, að það væri leitt, að Salisbury lávarður skyldi segja sig úr stjórninni vegna þess að Makariosi erkibiskupi var sleppt úr haldi. Hrósaði hann lávarðinum fyrir mikinn dugnað og fram- sýni og kvað hann skilja eftir mikið og vandfyllt skarð í stjórn- inni, en hins vegar yrðu allir, jafnvel líka ráðherrar, að hafa fullan rétt til að framfylgja sannfæringu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.