Morgunblaðið - 31.03.1957, Page 2

Morgunblaðið - 31.03.1957, Page 2
2 MORGVIVBLAÐIÐ Sunnud. 31. marz 1937 Gjaffelldur vetur Er jboð ekki lögmál lifsins oð eiga sinn aldurtila ? Skriðuklaustri, 25. marz. Hér hefur hlánað vel undanfarna daga. Er nú mikið til autt hér á láglendinu, en mikið vacn er þar víða. Flekkétt er og orðið upp í hlíðamar, einkum að vest- anverðu, en þeim megm var snjór inn alltaf mimii en á austur- byggð. Ég hef aldrei séð Fljóts- dalinn jafnhvítan og hann var am miðjan marz. E.ida er það margra mál að snjóriim hafi ver- ið einhver sá mesti er þeir muna, einkum á SuðurdaL Var þar botnlaus ófaerð. En snjórinn var mjög laus og leysti því undra fljótt í hlákunum xmdanfama daga, svo að nú er alls staðar komin upp jörð. Hér a austur- byggðinni munu bændur almennt hafa fengið lengstu samfelldu innistöðu fyrir fé í undanfömum storku- og snjókafla, sem þeir muna úr sínum búskap. Er þessi vetur nú orðinn gjaffelldari víða hér í dal heldur en harði vetur- km 1951. En eftir er nú einmán- uðurinn, sem þá var mjög ill- viðrasamur. Athugun á heyforða hefur nýlega farið fram í hreppn um og eru birgðir nægar. Hins vegar rnun þurfa meira kjam- fóður ef vorharðindi yrðu mikil. HBEINDÝRIN Mikið hefur verið rætt um hreindýr í blöðum að undanförnu og einnig nokkuð á þau minnzt í útvarpi. Hefur mér virzt gæta þar allmikils misskilnings, svo sem vænta má, þar sem jafnan er eitthvað af lausafregnum á sveimi. Ég hef ekki löng kynni af hreindýrum og því kannske lítið á minni umsögn að byggja. En nokkuð hef ég séð af dýrum að undanfömu. Em þau að vísu misjöfn að útliti, en mörg líka í bezta fjöri. Hér í dal hafa allt- a/ verið allgóðir hreindýrahagar og svo hefur einnig verið í Fell- um. Og dýrin hafa verið mjög dreifð og er það mikil trygging íyrir sæmilegri björg fyrir þau. — Hins vegar mun graslendi i byggð aldrei henta þeim vel. En nú síðustu dagana hefur komið allgóð jörð um mikinn hluta Flj ótsda lshéraðs og njóta hrein- dýrin þess ekki síður en sauðféð. Og nú er mér sagt að dýrin séu tekin að leita í áttina til öræf- anna, m. a. upp Jökuldal og inn í Rana. En þar er jarðsælt mjög og heimkynni dýranna, er þau rása frjáls bæði sumar og vetur. Ég held að engan kvíðboga þurfi að bera fyrir dýrunum héðan af. Það er komin sú jörð að tæplega þrýtur hana hér eftir, einkum vegna þess, að nú er allur snjór- ixm frá síðari hluta vetrar horf- inn, og leysir því fljótt bæði fyr- ir þíðviðri og sólbráð. LÖGMÁL LÍFSINS NÆR TIL HREINDÝRA Ég hef verið að spyrjast fyrir um hve mörg dýr sé vitað um, sem drepizt hafa í vetur, en eng- ar áreiðanlegar upplýsingar eru fyrir hendi um það. Hitt er vitað Spánskur styrkur RÍKISSTJÓRN Spánar hefur heitið íslenzkum stúdent eða kandidat styrk til háskólanáms á Spáni frá 1. okt. 1957 til 30. júní 1958. Styrkurinn nemur 16 þús. pes- etum nefnt tímabil. Ef námsmað urinn æskir, mun honum verða útvegað húsnæði og fæði í stúd- entagarði gegn venjulegu gjaldi. Styrkþegi þarf hvorki að greiða innritunar- né skólagjald. Þeir, sem kynnu að hafa hug i að hljóta styrk þennan, sæki um hann til menntamálaráðu- neytisins fyrr 1. maí n. k. Umsókn beri með sér, hvers konar nám umsækjandi hyggst stunda, og fylgi staðfest afrit af prófskírteini svo og meðmælum eí til eru. að hér er aðallega um gamlar kýr að rasða. Hér í dal var nýlega skotið dýr, sem var orðið mátt- lítið. Það var því nær tannlaust orðið. En þarf annars nokkurn að undra þótt dýr deyi úr villtri hjörð? Er það ekki lögmál lífsins að eiga sinn aldurtila? Og er þá ekki líka eðlilegt að hann ltomi frekar þegar ytri aðstæður eru erfiðar, eins og í snjóa- og hag- leysuvetrum? Það er engum vafa btmdið að á hverjum vetri hníg- ur eitthvað af dýrum að velli. Sjálfsagt fátt, þegar lífskjörin eru góð, fleira þegar hart er í ári. Og trúlega er það megin- Þjóð í hrapi NÝR BÆKLINGUR með þessu nafni eftir Benedikt Gíslason frá Hofteigi er kominn út og til sölu á götum og í verzlunum. Fjallar hann lun þjóðmálahorfurnar, og er þar komið víða við. 1 lok bæklingsins segir höfundur svo: „Ég hef ráðizt í það að gefa þessa grein út sérprentaða, í bæklingi þessum. Ég gerði ráð fyrir þröngum dyrum lun hennar inngang í blöðum flokkanna á fslandi, enda er það svo, að ein- skis flokks sjónarmið dregur hún fram og engum flokki er bægt með henni. Ég leyfi mér að skír- skota til þjóðarinnar í svo alvar- legu máli, sem framtíð þjóðar- innar er nú í dag, því hér 'er ekki um neitt annað að ræða en að færa þjóðfélagið á grundvöll starfs og framleiðslu á fulla á- byrgð þegnanna“. ástæðan nú til þess að með meira móti fellur af dýrum, að undanfarnir vetur hafa verið svo góðir að aldrei hefur þrengzt um haga. Menn tala um mannúðar- leysi að láta dýrin deyja drottni sínum við hungur og harðrétti — kveljast til bana. Ég held að þetta sé misskilningur. Ég held að dvaladofi sæki á dýrin, sem end- ar með svefni, dauðasvefni. Þessa áiyktun má draga af áistandi dýr- anna. Og ég sé enga skynsamlega hugsim í því að álykta að dýrin endi lif sitt á kvalsufullan hátt. Mér sýnist að dýrin séu nú slopp- in yfir himgurhættuna, — og raunar held ég að þau hafi aldrei verið í henni. SNJÓBÍLL GERIR LÆKNISVITJUN MÖGULEGA Fyrir skömmu vildi það slys til á Aðalbóli í Hrafnkelsdal að lítil stúlka, dóttir hjónanna þar, handleggsbrotnaði. Fóru báðar pípur sundur á framhandlegg of- an við úlnlið. Gert var að brot- inu til bráðabirgða, en héraðs- læknirinn fór vestur á snjóbíl daginn eftir og gerði að meiðsl- inu. Snjóbíllinn kom hér upp í Fljótsdal og fór upp frá Ressa- stöðum og hjálpaði jarðýta hon- um upp á brún. Eftir það gekk ferðin greiðlega vestur á brún Hrafnkelsdals. En án sjnóbílsins hefði orðið erfitt að veita barni þessu læknishjálp. — J. P. Austur á Meðallandssandi er hópur manna sem að því vinnur að bjarga norska selveiðiskipinu Polar Quest, sem þar strandaði fyrir nokkru. Er skipið annar stærsti selfangari sem Norðmenn eiga, vandað tréskip og hið fallegasta. Nú eru þeir sem að björguninni vinna mjög vongóðir um að takast megi að ná skipinu aftur á flot. (Ljósm. Gísli Brynjólfsson, Kirkj ubæj arklaustri). Þjóðkunnur læknir ber fram kröfuna um D vífamín í mjélk i SÍÐASTA Fréttabréf um heilbrigðismál, skrifar ritstjórinn próf. Niels P. Dungal greinina: Hvernig verður sólarleysið bætt. Fjallar greinin um beinkramarmyndanir, sem eiga rót sína að rekja til D-vítamínsskortsins. Segir prófessorinn frá því að hann hafi árið 1945 skoðað 239 börn hér í Reykjavík og leiddu röntgen- myndir, af beinum þeirra í ljós að 77% þeirra voru með beinkröm. Börnin voru á aldrinum 3 mánaða til 2 ára. I sumarblíðu er Sælu- vikan undirbúin Sauðárkróki, 30. marz: HÉR hefur verið í dag einmuna blíða, líkt og um hásumar væri. Hitinn komst upp í 12 stig í for- sælu þegar heitast var. Undirbún ingur er mikill undir Sæluvikuna, eða „sæluna“ eins og hún er al- mennt nefnd hér um slóðir. Það er ekki einasta að þeir sem skemmtunum eiga að halda uppi æfi af fullum krafti, heldur búa verzlanir sig undir mikil viðskipti, því Sæluvikan er önnur kauptíð Skagfirðinga. 1 næstu viku munu verða jafnvel meiri annir hér á Sauðárkróki heldur en f haust- kauptíð eða við ullarinnlegg á vor in og ekki mun blíðskaparveðrið ef það helzt spilla fyrir aðsókn- inni að „sælunni". Líkur eru til þess að allir veg- ir muni verða greiðfærir og að hin miklu snjóalög muni leysa en hér eins og um allt Norðurland hefur að undanfrönu kyngt nið- ur miklum snjó. Hingað ’ omu í dag 3 flugvélar og er það óvenjuleg mikið. Var Batnandi ástand á Héraði EGILSSTÖÐUM, 30. marz: — Hér er komin asahláka og er um- ferð erfið vegna krapalegs, en fer ört batnandi því ýtur eru að ryðja vegina. í gær fór bíll héð- an og að Hallormsstað, sem er 30 km leið. Var bíllinn um 7 klst. á leiðinni. Góð jörð er nú komin upp um allt Hérað og upp á Jökuldal, svo segja má að ástandið fari nú hraðbatnandi hér um slóðir. — A. flutt fólk og vörur og standa þess- ir flutningar í sambandi við Sælu- vikuna Sem dæmi um það hve leysingarnar eru miklar, má geta þess, að í dag var sem stórfljót félli í gegnum kaupstaðinn miðj- an, því leysingavatn flæddi um veginn hjá kirkjunni svo að ekki var fært gangandi mönnum nema vel stígvéluðum. Góðviðrið hefur létt áhyggjum af þeim er borið hafa hita og þunga undirbún- ingsins að Sæluvikunni, því verði færð góð til Sauðárkróks eru þeir Skagfirðingar fái sem sitja mimu af sér „sæluna“. — Vignir. Góðir hagar komnir BÚÐARDAL, 30. marz: — Snjó- létt er nú orðið hér víða um sveitir og eru hagar orðnir góðir fyrir sauðfé. Búið er að ryðja bíl- veg frá Ásgarði í Hvamms- sveit suður að Breiðabólstað í Miðdölum. Eftir helgina verður sennilega ýtt á Fjallinu, (Bröttu brekku). Prófessoj; Dungal bar fram kröfuna um að mjólkin verði D- vítamín-bætt, þar sem það sé mjög auðvelt. Þessi aðferð til að auka D vítamín-innihald mjólk- urinnar ryður sér mjög til rúms og t. d. í Vestur-Þýzkalandi er hún notuð í 180 mjólkurbúum. ÓÞEKKT SÍÐAN 1950 Próf. Dungal segir fi'á einu dæmi, bænum Oldenburg, sem sé tvisvar sinnum stærri borg en Reykjavík. Síðan 1950 er bein- kröm í börnum borgarinnar óþekkt. Prófessorinn segir að kostn- aðurinn við að bæta D vítamíni i mjólkina sem fer gegnum Mjólk- urstöðina hér í Reykjavík á dag, 60—70.000 litra, muni kosta alla um 300 kr. á dag eða Vz eyri á lítra, sem innihaldi á eftir 1000 einingar af D3. ÚR SÖGUNNI Lýkur prófessorim: þessari merku grein sinni með þeim orð- um að ef að þessu ráði yrði horf- ið, sem hann svo mjög hvetur til, þá mundi beinkramarhættan hverfa úr sögunni að mestu eða öllu leyti. Barnshafandi konur og gamalt fólk sem ekki fer mik- ið út myndi síður fá bakverki og gigt, sem svo lengi hefur legið í landi hér. HÖFN í Hornafirði, 30. marz: — Einstök veðurblíða er hér og er allt útlit fyrir að þessi vetur ætli að líða svo að hér falli ekki snjór. Þó eru aðeins undantekningar á því. T.d. hefur á tveimur bæjum í Lóni í Þórisdal og Hvammi, verið haglaust mikinn hluta vetr- arins, þó að autt hafi verið á næstu bæjum sitt hvorum megin við þá. — Gunnar. Flugfélag íslands fjolgar utanlandsferðum FLUGFÉLAG ÍSLANDS hyggst fjölga mjög flugferðum milli ís- lands og útlanda í sumar. Gengur sumaráætlun félagsins í gildi 1. maí, en hún verða að mestu óbreytt frá því, sem nú er, þar til 1. júní. Þá verður ferðum fjölgað í 6 í viku frá Reykjavík til útlanda, en síðan aftur um mánaðamótin júní—júlí í 9 ferð- ir í viku hverri til 5 staða er- lendis, en þá mun Flugfélag Is- lands hafa tekið báðar Viscount- Brezk verkföll aukast London 30. marz. VERKFALLH) í skipasmíðastöðv um og verksmiðjum í sex iðnaðar borgum Bretlands, hefur nú stað- ið í viku og breiðist enn út. í dag hófu 500.000 menn verkfall, og hefur þá alls hálf önnur millj. manna lagt nlður vinnu, en það mun vera um helmingur allra þeirra, sem vinna í verksmiðjum Bretlands. Verkalýðsleiðtogar hafa logt til, að hinn helnringurinn leggi líka niður vinnu, ef ekki næst samkomulag innan viku. Ekki er búizt við neinum sáttatilraunum yfir helgina, en á þriðjudag munu leiðtogar þeirra verkalýðssam- taka, sem hhit eiga að máli, koma saman og ræða þá tillögu verka- málaráðherrans, að verkfallinu verði frestað, þangað til dómstól- arnir bafa rannsakað deiluna. Frá Reuter. flugvélar sínar í notkun. Eru þetta fleiri ferðir en félagið hef- ur nokkru sinni fyrr haldið uppi milli landa síðan það hóf milli- landaflug fyrir tæpum 12 árum. Flestar verða ferðimar til Kaup mannahafnar, eða alls 7 í viku. Verður flogið þangað frá Reykja vík alla daga vikunnar að fimmtu dögum undanskildum. Þá verður tekin upp sú nýbreytni í sumar, að fara tvær ferðir til Kaup- mannahafnár á laugardögum. — Mun önnur flugvélin fljúga þang c.ð beint, en hin hefur viðkomu í Glasgow á leiðinni. Til Bretlands verða fleiri ferð- ir en nokkm sinni áður, eða 8 í viku. Verður flogið þangað alla daga nema laugardaga. Verða tvær þessara ferða beint til Lund úna og fjórar ferðir til Glasgow. Til Hamborgar verða farnar þrjár ferðir í viku í sumar og tvær til Oslóar. Með því að taka í notkun hinar nýju og hraðfleygu Viscount-flug vélar og auka um leið ferðafjöld- ann milli íslands og nágranna- landanna, stefnir Flugfélag I»- lands að því að veita sem bezta og hagkvæmasta þjónustu í miUú landaflugi okkar íslendinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.