Morgunblaðið - 31.03.1957, Side 9

Morgunblaðið - 31.03.1957, Side 9
Sunnud. 31. marz 1957 |f o R C TJ N n T 4 f> 1Ð Reykjavikurbréf: Laugardagur 30. marz Aldaraímæli Geirs rektors - Eldsvoðar í sveitum - Frjáls menning - Ileiftin gegn Gunnari Gunnarssyni - Hver hvetur til verkfalla? - 15-18 prósent kauphækkun - „Tíminn66 þarf að þegja um margt - Þjóðvilja-þj ónkun Tímans - Stórhugur stjórnarliðsins - Búnaðarmála- stjórnin nýja - Vitnisburður Áka um Finnhoga Rút. Aldarafmæli Geirs rektors GEIR rektor Zoega átti aldar- afmæli hinn 28. marz s. 1. Geir var merkur orðabóka-höfundur, og kennslubók hans í ensku var lengi notuð af öllum íslending- um, sem það mál lærðu. Hún var að vísu kölluð byrjendabók, en ágætur enskumaður, sem víða hafði farið, lét eitt sinn svo um- mælt, að sá, sem kynni „Geir“ gæti hvarvetna bjargað sér. Þeim, sem nutu kennslu Geirs Zoega og skólastjórnar, er hann þó hugstæðastur fyrir hin persónulegu kynni. Góðvild hans og ljúfmennska var öllum auðsæ. Hann var að vísu ekki sérstak- ur skörungur, en happasæl stjórn hans á Menntaskólanum hálfan annan áratug sýndi, að hann var búinn þeim kostum, er góðan stjórnanda prýða. Mildi, skilning- ur og lipurð ná í þeim efnum oft- ast lengra en harka og sjálf- birgingsháttur. Eldsvoðar í sveitum AÐ undanförnu hefur verið óvenjumikið um eldsvoða í sveit- um landsins. Hver bóndabærinn hefur brunnið eftir annan og fjölskyldur standa uppi allslaus- ar með ung börn. Góðviljaðir menn beita sér fyrir samskotum til þeirra, sem fyrir óhöppunum hafa orðið. Það er góðra gjalda vert og kemur vonandi að til- ætluðum notum. En ekki er það einhlítt. Aðilar, sem hér um f jalla, yfir-' völd og aðrir, verða að kanna, hvort orsakirnar til brunanna eru viðráðanlegar eða ekki. Ef til vill gæta menn ekki nægrar varúðar í meðferð nýrra tækja og þarf þá rækilegrar fræðslu við. Ef til vill er um að ræða ófullkomin tæki eða bilaðar leiðslur. Með því þarf eftirlit. Sjálfsagt er erfitt að koma eftir- liti við í dreifðum byggðum landsins. En hér er um slíkt al- vörumál að ræða, að réttir aðilar verða með gaumgæfni að íhuga, hvað megi verða til varnaðar. Frjáls menning UM síðustu helgi var hér í bæ stofnað nýtt félag „Frjáls menn- ing“. Félag þetta á sér hliðstæð- ur í flestum lýðfrjálsum löndum Norðurálfu. Er sízt vanþörf á, að slíkum félagsskap sé einnig kom- ið á fót hér á landi. Frjálshuga menn verða að átta sig á, að þó að þá greini á um margt og eigi sízt af öllu að láta eðlilegan ágrein ing niður falla, þá mega þeir ekki láta deilurnar hertaka svo hug sinn, að þeir verði að bráð einræði og óþolgæði. Þess vegna ber mjög að fagna því, að menntamenn úr öllum lýðræðis- flokkunum skyldu taka saman höndum um stofnun þessa nýja félags. Danskur andans maður og skáld, Lembourn að nafni, kom hingað til lands til að greiða fyr- ir félagsstofnuninni. Að henni lokinni hélt hann fjölsóttan fyr- irlestur í háskólanum. Þeir, sem hlýddu á mál hans, hrifust af yfirlætisleysi hans, skýrleik og heilbrigðum skoðanahætti. Kommúnistar tóku Lembourn *vo sem þeirra var voa og vísa. Alþýðublaðið lýsir þeim við- brögðum samstarfsmEuma sinna á þessa leið: „-------Er hneyksli að Þjóð- viljinn skuli snúa út úr orðum Lembourns og vera með skæt- ing í garð hans. Blaðinu væri sæmra að deila málefnalega við manninn og reyna að hnekkja ttrðum hans með rökum. Það „Aiþýðublaðið“ og „Þjóðviljinn“ skýra frá kjarabótum sjómanna með 5 dálka fyrirsögnum á forsíðu. reyna Þjóðviljamennirnir ekki“. Málgagn menntamálaráðherra endar frásögn sína svo: „--------er illa farið að Þjóð- viljinn skuli þurfa að verða þjóð sinni til skammar með fúk- yrðum og loddaraskap. Það er að gera ósómann að útflutnings- vöru“. Heiftin gegn Gunnari Gunnarssyni ÞJÓÐVILJINN lét ekki við það sitja að ráðast gegn hinum er- lenda gesti, heldur steypti hann sér rétt einu sinni yfir Gunnar Gunnarsson. Þetta aðalmálgagn íslenzku ríkisstjórnarinnar rifj- aði af þessu tilefni upp gamlar rógsögur um Gunnar, gamalt níð, er það þegar hafði verið dæmt fyrir. Refsingin er þessum mönn- um engin áminning. Þeir telja, að rógurinn hafi þeim mun meiri áhrif, sem hann er oftar endur- tekinn. Þeim er það aðeins auk- in ánægja, ef þeir brjóta þar með gegn lögum og landsrétti. Níðið um Gunnar Gunn- arssonar hefur ekki tilætluð áhrif. Gunnar hefur með skáld- sagnagerð sinni borið hróður ís- lands víðar en nokkurt annað skáld. Beztu verk hans munu ætíð verða talin með því ágæt- asta, sem íslenzkir menn hafa ritað. Gunnaiú væri því ekkert hægara en njóta nú lofs allra samlanda sinna. Sízt stóð á kommúnistum að hampa honum, á meðan þeir héldu að þeir gætu misnotað nafn hans. En Gunnar Gunnarsson lætur sér ekki nægja forna frægð, hann er flestum framar lifandi maður og fylgist með tímanum og varar þjóð sína hiklaust við þeirri hættu, sem hann telur nú mesta að henni steðja. Þar af kemur fjandskap- ur kommúnista. Sá fjandskapur mun efla fylgi allra þjóðhollra manna við Gunnar. Árásirnar verða honum vonandi einungis örvun til að halda merki frelsis- ins hátt á loft. Hver hvetur til verkfalla? TÍMINN, heldur áfram fjand- skapnum við að satt sé sagt frá helztu tíðindum, er með þjóð- inni gerast. S. 1. þriðjudag segir Tíminn t. d.: „-------gerir Bjarni sem mest úr kjarabótum þeim, sem flug- menn og farmenn hafa fengið nýlega. Tilgangurinn rneð því er bersýnilega sá, að hvetja aðra til að fara sömu leiðina. I því sambandi er ekkert verið að ræða um það, hvort atvinnuveg- irnir þoli almennar kauphækk- anir“. Morgunblaðið hefur fyrr og síðar haldið því fram, að kaup- hækkanir, sem ekki hefðu stoð í efnahagslífi landsins, væri eng- um til góðs, heldur hlytu að horfa til ófarnaðar. Þessari skoðun hef- ur Morgunblaðið stöðugt fylgt, hvort sem Sjálfstæðismenn hafa verið við völd í ríkinu eða ekki. Hefur það oft mátt þola köpur- yrði frá andstæðingum sínum af þessum sökum, Tímanum ekki síður en öðrum. Skammirnar hafa þó ekki haggað sannfæringu blaðsins, né mun það nú láta hnýfilyrði Tímans verða til þess að það hverfi frá sönnum frétta- flutningi. Óhagganleg staðreynd er það, að skömmu fyrir áramót fengu blaðamenn verulega kauphækk- un með verkfallshótun. Frá ára- mótum hefur síðan hvert verk- fallið rekið annað og þau öll end- að með kjarabótum. Morgunblað- ið hefur aldrei reynt að gera meira úr þessum kauphækkunum en rétt var, heldur talið skyldu sína að skýra frá, hverjar þær raunverulega væri. Tíminnheldur aftur á móti að hægt sé að eyða þeim með þögninni einni, og full- yrðir, að frásögn af staðreyndum hljóti að hvetja aðra til að feta í fótspor kröfugerðarmannanna. En ef svo er, hverjir eiga þá hér ríkastan hlut að máli? Á þessari síðu er birt mynd af tveim fyrirsögnum, annari úr Alþýðublaðinu og hinni úr Þjóð- viljanum. Rúmlega vika var á milli þess, að fyrirsagnirnar birt- ust. Er með þessum fyrirsögnum verið að egna til nýrrar kaup- gjaldsbaráttu? Ef svo er, þá eru samstarfsflokkar Framsóknar Sjálfstæðismönnum miklu sek- ari í þessum efnum. Ætti Tím- inn því að snúa reiði sinni að þeim áður en næsta heiftarkast heltekur hann gegn Morgunblað-'1 inu. 15—18 prósent kauphækkun MORGUNBLAÐIÐ skal sízt setja út á, að ríkisstjórnin beitti sér fyrir 15—18% kauphækkun til sjómanna um síðustu áramót, eins og Þjóðviljinn fullyrðir nú eftir Lúðvík Jósefssyni. Eins og Þjóðviljinn segir: „Er það út af fyrir sig athyglis- vert að sjómenn náðu nú fram slíkri leiðréttingu á kjörum sín- um án nokkurra fórna. Hingað til hafa þeir, eins og verkalýðs- stéttin almennt orðið að leggja á sig vinnustöðvun og tekjumissi til að ná fram nokkurra aura hækkun á fiskverði og öðrum kjarabótum". Enn segir blaðið: „Sjómenn hafa aldrei átt því að venjast að ná slíkum réttar- bótum fram án þess að fórna neinu fyrir“. Ríkisstjórnin hefur auðsjáan- lega talið, að samtímis því, að hinar gífurlegu álögur jólagjaf- arinnar voru lagðar á landsmenn yfirleitt, yrði að rétta hag sjó- manna sem þessu næmi. En ef þetta er staðreynd— og þá verður að hafa í huga að vissu- lega hafa útreikningar og tölur Lúðvíks Jósefssonar hingað til ekki reynzt óbrigðull sannleiki, — af hverju var þá þagað um þetta? Af hverju var ekki gerð grein fyrir þessum mikilvægu hækkunum um leið og jólagjaf- arfrumvarpið var samþykkt? Af hverju er það fyrst við umræðu á Alþingi i lok marz, sem Lúðvík Jósefsson lætur toga yfirlýsing- ar um þetta út úr sér? Af hverju þegir Tíminn jafnvel enn um þessi stórtíðindi? Tíminn þarf að þegja um margt ÓNEITANLEGA er það orðið býsna margt, sem Tíminn treyst- ir sér ekki til að segja frá og ræða um. Blað forsætisráðherr- ans segir ekki frá meginbreyt- ingu á kaupgjaldi einnar höfuð- stéttar landsins. Ef þegja verður um þvílík tíðindi, er ef til vill afsakanlegra, þó að kommúnist- um sé þolað að stela nafni góðs Framsóknarmanns á framboðs- lista, án þess að hann megi segja frá stuldinum í Tímanum, svo sem reyndist um Andrés Sverris- son. Þá er einnig skiljanlegt að reyna eigi að láta Iðjusukkið, ásamt eyðingu fylgiskjalanna í því félagi, leynast í þagnarhjúpn- um. Þannig mætti halda lengi áfram að telja dæmin um Tíma- þögnina. Sjálfsagt halda forráða- menn Tímans, að þögnin komi þeim vel, en auðvitað verður af- leiðingin sú ein, að fleiri og fleiri sannfærast um, að fréttaflutningi þeirra er í engu trúandi. Bændur veita því t. d. áreiðan- lega athygli, að Tíminn felldi niður fréttir af Búnaðarþingi, þegar kom að afgreiðslu helztu mála, og þagði alveg um átölurn- ar út af meðferðinni á frv. um veðdeild Búnaðarbankans. Þjóðvilja-þjónkun Tímans ÞÓ að Tíminn þólcnist Þjóðvilj- anum með því að þegja um Iðju- sukkið, stuldinn á nafni Andrés- ar Sverrissonar og annað slíkt, þá lætur hann hafa sig til þess að taka upp úr Þjóðviljanum níð um stjórn Sparisjóðs Reykjavík- ur. Leynir sér raunar ekki, að þar er reynt að ná sér niðri á Bjarna Benediktssyni, sem er einn af stjórnendum Sparisjóðs- ins. Sakarefnið á að vera það, að stjórn Sparisjóðsins hafi lán- að, innan hins almenna veðlána- kerfis, til íbúða í einstakra manna eigu, er þeir ætluðu til útleigu. Sannleikurinn er sá, að þær íbúðir, sem hér er um deilt, eru tæplega fimmtándi hluti af þeim íbúðum, sem Sparisjóðurinn lán- aði fé til að koma upp á árunum 1955—1956. En stjórnarblöðin segja ýmist berum orðum eða láta í það skína, að nær helm- ingur lánanna hafi verið veittur í þessu skyni. Þar er því um al- gera blekkingu að ræða. Aðalatriðið er þó, hvort menn vilja eyða húsnæðisskortinum með öllum löglegum, tiltækum ráðum eða ekki. Eitt ráðið er það, að hvetja þá til að byggja, sem eiga fé og byggja bezt, fljót- ast og ódýrast. Sá aðili, sem- hér á hlut að máli, hefur einmitt unnið sér viðurkenningu öðrum fremur í því efni. Jafnframt því, sem sjálfsagt er að greiða fyrir því, að sem flestir geti eignazt eigin íbúðir, vita allir, að högum ýmissa er svo háttað, að þeir hafa ekki færi á því. Fyrir þörfum þessara manna verður einnig að sjá, og það verður ekki gert með öðrum hætti en að fá hina færustu menn, sem fé hafa til þess, til að byggja og leigja síðan út. Meðan einkafjármagn er löglegt og ætl- ast er til þess, að einstaklings- framtakið standi að verulegu leyti undir framförum þjóðarinn- ar, þá er algjört glapræði að ætla að gera það útlægt frá lausn slíks vanda, sem lausn hús- næðismálanna er. Stórhugiir stjórnarliðsins STÓRHUGUR stjórnarliða kem- ur hins vegar fram í því, að nú boða þeir nýjar aðgerðir í hús- næðismálum og eiga þær helzt að vera þær, að minnka íbúðirn- ar frá því, sem að undanförnu hefur verið tíðkanlegt. Mjög er harmað, að lítið sem ekkert sé Fraiuh. á bls. 11 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.